„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ragnari gjörsamlega misboðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“

Ragnari gjörsamlega misboðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“
xx

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, spyr lands­menn hvernig Halldór Benjamín Þor­bergssson, for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, getir verið svona sam­visku­laus og ósann­gjarn gagn­vart almenn­ingi. Honum er gjör­sam­lega mis­boðið yfir sjúk­legum við­horfum Halldórs sem til­heyri sér­trú­ar­söfn­uði íslenskra arð­ræn­ingja.

Þetta kemur fram í færslu Ragnars á Facebook þar sem hann fer yfir mál­flutn­ing Halldórs í við­tali Víg­lín­unnar á Stöð 2 í gær þar sem hann hafi látið dæl­una ganga gegn verka­lýðs­hreyf­ing­unni. „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja. En ætli það sé ekki best að byrja á því að spyrja hvernig tals­maður atvinnu­lífs­ins getur verið svo sam­visku­laus og ósann­gjarn gagn­vart vinn­andi fólki, almenn­ingi í land­inu? Er þetta virki­lega við­horf atvinnu­lífs­ins? Nú þekki ég marga sem eiga eða stjórna fyr­ir­tækjum og get sagt með vissu að þetta sjúk­lega við­horf SA er ekki að finna í sam­tölum mínum þar. Þvert á móti finn ég fyrir mik­illi sam­kennd og skiln­ingi fyrir því hvað við í verka­lýðs­hreyf­ing­unni erum að gera og þeim mark­miðum sem við viljum ná. Við erum ekki alltaf sam­mála um leiðir en mark­miðin eru þau sömu. Að bæta lífs­kjör. Að skila betra sam­fé­lagi til afkom­enda okkar. Ég þekki ekki þann stjórn­anda eða eig­anda fyr­ir­tækis sem er á móti þessum mark­miðum,“ segir Ragnar.

Ragnar segir ljóst að Halldór til­heyri nýrri kyn­slóð öfga­fólks. Þegar tek­inn er sam­an­burður á íslenskum vinnu­mark­aði við þann nor­ræna kemur sá íslenski ekki vel út. „Á norð­ur­lönd­unum ríkir ákveðið traust á milli stjórn­mála, fjár­mála­kerf­is­ins, atvinnu­lífs og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Traust sem byggir á virð­ingu, sam­kennd og ábyrgð. Traustið er tekið alvar­lega, almenn­ings­á­litið skiptir öllu. Traust sem verður að vera milli almenn­ings og þeirra sem fara með völdin. Þessu er ekki fyrir að fara á íslenskum vinnu­mark­aði. Traust til stjórn­mál­anna skrapar botn­inn í íslensku sam­fé­lagi og virð­ing fyrir vinn­andi fólki er engin. Og ekki er far­s­inn á enda því Halldór Benja­mnín og sér­trú­ar­söfn­uður hans halda nú launa­vísi­töl­unni á lofti sem hið heilaga gagn sem stað­festi brjál­semi og sturlun verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og veg­ferð,“ segir Ragnar og bætir við:

„Ekkert til­liti skal tekið til verð­lags­hækk­ana eða þróun gengis. Ekkert til­lit skal tekið til sam­an­burðar á kostn­aði við að lifa, miðað við Norð­ur­löndin, eða mik­il­vægi þess að verja lífs­kjör þegar kreppir að. Ekkert til­lit skal tekið til þess að í nið­ur­sveiflum og kreppum taka mark­aðs­laun skell og því mik­il­væg­ast að verja grunn­inn. Ég hef reynt að temja mér hóf­semi í orða­lagi og ein­beitt mér frekar að tölum og stað­reyndum. En nú er mér svo mis­boðið að ég á orðið erfitt með að greina fyrir hvað eða hverja mál­flutn­ingur SA stendur. Það eina sem mér dettur í hug er Sér­trú­ar­söfn­uður Arð­ræn­ingja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnulíf

Fólk

Ástin breytti öllu

Þegar Ragn­heiður Dögg Agn­ars­dóttir missti eig­in­mann sinn úr krabba­meini árið 2011 stóð hún frammi fyrir því að þurfa að end­ur­skipu­leggja allt líf sitt og for­gangs­röðin breytt­ist. Í fram­haldi af því stofn­aði hún Heilsu­fé­lagið, ráð­gjaf­ar­þjón­ustu um aukin lífs­gæði, og hefur síðan unnið ötul­lega að því að hjálpa fólki á vinnu­mark­aði, einkum konum, að vinna að betra starfs­um­hverfi og bættum lífs­gæðum. Hún...
Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæpirnir finna sér annan farveg, eins og vatnið“
Innlentatvinnulíf

Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæp­irnir finna sér annan far­veg, eins og vatnið“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir það skipta sköpum í íslensku sam­fé­lagi hverju er stolið og hvernig því er stolið. Hann segir skattaund­an­skot, mútu­greiðslur, umhverf­is­glæpi og pen­inga­þvætti því miður sett í lit­ríka bún­inga eðli­legra hvers­dags­við­skipta. Ragnar gerir launa­þjófnað á íslenskum vinnu­mark­aði að umtals­efni í nýrri færslu sinni á Facebook. Þar segir hann íslenska elítu vilja við­halda þjófn­aði svo ekki fari...
Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar
Innlentatvinnulíf

Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar

Ásta Sigríður Fjeld­sted hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar, en Ásta Sigríður hefur verið fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs frá árinu 2017. Ásta Sigríður hefur störf 1. októ­ber, eins og segir í til­kynn­ingu, en hún tekur við starf­inu af Grétu Maríu Grét­ars­dóttur sem óskaði eftir að láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar í maí. „Ég tek með mik­illi til­hlökkun við starfi fram­kvæmda­stjóra þessa stóra...
Telur aldursfordóma þrífast á íslenskum vinnumarkaði – 170 umsóknir, sex atvinnuviðtöl en engin atvinna
Innlentatvinnulíf

Telur ald­urs­for­dóma þríf­ast á íslenskum vinnu­mark­aði – 170 umsóknir, sex atvinnu­við­töl en engin atvinna

Pistill Bjarna Jóns­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, sem birt­ist á Kjarn­anum í gær hefur vakið mikla athygli. Í pistl­inum skrifar hann um atvinnu­leysi en hann hefur verið atvinnu­laus í rúmt ár, 367 daga nánar til­tekið. „Heilt ár án þess að vakna á morgn­ana, fara í rækt­ina eða sund, fengið mér morg­un­mat og farið síðan til vinnu. Komið heim seinnipart dags­ins, sest niður...
Kristjón Kormákur kveður heim fjölmiðla: „Tilfinningin að vera frjáls verður ekki lýst í orðum“
Innlentatvinnulíf

Kristjón Kormákur kveður heim fjöl­miðla: „Til­finn­ingin að vera frjáls verður ekki lýst í orðum“

Kristjón Kormákur Guð­jóns­son hefur sagt skilið við heim fjöl­miðla. Kristjón, sem hefur verið í veik­inda­leyfi í tæpa tvo mán­uði, greinir frá því færslu á Facebook að honum hafi verið sagt upp störfum sem rit­stjóri fretta­bla­did.is. „Ég átti að snúa aftur til starfa um miðjan júlí en af því verður ekki. Staða mín hefur verið lögð niður,“ skrifar Kristjón Kormákur á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins