„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Asískur innbakaður lax með sesam-brokkolí

Ein­faldur inn­bak­aður lax með asískum hrá­efnum, rist­uðu sesam-brokkolí og bragð­mik­illi sósu.


4 bitar lax, um 250 g hver biti
2 cm engi­fer­rót, afhhýdd og sneidd
2 vor­laukar, sneiddir
2 hvít­lauks­geirar, skornir í tvennt og marðir
6 msk. sojasósa
4 msk. hun­ang
4 msk. hrís­grjóna­edik
1 rautt chili-aldin, sneitt (má sleppa)

Þerrið lax­inn með eld­hús­pappír. Setjið hann í eld­fast mót eða í rennilása­poka ásamt engi­fer, vor­lauk og hvít­lauk. Hrærið saman sojasósu, hun­ang og hrís­grjóna­edik og hellið yfir fisk­inn og græn­metið. Látið liggja í krydd­leg­inum í a.m.k. 30 mín. Hitið ofn í 160°C. Takið fram 4 stórar arkir af bök­un­ar­pappír. Leggið laxa­bita ofan á hverja örk og setjið smá­vegis af græn­met­inu ofan á hvern laxa­bita og notið síðan skeið til að hella yfir svolitlum krydd­legi (passið að eiga afgang af krydd­leg­inum og græn­meti til að búa til sósu). Pakkið síðan lax­inum inn í bök­un­ar­papp­ír­inn með því að bretta papp­ír­inn og loka honum, gott er að nota heft­ara til að festa umslagið betur. Einnig má nota álp­appír utan um fisk­inn. Reynið að passa að ekki séu glufur á umslag­inu svo að lax­inn nái að gufu­sjóð­ast í ofn­inum. Bakið fisk­inn inni í miðjum ofni á ofn­plötu í 15-20 mín., eða þar til fisk­ur­inn hefur eld­ast í gegn. Búið til sósu á meðan með því að setja afgang­inn af krydd­leg­inum í lít­inn pott yfir með­al­háan hita. Hrærið í pott­inum þar til sósan þykknar. Athugið að sósan er bragð­mikil og sölt og því þarf ekki mikið af sósu. Sáldrið sneiddu chili-ald­ini yfir lax­inn og berið fram með sesam-brokk­ólí og hrís­grjónum.

Sesam-brokk­ólí:
1 haus brokk­ólí
1 msk. ólífu­olía
1 msk. sesam­olía
2 tsk. sojasósa
1 msk. sesam­fræ

Hitið ofn í 220°C. Takið brokk­ólíið í sundur og snyrtið og skrælið stilk­ana. Hrærið saman ólífu­olíu, sesam­olíu og sojasósu í með­al­stórri skál. Veltið brokk­ólínu upp úr sós­unni og dreifið síðan úr því á ofn­plötu. Sáldrið sesam­fræjum yfir brokk­ólíið og ristið í miðjum ofni í 10 mín­útur. Takið það úr ofn­inum og snúið bit­unum við og setjið aftur inn í ofn og ristið í 5-10 mín­útur til við­bótar eða þar til brokk­ólíið hefur eld­ast og end­arnir eru farnir að rist­ast.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son
Stílisti / Folda Guð­laugs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður