„Samkvæmt óleiðréttum mælingum voru að jafnaði 210.200 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í maí 2019,” segir í tilkynningunni. „Af vinnuaflinu reyndust 197.500 vera starfandi og 12.700 án vinnu og í atvinnuleit.” Hlutfall starfandi var því 77,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 6,1%.
Atvinnulausir í maí 2018 voru um 6.200 manns eða 3% af vinnuaflinu. Það er tvöföldun á milli ára. Alls voru 44.900 utan vinnumarkaðar í maí 2019 en höfðu verið 42.700 í maí 2018.

























Athugasemdir