„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gömlu góðu súpurnar

Ein­faldir réttir sem öllum finnst góðir.

Gömlu góðu súpurnar
||

Á mínu æsku­heim­ili var gjarnan asp­as­súpa í for­rétt á aðfanga­dags­kvöld og var þá borið nýbakað brauð með. Ég hafði það hlut­verk þennan dag að útvega brauðið, snittu­brauð, sem var búið að panta í hverf­is­bak­arí­inu og fannst mér það mik­il­vægt verk­efni. Sumir eru að stíga sín fyrstu skref í að skapa jóla­hefð­irnar og upp­bökuð súpa er réttur sem ein­falt er að laga og öllum finnst góður. Súpa er líka góður kostur sem for­réttur þegar veislan er stór.

Asp­as­súpa gæti verið málið á aðfanga­dags­kvöld.

ASPASSÚPA

fyrir 6

30 g smjör

3 msk. hveiti

12 dl græn­metis- eða kjúklinga­soð

2 asp­as­dósir ( u.þ.b. 600 g sam­tals)

salt eftir smekk

pipar eftir smekk

2 dl rjómi, þeyttur

2 msk. söxuð stein­selja (má sleppa)

Bræðið smjör í potti, hrærið hveiti út í þar til úr verður smjör­bolla og þynnið síðan út með soð­inu. Byrjið að setja 1 dl af soð­inu og síðan smátt og smátt svo súpan verði vel sam­löguð og fari ekki í kekki, bætið soð­inu af asp­asnum út í í rest­ina. Sjóðið súp­una í 3-5 mín., bætið þá aspas út í og látið allt sjóða saman við vægan hita í 4-5 mín. Saltið og piprið eftir smekk. Hellið súp­unni í diska og setjið rjómatopp á hvern disk. Fallegt er að skreyta ofan á með stein­selju.

Ef ferskur aspas er not­aður í súp­una í stað­inn fyrir aspas úr dós þá er neðsti hlut­inn af stöngl­inum flysjaður létt, asp­as­inn skor­inn í bita og soð­inn í soð­inu í nokkrar mín­útur á sama hátt og gert er í blóm­káls­súp­unni.

BLÓMKÁLSSÚPA

fyrir 4

Nota má sömu aðferð við að gera spergilkáls­súpu.

1 stórt blóm­káls­höfuð, skorið í 4 hluta

12 dl græn­metis- eða kjúklinga­soð

30 g smjör

3 msk. hveiti

salt eftir smekk

pipar eftir smekk

2 dl rjómi, þeyttur

2 msk. söxuð stein­selja (má sleppa)

Sjóðið blóm­kálið í soð­inu þar til það er næstum meyrt. Sigtið soðið frá og geymið. Skiptið blóm­káls­bit­unum í greinar í munn­bita­stærð. Bræðið smjör í potti, hrærið hveiti út í þar til úr verður smjör­bolla og þynnið síðan út með kjöt­soð­inu. Byrjið að setja 1 dl af soð­inu og síðan smátt og smátt svo súpan verði vel sam­löguð og fari ekki í kekki. Sjóðið súp­una í 3-5 mín. og bætið síðan blóm­káli út í og látið sjóða aðeins áfram. Saltið og piprið eftir smekk. Hellið súp­unni í diska og setjið rjómatopp á hvern disk. Fallegt er að skreyta ofan á rjómann með stein­selju eða tímí­an­grein.

BRAUÐBOLLUR

24 stk.

Blóm­káls­súpa og brauð­bollur er fyr­ir­taks mál­tíð.

500 g hveiti

1 tsk. salt

1 tsk. sykur

100 g smjör

½ pk. þurr­ger

3 dl mjólk

1 egg

Blandið hveiti, salti og sykri saman í skál og myljið smjörið í blönd­una. Hitið mjólk­ina þar til hún er fing­ur­volg og stráið þurr­ger­inu úr í, látið standa í 2-3 mín. Sláið eggið út í mjólk­ur­blönd­una og hellið þessu síðan út í hveitið. Hnoðið saman í sprungu­laust deig. Látið deigið í skál og látið lyfta sér á hlýjum stað, undir klút eða plast­filmu, í 30 mín. Hnoðið deigið á ný og skiptið í tvo hluta. Rúllið hvorn hluta í pylsu og skiptið í 12-14 bita. Hnoðið bollur og raðið á ofn­plötur. Látið lyfta sér aftur í 30 mín. og penslið með eggi eða mjólk. Hitið ofn­inn í 225°C. Bakið boll­urnar í 10-15 mín. Má frysta og hita upp aftur við 100°C. Í 10-15 mín.

Umsjón / Sigríður Björk Braga­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður