„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Góð skemmtun og fyrirtaks líkamsrækt

Sumarið er á næsta leiti með til­heyr­andi útveru og margir að draga fram reið­hjólin sem legið hafa í geymslum yfir vet­ur­inn eða að kaupa sér ný.

Góð skemmtun og fyrirtaks líkamsrækt
|

Stærðir og still­ingar

Við­ur­kenndur hjálmur af réttri stærð er auð­vitað ómissandi.

Þegar nýtt hjól er valið þarf að huga að stærð hjóls­ins. Þum­al­putta­reglan við hjól með slá er að þegar not­and­inn stendur yfir þver­slánni eiga að vera um það bil þrjár tommur eða tæp­lega átta senti­metrar upp í klof. Einnig er mik­il­vægt að hnakk­ur­inn sé í réttri hæð. Hnakk­ur­inn er rétt stilltur þegar hjól­reiða­mað­ur­inn situr á hnakknum, lætur annað fót­stigið í neðstu stöðu, stígur á það með hælnum og getur þá rétt alveg úr fæt­inum. Rétt still­ing hnakks­ins er afar mik­il­væg, sér­stak­lega í lengri hjól­reiða­ferðum, til að álag á fæt­urna verði rétt. Þriðja mik­il­væga atriðið er að stærð sjálfs hjólastells­ins sé rétt. Ef hnakk­ur­inn er rétt stilltur á stýrið að vera um fimm senti­metrum lægra en hnakk­ur­inn og á stýrið að skyggja á framöxul hjóls­ins þegar hjól­reiða­mað­ur­inn hefur báðar hendur á því.

Við­haldið er mik­il­vægt
Gott við­hald hjóla skiptir miklu máli bæði fyrir end­ingu þeirra og öryggi. Ráðlegt er að smyrja keðju hjól­anna viku­lega með sér­stakri teflonolíu og sér­stak­lega ef hjólið hefur staðið úti í rign­ingu. Einnig er mik­il­vægt að hugsa vel um bremsu­borða hjóls­ins, kanna slit reglu­lega og gæta að því að þeir séu rétt stilltir. Rétt stilltir borðar eiga hvorki að rekast í dekkin né í gjörð og ekki á að heyr­ast ískur þegar bremsað er. Auk þess að fylgj­ast með keðju og bremsum er mik­il­vægt að fylgj­ast með gírum hjóls­ins. Gírvírar teygj­ast yfir­leitt nokkuð með tím­anum og mynda því eins konar hlaup í gír­unum. Gott er að strekkja á vír­unum um það bil mán­uði eftir að hjólið er keypt. Þá er gírastrekkj­ar­anum á hjól­inu snúið rang­sælis þar til strekk­ist á vír­unum. Með tím­anum má einnig gera ráð fyrir slaka í legum hjóls­ins. Skemmdar legur eru fljótar að skemma út frá sér en með því að skipta þeim út eða herða þær upp í tæka tíða má spara mikið í við­halds­kostnað.

Sprungið dekk
Dekkja­skipti og -við­gerðir á hjóli eru lítið mál. Fyrst á að taka bremsur úr sam­bandi við gjörð. Þá er farið með keðj­una niður á minnsta tann­hjólið að aftan og að framan til að slaka á keðj­unni og öxulrær los­aðar. Þá er dekkið laust og hægt að ná slöng­unni úr því með hjálp dekkja­þvingu. Þegar gatið hefur verið fundið er gúmmíið í kringum það pússað, bóta­lím borið á slöng­una og bótin sett á gatið. Síðan er slangan sett aftur inn í dekkið og lofti pumpað í áður en haldið er af stað.

Öryggið í fyr­ir­rúmi
Rétt er að minna á nokkur örygg­is­at­riði sem vert er að hafa í huga þegar þeyst er um á stálfáknum úti í góða veðr­inu. Glitaugu eiga að vera bæði framan og aftan á reið­hjólum. Reið­hjóla­bjöllur eru einnig nauð­syn­legur örygg­is­bún­aður og þær ber að nota til að gera öðrum við­vart, t.d. við fram­úr­akstur á gang­stéttum. Að sjálf­sögðu er við­ur­kenndur hjálmur af réttri stærð algjör­lega ómissandi. Hjól­reiða­fólki er heim­ilt að hjóla á gang­stéttum jafnt sem á götum. Að sjálf­sögðu eiga hjól­reiða­menn að fylgja umferð­ar­reglum eins og aðrir veg­far­endur og hafa í huga að gang­andi veg­far­endur eiga rétt­inn á gang­stétt­unum.

Texti / Vikan
Mynd / Ernir Eyj­ólfs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

líkamsrækt

Fólk

„Ættu að hugsa sinn gang alvar­lega“

Einka­þjálf­ar­inn Björn Þór Sig­ur­björns­son segir allt eða ekk­ert-hug­ar­farið stór­hættu­legt, þar sem fólk ætli sér stóra hluti strax frá byrjun og taka matar­æðið og hreyf­ing­una föstum tökum af mik­ill ákefð. „Það er eig­in­lega dæmt til að springa í and­litið á okkur með þeim afleið­ingum að við hættum,“ segir Björn. „Ef þú hefur getu og tíma til þess að mæta sex sinnum...
Starfsmaður líkamsræktarstöðvar gerði grín að viðskiptavini með þroskahömlun – verður tekið föstum tökum segja eigendur
Innlentlíkamsrækt

Starfs­maður lík­ams­rækt­ar­stöðvar gerði grín að við­skipta­vini með þroska­hömlun – verður tekið föstum tökum segja eig­endur

Starfs­maður lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar­innar Sport­húss­ins í Reykja­nesbæ er sak­aður um að gera grín að við­skipta­vini með þroska­hömlun. Slíkt átti sér stað nýlega þegar þroska­heftur við­skipta­vinur leit­aði sér upp­lýs­inga í afgreiðsl­unni og fékk þar lítið annað en háðs­glósur frá starfs­fólki. Eigendur stöðv­ar­innar segja að málið verði tekið föstum tökum inn­an­húss. Hávær umræða skap­að­ist um málið innan Facebook-sam­fé­lags­ins Góða systir sem skipað er í...
Sumarið er ekki verri tími en hver annar til að sækja líkamsræktarstöðvar
Skoðun

Aðsend grein

Sumarið er ekki verri tími en hver annar til að sækja lík­ams­rækt­ar­stöðvar

Höfundur / Björn Þór Sig­ur­björns­son, einka­þjálf­ari Þegar heim­ur­inn hálf lam­að­ist, þá mjak­að­ist hreyf­ing margra nokkuð hratt út af borð­inu og jogg­ing-gall­inn varð á örfáum dögum besti vinur manns­ins. Í ein­hverjum til­vikum varð hreyf­ing þó reglu­legur partur af innilíf­inu, alla­vega í ein­hverri mynd. Fólk lagði það á sig að standa í röð fyrir utan versl­anir til að ná sér í æfinga­græjur....
Innlentlíkamsrækt

„Gleði og ánægja“ hjá iðk­endum í World Class í dag

„Þetta fór vel af stað í morgun. Það er mikil gleði og ánægja hjá fólki,“ segir Björn Þór Sig­ur­björns­son, einka­þjálf­ari World Class, í sam­tali við Mannlíf. Stöðvar World Class hafa verið opn­aðar eftir tveggja mán­aða lokun í hertu sam­komu­banni. Björn segir ánægju­legt að sjá að fólk er með­vitað um umhverfi sitt og virðir tveggja metra regl­una eftir bestu getu. „Fólk...
Allir hóptímar fullbókaðir og fólk talar um „hátíðardag“
Innlentlíkamsrækt

Allir hóp­tímar full­bók­aðir og fólk talar um „hátíð­ar­dag“

Ágústa Johnson, fram­kvæmda­stjóri lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar­innar Hreyf­ingar, segir margt fólk hafa beðið spennt í morgun fyrir utan Hreyf­ingu eftir að kom­ast í rækt­ina. Hreyfing, líkt og aðrar lík­ams­rækt­ar­stöðvar lands­ins, lok­uðu 24. mars þegar hert sam­komu­bann skall á vegna útbreiðslu COVID-19. Síðustu tveir mán­uðir hafa því verið krefj­andi fyrir það fólk sem er vant að fara í rækt­ina reglu­lega. Í sam­tali við Mannlíf...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins