„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hinn fullkomni morgunmatur

Tillögur að hollum og góðum morg­un­mat.

Hinn fullkomni morgunmatur
Egg eru ein­stak­lega prótín­rík og holl fæða sem er til­valið að neyta á morgn­ana.

Chia-grautur
Chia-fræ eru ein­stak­lega nær­ing­ar­rík fæða en þau inni­halda bæði nóg af kalki og pró­tíni og hafa oftar en ekki verið kölluð ofur­fæða. Þau geta dregið í sig allt að tífalda þyngd sína af vökva og eru þannig seðj­andi en jafn­framt auð­melt­an­leg. Gott er að und­ir­búa chia-graut kvöldið áður og setja kúf­aða mat­skeið af chia-fræjum og 100 ml af vökva, hægt að nota vatn, möndlu­mjólk eða hvað sem þig lystir, í skál eða nest­is­box og inn í ískáp. Morg­un­inn eftir munu chia-fræin hafa drukkið í sig mest­allan vökvann og þá má bæta við þeim ávöxtum sem eru við hönd­ina.

Hafra­grautur
Hafra­grautur er ákaf­lega hollur og sað­samur morg­un­matur. Hann inni­heldur mikið af trefjum en þær eru ekki meltar eða frá­sog­aðar heldur fara þær í gegnum melt­ing­ar­kerfið og draga í sig vökva. Hafrar geta ýmist verið litlir og stórir, grófir og fínir, glút­ein­lausir eða líf­rænir, hver og einn verður að velja þá hafra sem hentar honum best. Sumum þykir hafra­graut­ur­inn bestur upp á gamla mát­ann, soð­inn með ögn af salti, en einnig er hægt að bæta ávöxtum og skyri saman við eftir að graut­ur­inn er soð­inn eða sjóða epli og kanil með höfr­unum.

Hrist­ingur
Und­an­farin ár hafa vin­sældir hrist­inga og safa auk­ist til muna og algengt er að fólk fái sér slíkt í morg­un­mat eða í milli­mál seinnipart dags. Þó að það sé hægt að kaupa góða hrisit­inga í ýmsum versl­unum er einn­nig auð­velt að gera góm­sætan hrist­ing heima, það eina sem til þarf er bland­ari eða mat­vinnslu­vél. Blandaðu um það bil 300-400 ml af vökva, hægt að nota kókos­vatn, möndlu­mjólk, krana­vatn eða safa, og þeim ávöxtum og græn­meti sem þú vilt nota saman í bland­ara. Ekki sleppa græn­met­inu því það gerir hrist­ing­inn holl­ari og nær­ing­ar­rík­ari, gott er að hafa það fyrir reglu að hafa að minnsta kosti eina teg­und græn­metis. Einnig getur verið gott að nota prótín­duft eða ein­hvers konar hnetu­smjör út í en þá er betra að bæta dálitlu vatni saman við. Til þess að auka sætu er hægt að nota döðlur eða fljót­andi steviu.

Egg
Egg eru ein­stak­lega prótín­rík og holl fæða sem er til­valið að neyta á morgn­ana. Gerðar hafa verið nokkrar rann­sóknir á ávinn­ingi þess að fá sér egg í morg­un­mat, fram yfir korn­meti, og hafa þær allar sýnt að eggin verða til þess að fólk borðar færri hita­ein­ingar í hádeg­inu og það sem eftir er af deg­inum. Eggin eru ein­fald­lega svo mett­andi að ein­stak­lingar borða minni skammta. Einfalt er að grípa með sér eitt eða tvö harðsoðin egg og borða í morg­un­mat ásamt ein­hverju góðu græn­meti, til dæmis avókadó, en einnig er snið­ugt að útbúa eggja­hræru með því græn­meti og kjöti sem maður vill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mataræði

Þetta borðar Hailey Bieber
Mannlífið

Þetta borðar Hailey Bieber

Mataræði Hailey Bieber Hin 25 ára gamla Hailey Bieber byrj­aði fyr­ir­sætu­fer­il­inn aðeins 17 ára gömul og hefur setið fyrir í mörgum af þekkt­ustu tísku­tíma­ritum heims. Hailey hefur unnið fyrir tískurisa á borð við Ralph Lauren og Tommy Hilfiger en hefur hún einnig verið mikið í sviðs­ljós­inu vegna eig­in­manns­ins, popp­stjörn­unnar Justin Bieber. Hailey leggur mikla áherslu á hollt og nær­inga­ríkt matar­æði...
Þetta borðar hin síunga Jennifer Aniston alla daga
Menning

Þetta borðar hin síunga Jennifer Aniston alla daga

Hollywood leik­konan Jennifer Aniston(52) er ein þeirra stjarna sem virð­ist ein­fald­lega ekki eld­ast. Unglegt útlit leikkon­unnar hefur verið umtalað í mörg ár og fólk velt því fyrir sér hver leynd­ar­dóm­ur­inn sé. Jennifer leysti frá skjóð­unni í við­tali við Elle og sagði frá matar­æði sínu yfir dag­inn. Gull­fal­leg­Mynd: Jon Kopaloff / FilmMagic Í morg­un­mat seg­ist Jennifer byrja dag­inn á að drekka...
„Ég er í betra formi núna en þegar ég var tvítug”
Viðtal

„Ég er í betra formi núna en þegar ég var tví­tug”

Gyða Dís jóga­kenn­ari breytti alger­lega um stefnu fyrir um 20 árum en áður hélt hún sér gang­andi með gosi og súkkulaði. Síðasta ára­tug­inn hefur hún svo gengið skref­inu lengra með því að vera 90 pró­sent á hrá­fæði. „Þrátt fyrir almennt heil­brigt líf­erni er það engin til­viljun að ég umbreytti lífs­háttum mínum fyrir tutt­ugu árum. Ég á þrjá syni ásamt eig­in­manni...
Fólk

„Ættu að hugsa sinn gang alvar­lega“

Einka­þjálf­ar­inn Björn Þór Sig­ur­björns­son segir allt eða ekk­ert-hug­ar­farið stór­hættu­legt, þar sem fólk ætli sér stóra hluti strax frá byrjun og taka matar­æðið og hreyf­ing­una föstum tökum af mik­ill ákefð. „Það er eig­in­lega dæmt til að springa í and­litið á okkur með þeim afleið­ingum að við hættum,“ segir Björn. „Ef þú hefur getu og tíma til þess að mæta sex sinnum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu