„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Einkaþjálfarinn Sigrún María deilir æfingum sem hægt er að gera hvar sem er

Einkaþjálfarinn Sigrún María deilir æfingum sem hægt er að gera hvar sem er

Einka­þjálf­ar­inn Sigrún María Hákon­ar­dóttir er 28 ára gömul og heldur úti heima­síð­unni Fit­By­Sigrun þar sem hún deilir meðal ann­ars æfingum og hollum upp­skriftum. Við fengum hana til að mæla með æfingum sem hægt er að gera hvar sem er, en hún hefur nú þegar deilt hug­myndum að hollu nesti á ferð­inni og æfingum með börn­unum með les­endum Mannlífs.

Einka­þjálf­ar­inn Sigrún María deilir 5 æfingum sem hægt er að gera með börn­unum

„Það eru svo margar æfingar sem hægt að gera hvar sem er, það er bara spurn­ing hvort maður nær að sparka nógu fast í rass­inn á sér til þess að gera þær. Ég mæli með að vera með eitt­hvað svona „go-to“ set-up af æfingum og síðan velja þær æfingar sem maður er í stuði fyrir,” segir Sigrún María og heldur áfram.

„„Go-to“ set-up á æfingu gæti verið að gera æfingu í 30 sek­úndur og hvíla síðan í 10 sek­úndur. Síðan að end­ur­taka hverja æfingu þrisvar sinnum og velja alla­vega tvær æfingar. Þannig að þú gerir til dæmis hné­beygju í 30 sek­úndur, hvílir í 10 sek­úndur, gerir síðan arm­beygjur í 30 sek­úndur hvílir í 10 sek­úndur. Svo ferðu aftur í gegnum þessar tvær æfingar með hvíld­ar­tíma þrisvar sinnum.”

Æft á meðan kvöldmaturinn mallar

Sigrún María segir ýmis­legt í boði fyrir anna­samt fólk sem vill samt ná inn hreyf­ingu yfir dag­inn.

„Ef maður vill reyna að hafa engar afsak­anir fyrir að hreyfa sig ekki getur maður gert 10 mín­útna æfingu á meðan mat­ur­inn er í ofn­inum, hvíla í 2 mín­útur og síðan taka aftur 10 mín­útna æfingu. Þá mæli ég með að stilla klukku á 10 mín­útur og fara í gegnum eft­ir­far­andi æfingar eins oft og hægt er, það sem er þekkt sem AMRAP – As many rounds as possi­ble:

20x afturstig + rétta hendur beint fram (10 hvor fótur)

5-10x plankalabb með armbeygju

5-10x burpee með hnébeygjuhoppi

Annars er hægt að taka smá sófa æfingu:

Farðu í gegnum eft­ir­far­andi æfingar 2-5 sinnum

20x hnébeygjuhopp með hliðarsparki (10 á hvorn fót)

40x axlarsnertur með annaðhvort hendur á sófa, hendur og fætur á gólfi, fætur á sófa eða hné og hendur í gólfi (fer eftir því hvort þú ert byrjandi eða ekki, auðveldast að vera með hendur á sófa)

10x hnébeygja með fót uppi á sófa (hægri fótur)

10x hnébeygja með fót uppi á sófa (vinstri fótur)

40x toe touches með fætur á sófa

Auðveldari útgáfa:

40x fjallaklifur

Hvíla eftir þörfum en reyna að hvíla ekki lengur en 40 sek og end­ur­taka allar æfingar aftur.”

Æfa strax á morgnana

Sigrún María segir jafn­framt að það virki ekki fyrir alla að koma sér af stað í hreyf­ingu. Þá mælir hún með að leita til þjálf­ara eða sækja nám­skeið í lík­ams­rækt­ar­stöðvum.

„Þegar kemur að hreyf­ingu þá mæli ég með að koma henni inn í dag­inn strax um morg­un­inn en ef það er eng­inn hvati til þess að byrja að hreyfa þig heima eða ein/einn í rækt­inni að mæta þá í opna hóp­tíma, lokuð nám­skeið eða þá til þjálf­ara til þess að kom­ast yfir byrj­unar „hjall­ann”.”

Einka­þjálf­ar­inn Sigrún María deilir 5 æfingum sem hægt er að gera með börn­unum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins