„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Pasta með kjúklingabaunum og rósmarín-hvítlauksolíu

Pasta e ceci er klass­ískur ítalskur pasta­réttur sem á upp­runa sinn að rekja til Rómar. Ef til er skorpa af parmesa­nosti er gott að setja hana út í pott­inn og sjóða með baun­unum. Einnig má nota kjúklinga­soð í staðs vatns ef það er við hönd­ina.

Pasta e ceci
Pasta með kjúklinga­baunum og rós­marín-hvít­lauksolíu

2 msk. ólífu­olía
1 með­al­stór laukur, saxaður
3 hvít­lauks­geirar, saxaðir eða ýtt í gegnum pressu
4 msk. tómat­púrra
1 tsk. salt, eða meira ef þarf
¼ tsk. chili-flögur
1 dós (400 g) kjúklinga­baunir
500 ml vatn (eða kjúklinga­soð)
300 g smátt pasta, t.d. macaroni, dital­ini eða gnocchi (því minna því betra)
fersk söxuð stein­selja, til skrauts

Hitið ólífu­ol­í­una í stórum potti yfir með­al­háum hita og steikið lauk­inn upp úr olí­unni þar til hann er orð­inn glær og mjúkur, u.þ.b. 5-8 mín. Bætið hvít­lauknum saman við og steikið í hálfa mín., gætið að því að hvít­lauk­ur­inn fari ekki að brúnast og brenna við. Bætið tómat­púrrunni, salt­inu og chili-flög­unum saman við og hrærið öllu saman. Hellið vökv­anum frá baun­unum, skolið og bætið þeim út á pönn­una. Hellið 500 ml af vatni á pönn­una. Látið allt malla saman í 10-15 mín­útur. Ef blandan virð­ist þurr eða vökva­lítil er gott að hræra smá­vegis tómat­púrru við 1-2 dl af vatni og bæta við í pott­inn.
Sjóðið pasta sam­kvæmt leið­bein­ingum á pakkn­ingu. Takið bolla af pasta­vatni og setjið til hliðar. Hellið vatn­inu frá past­anu og bætið past­anu út á pönn­una. Veltið því upp úr bauna­sós­unni og bætið við pasta­vatni ef pastað er of þurrt og sósan ekki nógu laus í sér til að þekja pastað. Sáldrið saxaðri stein­selju yfir. Berið fram með rós­marín-hvít­lauksolíu og rifnum parmesa­nosti.

Rósmarín-hvít­lauks­olía:
1 dl ólífu­olía
3 hvít­lauks­geirar, saxaðir smátt eða ýtt í gegnum pressu
2 msk. ferskt rós­marín saxað

Hitið ólífu­ol­í­una í litlum potti yfir með­al­háum hita. Bætið söx­uðum hvít­lauk og rós­mar­íni út í pott­inn og eldið í 1 mín. Takið af hit­anum og berið fram með past­anu.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Stílisti / Folda Guð­laugs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aðalréttir

Einfalt og fljótlegt á nýju ári
Mannlífið

Einfalt og fljót­legt á nýju ári

Eftir allar hátíð­ar­kræs­ing­arnar sem hafa ein­kennt und­an­farna daga er freist­andi að hafa hlut­ina ein­falda og fljót­lega núna þegar kemur að elda­mennsku. Hérna kemur smá sam­an­tekt yfir rétti sem eiga það sam­eig­in­legt að vera til­tölu­lega fljót­legir og ein­faldir. Ótrúlega ein­föld laxa­baka Þessa er til­valið að græja í miðri viku. Mynd / Rakel Ósk Fljót­legur sítrónu­fisk­réttur Full­komið með soðnum kart­öflum. Mynd /...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður