„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar

Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar

Ásta Sigríður Fjeld­sted hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar, en Ásta Sigríður hefur verið fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs frá árinu 2017. Ásta Sigríður hefur störf 1. októ­ber, eins og segir í til­kynn­ingu, en hún tekur við starf­inu af Grétu Maríu Grét­ars­dóttur sem óskaði eftir að láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar í maí.

„Ég tek með mik­illi til­hlökkun við starfi fram­kvæmda­stjóra þessa stóra og mik­il­væga fyr­ir­tækis. Öflug, hag­kvæm og ábyrg mat­vöru­verslun er einn lyk­il­þátta í hag­sæld okkar og lífs­kjörum almenn­ings. Krónan er þar afskap­lega spenn­andi fyr­ir­tæki sem hefur verið í mik­illi sókn und­an­farin ár. Krónan hefur á að skipa fjölda fram­úr­skar­andi starfs­fólks sem hefur verið í far­ar­broddi á mörgum sviðum og munum við halda áfram því góða starfi, ásamt því að fást við þær miklu breyt­ingar sem eru að verða á smá­sölu­mark­aðnum,“ segir Ásta Sigríður Fjeld­sted.

Ásta Sigríður hefur verið fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs frá miðju ári 2017. Hún starf­aði fram til þess hjá þremur alþjóð­legum fyr­ir­tækjum í meira en ára­tug: Fyrir ráð­gjafa­fyr­ir­tækið McKinsey & Company frá árinu 2012, bæði á skrif­stofum þess í Tókýó og Kaup­manna­höfn, þar sem hún tók þátt í eða leiddi fjölda smærri og stærri grein­inga-, umbóta- og umbreyt­inga­verk­efna. Áður starf­aði hún hjá IBM í Danmörku og stoð­tækja­fram­leið­and­anum Össuri hf., bæði í Frakk­landi og á Íslandi.  Ásta Sigríður er véla­verk­fræð­ingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækni­há­skól­anum í Danmörku.

„Það er mik­ill styrkur fyrir Festi að fá Ástu Sigríði til að taka að sér að leiða Krónuna og það reynslu­mikla starfs­fólk sem þar starfar. Krónan hefur verið að gera frá­bæra hluti und­an­farin ár og framundan eru miklar breyt­ingar í rekstr­ar­um­hverf­inu og þar kemur reynsla hennar okkur til góða,“ segir Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnulíf

Fólk

Ástin breytti öllu

Þegar Ragn­heiður Dögg Agn­ars­dóttir missti eig­in­mann sinn úr krabba­meini árið 2011 stóð hún frammi fyrir því að þurfa að end­ur­skipu­leggja allt líf sitt og for­gangs­röðin breytt­ist. Í fram­haldi af því stofn­aði hún Heilsu­fé­lagið, ráð­gjaf­ar­þjón­ustu um aukin lífs­gæði, og hefur síðan unnið ötul­lega að því að hjálpa fólki á vinnu­mark­aði, einkum konum, að vinna að betra starfs­um­hverfi og bættum lífs­gæðum. Hún...
Ragnari gjörsamlega misboðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“
Innlentatvinnulíf

Ragnari gjör­sam­lega mis­boðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, spyr lands­menn hvernig Halldór Benjamín Þor­bergssson, for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, getir verið svona sam­visku­laus og ósann­gjarn gagn­vart almenn­ingi. Honum er gjör­sam­lega mis­boðið yfir sjúk­legum við­horfum Halldórs sem til­heyri sér­trú­ar­söfn­uði íslenskra arð­ræn­ingja. Þetta kemur fram í færslu Ragnars á Facebook þar sem hann fer yfir mál­flutn­ing Halldórs í við­tali Víg­lín­unnar á Stöð 2 í gær þar sem...
Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæpirnir finna sér annan farveg, eins og vatnið“
Innlentatvinnulíf

Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæp­irnir finna sér annan far­veg, eins og vatnið“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir það skipta sköpum í íslensku sam­fé­lagi hverju er stolið og hvernig því er stolið. Hann segir skattaund­an­skot, mútu­greiðslur, umhverf­is­glæpi og pen­inga­þvætti því miður sett í lit­ríka bún­inga eðli­legra hvers­dags­við­skipta. Ragnar gerir launa­þjófnað á íslenskum vinnu­mark­aði að umtals­efni í nýrri færslu sinni á Facebook. Þar segir hann íslenska elítu vilja við­halda þjófn­aði svo ekki fari...
Telur aldursfordóma þrífast á íslenskum vinnumarkaði – 170 umsóknir, sex atvinnuviðtöl en engin atvinna
Innlentatvinnulíf

Telur ald­urs­for­dóma þríf­ast á íslenskum vinnu­mark­aði – 170 umsóknir, sex atvinnu­við­töl en engin atvinna

Pistill Bjarna Jóns­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, sem birt­ist á Kjarn­anum í gær hefur vakið mikla athygli. Í pistl­inum skrifar hann um atvinnu­leysi en hann hefur verið atvinnu­laus í rúmt ár, 367 daga nánar til­tekið. „Heilt ár án þess að vakna á morgn­ana, fara í rækt­ina eða sund, fengið mér morg­un­mat og farið síðan til vinnu. Komið heim seinnipart dags­ins, sest niður...
Kristjón Kormákur kveður heim fjölmiðla: „Tilfinningin að vera frjáls verður ekki lýst í orðum“
Innlentatvinnulíf

Kristjón Kormákur kveður heim fjöl­miðla: „Til­finn­ingin að vera frjáls verður ekki lýst í orðum“

Kristjón Kormákur Guð­jóns­son hefur sagt skilið við heim fjöl­miðla. Kristjón, sem hefur verið í veik­inda­leyfi í tæpa tvo mán­uði, greinir frá því færslu á Facebook að honum hafi verið sagt upp störfum sem rit­stjóri fretta­bla­did.is. „Ég átti að snúa aftur til starfa um miðjan júlí en af því verður ekki. Staða mín hefur verið lögð niður,“ skrifar Kristjón Kormákur á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins