„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Verstu mistökin að missa matinn í gólfið

Sjón­varps­stjarnan Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir er flestum lands­mönnum vel kunn en hún gaf nýverið út bók­ina Hvað er í mat­inn. Þar er hægt að finna ein­faldar upp­skriftir góm­sætra rétta fyrir öll kvöld vik­unnar.

Verstu mistökin að missa matinn í gólfið

Hvað er í mat­inn er þriðja mat­reiðslu­bók Jóhönnu Vigdísar en fyrri bækur hennar, Í mat­inn er þetta helst og Seinni réttir, komu út fyrir rúmum ára­tug. Tildrög þess að Jóhanna Vigdís sett­ist aftur við skrifin var mat­reiðslu­nám­skeið sem hún sótti í Flórens en margir rétt­anna eru undir ítölskum áhrifum.

„Mig langar líka að hvetja sem flesta áfram í bar­átt­unni gegn mat­ar­sóun,“ segir Jóhanna Vigdís aðspurð um hvatann að baki bók­inni.

Þrátt fyrir að hafa flutt fréttir í ára­tugi var það mat­ar­gerðin sem dró að sér mestu athygl­ina.

„Ég var með mat­reiðslu­þátt á RÚV árið 2009 eftir að ég gaf út mat­reiðslu­bæk­urnar. Það var svo merki­legt að þrátt fyrir að hafa flutt fréttir í ára­tugi var það mat­ar­gerðin sem dró að sér mestu athygl­ina. Á ein­hvern hátt er eins og umræðan um mat og mat­reiðslu sé á hlut­lausu svæði. Þegar ég byrj­aði að hugsa um þessa bók var fyrsta hugsun mín: Hvað sam­einar? Hver er algeng­asta spurn­ingin á hverju heim­ili? Á hverjum degi stöndum við frammi fyrir þess­ari ákvörðun, að hafa eitt­hvað í mat­inn sem freistar, kætir og sam­einar. Þannig varð bókin til.“

Af pönn­unni og niður á gólf

Aðspurð um ráð fyrir nýgræð­inga innan eld­húss­ins ítrekar Jóhanna Vigdís svo að mikla ekki hlut­ina fyrir sér.

„Þeir sem eru að halda sín fyrstu jól sjálfir eiga að setja ein­fald­leik­ann á odd­inn. Hafa til dæmis bara einn rétt eða bara eitt­hvað sem menn kunna að búa til. Ekki að búa til flækju­stig ef það er óþarfi. Jólin snú­ast fyrst og fremst um sam­veru og að njóta, og ein­fald­leik­inn er alltaf bestur. Auðvitað gera allir mis­tök og að mínu mati hafa mín verstu mis­tök verið að missa mat­inn í gólfið eins og gerð­ist hérna um árið hjá mér þegar við Guð­mundur vorum nýbyrjuð að búa og systir mín var í mat. Allt fór af pönn­unni hægt og rólega niður á gólf, beint á teppið. Við bjuggum til þessar fínu sam­lokur á eftir.

Síðustu ár höfum við haft for­rétt, risotto með humri.

Annars höfum við alltaf kalkún með öllu til­heyr­andi á aðfana­ga­dags­kvöld. Fylling, heima­til­búið rauð­kál, brún­aðar kart­öflur og steiktar og sósur við allra hæfi. Síðustu ár höfum við haft for­rétt, risotto með humri, sem minn ynd­is­legi til­von­andi tengda­sonur á allan heið­ur­inn af. Heimtail­bú­inn ís í eft­ir­rétt með möndlu er svo alltaf á sínum stað. Hann er alltaf sá alvin­sæl­asti á mínu heim­ili, alla daga árs­ins.“

Með­fylgj­andi er upp­skrift frá Jóhönnu að risotto, full­kom­inn for­réttur.

Hátíðlegt Saffran-risotto

Risotto er til í ótal myndum, þetta er ein þeirra og hún er virki­lega góð. Ef þið notið humar í skel skuluð þið alls ekki henda skelj­unum því þær eru frá­bærar til að sjóða í súpu næsta dag og fá þannig góðan kraft. Ef þið eigið ekki saffran má alltaf bjarga sér með túr­meriki.

Jóhanna borðar risotto með humri í for­rétt á jól­unum.

humar / risa­rækja, magn eftir smekk
1 laukur
2 hvít­lauks­rif
olía til steik­ingar
2 msk. smjör
250 g risotto-hrís­grjón
1,2 l græn­met­is­soð
saffran­þræðir
100 g parmesan-ostur

Ef þið eruð með fros­inn humar eða risa­sækju þarf að láta skel­fisk­inn þiðna. Ef þið eruð með humar í skel, takið þá fisk­inn úr skel­inni. Skerið lauk og hvít­lauk smátt. Hitið olíu og 1 msk. af smjöri í potti og steikið lauk­ana í blönd­unni þar til þeir eru orðnir mjúkir.

Blandið nú ósoðnum hrís­grjónum saman við í smáum skömmtum og setjið græn­met­is­soð á milli þar til það gufar upp. Það er gald­ur­inn við risotto, að hræra stöðugt en þetta tekur um 20 mín­útur. Blandið saffrani saman við svo risott­oið fái fal­legan lit. rífið parmesan-ost­inn yfir og blandið saman við.

Bræðið 1 msk. af smjöri á pönnu og setjið svo­lítið saffran saman við. Steikið skel­fisk­inn á öllum hliðum upp úr saffransmjör­inu í stutta stund. Blandið öllu saman og berið fram með brauði og parmesan-osti.

Myndir / Magnús Hjör­leifs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forréttir

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu