„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Í stríði við stofnanir og stóriðju

Ragn­heiður Þor­gríms­dóttir, bóndi á Kúlu­dalsá í Hval­firði, hefur þurft að láta fella nítján hross síðan sum­arið 2007 vegna veik­inda sem hún telur stafa af flú­or­mengun frá álver­inu á Grund­ar­tanga. Síðast var hross fellt þann 11. júní síð­ast­lið­inn.

Í stríði við stofnanir og stóriðju
Ragn­heiður Þor­gríms­dóttir. Mynd/Unnur Magna

Ragn­heiður höfð­aði mál gegn Norð­ur­áli vegna meng­un­ar­slyss sem varð í álver­inu árið 2006, tap­aði því fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á síð­asta ári og í síð­ustu viku stað­festi Lands­réttur dóm Hér­aðs­dóms og frí­aði Norðurál allri ábyrgð. Ragn­heiður er þó ekki af baki dottin og seg­ist munu halda áfram að berj­ast fyrir rétt­læt­inu, hrossin eigi það inni hjá henni.

Ragn­heiður er að vonum ósátt við dóm Lands­réttar, telur hann byggja á að máls­gögnin hafi ekki fengið hlut­læga með­ferð.

„Gögnum Norð­ur­áls var gert hærra undir höfði en þeim gögnum sem snerta veik­indi hross­anna,“ segir hún. „Öll orð­ræðan var Norð­ur­áli í hag og rök­semda­færslan sér­kenni­leg. Litið var fram hjá orðum dýra­lækn­is­ins sem bar vitni fyrir Lands­rétti og gjör­þekkir aðstæður á Kúlu­dalsá. Það er mjög aðfinnslu­vert.“

Gerðist eins og hendi væri veifað

Forsaga máls­ins er sú að vorið 2007 byrj­uðu hross á Kúlu­dalsá að veikj­ast án sýni­legrar ástæðu. Ragn­heiður seg­ist hafa byrjað á því að leita orsakanna heima­fyrir, en hún hafi ekki verið að gera neitt öðru­vísi en áður og skýr­ing­anna því ekki að leita þar. Hrossin héldu áfram að veikj­ast og lyf við hóf­sperru, sem dýra­læknir ávís­aði gerðu ekk­ert gagn.

„ … þetta gerð­ist bara eins og hendi væri veifað. Allt í einu fóru hrossin að veikj­ast hvert af öðru.“

„Það höfðu aldrei sést svona veik­indi hér áður,“ segir Ragn­heiður. „Og þetta gerð­ist bara eins og hendi væri veifað. Allt í einu fóru hrossin að veikj­ast hvert af öðru. Sjúk­dóms­ein­kenni hross­anna voru að þau urðu stirð í hreyf­ingum og gátu jafn­vel ekki hreyft sig, það kom bjúgur á skrokk­inn, á makk­ann sem varð þykkur, stífur og jafn­vel kúptur og á bóg, lend og höfuð. Ein­kennin virt­ust hvorki tengj­ast holda­fari né aldri hross­anna. Hófar aflög­uð­ust á sumum hross­anna og einnig varð vart við útbrot á skrokkum nokk­urra, auk eyð­ingar jaxla. Allt bent á ein­kenni flú­or­eitr­unar. Ekkert þeirra drapst samt úr þessu, en ég þurfti að láta fella þau því maður lætur ekki dýr kvelj­ast til dauða, það segir sig sjálft.“

Frétti af mengunarslysinu fyrir tilviljun

Ragn­heiður leit­aði til Mat­væla­stofn­unar sem sagð­ist ekki mundu hafa nein afskipti af mál­inu þar sem greini­lega væri ekki um smit­sjúk­dóm að ræða og málið því ekki á þeirra könnu. Og þar við sat. Hrossin héldu áfram að veikj­ast og það þurfti að fella fleiri hesta án þess að nokkur skýr­ing feng­ist á veik­indum þeirra. Það var ekki fyrr en Ragn­heiður heyrði af svoköll­uðu slysi sem orðið hafði í álver­inu við Grund­ar­tanga sum­arið 2006 að hún fór að átta sig á sam­heng­inu.

„Svo heyrði ég af til­viljun af meng­un­ar­slysi sem hafði orðið í álver­inu síð­sum­ars 2006, það hafði ekk­ert verið sagt frá því,“ segir Ragn­heiður. „Það bil­aði reyk­hreinsi­virki og bún­að­ur­inn komst ekki í fullt lag fyrr en undir næstu ára­mót. Enginn veit hversu mikið af flúor fór út í and­rúms­loftið í allan þennan tíma því engar mæl­ingar voru gerðar til að meta afleið­ingar slyss­ins.

„Umhverf­is­stofnun vissi af slys­inu en ákvað samt að láta íbúa í firð­inum ekki vita.“

Umhverf­is­stofnun vissi af slys­inu en ákvað samt að láta íbúa í firð­inum ekki vita. Þetta var kallað „slys“ en var í raun­inni varla slys þar sem svo langur tími leið þar til bún­að­ur­inn komst í fullt lag. Á sama tíma var verið að stækka álverið mjög mikið og veru­legur flúor hafði mælst í heyi á nær­liggj­andi bæ fyrr um sum­arið sem bendir til að flú­or­mengun hafi verið mikil áður en slysið varð.“

Eftirlitsmaðurinn sagðist ekki hafa vit á hestum

Eftir þessa upp­götvun, vorið 2009, ákvað Ragn­heiður að biðja Umhverf­is­stofnun að gera rann­sókn á veik­indum hross­anna.

„Reyndar hafði ég fyrst sam­band við Mat­væla­stofnun sem vís­aði mál­inu til Umhverf­is­stofn­unar þar sem hún gæfi starfs­leyfið fyrir álverið. Umhverf­is­stofnun tók við mál­inu og svo leið og beið. Það var ekki fyrr en ári seinna sem Umhverf­is­stofnun sendi hingað mann einn föstu­dags­eft­ir­mið­dag til þess að skoða málið. Hann sat hérna í fjóra klukku­tíma við eld­hús­borðið og spjall­aði við mig og dóttur mína um allt og ekk­ert. Þegar ég spurði hvort hann vildi ekki sjá hrossin sagð­ist hann ekki hafa neitt vit á hestum en kom samt með mér og kíkti á þau. Hann vor­kenndi hross­unum óskap­lega og svo bara fór hann og ég frétti ekk­ert meira. Loksins heyrði ég af því að hann hefði sent Mat­væla­stofnun fyr­ir­spurn um málið, en enn gerð­ist ekk­ert frekar.“

Þrátt fyrir að hafa tapað mál­inu fyrir Lands­rétti er Ragn­heiður ekki af baki dottin og seg­ist munu halda áfram að berj­ast fyrir rétt­læt­inu, hrossin eigi það inni hjá henni. Mynd / Unnur Magna

Það var ekki fyrr en nærri ári síðar, vorið 2011 sem málin fóru á ein­hverja hreyf­ingu eftir að Frétta­stofa RÚV hafði fjallað um málið.

„Þeir gerðu frétt sem kom í sjón­varp­inu og ýtti all­hressi­lega við Umhverf­is­stofnun þannig að stuttu seinna hafn­aði hún rann­sókn,“ útskýrir Ragn­heiður. „Ég var eðli­lega mjög ósátt við þessa höfnun, ekki síst þegar ég komst að því að mað­ur­inn sem Umhverf­is­stofnun hafði sent hingað hafði ekki einu sinni skrifað skýrslu um heim­sókn­ina. Stofn­unin var búin að halda mál­inu hjá sér í tvö ár án þess að gera nokkurn skap­aðan hlut nema senda eina fyr­ir­spurn til Mat­væla­stofn­unar sem Sigríður Björns­dóttir sér­greina­dýra­læknir hrossa­sjúk­dóma svar­aði eftir átta mán­uði. Á grund­velli svara hennar, sem hún byggði tals­vert á minni lýs­ingu á hross­unum, hafn­aði Umhverf­is­stofnun rann­sókn. Þetta eru nátt­úr­lega for­kast­an­leg vinnu­brögð, svo ekki sé meira sagt.“

Afar yfirborðsleg skoðun

Þegar hér var komið var árið orðið 2011 og Ragn­heiður hafði staðið í þessu stappi í fjögur ár án þess að nokkuð mjak­að­ist áleiðis. Hún sneri sér því aftur til Mat­væla­stofn­unar og fór fram á rann­sókn af hennar hálfu og gaf þrjú hross til að rann­saka ítar­lega. Eftir langa mæðu sendi stofn­unin loks Sigríði Björns­dóttur, dýra­lækni hrossa­sjúk­dóma, á vett­vang. Að sögn Ragn­heiðar var skoðun hennar afar yfir­borðs­leg, hún hafi skoðað tutt­ugu og eitt hross á klukku­tíma, ekki tekið nein sýni og ekki haft með­ferðis nein áhöld til að skoða ástand hófa þeirra og tanna. Engu að síður kvað hún upp þann úrskurð að veik­indin væru af völdum efna­skipta­sjúk­dóms­ins EMS og að hann staf­aði af offóðrun og hreyf­ing­ar­leysi. Birt var skýrsla um málið sem Ragn­heiður mót­mælti harð­lega, en Mat­væla­stofnun tók ekk­ert mark á mót­mælum hennar. Og hún sat uppi með þann stimpil að hún kynni ekki að hugsa um hrossin sín.

„Þessir hestar eru meðal þeirra fimm sem Sigríður Björns­dóttir hjá MAST taldi hættu­lega feita og lík­lega til að fá EMS-sjúk­dóm­inn. Enginn þess­ara fimm hesta hefur veikst enn sem komið er og eru þó liðin nærri átta ár frá heim­sókn hennar á bæinn,“ segir Ragn­heiður um hest­ana á mynd­inni. Aðsend mynd

„Ég er fædd hér og alin upp, hef haldið hross í ára­tugi og veit alveg hvernig á að fóðra hross,“ segir Ragn­heiður með þunga. „Hrossin hafa alltaf verið mitt upp­á­hald og ég hef alltaf verið innan um þau og ég vissi að þessi nið­ur­staða dýra­læknis Mat­væla­stofn­unar átti ekki við nein rök að styðj­ast.“

Skýrsla sérfræðinga virt að vettugi

Ragn­heiður hélt áfram að leita orsaka veik­ind­anna og biðla til opin­berra stofn­ana um rann­sókn á flú­or­mengun. Árið 2012 sam­þykkti þáver­andi atvinnu­vega­ráð­herra loks að rann­saka orsakir veik­inda hross­anna. Jakob Krist­ins­son, doktor emeritus í eit­ur­efna­fræði við Háskóla Íslands, og Sigurður Sig­urð­ar­son fyrr­ver­andi yfir­dýra­læknir voru sér­fræð­ing­arnir sem atvinnu­vega­ráðu­neytið fékk til að meta málið. Þeir skil­uðu nið­ur­stöðu rann­sókna sinna í júní árið 2016 og sú nið­ur­staða var afger­andi. Samkvæmt rann­sóknum þeirra, sem stóðu yfir í þrjú ár, eru mestar líkur á að síend­ur­tekin veik­indi hross­anna á Kúlu­dalsá megi rekja til flú­or­meng­unar frá álver­inu og nær úti­lokað er að veik­indin megi rekja til rangrar með­höndl­unar Ragn­heiðar, eins og dýra­læknir Mat­væla­stofn­unar hafði haldið fram. Ragn­heiður segir þá nið­ur­stöðu hafa verið mik­inn létti og henni hafi liðið eins og rétt­lætið hefði loks náð fram að ganga. Hún óskaði eftir því að Mat­væla­stofnun drægi skýrslu sína um ástæður veik­inda hross­anna til baka vegna þessrar nið­ur­stöðu en stofn­unin hafn­aði því. Ragn­heiður greip þá til þess ráðs að kæra Norðurál fyrir brot á starfs­leyf­is­samn­ingi vegna meng­un­ar­slyss­ins en tap­aði því máli, eins og áður sagði bæði fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og Lands­rétti.

Hvernig líður henni eftir þennan nýupp­kveðna dóm Lands­réttar? Hefur þessi bar­átta ekki verið hræði­lega slít­andi?

„Jú, jú, hún hefur verið það,“ segir Ragn­heiður hugsi. „Ég hugsa að ég geri mér kannski ekki alveg grein fyrir því sjálf hvernig mér líður. Ég er bara í bar­átt­unni og maður er ekk­ert að velta því fyrir sér í miðju stríði hvernig manni líður. Maður heldur bara áfram.“

Dómstólar virðast taka ákvörðun fyrir fram

Talandi um að halda áfram, eru ein­hverjar leiðir færar fyrir Ragn­heiði til að ná fram rétt­læti? Hvert verður næsta skref?

„Ég veit það ekki,“ segir hún og and­varpar. „Það er jú til eitt­hvað sem heitir Hæsti­réttur. Ég veit ekki hvort hann vill taka þetta mál upp en mér finnst sjálf­sagt að reyna það. Vegna þess að mér finnst, eftir að hafa séð dóms­orð Lands­réttar og þar áður dóms­orð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, að þessir dóm­stólar séu ekk­ert að dæma í þessu máli. Mér finnst eins og þeir hafi tekið ákvörðun um nið­ur­stöð­una fyrir fram og ég get alveg rök­stutt það. Til dæmis með því hvernig þeir nota máls­gögnin sem koma frá mér. Þeir nota þau nefni­lega ekki og í allri orð­ræðu þeirra skín í gegn að það sem kemur frá Norð­ur­áli sé áreið­an­legt og hlut­laust. Þeir styðj­ast við rangar upp­lýs­ingar frá lög­manni Norð­ur­áls, meðal ann­ars um að ég hafi neitað að láta fara fram flú­or­mæl­ingar á jörð­inni, og nefna það í dóms­orðum. Nokkur vitni gáfu vitn­is­burð frá minni hlið og ég kom sjálf fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, en þegar ég las dóms­orðin frá Hér­aðs­dómi var ekki á þeim að sjá að ég hefði verið þarna. Það lítur helst út fyrir að þau hafi ekk­ert hlustað á mig.

„Mér finnst þetta oft minna á rann­sókn­ar­rétt kaþ­ólsku kirkj­unnar á mið­öldum og vald­níðslu hans.“

Núna fyrir Lands­rétti kom dýra­læknir, sem hefur verið dýra­læknir hérna í 37 ár og gjör­þekkir aðstæður, fram og lýsti því á mjög afger­andi hátt hvernig heilsa hross­anna hefði breyst eftir meng­un­ar­slysið. Hann tók einnig fyrir skýrslu Sigríðar Björns­dóttur sem hann sagði að væri hand­ó­nýt, það væri ekk­ert í henni sem gæfi til­efni til þess að halda því fram að hrossin væru með EMS. Enda þarf að greina hvert ein­asta hross með því að setja það í syk­ur­þols­próf til greina þann sjúk­dóm. Það var ekki gert og ég veit reyndar ekki til þess að eitt ein­asta hross á Íslandi hafi farið í slíkt próf. Samt heldur Sigríður Björns­dóttir því fram að þetta sé útbreiddur sjúk­dómur á Íslandi. Mér finnst þetta oft minna á Rann­sókn­ar­rétt kaþ­ólsku kirkj­unnar á mið­öldum og vald­níðslu hans.“

Ragn­heiður segir að það sem henni finn­ist eig­in­lega óhuggu­leg­ast í þessu máli sé hversu margir séu til­búnir til þess að sam­þykkja það sem Sigríður segir. „Dómarnir hafa svo líka auð­vitað áhrif,“ segir hún. „Fólk hefur til­hneig­ingu til að treysta þeim.“

Kveðju­stund. Ragn­heiður Þor­gríms­dóttir hefur þurft að láta fella nítján hross síðan sum­arið 2007 vegna veik­inda sem hún telur stafa af flú­or­mengun frá álver­inu á Grund­ar­tanga. Síðast var hross fellt þann 11. júní, en það var hryssan Óskadís sem sést hér á mynd­inni með Ragn­heiði.

En hefur Ragn­heiður aldrei í öllu þessu ferli efast um eigin mál­stað? Hafa þessar sífelldu hafn­anir á mála­um­leit­unum hennar ekki haft nein áhrif á sjálfs­mynd hennar?

„Nei, ég held ég hafi bara ágætis sjálfs­mynd,“ segir hún. „En ég er ekki óraunsæ samt. Ég veit auð­vitað að það getur öllum skjátl­ast en aftur á móti hef ég þessi hross fyrir framan mig á hverjum ein­asta degi og hef lesið mér mikið til og ég sé alveg að þetta sem Sigríður heldur fram stenst engan veg­inn. Hvorki varð­andi það hvernig veik­indi hross­anna lýsa sér né hvernig aðbún­aður og með­ferð þeirra er. Ef mín hross eiga að veikj­ast vegna þess að þau eru offóðruð eða ekki hreyfð nógu mikið þá ættu lang­flest hross á Íslandi að vera fár­veik, þau búa öll við svip­aðar aðstæður og mín og flest þeirra eru mun feit­ari en mín.

Ég tel að það séu miklir hags­munir í húfi fyrir marga að þetta mál vinn­ist ekki fyrir dóm­stólum. Nú snýst umræðan æ meir um umhverf­is­vernd og lofts­lags­mál en álfyr­ir­tækin hafa mikið til fengið að vera í friði með sína mengun. Það eru álver í nágrenni við dýra­hald og mat­væla­fram­leiðslu á fleiri stöðum á land­inu. Það er nokkuð öruggt að Norðurál er búið að eyða meira í máls­kostnað heldur það sem ég kref fyr­ir­tækið um í bætur fyrir hrossin mín, enda mæta þeir með fleiri en einn lög­mann fyrir dóm. Ef ég vinn málið gætu fleiri bændur fylgt á eftir, flúor mælist víða hár í til dæmis sauðfé sem er ræktað til mann­eldis og er líka tal­inn hafa slæm áhrif á frjó­semi kinda.“

Þurfti að leggja hesta­nám­skeiðin niður

Auk þess að vera til­finn­inga­lega tengd hross­unum hafa veik­indi þeirra einnig bitnað á atvinnu Ragn­heiðar þar sem hún rak um ára­bil nám­skeið fyrir börn þar sem þessir hestar léku lyk­il­hlut­verk. Eftir það stóra skarð sem hefur verið höggvið í raðir þeirra hefur hún neyðst til að leggja þá starf­semi niður.

„Þessir hestar sem ég not­aði á nám­skeið­unum eru flestir farnir yfir móð­una miklu,“ segir hún. „Og ég þurfti því að leggja nám­skeiðin niður. Maður gerir ekki út á dauða hesta. Það er nefni­lega tölu­verður vandi að finna hesta sem maður getur notað fyrir börn sem aldrei hafa kynnst hestum. Þeir verða að vera svo öruggir og lífs­reyndir og ef ég ætl­aði að fara að kaupa þannig hesta myndi það ekki borga sig fyrir mig, fyrir nú utan það að mér finnst ekki að ég eigi að vera að flytja hesta hingað. Ég get reynt að halda utan um þá sem eru eftir en mér finnst alrangt að flytja hesta inn í þetta umhverfi.“

Þannig að þetta mál hefur höggvið skarð í fjár­hag­inn líka?

„Ég nátt­úr­lega vann fyrir mér sem kenn­ari í ára­tugi,“ útskýrir Ragn­heiður. „Og þótt eft­ir­launin séu ekki há get ég tórt á þeim og svo brá ég á það ráð að stofna ferða­þjón­ustu eftir að hest­arnir fóru að veikj­ast, til að drýgja tekj­urnar og hafa efni á því að halda býl­inu við. Það er líka mjög hressandi að kynn­ast fólki alls staðar að úr heim­inum og það hefur hjálpað mér heil­mikið. Það er svo gott fyrir sál­ina að vinna störf þar sem maður er að gleðja aðra og auka lífs­gæði fólks. Það gefur mér mikið.“

„Þá urðu þeir vondir“

Ragn­heiður heldur úti vef­síð­unni nams­hestar.is þar sem hún hefur farið ítar­lega í saumana á mál­inu alveg frá upp­hafi og hún segir það líka hafa hjálpað sér heil­mikið að geta skrifað sig frá þessu.

„Bara það að koma þessu frá sér léttir á manni,“ útskýrir hún. „Það felst í því ákveðin sál­gæsla.“

En hefur Ragn­heiður staðið í ein­hverjum beinum sam­skiptum við Norðurál vegna máls­ins?

„Árið 2009, þegar ég til­kynnti Umhverf­is­stofnun um veik­indi hross­anna og bað um rann­sókn, sendi ég Norð­ur­áli líka bréf, þar sem þeir hafa alltaf sagt að þeir vilji fá að vita af því ef eitt­hvað sé að hérna í grennd­inni sem hægt væri að tengja þeim. Þeir báðu mig í fram­haldi af því að láta sig fá öll gögn um málið til að þeir gætu látið sína sér­fræð­inga fara yfir þau. Ég svar­aði þeim skrif­lega að svona ynni maður ekki, þeir væru ekki aðil­inn sem ætti að fara yfir gögn varð­andi mengun frá þeim. Þá urðu þeir vondir og ég var þar með komin út á klak­ann hjá þeim,“ segir Ragn­heiður og skellir upp úr.

„Gögnum Norð­ur­áls var gert hærra undir höfði en þeim gögnum sem snerta veik­indi hross­anna,“ segir Ragn­heiður. „Öll orð­ræðan var Norð­ur­áli í hag og rök­semda­færslan sér­kenni­leg. Litið var fram hjá orðum dýra­lækn­is­ins sem bar vitni fyrir Lands­rétti og gjör­þekkir aðstæður á Kúlu­dalsá. Það er mjög aðfinnslu­vert.“

Barátta Ragn­heiðar minnir um margt á kvik­mynd­ina Kona fer í stríð, er hún búin að sjá mynd­ina og sam­sam­aði hún sig aðal­per­són­unni að ein­hverju leyti?

„Ég veit það nú ekki,“ segir hún og brosir. „En mér fannst alla­vega mjög gaman að horfa á mynd­ina. Ég er samt ekki jafn­stór­tæk og hún.“

Segir lög­mann Norð­ur­áls hafa blekkt Landsrétt

Ragn­heiður hefur staðið í stríði við opin­berar stofn­anir síðan árið 2009, finnst henni ekki slít­andi að tala enda­laust fyrir daufum eyrum?

„Ég held það sé nú ekki hægt að tala um dauf eyru, því þeir vita örugg­lega alveg upp á sig skömm­ina,“ segir hún ákveðin. „Ég er ekki í nokkrum ein­asta vafa um það að menn vita að það er eitt­hvað að hérna sem ekki er hægt að skýra með mínum klaufa­skap eða EMS-sjúk­dómi. Þeir ætla bara ekki að taka undir það, vilja ekki sjá það. Það gefur mér kraft til að halda áfram að ég veit að þetta er vegna meng­unar. Það kom greini­lega fram í nið­ur­stöðum sér­fræð­inga atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins að flú­or­mengun sé lík­leg orsök veik­inda hross­anna enda mælist fjór­falt flú­or­magn í bein­sýnum hross­anna hér miðað við hross á ómeng­uðum svæðum. Og þó hrossin hafi verið á aldr­inum 8 til 26 vetra þegar þau voru felld, er flú­or­magnið svipað í þeim öllum, sem merkir að þau urðu fyrir flú­or­á­lagi á sama tíma.

„Ég hef sjálf látið mæla flúor í grasi og heyi og þær tölur eru til og hægt að nýta þær.“

Jakob og Sigurður eru auð­vitað traustir vís­inda­menn sem forð­ast upp­hróp­anir en þeir sögðu að það þyrfti frek­ari rann­sóknir, sem eðli­legt er. Eftir að skýrsla þeirra kom út vildi Umhverf­is­stofnun bæta Kúlu­dalsá inn á vökt­un­arplan vegna álvers­ins, en þeir gera aldrei neitt með þær nið­ur­stöður sem koma út úr vökt­un­inni, þannig að ég sá ekki ástæðu til þess að fara á byrj­un­ar­reit gagn­vart stofn­un­inni, heldur vildi ég að hún héldi áfram þar sem rann­sókn atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins hætti. Ég hef sjálf látið mæla flúor í grasi og heyi og þær tölur eru til og hægt að nýta þær. Í fund­ar­gerð sem gerð var um þennan fund stóð hins vegar að ég hefði neitað Umhverf­is­stofnun um mæl­ingar á bænum. Ég skrif­aði þeim strax og bað þá vin­sam­leg­ast að segja satt, ég hefði ekki neitað þeim, heldur sagt að ég vildi að þeir héldu fyrr­nefndri rann­sókn áfram. Umhverf­is­stofnun tók þessa beiðni til greina. Lögmanni Norð­ur­áls fannst samt bita­stætt að taka þessa klausu úr sam­hengi og leggja hana fyrir Lands­rétt og margend­urtók þetta atriði. Þannig að ég stend við það að þarna hafi ekki verið heið­ar­legur mál­flutn­ingur heldur reynt að láta minn mál­stað líta illa út. Þeir hafa ekki neitt á mig og fara þessa lúa­legu leið til að finna ein­hvern högg­stað á mér.“

Ragn­heiður seg­ist vera ósátt við dóm Lands­réttar, telur hann byggja á að máls­gögnin hafi ekki fengið hlut­læga með­ferð og nefnir annað dæmi. „Í starfs­leyfi Norð­ur­áls frá 2003 stendur skýrum stöfum að hreinsi­bún­aður eigi alltaf að vera í gangi, en í meng­un­ar­slys­inu lá bún­að­ur­inn niðri í einu hreinsi­virk­inu í allt að einn og hálfan sól­ar­hring. Þetta er mjög sér­kenni­leg nið­ur­staða hjá Lands­rétti.“

Álverið á Grund­ar­tanga. „Svo heyrði ég af til­viljun af meng­un­ar­slysi sem hafði orðið í álver­inu síð­sum­ars 2006, það hafði ekk­ert verið sagt frá því,“ segir Ragn­heiður. „Það bil­aði reyk­hreinsi­virki og bún­að­ur­inn komst ekki í fullt lag fyrr en undir næstu ára­mót. … Þetta var kallað „slys“ en var í raun­inni varla slys þar sem svo langur tími leið þar til bún­að­ur­inn komst í fullt lag.“

Þessi bar­átta hefur vænt­an­lega litað allt líf Ragn­heiðar síð­ustu árin, er hún ekk­ert nálægt því að gef­ast upp?

„Ég hef sem betur fer alltaf getað hlegið og tekið þátt í ein­hverju skemmti­legu,“ segir hún. „Ég læt þetta ekki draga mig niður í svart­nætti, alls ekki. Það sem kannski hefur verið erf­ið­ast er að upp­lifa að sumir kunn­ingjar, fólk sem þekkir mig, virð­ist trúa því sem stofn­an­irnar halda fram, að þetta sé mér að kenna. Það hef ég tekið nærri mér. En þú skalt ekki voga þér að reyna að láta mig líta út eins og eitt­hvert fórn­ar­lamb í þessu við­tali. Ég er ekki fórn­ar­lamb, ég er bar­áttu­kona og ég mun halda áfram að berj­ast.

„Náttúran og dýrin eru und­ir­staða búsetu í þessu landi og ég mun halda áfram að taka slag­inn fyrir þeirra hönd, svo lengi sem á þarf að halda.“

Álverið hefur haft gríð­ar­legt oln­boga­rými hér, á kostnað umhverf­is­ins alls. Ég vil að það verði hægt að stunda búskap á þessu svæði í fram­tíð­inni. Náttúran og dýrin eru und­ir­staða búsetu í þessu landi og ég mun halda áfram að taka slag­inn fyrir þeirra hönd, svo lengi sem á þarf að halda.“

Myndir / Unnur Magna og aðsendar myndir
Myndband / Hallur Karlsson, Hákon Davíð Björns­son og Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins