„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Stolt af fangavistinni“

Í vor fékk Hjördís Svan Aðal­heið­ar­dóttir fullt for­ræði yfir dætrum sínum þremur eftir átta ára bar­áttu. Dæturnar hafa búið hér á landi utan kerfis og án vega­bréfa síðan Hjördís sótti þær ólög­lega til Dan­merkur árið 2013 en hún var í kjöl­farið hand­tekin og dæmd í 18 mán­aða fang­elsi fyrir brott­námið. Þótt Hjördís sé ánægð með þennan mik­il­væga áfanga finnst henni erfitt að fagna, því eftir sitji að svo margir hafi brugð­ist börn­unum hennar. Kerfið og reglu­verkið standi ekki með börnum og margir glími við svipuð mál og þau máttu þola.

„Stolt af fangavistinni“
||||

Þegar Hjördís flúði með dætur sínar til Íslands, með leiguflugi í skjóli nætur, hafði danskur dóm­stóll dæmt að hún og danski mað­ur­inn, sem hún var í for­sjár­deilu við, hefðu sam­eig­in­lega for­sjá yfir dætr­unum og búsetu hjá honum. Hjördísi hafði gengið illa að fá umgengni við stúlk­urnar þar sem mað­ur­inn hindr­aði sam­skipti. Hjördís kærði og fékk að hitta dæt­urnar í kjöl­farið. Fyrir lá að tekið yrði fyrir dönskum dóm­stólum mál þar sem mað­ur­inn sótti um fullt for­ræði yfir dætr­unum. Þrátt fyrir að hafa undir höndum áverka­vott­orð um meint ofbeldi gegn dætr­unum og til­kynn­ingu frá leik­skóla í Danmörku til félags­mála­yf­ir­valda og lög­reglu um meint ofbeldi vissi Hjördís að hún ætti litla mögu­leika í mál­inu. Hún var þegar orðin saka­maður í augun danskra stjórn­valda þar sem hún hafði tvisvar áður farið með dæt­urnar án leyfis manns­ins til Íslands. Í fyrra skiptið hlýddi hún úrskurði íslenskra dóm­stóla og fór sjálf­viljug með dæt­urnar til Dan­merkur eftir að mað­ur­inn kærði brott­námið. Í seinna skiptið neit­aði hún og dæt­urnar voru teknar af henni með valdi þann 29. júní 2012 þar sem meðal ann­ars vík­inga­sveitin var til­kvödd. Þá var búið að lofa að taka þær ekki ef mað­ur­inn kæmi ekki á stað­inn. Maðurinn mætti ekki en stúlk­urnar voru samt teknar og vistaðar hjá vanda­lausum í tvo sól­ar­hringa. Ári síðar við­ur­kenndi Inn­an­rík­is­ráðu­neytið að börnin hefðu verið tekin með ólög­mætum hætti.
Hjördís ákvað því að taka örlög dætra sinna í eigin hendur haustið 2013 og flúði með börnin frá Danmörku en flótt­anum og mál­inu öllu voru gerð ítar­leg skil í íslenskum fjöl­miðlum. Hjördís keyrði í 20 klukku­stundir áður en hún kom á stað í Skand­in­avíu þar sem hún fór huldu höfði í fimm vikur. Hún var ekki með síma, sendi ekki tölvu­pósta og not­aði ekki sam­fé­lag­miðla. Með hjálp föður síns og fleiri sem söfn­uðu fé til að sækja þær með leiguflug­vél komust mæðgurnar til Íslands. Stuttu seinna var mann­inum dæmt fullt for­ræði yfir stúlk­unum og þær því alger­lega í dönsku kerfi auk þess sem hann var með vega­bréf þeirra. Maðurinn kærði brott­námið og sótti um að stúlk­urnar yrðu tafa­laust fluttar aftur til Dan­merkur í beinni aðfar­ar­gerð. Hér­aðs­dómur dæmdi honum í vil og Hjördís áfrýj­aði til Hæsta­réttar. Hæsti­réttur sneri dómnum hins vegar og börnin urðu því áfram á Íslandi, að því er virð­ist vegna form­galla á kæru manns­ins. Þegar úrskurður Hæsta­réttar féll var búið að hand­taka Hjördísi og hún sat í dönsku fang­elsi. Dæturnar voru í umsjá móður hennar og systk­ina á Íslandi.

„Þessi dómur Hæsta­réttar var mik­ill léttir en yfir vofði að mað­ur­inn færi í annað mál og krefð­ist þess að fá börnin afhent,“ segir Hjördís blátt áfram og vílar ekki fyrir sér að rifja málið upp. „Eftir að ég lauk afplánun lét ég lítið fyrir mér fara, naut hvers dags sem við vorum saman og við lifðum eins eðli­legu lífi og unnt var. Þar sem dæt­urnar voru með lög­heim­ili í Danmörku voru þær ekki með sömu rétt­indi og aðrir íslenskir rík­is­borg­arar. Þær voru ekki tryggðar og þurftu til dæmis að greiða fullt verð fyrir alla lækn­is­þjón­ustu, þær fengu ekki frí­stunda­styrk og ég fékk engar barna­bætur, svo eitt­hvað sé nefnt. Elsta dóttir mín gat ekki farið með körfu­boltalið­inu sínu til útlanda þar sem stúlk­urnar voru ekki með vega­bréf. Eins og í svo mörgu var verið að brjóta á rétti þeirra með því að leyfa þeim ekki að njóta sömu rétt­inda, en við gerðum allt til að láta hlut­ina ganga upp. Þetta voru smá­munir í sam­an­burði við það sem á undan hafði gengið og engin ástæða til að rugga bátnum með því að sækja rétt þeirra. Þannig að svona var þetta þangað til að ég fékk for­ræðið og búset­una til mín í maí síð­ast­liðnum.“

„Sjálf hef ég oft velt fyrir mér hvort ég hefði átt að vera áfram í sam­band­inu því þannig hefði ég getað varið börnin mín betur. Þá hefði ég ekki þurft að berj­ast við kerfi í tveimur löndum þar sem margir trúðu mér ekki.“
Hjördís Svan seg­ist ekki hafa hikað við að brjóta lögin til að bjarga börn­unum sínum úr ömur­legum aðstæðum. Hún myndi gera það aftur og sitja aðra níu mán­uði í fang­elsi ef með þyrfti.

Sam­þykkti að biðja aldrei um pen­inga
Í byrjun þessa árs voru tæp­lega fimm ár liðin og lög­maður Hjör­dísar, Kristín Ólafs­dóttir, ráð­lagði henni að prófa að sækja um for­ræði. „Ég fór hefð­bundna leið og mætti hjá Sýslu­manni í svo­kall­aða sátta­með­ferð. Maðurinn mætti ekki og sýslu­manns­emb­ættið gaf þá út sátta­vott­orð sem gefur mér leyfi til að leita til dóm­stóla. Lögmaður minn útbjó stefnu þar sem ég sótt­ist eftir for­ræð­inu og ég þurfti að láta þýða stefn­una yfir á dönsku. Taka átti málið fyrir í byrjun maí en mað­ur­inn svar­aði stefn­unni með samn­ingi þess efnis að ég fengi for­ræðið og búsetu­rétt­inn og að ég gæti aldrei kraf­ist pen­inga af hans hálfu ef dæt­urnar van­hag­aði um eitt­hvað. Ég sam­þykkti þennan samn­ing. Þetta var auð­vitað mjög stór stund í lífi okkar, eitt­hvað sem við höfðum beðið lengi eftir en á sama tíma voru þetta ljúfsár tíð­indi þar sem sömu mis­tökin eru gerð trekk í trekk og af sama fólki. Það hefur ekk­ert breyst í barna­vernd­ar­málum, börn eru neydd í umgengni við ofbeld­is­fulla feður, Danir og fleiri lönd í Evrópu halda áfram að dæma mæður eins og mig í fang­elsi fyrir að verja börn sín fyrir ofbeldi,“ segir Hjördís.
Hún gagn­rýnir að konur sem búið hafi við ofbeldi neyð­ist til að sitja sátta­fundi með ofbeld­is­mann­inum hjá sýslu­manni án þess að mega hafa lög­mann eða annan stuðn­ings­að­ila við­staddan. „Það verður að hugsa til þess að konur sem yfir­gefa ofbeldi eru oft að nið­ur­lotum komnar and­lega og lík­am­lega, hafa kannski búið við ofbeldi í mörg ár og hafa ekk­ert sjálfs­traust. Ofbeld­is­menn eiga það til að við­halda ofbeld­inu árum saman þrátt fyrir að konan hafi yfir­gefið þá en það geta þeir meðal ann­ars gert í gegnum kerfið. Það krefst mik­ils styrks að yfir­gefa ofbeld­is­mann og ekki sjálf­gefið að nið­ur­brotnar konur hrein­lega geti það. Konur sem reyna að verja börn sín fyrir ofbeldi eru dæmdar til að greiða dag­sektir. Þeim er alveg sama þótt þær verði gjald­þrota því þegar vel­ferð barna þeirra er í fyr­ir­rúmi skipta pen­ingar engu máli. Sjálf hef ég oft velt fyrir mér hvort ég hefði átt að vera áfram í sam­band­inu því þannig hefði ég getað varið börnin mín betur. Þá hefði ég ekki þurft að berj­ast við kerfi í tveimur löndum þar sem margir trúðu mér ekki. Þá hefði ég ekki verið úthrópuð í fjöl­miðlum og kommenta­kerfum. Þá hefði ég ekki þurft að heyra fólk segja að þar sem mað­ur­inn er ekki dæmdur hljóti ég að vera að ljúga og þá hefði ég ekki verið kölluð hin alræmda tálm­un­ar­móðir, orð sem ein­stak­lingar nota til að gera lítið úr konum sem tjá sig um ofbeldi. Konur hugsa sig tvisvar um áður en þær ákveða að fara, rétt­ar­kerfið er ekki fyrir þolend­ann heldur fær ger­and­inn allt of oft að njóta vafans. Ég veit um börn sem eiga eftir að leita réttar síns þegar þau hafa aldur til og ætla í mál við íslenska ríkið fyrir að neyða þau í sam­vistir með ein­hverjum sem beitti þau ofbeldi, þrátt fyrir að til væru gögn sem sönn­uðu það.“

„Ég var sett í við­bjóðs­legan fanga­klefa þarna á lög­reglu­stöð­inni í nokkurn tíma. Þar var kalt, alveg dimmt og ég gat setið á stein­bekk.“

Fékk eitt sím­tal eins og í bíó­mynd­unum
En hverfum aftur að atburða­rásinni eftir flótt­ann 2013, athæf­inu sem Hjördís var hand­tekin fyrir og fang­elsuð. „Fljót­lega eftir heim­kom­una byrj­uðu stelp­urnar í skóla þar sem þeim var vel tekið af kenn­urum og nem­endum, þær fóru að æfa körfu­bolta eins og stóri bróðir þeirra og fundu sig vel í þeirri íþrótt. Þó að við reyndum að lifa venju­legu lífi vorum við oft hræddar. Stelp­urnar fyllt­ust hræðslu þegar þær sáu lög­reglu­bíl sem er ekki skrítið miðað við aðgerð­irnar þegar þær voru teknar með valdi af ein­kenn­is­klæddum lög­reglu­þjónum. Einu sinni fékk ég sím­tal frá dóttur minni þar sem hún sagð­ist hafa séð kon­una sem var svo reið þennan dag þegar þær voru teknar, hún var þá að tala um full­trúa sýslu­manns Kópavogs,“ segir Hjördís.
Fljót­lega sendu dönsk yfir­völd nor­ræna hand­töku­skipan á hendur Hjördísi og fóru fram á fram­sal. Að sögn Hjör­dísar var lögð mikil harka í að beiðn­inni yrði fram­fylgt. „Lögmaður minn varð­ist mjög vel og náði að fresta afhend­ingu minni í marga mán­uði en ég var alltaf dæmd í far­bann. Lögmaður minn sýndi fram á að hægt væri að neita afhend­ingu vegna mann­úð­ar­sjón­ar­miða en yrði ég send til Dan­merkur væru börnin mín for­eldra­laus,“ segir Hjördís.
Meðan Hjördís var í far­banni þurfti hún að til­kynna sig á lög­reglu­stöð­inni alla virka daga og gerði það sam­visku­sam­lega. „Einu sinni þegar við fjöl­skyldan vorum að borða kvöld­mat mundi ég að ég hafði gleymt að til­kynna mig. Ég brun­aði á lög­reglu­stöð­ina við Grens­ás­veg en hurðin var læst svo ég bank­aði. Sem betur fer sá mig ein­hver og hleypti mér inn. Ég lagði mig fram við að leyna áhyggjum mínum og kvíða fyrir börn­unum. Þeim leið vel og dætur mínar blómstr­uðu í skóla og íþróttum. Við voru ein­stak­lega heppin með kenn­ar­ana þeirra sem vissu um málið og héldu sér­stak­lega vel utan um þær. Ég á líka ein­staka fjöl­skyldu og vini sem gengu með mér í gegnum eld og brenni­stein sem og frá­bæra lög­menn þau Kristínu Ólafs­dóttur og Hrein Loftsson frá Lög­mönnum Höfða­bakka og Thomas Michael Berg sem var lög­maður minn í Danmörku. Þessu fólki fæ ég seint full­þakkað. Einnig voru margir sem ég þekkti ekki neitt sem buðu fram hjálp sína, ómet­an­legt.“
Í febr­úar 2014 var hins vegar ákveðið að verða við óskum danskra yfir­valda og Hjördís var fram­seld til Dan­merkur. „Eftir að barna­vernd­ar­stofa fór að skipta sér af mál­unum breytti rík­is­sak­sókn­ari ákvörðun sinni á einni nóttu,“ full­yrðir Hjördís. „Haldinn var fundur með lög­reglu og barna­vernd­ar­stofu, fundur sem lög­menn mínir fengu ekki að vita af. Íslensk yfir­völd hafa sjaldan fram­selt íslenska rík­is­borg­ara, ég held að ég hafi verið númer þrjú,“ segir Hjördís.
Hún mætti á lög­reglu­stöð­ina við Grens­ás­veg og var ekið út á Kefla­vík­ur­flug­völl af alþjóða­deild lög­regl­unnar. Þar var hún vistuð í fanga­klefa og danskir lög­reglu­menn fylgdu henni í flugið til Dan­merkur. „Þegar við lentum á Kastrup var sagt við mig: „Hjördís Svan, du er and­holdt,“ eða „Hjördís Svan, þú ert hand­tekin.“ Við tók þriggja klukku­stunda akstur til rík­is­fang­els­is­ins í Horsens en þar var ég sett í lít­inn og ógeðs­legan klefa með litlum bedda. Daginn eftir var ég leidd fyrir dóm­ara sem dæmdi mig í far­bann og ég ætti að til­kynna mig dag­lega á lög­reglu­stöð­ina. Ég var svo hepp­inn að eiga góða frænku og mann hennar að í Horsens sem ég gat verið hjá. Daginn eftir vakn­aði ég frekar kvíðin en ákvað að drífa mig að til­kynna mig á lög­reglu­stöð­inni. Afgreiðslu­mað­ur­inn svar­aði mér ekki þegar ég til­kynnti mig heldur gekk á bak við og kom til baka ásamt tveimur lög­reglu­mönnum sem sögðu aftur: „Hjördís Svan, du er and­holdt,“ en þá hafði ákvörð­un­inni um far­bannið verið áfrýjað. Eins og í bíó­mynd­unum mátti ég fá eitt sím­tal, ég hringdi í pabba til þess að biðja hann um að hafa sam­band við danska lög­mann­inn minn.
Ég var sett í við­bjóðs­legan fanga­klefa þarna á lög­reglu­stöð­inni í nokkurn tíma. Þar var kalt, alveg dimmt og ég gat setið á stein­bekk. Ég fékk ekki að láta frænku mína og mann hennar vita að ég hefði verið hand­tekin og fékk ekki að fara heim til þeirra til að sækja fötin mín. Ég var í íslensku lopa­peys­unni minni og í rauðum gúmmí­stíg­vélum, man það vegna þess að með­fangar mínir sögðu mér seinna hvað þeim fannst skrítið þegar ég birt­ist í þessum klæðn­aði, alls ekki með útlit hins hefð­bundna fanga,“ rifjar Hjördís upp.

„Dag einn hafði lög­maður minn sam­band og sagði mér að Hæsti­réttur hefði snúið dómi Hér­aðs­dóms við og að stelp­urnar ættu ekki að fara til Dan­merkur. Ég gekk rólega inn í klef­ann minn, lok­aði á eftir mér og læsti. Ég skalf, grét og hló til skiptis.“

Lærði að kom­ast af í fang­els­inu
„Mér var ekið í rík­is­fang­elsið í Horsens sem er hámarks­ör­ygg­is­fang­elsi. Á leið­inni sendi ég skila­boð til barn­anna minna og sagði þeim hve heitt ég elskaði þau og þau þyrftu ekki að hafa áhyggjur af mér en ég vildi að þau vissu að þau gætu ekki hringt í mig. Það var mér mik­ils virði að hafa náð að gera þetta áður en sím­inn var tek­inn af mér. Lög­reglu­bílnum var svo ekið inn í bygg­ing­una og hurð­inni lokað áður en ég var tekin út úr bílnum. Mér leið eins og ég væri í amer­ískri bíó­mynd; teknar voru ljós­myndir af mér frá öllum hliðum, tekin fingraför og allt sem ég var með tekið af mér. Þvínæst þurfti ég að afklæð­ast. Kven­kyns­fanga­vörður fylgdi mér inn á gang með fimm klefum. Ég vissi seinna að hún var kölluð Angry Bird þar sem hún var alltaf frekar reið og með eldrautt litað hár. Ég þurfti að byrja á því að þrífa klef­ann þar sem hann var ekki mjög huggu­legur. Áður en ég var læst inni heyrði ég hina fang­ana banka á hurð­arnar því þeir heyðu að ein­hver nýr væri að koma. Þá fyrst átt­aði ég mig á því að karl­menn væru líka í þessu fang­elsi og seinna kom í ljós að ég var eini kven­mað­ur­inn. Það eina sem ég fékk var hand­klæði, lít­ill tann­bursti og tann­krem. Ég fékk ekk­ert af dót­inu mínu né föt fyrstu fjóra dag­ana því verið var að fara yfir allt, meðal ann­ars með hjálp fíkni­efna­hunda,“ segir Hjördís.
Þau voru fimm sem bjuggu saman á gangi og voru með sam­eig­in­lega eld­un­ar­að­stöðu. Fang­arnir þurftu að vera inn­an­dyra allan dag­inn fyrir utan eina klukku­stund á morgn­ana og aðra á kvöldin en þá fengu þeir að fara út í garð og ganga í hringi. Hjördís mátti ekki hringja strax því það þurfti að fara vel yfir þá aðila sem hún mátti hringja í. „Ég mátti þó tala við lög­menn mína, bæði íslenska og danska, og það var virki­lega gott að heyra frá þeim. Það tók mig nokkra daga að aðlag­ast, eða rétt­ara sagt að læra að kom­ast af. Það var ann­að­hvort að liggja öllum stundum inni í klef­anum eins og ég gerði fyrstu dag­ana og hefði í raun geta valið að gera, eða að rífa mig á lappir og takast á við þessa und­ar­legu og hræði­legu lífs­reynslu. Ég ákvað að líta á þetta sem verk­efni sem ég þyrfti að leysa. Ég fór að vinna í verk­smiðju í fang­els­inu en fyrir það fékk ég laun og ég þurfti pen­inga til að borga fyrir mat. Ég byrj­aði einnig í fót­bolta, bad­minton og blaki og við­ur­kenni að það var sér­stakt í byrjun að spila fót­bolta við með­limi glæpa­gengis. Harkan var ekk­ert minni þótt ég væri með og ég var stundum ansi marin eftir leik­ina. Ég skráði mig í skól­ann og lærði dönsku, stærð­fræði og ensku. Ég var virt af sam­föngum mínum því þeim fannst gott hjá mér að bjarga dætrum mínum frá ofbeldi,“ segir Hjördís en hún er þeim eig­in­leikum gædd að geta sam­lag­ast alls­konar fólki og það gerði hún þarna og eign­að­ist góða vini. „Auðvitað ótt­að­ist ég samt suma en þarna voru alls konar menn með óhugn­an­lega for­tíð en líka strákar sem lífið hafði farið hrjúfum höndum um. Bestu stund­irnar voru þegar ég fékk fimm mín­útur til þess að hringja í börnin mín, tvisvar í viku.“

„Ég vona að í fram­tíð­inni geti ég bjargað fleiri börnum með því að berj­ast fyrir bættu kerfi. Þetta mál hefur breytt mér gíf­ur­lega mikið.“

Ákvað strax að áfrýja ekki
Hjördís var í gæslu­varð­haldi í rík­is­fang­els­inu í fimm mán­uði og bjó með alls tutt­ugu og sex karl­mönnum á tíma­bil­inu en þarna var mikið renn­erí af mönnum sem biðu dóma.
„Þarna beið ég eftir að saka­málið á hendur mér yrði tekið fyrir. Heima á Íslandi var líka í gangi afhend­ing­ar­mál sem danski mað­ur­inn sótti. Ég man ekki hve lengi ég hafði setið inni þegar ég fékk fréttir þess efnis að Hér­aðs­dómur hefði dæmt honum í hag og að dóm­ar­inn hefði sagt að það ætti að hjálpa stelp­unum að vera ekki hræddar við pabba sinn vegna þess að þær ættu að vera hjá honum. Heim­ur­inn hrundi og ég gat ekk­ert gert. Eins og alltaf þegar ég fékk nei­kvæðar fréttir tók ég nokkra daga í að liggja og gráta en svo reis ég upp aftur með nýja von í brjósti, eins og alltaf. Á svip­uðum tíma var réttað yfir mér í Kolding. Ég þurfti að mæta þrisvar vegna þess hve umfangs­mikið málið var og mikið af gögnum og var í kjöl­farið dæmd í 18 mán­aða fang­elsi. Danski lög­mað­ur­inn minn vildi strax áfrýja, sagði þetta fárán­legan dóm miðað við gögn. En ég ákvað strax að áfrýja ekki, í fang­els­inu þekkti ég nefni­lega marga sem biðu í allt að ár frá áfrýjun þangað til að mál þeirra var tekið fyrir. Ég vildi biðja um flutn­ing og fara heim til barn­anna.“
Sam­fangar Hjör­dísar lásu margir bók­ina Leynd­ar­málið, The Secret, sem fjallar um að hægt sé að breyta mörgu með góðum hugs­unum, með því að sjá ósk­irnar fyrir sér. „Ég til­eink­aði mér þetta og byrj­aði að skrifa niður á blað aftur og aftur „stelp­urnar verða óhultar“ og „þetta fer allt vel“ og „ég get allt“. Ég sagði börn­unum mínum að gera það sama. Ég reyndi að sjá fyrir mér lög­mann minn hringja í mig og segja mér góðar fréttir sem var erfitt þar sem ég var vön að ímynda mér alltaf það versta. Dag einn hafði lög­maður minn sam­band og sagði mér að Hæsti­réttur hefði snúið dómi Hér­aðs­dóms við og að stelp­urnar ættu ekki að fara til Dan­merkur. Ég gekk rólega inn í klef­ann minn, lok­aði á eftir mér og læsti. Ég skalf, grét og hló til skiptis. Ég var svo heppin að það var föstu­dagur en ég hringdi alltaf í börnin á föstu­dögum. Þau brotn­uðu niður og við grétum í sím­ann, léttir­inn og gleðin voru mikil,“ segir Hjördís.

Fékk flutn­ing í íslenskt fang­elsi
Í júlí 2014 fékk Hjördís að vita að hún mætti ljúka afplánun sinni á Íslandi. „Á sama tíma og það var gott að kveðja fang­elsið í Danmörku var líka erfitt að kveðja suma sem mér þótti orðið vænt um. Sérstök vin­átta mynd­ast þar sem ein­stak­lingar þurfa að hjálp­ast að og treysta hver á annan. Þetta er pínu­lítið sam­fé­lag þar sem fara verður eftir reglum sem aðrir búa til og þú ræður engu. Ég gekk út með tárin í aug­unum, full af gleði og stolti. Núna var ég að fara heim að hitta börnin mín og fjöl­skyldu,“ segir hún bros­andi.
Sömu lög­reglu­menn og fylgdu henni til Dan­merkur fóru með henni heim líka. Hún var sótt út á flug­völl af íslenskum fang­els­is­yf­ir­völdum og færð í Kvenna­fang­elsið í Kópavogi. „Það var skrítið að koma þangað, ég gat hringt þegar ég vildi. Mér fannst lífið í kvenna­fang­els­inu ágætt en það svipar mikið til þáttar­að­ar­innar Fangar sem sýnd var á RÚV. Eftir tvær vikur í Kópavogi tóku við þrír mán­uðir á Vernd. Þá þurfti ég að vera í vinnu eða taka að mér sjálf­boða­vinnu. Ég byrj­aði hjá Samhjálp en fékk svo vinnu á skrif­stofu sem gerði mikið fyrir mig – ég hitti dásam­lega vinnu­fé­laga og það að kom­ast út á meðal fólks var mik­ils virði. Lög­reglan keyrði dag­lega fram hjá vinnu­staðnum til að athuga hvort ég væri ekki örugg­lega í vinn­unni og ég veif­aði þeim út um glugg­ann. Eftir kom­una á Vernd hitti ég dætur mínar fyrst en þær máttu ekki heim­sækja mig í fang­elsið,“ segir Hjördís.
Á Vernd á fólk að mæta milli klukkan 18 og 19 í mat en að sögn Hjör­dísar er það gert til að fylgst með hvort ein­hver sé í rugli. Á virkum dögum þarf að koma í hús fyrir klukkan 23 og fyrir 21 um helgar. „Ég var ekki ein í her­bergi sem voru auð­vitað við­brigði en ég var heppin með her­berg­is­fé­laga þannig að allt gekk vel. Mér fannst reyndar erfitt að vita af því seinna að þarna byggju menn sem dæmdir voru fyrir kyn­ferð­is­brot gagn­vart börnum.
Ég var neydd á AA-fund þótt ég tæki skýrt fram að ég hefði aldrei átt við áfengis- eða vímu­efna­vanda að etja. Allir áttu að fara á þennan fund.
Eftir dvöl­ina á Vernd var ég svo með ökkla­band í viku. Þá þurfti ég að vera komin heim á vissum tíma á kvöldin og mátti að sjálf­sögðu hvorki neyta áfengis né ann­ara vímu­efna, líkt og ann­ars­staðar í fang­elsum. Í fang­els­inu í Danmörku birt­ust fanga­verðir reglu­lega og horfðu á mig pissa í glas til að full­vissa sig um að ég væri ekki að neyta eit­ur­lyfja sem allt var mor­andi af. Í byrjun nóv­em­ber 2014 mátti ég klippa ökkla­bandið af mér og við fjöl­skyldan gerðum það við hátíð­lega athöfn. Þá var ég búin að afplána níu mán­uði eða helm­ing dóms­ins.“

„En ég ákvað strax að áfrýja ekki, í fang­els­inu þekkti ég nefni­lega marga sem biðu í allt að ár frá áfrýjun þangað til að mál þeirra var tekið fyrir. Ég vildi biðja um flutn­ing og fara heim til barn­anna.“
„Svo ég vitni í Sidsel Jens­datter Lyster, sem á svip­aða sögu að baki og ég: Við segjum að fólk sem búi í ofbeld­is­sam­böndum eigi að koma sér í burtu til að vernda börnin. Við gleymum hins vegar að segja þessum illa leiknu for­eldrum að þeir geti ekki verndað börnin sín eftir að þeir fara,“ segir Hjördís

Myndi gera þetta aftur
Mikið var fjallað um mál Hjör­dísar í fjöl­miðlum, bæði hér­lendis og í Danmörku, og almenn­ingur keppt­ist við að hafa skoð­anir á mál­inu. „Sumir töldu að ég hefði fengið hjálp frá yfir­völdum en mín upp­lifun var þvert á móti, flest vann gegn mér. Ég var í miklum mæli gagn­rýnd á sam­fé­lags­miðlum, í sumum fjöl­miðlum og í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla. Ég hef lítið um það að segja, niðr­andi ummæli dæma sig sjálf. Ég er stolt af fanga­vist­inni, hik­aði ekki við að brjóta lögin til að bjarga börn­unum mínum úr ömur­legum aðstæðum. Ég myndi gera það aftur og sitja aðra níu mán­uði í fang­elsi ef með þyrfti,“ segir Hjördís ákveðin. „Ég vona að í fram­tíð­inni geti ég bjargað fleiri börnum með því að berj­ast fyrir bættu kerfi. Þetta mál hefur breytt mér gíf­ur­lega mikið. Þegar ég ákvað að fara úr þessum aðstæðum var ég algjör­lega nið­ur­brotin, þreytt and­lega og lík­am­lega. Mér fannst ég ekki gera neitt rétt, efað­ist um allt sem ég gerði. Ég hafði verið í því hlut­verki í mörg ár að reyna að gera alla glaða í kringum mig, reyna að hafa allt gott. Á þeim tíma er ég ekki viss um að ég hefði lifað fang­els­is­vist af, en þar þurfti ég að trúa á sjálfa mig, ég þurfti að lifa af fyrir börnin mín. Ég fór svo oft út fyrir minn litla þæg­ind­ara­mma, eins og til dæmis með því að mæta á fót­bolta­æf­ingar með 20 karl­föngum, lesa danskt ljóð fyrir framan þá í dönsku­tíma eða rífa kjaft við fanga­verði vegna ósann­gjarnar með­ferðar á sumum föng­unum. Ég var auð­vitað mikið ein og þurfti gjör­sam­lega að breyta hugs­un­ar­hætti mínum, reyna að sjá það góða í öllu og vera þakk­lát. Ég held að það hafi líka létt fang­els­is­vist­ina að ég vissi alltaf að ég var að gera rétt, efað­ist aldrei um það. Ég var örugg­lega eini fang­inn þarna sem var stolt af glæpnum,“ segir Hjördís.
Fram­tíðin er björt hjá Hjördísi og fjöl­skyldu hennar. Dætur hennar hlakka til að kom­ast aftur í körfu­bolt­ann en þær mæðgur verja öllum frí­tíma sínum í íþrótta­húsum á vet­urna. „Svo höldum við áfram að rækta sál og lík­ama, njóta þess að vera saman. Ég held áfram að berj­ast með konum sem eru í svip­aðri stöðu og ég var. Ég hætti ekki fyrr en kerf­inu verður breytt og ýmsir aðilar stíga til hliðar. Svo ég vitni í Sidsel Jens­datter Lyster, sem á svip­aða sögu að baki og ég: Við segjum að fólk sem búi í ofbeld­is­sam­böndum eigi að koma sér í burtu til að vernda börnin. Við gleymum hins vegar að segja þessum illa leiknu for­eldrum að þeir geti ekki verndað börnin sín eftir að þeir fara,“ segir Hjördís að lokum.

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur YSL

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins