„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Haustlegir pottréttir

Pott­réttir eru þægi­legur og góður matur. Ekki missa kjarkinn þótt hrá­efn­is­list­inn í upp­skrift­inni sé stundum langur, eld­unin er yfir­leitt ein­föld og oft er bara not­aður einn pottur. Það má líka gera stóra skammta og geyma til næsta dags því pott­réttir eru jafn­vel betri dag­inn eftir. Gott er að hafa í huga að því lengur sem pott­réttir fá að malla við vægan hita, því betri verða þeir.

Haustlegir pottréttir
Mynd / Kristinn Magn­ús­son|
Mynd / Kristinn Magn­ús­son

Kjúklinga­pott­réttur með sveskjum
fyrir 6

12-14 stk. bland­aðir kjúklinga­bitar
2 msk. olía til steik­ingar
1-2 msk. smjör
150 g beikon, gróft skorið
u.þ.b. 10 perlu­laukar
2-3 dl púrtvín
200 g sveskjur
sjáv­ar­salt og nýmal­aður pipar

%Bold: Krydd­lögur
1 laukur, fínt skor­inn
1-2 gul­rætur, skornar í sneiðar
3-4 hvít­lauks­geirar, fínt saxaðir
2-3 greinar ferskt tímían
lár­við­ar­lauf
4-5 dl rauð­vín
sjáv­ar­salt og nýmal­aður svartur pipar

Útbúið krydd­lög­inn og látið kjúklinga­bit­ana liggja í honum í kæli yfir nótt. Veiðið bit­ana upp úr krydd­leg­inum og þerrið þá vel með eld­hús­pappír. Hitið olíu og smjör í stórum potti og steikið beikonið þar til það er stökkt, veiðið það síðan upp úr fit­unni og setjið til hliðar. Brúnið kjúklinga­bit­ana í nokkrum skömmtum upp úr fit­unni og setjið til hliðar. Steikið því næst perlu­lauk­inn þar til hann hefur brúnast fal­lega. Sigtið græn­metið frá krydd­leg­inum en takið timí­an­grein­arnar og lár­við­ar­laufið frá til þess að nota áfram. Raðið kjúklinga­bitum í pott­inn og hellið krydd­leg­inum út í ásamt púrtvíni, timí­an­greinum og lár­við­ar­laufi. Látið malla undir loki í u.þ.b. 1 ½ klst. Þegar um 20 mín. eru eftir af eld­un­ar­tím­anum er sveskjum bætt út í og þær látnar malla með. Bragð­bætið með salti og pipar eins og þarf. Berið fram t.d. með hrís­grjónum og góðu brauði.

Umsjón / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir og Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Mynd / Kristinn Magn­ús­son
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Nokkur góð pott­rétta­ráð
– Ef hrá­efni fest­ist í botn­inum á pott­inum er gott að setja svo­lítið vatn (2-3 msk.) í botn­inn til þess að ná öllu góða bragð­inu í rétt­inn.
– Með pott­réttum er nauð­syn­legt að bera fram gott brauð, t.d. súr­deigs­brauð. Það er sér­stak­lega hent­ugt til að ná upp öllu góð­gæt­inu af disknum.
– Yfir­leitt er byrjað á því að brúna græn­meti og kjöt í potti og síðan er pott­rétt­ur­inn lát­inn malla á vægum hita. Þetta er hægt að gera á elda­vél­ar­hell­unni en það er mjög þægi­legt að láta pott­rétti malla í ofni á 180°-200°C. Þá er nauð­syn­legt að nota potta sem þola að fara inn í ofn.
– Þegar beikon er notað í pott­rétti er gott að kaupa það í heilum klumpi, óskorið, því gott er að skera það í grófa bita. Það fæst stundum í stór­mörk­uð­unum en yfir­leitt er hægt að verða sér úti um slíkt hjá kjöt­kaup­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aðalréttir

Einfalt og fljótlegt á nýju ári
Mannlífið

Einfalt og fljót­legt á nýju ári

Eftir allar hátíð­ar­kræs­ing­arnar sem hafa ein­kennt und­an­farna daga er freist­andi að hafa hlut­ina ein­falda og fljót­lega núna þegar kemur að elda­mennsku. Hérna kemur smá sam­an­tekt yfir rétti sem eiga það sam­eig­in­legt að vera til­tölu­lega fljót­legir og ein­faldir. Ótrúlega ein­föld laxa­baka Þessa er til­valið að græja í miðri viku. Mynd / Rakel Ósk Fljót­legur sítrónu­fisk­réttur Full­komið með soðnum kart­öflum. Mynd /...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður