„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Chili-kjúklingur með saffranhrísgrjónum og jógúrtsósu

Gerðu vel við þig um helg­ina.

Chili-kjúklingur með saffranhrísgrjónum og jógúrtsósu
|
Berið kjúkling­inn fram með saffran­hrís­grjónum og jógúrtsósu.

Chili-kjúklingur með saffran­hrís­grjónum og jógúrtsósu
1 heill kjúklingur
2 gul­rætur
1 rófa
1 sæt kartafla
3-4 msk. olía
gróft sjáv­ar­salt
1 sítróna, skorin í sneiðar

Skolið kjúkling­inn vel og þerrið með eld­hús­pappír. Notið einnota hanska og makið chili-krydd­m­auk­inu innan í og utan á kjúkling­inn. Það getur verið gott að losa skinnið aðeins frá og maka krydd­m­auk­inu undir skinnið þar sem það er hægt. Á þessu stigi er gott að láta kjúkling­inn standa í kæli yfir nótt eða í nokkrar klst. við stofu­hita. Stillið ofn á 180°C. Skerið græn­metið í fremur stóra bita, athugið að hafa sætu kart­öflu­bit­ana tölu­vert stærri en hina þar sem sætar kart­öflur eld­ast hraðar. Veltið græn­met­inu upp úr olíu og grófu salti og raðið því í botn­inn á eld­föstu móti. Skerið sítrónu í sneiðar og raðið ofan á græn­metið. Setjið kjúkling­inn ofan á sítrón­u­sneið­arnar og eldið í u.þ.b. 1 ½ klst. eða þar til kjúkling­ur­inn er eld­aður í gegn. Berið gjarnan fram með saffran­hrís­grjónum og jógúrtsósu.

chili-krydd­mauk:
8 hvít­lauks­geirar
2 tsk. sjáv­ar­salt
2 tsk. fenníku­fræ
3 tsk. kúm­en­fræ
nýmal­aður svartur pipar
1 þurrkað chili-aldin, mulið smátt, eins má nota 1 tsk. chili-flögur
1-2 tsk. ólífu­olía

Merjið saman hvít­lauks­geira og salt í mort­éli þar til úr verður mauk. Bætið krydd­inu saman við og merjið gróft saman ásamt ólífu­ol­í­unni.

jógúrtsósa:
2 dl grísk jógúrt
lófa­fylli fersk mynta, smátt söxuð
lófa­fylli fersk stein­selja, smátt söxuð
1-2 tsk. hun­ang
2-3 tsk. sesam­olía
gróft sjáv­ar­salt
nýmal­aður svartur pipar

Blandið öllu vel saman og látið standa í kæli í nokkrar klst.

saffran­hrís­grjón:
2 laukar, smátt skornir
2 tómatar, smátt skornir
nokkrir saffran­þræðir
2 ½ dl villi­hrís­grjón eða hýð­is­hrís­grjón
5 dl kjúklinga­soð
1 tsk. salt

Steikið lauk á pönnu í 6-8 mín. eða þar til hann er orðin glær. Bætið tómötum saman við ásamt saffran­þráðum og látið malla í nokkrar mín. Setjið þá hrís­grjónin saman við og steikið þau í nokkrar mín. Bætið kjúklinga­soði út í ásamt salti og látið malla við vægan hita þar til hrís­grjónin eru soðin í gegn og allur vökvi horf­inn.

Texti / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Myndir / Rakel Sig­urðs­dóttir
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar