„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sex hlutir sem við ættum ekki að gera húð okkar

Húðin gegnir mjög marg­þættu hlut­verk, til dæmis ver hún okkur gegn sýklum, fram­leiðir D-vítamín, hindrar vökva­tap frá lík­am­anum og svo margt fleira. Í ofaná­lag ætl­umst við til að hún hald­ist fal­leg og hraust­leg, sér­stak­lega á and­lit­inu. Við verðum þó að horfast í augu við það að lífs­stíls­venjur okkar hafa mikil áhrif á húð­ina og hér eru nokkur atriði sem við ættum alveg að sleppa.

Sex hlutir sem við ættum ekki að gera húð okkar

Stöðug snerting

Það eitt að snerta and­litið of mikið með fingrum getur valdið bólum. Á höndum okkar eru bakt­er­íur sem við berum á húð­ina þegar við snertum and­litið. Það er einnig mjög slæmur ávani að kroppa í sár eða bólur því við það rofnar húðin og bakt­er­íur kom­ast að. Berðu á þig krem og aðrar snyrti­vörur og reyndu svo þitt besta að snerta ekki á þér and­litið fyrr en þú tekur af þér farð­ann um kvöldið.

Verja ekki gegn sól

Við ættum aldrei að sleppa sól­ar­vörn á and­litið. Skað­legir sól­ar­geislar valda ekki aðeins dökkum lita­blettum, fínum línum og hrukkum heldur brjóta þeir einnig niður ela­stín og kollagen í vefjum húð­ar­innar sem gefa henni þétt- og teygj­an­leika. Notaðu raka­krem með léttri sól­ar­vörn, til dæmis SPF 15, á vet­urna og reyndu að halda and­lit­inu alveg úr sól á sumrin, til dæmis með því að vera með hatt.

Gleyma djúphreinsun

Húðin er stærsta líf­færi lík­am­ans sem er stöðugt að bregð­ast við innra og ytra áreiti. Hún þarf því að end­ur­nýja sig reglu­lega og þá sitja dauðar húð­frumur eftir á yfir­borð­inu. Þessar húð­frumur draga úr ljóma húð­ar­innar auk þess sem þær geta farið ofan í húð­holur og stíflað þær. Djúp­hreins­aðu húð­ina einu sinni til tvisvar í viku með þeirri aðferð sem hentar þinni húð – skrúbbi, sýrum eða ens­ímum.

Reykja

Það segir sig sjálft að það að draga alls kyns hættu­leg eit­ur­efni inn í lík­amann hefur afar slæm áhrif á húð­ina. Sind­ur­efni brjóta niður upp­byggi­efni húðar svo hún slapp­ast fyrr og verður líf­laus. Þess utan ferð­ast reyk­ur­inn upp T-svæðið og veldur fíla­penslum og öðrum stíflum ásamt því að efri vörin missir þéttni og verður hrukk­ótt

Borða unnin matvæli

Þegar við borðum unnin mat höfum við enga stjórn á inni­halds­efn­unum og vitum oftar en ekki ekk­ert hvað við erum að láta ofan í okkur né hvaða áhrif það mun hafa. Hreint matar­æði, svo sem ávextir, kjöt, fiskur og korn, sem við eldum frá grunni hefur svo miklu betri áhrif á lík­am­lega heilsu okkar almennt, þar á meðal húð­ina. Einnig auð­veldar það okkur að taka út inni­halds­efni sem geta valdið ert­ingu í húð­inni eða bólum, til dæmis mjólk­ur­vörur eða sykur.

Streita

Ytri og innri streitu­valdar geta leikið húð­ina grátt. Þarftu að skila af þér stóru verk­efni, halda fyr­ir­lestur, ertu stöðugt á ferða­lagi, sef­uru lítið eða ertu sorg­mædd? Allt þetta getur valdið breyt­ingum í húð eins og auknum bólgum, bólum eða þreyttri og lit­lausri húð. Reyndu að slaka á inn á milli og halda í góða húð­um­hirðu á meðan streitu­tím­inn gengur yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ráðleggingar

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu