„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég er ekki hér til að taka þátt. Ég er hér til að vinna“

„Ég er ekki hér til að taka þátt. Ég er hér til að vinna“
||||||

Rapp­ar­inn Herra Hnetu­smjör hefur skot­ist hratt upp á stjörnu­him­in­inn á Íslandi. Hann er 21 árs gam­all og stjórnar nú fjöl­lista­hópnum KBE, eða Kóp Bois Enterta­in­ment, sem hann stofn­aði og ætlar að gera að stór­veldi. Hópurinn telur meðal ann­ars tón­list­ar­menn­ina Hugin og Birni, og er hug­mynda­fræðin á bak við KBE að gefa ungum og efni­legum tón­list­ar­mönnum tæki­færi til að láta ljós sitt skína. Herra Hnetu­smjör hugsar í pen­ingum, selur sig dýrt og trúir því að hann sé besti rapp­ari á Íslandi.

„Ég held að þú getir ekki verið bestur í neinu ef þú trúir því ekki að þú getir verið bestur. Ég er ekki hér til að taka þátt. Ég er hér til að vinna,“ segir Herra Hnetu­smjör. Hann er mjög öruggur í fasi, eig­in­lega það öruggur að mann grunar að það sé bara upp­gerð. Gríma til að fela óör­yggið innra.

„Já, ég er rosa­lega hroka­fullur,“ segir rapp­ar­inn hisp­urs­laust og heldur áfram. „Það er minn brestur. Ég get verið algjör hroka­bolti og það er mik­ill galli en líka kostur. Hrokinn fer mis­vel í fólk og sumir ein­fald­lega þola mig ekki. Halda að ég sé pínu­lít­ill inni í mér og að hrok­inn sé bara frontur. En ég virki­lega trúi á sjálfan mig. Það ger­ist mjög sjaldan að ég efist um sjálfan mig. Ég trúi og treysti að það fari allt eins og það eigi að fara.“

Herra Hnetu­smjör er vel flúr­aður og er til dæmis með Kóp Boi flúrað yfir mag­ann sinn, sem er vísan í Thug Life sem Tupac var með flúrað yfir maga sinn.

Andleg vakning yfir Akon

Rapp­ar­inn segir hann hafa verið með sjálfs­traustið í botni síðan hann var ungur snáði að alast upp í Hvera­gerði.

„Mamma hefur alltaf sagt að ég sé bestur,“ segir hann og hlær. „Ég er rosa­lega mik­ill mömmu­strákur,“ bætir hann við. Hann er yngstur af fimm systk­inum og eru sextán ár á milli hans og elsta bróður hans. For­eldrar hans eru Árni Magn­ús­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, og Edda Björg Björg­vins­dóttir, fyrr­ver­andi versl­un­ar­kona, en þau eru ekki saman í dag. Herra Hnetu­smjör seg­ist vera afar náinn for­eldrum sínum og systk­inum, þó að hann muni lítið eftir þeim þremur elstu á æsku­heim­il­inu sem var að Lyng­heiði 12 í Hvera­gerði.

„Ég á eina systur sem er tveimur árum eldri en ég og ég man mest eftir henni á heim­il­inu. Hin voru orðnir ung­lingar og ég man lítið eftir þeim heima. Tíminn í Hvera­gerði var mjög næs. Mamma og pabbi eru upp­runa­lega úr Kópavogi en ég held að þau hafi flutt austur því þar var gott að vera og ódýrt hús­næði. Það var líka mjög gott að ala þar upp börn. Ég var alltaf úti að hjóla og allir þekkt­ust þar sem þetta var lítið sam­fé­lag,“ segir Herra Hnetu­smjör. Fjöl­skyldan flutti á Bifröst í hálft ár þegar rapp­ar­inn byrj­aði í 4. bekk og hann kláraði bekk­inn svo í Hvera­gerði. Síðan flutti fjöl­skyldan búferlum í Graf­ar­vog í eitt ár og svo kall­aði 203 Kópa­vogur.

„Ég kenni mig mikið við Kópa­vog­inn. Ég var bara barn í Hvera­gerði og ekki byrj­aður að mót­ast þar sem per­sóna,“ segir rapp­ar­inn en þeir sem hlusta á hann finna sterkt fyrir teng­ing­unni við Kópavog. Til dæmis er auð­velt að þekkja lög Herrans á því að hann byrjar þau á sínum ein­kenn­is­orðum, eða taggi, Kóp Bois. Það var nú samt í Hvera­gerði sem rapp­á­hug­inn kvikn­aði og hefur ekki slokknað síðan.

Rapp­ar­inn seg­ist vera meiri tón­list­ar­maður en bis­ness­maður, en hann er klókur í við­skiptum og ætlar sér að græða mikla pen­inga.

„Ég kynnt­ist rappi í gegnum besta vin minn, hann Bjössa,“ segir Herra Hnetu­smjör en myndin sem prýðir fyrsta plötu­umslag rapp­ar­ans, Flottur skrákur, sem kom út árið 2015, er einmitt af þeim Bjössa þegar þeir voru litlir snáðar. „Bróðir hans, Sammi, var með 50 Cent-plaköt uppi á vegg í her­berg­inu sínu og við stál­umst oft þangað inn til að máta föt af honum. Við hlust­uðum mikið á disk­ana hans en fyrsta lagið sem kveikti áhug­ann hjá mér var Go To Church með Ice Cube, Snoop Dogg og Lil Jon. Ég hugs­aði bara: Vó, hvað þetta er fokk­ing klikkað. Fyrsta platan sem ég keypti mér var síðan Trouble með Akon, þegar við bjuggum á Bifröst. Þá var ég að horfa á Popptíví, sá mynd­bandið við Lonely og fékk and­lega vakn­ingu. Þannig að ég gerði mér ferð í bæinn í Skífuna, keypti plöt­una og hlust­aði á hana í vasa­diskó­inu mínu. Ég var gríð­ar­legur Akon-aðdá­andi og er það enn í dag,“ segir rapp­ar­inn.

Ekki kominn í mútur að rappa um peninga

Þegar hann flutti í Kópa­vog­inn magn­að­ist rapp­á­hug­inn. Hann gekk í Vatns­enda­skóla sem þá var til­tölu­lega nýr og kynnt­ist fljótt strák, Sindra, með svipuð áhuga­mál.

„Þegar ég var í frí­mín­útum í 6. bekk sá ég strák með durag, sem er klútur sem svart fólk notar til að móta afróið sitt, en 50 Cent var alltaf með svona. Þetta var tískan árið 2004 í rapp­inu. Ég gekk upp að honum og sagði: „Bless­aður. Ertu með durag? Ég á líka durag.“ Síðan kynntum við okkur og urðum bestu vinir út frá durag­inu,“ segir Herrann. Fljót­lega byrj­uðu þeir Sindri að fikra sig áfram í tón­list.

„Við stálum kameru frá pabba og byrj­uðum að búa til mynd­bönd. Svo keyptu mamma og pabbi Apple-tölvu, sem í minn­ing­unni var eins og geim­skip, og allt í einu var hægt að klippa mynd­bönd og búa til lög. Við vorum mikið í því, ég og Sindri. Við byrj­uðum að fikta ógeðs­lega mikið og í 7. bekk fórum við að rappa. Við erum báðir miklir aðdá­endur banda­rísks rapps og mér fannst íslenska rapp­senan mjög asna­leg. Þannig að við byrj­uðum að rappa í djóki,“ segir hann en þá fyrst fædd­ist nafnið Herra Hnetu­smjör.

„Ég pikk­aði upp nafnið Herra Hnetu­smjör og Sindri flakk­aði á milli nafna en varð loks Sir Sulta. Saman mynd­uðum við tvíeykið Nauta­lundir. Við vorum alltaf að prakk­ar­ast, spreia á veggi og reyna að full­orðn­ast. Í 10. bekk keypti ég síðan míkró­fón á Netinu,“ segir Herra Hnetu­smjör og bendir á umtal­aðan hljóð­nema sem er enn í dag í góðu gildi í stúd­íó­inu hans. „Við tengdum míkró­fón­inn við Makkann hans pabba, byrj­uðum að stela töktum á YouTube og gera lög sem Nauta­lundir. Ég á þetta ein­hvers staðar í gömlu tölv­unni hans pabba. Lög þar sem við erum ekki komnir í mútur og erum að rappa um pen­inga,“ segir hann og hlær.

Uppreisnarseggur í skóla

Eftir 10. bekk­inn lá leið Sindra í Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti en Herra Hnetu­smjör fór í Mennta­skól­ann í Kópavogi.

„Ég ætl­aði að elta Sindra í FB en komst ekki inn,“ segir hann.
„Varstu svona afleitur náms­maður?“ spyr blaða­maður.

„Tja, ég féll í dönsku og stærð­fræði. Ég er þannig gerður að ég geri ekki það sem ég vil ekki gera. Ég fór í mót­þróa gegn dönsku. Ég próf­aði að læra hana fyrst um sinn en síðan fannst mér hún svo leið­in­leg að ég ákvað að ég ætl­aði ekki að læra hana. Ég var mjög erf­iður í tímum og mót­mælti mikið. Með stærð­fræð­ina, þá sá ég engan til­gang að læra hana. Það eru allir með iPhone og þú þarft ekk­ert að kunna stærð­fræði nema þegar þú þarft að hjálpa börn­unum þínum með heima­lær­dóm­inn. Það eru einu til­vikin þar sem þú þarft á stærð­fræði að halda. Ég var smávand­ræða­barn en samt rosa­lega góður strákur. En ég var upp­reisn­ar­seggur þegar kom að því sem ég vildi ekki gera – þá var ekki séns að fá mig til að gera það. Ég vil bara gera það sem mér finnst skemmti­legt. Mér fannst skemmti­legt í sögu og íslensku en hafði lít­inn metnað fyrir því sem mér fannst ekki skemmti­legt.“

Herra Hnetu­smjör er edrú í dag eftir erf­iða tíma árið 2016.

Partí í kjallaranum hjá Elíasi

Í Mennta­skól­anum í Kópavogi byrj­aði Herra Hnetu­smjör að umgang­ast krakka af Kárs­nes­inu í Kópavogi. Þá fór hann að ein­beita sér enn frekar að rapp­inu.

„Við byrj­uðum að drekka og ung­ling­ast eitt­hvað og ég sýndi þeim þessi gömlu rapp­lög. Þá datt þeim í hug að við ættum að gera lag saman. Þannig að í ein­hverju bríaríi sendi ég skila­boð til Erps á Facebook,“ segir Herra Hnetu­smjör og vísar þar í rapp­ar­ann Erp Eyvind­ar­son. „Ég sagði honum að við værum krakkar úr Kópavogi, værum að gera lag og spurði hvort hann vildi taka þátt í því. Ég sendi honum text­ann en síðan datt þetta lag upp fyrir. En ég hélt áfram að taka upp eitt­hvert fokkerí og sendi á hann. Við byrj­uðum að spjalla og þá fyrst tók ég ákvörðun að verða rapp­ari. Ég ákvað að halda áfram undir nafn­inu Herra Hnetu­smjör og Erpur fór að draga mig, sextán ára gutt­ann, með sér á gigg. Ég man eftir mér að spila á börum úti á landi með Erpi og það var ógeðs­lega gaman. Mikið ævin­týri,“ segir hann. Árið 2014 gaf hann síðan út sitt fyrsta lag, Elías, sem vakti mikla athygli.

„Það varð að ein­hverri költ-klassík meðal ung­linga. Í lag­inu rappa ég um Kárs­neskrakk­ana og að við höfum alltaf verið að drekka og halda partí í kjall­ar­anum hjá strák sem heitir Elías. Algjört ung­linga­dót.“

5000 kall fyrir fyrsta giggið

Í fram­hald­inu gaf Herra Hnetu­smjör út fleiri lög og sum­arið 2014 var hann far­inn að troða upp hér og þar.

„Fyrsta giggið sem ég fékk borgað fyrir var í Hörðu­valla­skóla, á balli fyrir 8. til 10. bekk. Ég átti heima rétt hjá þannig að ég rölti bara yfir og tók giggið. Ég fékk 5000 kall borg­aðan og mér fannst það geð­veikt,“ segir rapp­ar­inn en Erpur var búinn að kenna honum margt á stuttum tíma. „Hann var minn lærifaðir og setti mér alls konar siða­reglur sem ég fór eftir, til dæmis að drekka aldrei fyrir grunn­skóla- eða mennta­skólagigg.“

„Ég ólst upp á hip hop-i og rappi og rappið sem ég hlust­aði á sner­ist um að maður yrði að vera bestur. Menn röpp­uðu um milljón doll­ara bíl­ana sína, að þeir væru bestir og allir aðrir ömur­legir. Ég mót­að­ist af þessu. Ég rappa um að ég sé bestur.“

Eftir þetta sumar eyddi Herra Hnetu­smjör miklum tíma með Erpi, en með­leigj­andi hans á þeim tíma var maður að nafni Arnór Gíslason. Einn dag­inn hringdi téður Arnór í Herra Hnetu­smjör og vildi ger­ast umboðs­mað­ur­inn hans.

„Hann pikk­aði mig upp í MK og við fórum á Taco Bell að ræða málin. Mér fannst þetta kúl. Það var mikið statem­ent að vera með umboðs­mann og hann fíl­aði greini­lega tón­list­ina mína. Við byrj­uðum okkar sam­starf í októ­ber árið 2014. Í fram­hald­inu fór ég að tala við strák sem kall­aði sig Joe Frazier og við sam­ein­uðum krafta okkar. Við gerðum fyrst lag sem var ekk­ert sér­stakt en síðan fórum við í stúdíó og gerðum lagið Hvítur bolur gull­keðja sem var „breakout“ fyrir mig. Upp frá því vorum við alltaf uppi í stúd­íói og bjuggum til fyrstu hitt­ar­ana mína, eins og Selfie,“ segir rapp­ar­inn.

Fyrsta plata rapp­ar­ans, Flottur skrákur, kom út á afmæl­is­degi Herra Hnetu­smjörs, þann 31. ágúst árið 2015. Stuttu síðar gáfu þeir Joe Frazier út svo­kallað mix tape sem heitir Bomber Bois. Þá er KBE, eða Kóp Bois Enterta­in­ment, byrjað að taka á sig mynd og síðar gekk plötu­snúð­ur­inn DJ Spegill í hóp­inn. Þá var kjarn­inn kom­inn – Herra Hnetu­smjör rapp­aði, Joe Frazier bjó til takta, DJ Spegill þeytti skífum og Arnór Gíslason var í hlut­verki umboðs­manns­ins. Rétt er að taka fram að Joe Frazier hætti í KBE fyrir stuttu vegna gruns um stol­inn takt í lag­inu Labb­ilabb á plöt­unni Kópboi. Í hópnum í dag er einnig pródús­er­inn Þormóður.

Mikill léttir að fara í meðferð á Vogi

Á þessum tíma var Herra Hnetu­smjör hættur í MK, en árið 2016 átti eftir að reyn­ast honum erfitt.

„Ég var með fullt af lögum í spilun í útvarpi og var til dæmis bók­aður á stórt svið á Secret Solstice. En ég missti mig. Ég fór út af braut­inni og hætti að gera tón­list. Ég var bara að djamma og spila,“ segir Herra Hnetu­smjör og heldur áfram. „Ég var far­inn að missa tökin meira og meira og sum­arið 2016 missti ég þau end­an­lega. Þá var ég í max rugli og á öllu sem hægt er að hugsa sér. Ég týnd­ist bara í sós­unni. Sumarið 2016 var mjög dimmur tími.“ Þetta ár gaf Herra Hnetu­smjör bara út eitt lag sem hann segir mjög lýsandi fyrir þetta tíma­bil í sínu lífi.

„Ég gerði tvö lög árið 2016 og gaf annað af þeim út – 203 stjór­inn. Þegar ég horfi á fer­il­inn minn eru tíma­mótin, tón­list­ar­lega séð, þegar ég gaf út fyrsta lagið mitt Elías, Hvítur bolur gull­keðja, fyrsta lagið sem ég vann 100% með Joe Frazier sem var miklu meira pro­fessional, og síðan 203 stjór­inn. Þá var ég kom­inn með sól­gler­augu og byrj­aður að öskra Kóp Bois. Herra Hnetu­smjör í dag er mjög mót­aður af 203 stjór­inn. Ég tók með­vit­aða ákvörðun að ég ætl­aði alltaf að vera með sól­gler­augu og nota Kóp Bois sem tagg í öllum lögum. Það var max neysla í gangi þegar ég gaf út 203 stjór­inn og mynd­bandið er heim­ild­ar­mynd um síð­asta djam­mið mitt. Ein af fyrstu lín­unum í lag­inu er: Sól­gler­augu inni því ég er dóp­aður á’því,“ segir Herra Hnetu­smjör, en lagið kom út þegar hann var kom­inn inn á Vog í með­ferð.

„Ég bjó hjá for­eldrum mínum og fór leynt með þetta. En ég þurfti að taka þessa ákvörðun sjálfur að fara inn á Vog og ég gat ekki tekið þessa ákvörðun fyrr en mér leið nógu illa. Það var mik­ill léttir að koma inn á Vog. Eins og þetta væri allt búið. Ég er alkó­hólisti og sama hvað ég var með skýr mark­mið á öllum sviðum og vissi nákvæm­lega hvað ég vildi gera þá tók alkó­hólist­inn alltaf yfir. Það komst ekk­ert að því ég var alltaf að fá mér. Eftir Vog fór ég í mánuð í eft­ir­með­ferð á Stað­ar­felli og þá kom 203 Stjórinn út á Spotify. Ég fór mjög leynt með hvar ég væri og það vissi það í raun eng­inn,“ segir rapp­ar­inn. Áður en hann varð edrú bauðst honum að semja lagið Þetta má með Emmsjé Gauta, sem var stórt tæki­færi fyrir hann, og lagið átti eftir að slá í gegn. Hann samdi text­ann við lagið áður en hann fór í með­ferð og tók upp mynd­bandið þegar henni var lokið.

„Textinn í lag­inu mín megin er bara neysla. Ég segi mikið í hraða part­inum sem fólk kannski heyrir ekki, en ég vitna til dæmis í ser­íur 3 til 7 af Friends þegar Matthew Perry, sem lék Chandler, var í hvað mesta rugli. Lagið kom út í byrjun árs 2017 og það var að skríða yfir milljón spil­anir á Spotify. við tók aðeins heil­brigð­ara líf­erni. Allt varð mun þægi­legra þegar ég hætti í rugli.“

Kúplaði sig út úr djamminu

Herra Hnetu­smjör seg­ist hafa fundið sína leið til að halda sér á beinu braut­inni, þó að suma daga sé það ekki auð­velt.

„Ég þarf að vinna fyrir því að vera edrú og ég legg inn mikla vinnu. Ég spái ekki í það að fá mér allan dag­inn, en ég tók leið­sögn og fór leið sem hjálpar mér að vera edrú. Ég þarf ekki að fá mér svo lengi sem ég held mér á þess­ari leið. Ég kúp­l­aði mig út úr þeim hliðum brans­ans sem ég þarf ekki að vera í – partí­unum og djamm­inu. Ég mæti bara þegar ég á að spila og er far­inn í upp­klapp­inu. Ég hangi ekki niðri í bæ. Ég vakna og vinn í stúd­íó­inu. Síðan fer ég heim til kærust­unnar minnar og horfi á Netflix og tjilla. Ég er ekk­ert að tón­list­ast heima. Ég þvæ þvott, horfi á Netflix og segi kærust­unni minni að ég elski hana. Svo á ég kannski gigg um miðja nótt þannig að ég keyri á stað­inn, tek giggið og fer svo aftur heim. Auðvitað er erfitt að halda rútínu í þessum bransa en ég reyni eins og ég get. Ég er mjög stoltur af því að vera edrú,“ segir hann.

Sú eina rétta

Herra Hnetu­smjör gaf út plöt­una Kópboi í fyrra, en nokkrum mán­uðum áður en hún kom út hætti hann að vinna vinnu sem tengd­ist ekki tón­list og lifir nú algjör­lega af mús­ík­inni. Það var fleira sem gerð­ist árið 2017 en þá kynnt­ist hann líka kær­ustu sinni, Söru, og búa þau skötu­hjúin saman í dag.

„Hún er edrú líka. Ég er mjög þakk­látur að ég kynnt­ist henni ekki þegar ég var í neyslu. Við kynnt­umst í gegnum sam­eig­in­lega vin­konu og hún er sú eina rétta. Það er eng­inn vafi,“ segir rapp­ar­inn. En fílar kærastan rapp?

„Hún fílar mig,“ segir hann og hlær. En hvað með að stofna til fjöl­skyldu, er það eitt­hvað í kort­unum hjá tón­list­ar­mann­inum?

„Ég myndi ekk­ert fríka út ef ég myndi verða pabbi í dag. Ég er á svo allt öðrum stað en ég var á fyrir tveimur árum. Í dag bý ég með kærust­unni minni og rek mitt eigið fyr­ir­tæki. Ég held að ég myndi ekki fríka út þótt það sé ekk­ert á dag­skrá. Það ger­ist bara það sem ger­ist.“

Herra Hnetu­smjör gengur ávallt með sól­gler­augu.

„Mig langar í mikið af peningum“

Herra Hnetu­smjör seg­ist vera meiri tón­list­ar­maður en bis­ness­maður, þótt við­skipta­lega hliðin á tón­list­ar­heim­inum sé honum mjög hug­leikin. Í heimi áhrifa­valda seg­ist hann ekki vilja leggja nafn sitt við vörur sem eru honum ekki að skapi, en þegar ónefnd fyr­ir­tæki voru farin að nota nafnið hans til að selja varn­ing varð honum nóg um og fékk sér einka­leyfi á bæði nafnið Herra Hnetu­smjör og KBE í mörgum flokkum hjá Einka­leyfa­stofu.

„Það hefur komið fyrir að menn hafa notað nafnið mitt til að selja vörur sem ég er ekk­ert tengdur. Ónefnd ísbúð not­aði til dæmis nafnið mitt og svo var líka drykkur sem var kall­aður eftir mér á Reykja­vík Cocktail Weekend. Ég var alls ekki sáttur við það. Nú er þetta á papp­írum og ef þú ætlar að nota nafnið mitt án leyfis þá mætir lög­fræð­ingur á skrif­stof­una þína. Það er ekki næs þegar ein­hver er að græða pen­inga sem ég sé ekk­ert af,“ segir Herra Hnetu­smjör. Honum er einmitt tíð­rætt um pen­inga og eins og kom fram hér á undan fjall­aði fyrsta rapp­lagið hans, sem samið var í gríni af ungum snáða, um pen­inga.

„Mig hefur alltaf langað í pen­inga. Mig langar í mikið af pen­ingum. Banda­ríski rapp­ar­inn 21 Savage sagði einu sinni í við­tali að honum væri drullu­sama hver besti rapp­ar­inn væri. Hann vildi ekk­ert vera með í þeim sam­an­burði. Hann var að reyna að vera rík­asti rapp­ar­inn. Ég tengi við það, þó að ég sé mjög stoltur af rapp­inu. Ég trúi því að ég sé lang­besti rapp­ar­inn á Íslandi en ég vil líka græða,“ segir hann. En er hann orð­inn ríkur af rapp­inu?

„Ég hef það fínt,“ segir hann og glottir.

Gucci og Louis með gulltennur og seðlabúnt

Hann hlýtur að hafa það ansi fínt ef marka má lífs­stíl­inn. Hann keyrir um á skjanna­hvítri eðal­kerru með drapp­lit­uðu leð­ur­á­klæði, á fleiri Gucci-sól­gler­augu en góðu hófi gegnir og gengur um með rán­dýra Louis Vuitton-hand­tösku. Burberry er líka áber­andi í fata­skápnum, en hann á heilt fata­her­bergi sem er stút­fullt af merkja­vöru. Svo má ekki gleyma sér­smíð­aða gómnum sem hann smellir upp í sig við sér­stök til­efni, en góm­ur­inn er úr fjórtán karata gulli. Hann segir að klæða­burð­inn hafi mót­ast af banda­rísku hetj­unum í rapp­heim­inum.

Takið eftir Gucci gler­aug­unum.

„Ég ólst upp við að horfa á mynd­bönd hjá Rick Ross og þessum gaurum. Þeir keyrðu um á Bent­leyum, voru með gull­tennur og risa­stórar keðjur um háls­inn. Þeir voru fyr­ir­mynd­irnar mínar. Ég fylgd­ist ekk­ert með fót­bolta – ég horfði á rapp­mynd­bönd. Mig lang­aði að vera svona – Gucci og Louis, með gull­tennur og seðla­búnt,“ segir Herra Hnetu­smjör. Hann var bara tíu ára gam­all þegar hann keypti sér fyrstu rapp­flík­urnar í fata­skáp­inn.

„Ég fór til Flórída með fjöl­skyld­unni minni og fór inn í verslun sem heitir Echo Unlimited. Ég gekk þarna inn og það var verið að blasta rapptón­list og gull­keðjur með spinner-felgum út um allt. Ég keypti mér til dæmis jakka í XXL sem náði niður fyrir hné. Ég á jakk­ann enn og hann passar á mig í dag. Svo keypti ég galla­stutt­buxur sem pössuðu á mig sem síð­buxur. Ég keypti líka gull­keðjur með spinner-felgum og spegla­sól­gler­augu. Ég hafði aldrei séð neitt svona á Íslandi og ég varð að fá þetta,“ segir hann. En hver er dýrasta flíkin sem hann á?

„Það er örugg­lega Gucci-úlpan mín. Hún kost­aði 240 þús­und kall. Ég á líka Gucci-íþrótta­galla sem kost­aði 200.000 kall. Flík­urnar mínar kosta ekki allar svona mikið en þegar þær eru settar saman er þetta mik­ill pen­ingur. Ég fæ að leyfa mér þetta rugl því ég eyði ekki lengur pen­ingum í fíkni­efni.“

Skattrannsókn og kaldur sviti

Mér leikur for­vitni á að vita meira um KBE ehf., fyr­ir­tækið sem Herra Hnetu­smjör rekur og virð­ist vera í miklum blóma.

„Umboðs­mað­ur­inn minn sé mikið um bis­ness­hlið­ina þótt ég komi líka að henni. Hann er tíu árum eldri en ég og var með sitt fyr­ir­tæki áður. Ég gæti ekki gert þetta einn. Hann sér mikið um virð­is­auka­skatt­skil og sím­töl við end­ur­skoð­and­ann og þess háttar, á meðan ég kem með hug­myndir, fram­kvæmi og geri tón­list,“ segir rapp­ar­inn. Það vakti einmitt athygli á dög­unum þegar leik­konan Steiney Skúla­dóttir lýsti áhyggjum sínum á Twitter yfir því hve mikið Herra Hnetu­smjör rappar um að vinna svart, til dæmis í lag­inu Labb­ilabb af Kópboi.

„Já, Skatt­ur­inn er alveg búinn að koma,“ segir rapp­ar­inn og brosir. „En við erum með allt okkar á hreinu. Við borgum í líf­eyr­is­sjóð og skilum skatta­fram­tölum eins og öll önnur fyr­ir­tæki. Ég við­ur­kenni samt alveg að ég fékk kaldan svita þegar Arnór, umboðs­mað­ur­inn minn, hringdi og sagð­ist hafa fengið bréf frá Skatt­inum. En þetta bless­að­ist allt. Við höfum ekk­ert að fela.“

Vondi karlinn i Disney-mynd

Undir merkjum KBE ehf. gefur Herra Hnetu­smjör út sína eigin tón­list og ann­arra, stendur fyrir tón­leikum og ýmis­legt fleira. Nýjasta verk­efnið er hnetu­smjörið Herra Hnetu­smjör sem fram­leitt er af H-Berg og er komið í versl­anir.

„Það eru engin geim­vís­indi að Herra Hnetu­smjör búi til Herra Hnetu­smjör. Ég er mjög stoltur af þess­ari vöru. Þetta er besta hnetu­smjörið sem til er,“ segir hann og stefnir greini­lega að frek­ari land­vinn­ingum í við­skiptum.

„Ef mér dettur eitt­hvað skemmti­legt í hug þá geri ég það. Rick Ross er til dæmis með sinn eigin vængja­stað í Banda­ríkj­unum. Mig langar að fara út í það. Mig langar að stækka við mig og gera alls konar kjaftæði. Mig langar til að fara í sjón­varp. Ég væri til í að leika hand­rukk­ara eða glæpa­mann. Mig langar að tala inn á aug­lýs­ingar og teikni­myndir – vera vondi karl­inn í Disney-teikni­mynd.“ segi rapp­ar­inn og líkir einmitt hroka­bolt­anum sjálfum sér við fyrr­nefnd ill­menni.

Stór fiskur í lítilli tjörn

Sumarið er fljótt á enda og hefur Herra Hnetu­smjör verið upp­bók­aður á hinum ýmsu bæj­ar­há­tíðum. Núna um helg­ina treður hann síðan upp á einum stærstu tón­leikum árs­ins, tón­leikum Rásar 2 á Menn­ing­arnótt sem sýndir eru í beinni útsend­ingu á RÚV og útvarpað beint á Rás 2. Hann er samt sem áður poll­ró­legur yfir þessu öllu saman.

„Ég er ekk­ert stress­aður. Ég verð voða­lega sjaldan stress­aður fyrir gigg. Ég hef tvisvar verið stress­aður og í bæði skiptin hef ég verið að syngja, ekki rappa, í beinni útsend­ingu. Ég er ekki vanur því. Það er út fyrir minn þæg­ind­ara­mma. Yfir­leitt dett ég í gír fyrir beina útsend­ingu, fer upp á svið með hrok­ann á milljón og er með snáða­læti,“ segir rapp­ar­inn. Snáði er einmitt orð sem hann notar mikið til að lýsa prakk­ara­skap, en stúd­íóið sem hann leigir nálægt mið­borg Reykja­víkur með von­ar­stjörn­unum JóaPé og Króla er einmitt kallað Snáða­stúdíó. Hann seg­ist vera vinnu­alki en nú semur hann mikið um lífs­stíl­inn sinn og vinn­una.

https://www.youtube.com/watch?v=ZdG5dGEvsEU

„Ég get ekki rappað um dóp og ég get ekki rappað um stelpur þannig að ég verð að rappa um eitt­hvað annað,“ segir hann. en hann fagnar um þessar mundir nýjum tíma­mótum í tón­list­inni.

„Nýjasta lagið mitt, Upp Til Hópa, pródúserað af Inga Bauer, er vin­sælasta lagið á land­inu á Spotify og búið að vera það í rúmar þrjár vikur, eða síðan það kom út.“

Aðspurður hvort Ísland sé of lítið fyrir hann stendur ekki á svör­unum.

„Mér finnst gaman að vera stór fiskur í lít­illi tjörn. Það væri líka gaman að vera stór fiskur í stærri tjörn og það er alveg pæl­ing að fara út fyrir land­stein­ana. Ég ætla samt bara að leyfa því að ger­ast. Ég vil ekki rappa á ensku og ég myndi ekki gera það til að stækka aðdá­enda­hóp­inn minn.“

„Þetta er bara ég á móti öllum hinum“

Áður en ég kveð Herra Hnetu­smjör verð ég að spyrja, fyrst hann er besti rapp­ar­inn Íslands að eigin sögn, hver sé þá næst­bestur?

„Þetta snýst ekki um það. Ég er ekki að hugsa hver er í öðru, þriðja eða fjórða sæti. Þetta er bara ég á móti öllum hinum.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins