„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hún lifir í minningum okkar“

Til að vera sáttur við lífið þarf að sætt­ast við allt sem á undan er gengið, gott eða slæmt, segir Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son sem nýverið missti eig­in­konu sína úr krabba­meini. Áralöng for­ræð­is­deila hjálp­aði honum að kom­ast í gegnum erf­ið­ustu tím­ana og und­ir­búa hann fyrir enn eina áskor­un­ina, að vera ekk­ill og fjög­urra barna faðir.

„Hún lifir í minningum okkar“
|Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son ekill krabba­mein sér­fræð­ingur í við­skipta­greind|Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son ekill krabba­mein sér­fræð­ingur í við­skipta­greind|Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son ekill krabba­mein sér­fræð­ingur í við­skipta­greind||Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son. Mynd/Hallur Karlsson|Mynd sem Aldís Páls­dóttir tók af Ingveldi árið 2015 fyrir Vikuna. Kristinn ætlar að hlaupa 21 kíló­metra í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu sem vill svo til að ber upp á brúð­kaups­dag hans og Ing­veldar

Eig­in­kona Kristins, Ing­veldur Geirs­dóttir, lést þann 26. apríl síð­ast­lið­inn eftir hetju­lega bar­áttu við krabba­mein, ein­ungis 41 árs gömul. Hún greind­ist fyrst með brjóstakrabba­mein árið 2014, þá ófrísk að þeirra fyrsta barni en fyrir átti Ing­veldur sex ára dreng og Kristinn þrjú börn, eina upp­komna dóttur og tvö börn, níu og tíu ára.

Afstaða og við­horf Ing­veldar til sjúk­dóms­ins vakti víða aðdáun. Hún tal­aði opin­skátt og hisp­urs­laust um sjúk­dóm­inn og mynd sem birt­ist af henni á for­síðu Sunnu­dags­mogg­ans, þar sem hún stóð ber að ofan með mynd­ar­lega kúlu og krúnurakað hár, vakti mikla athygli.

Tveimur vikum eftir útför Ing­veldar, sem fór fram þann 14. maí, sest Kristinn niður með blaða­manni á heim­ili þeirra. Rétt eins og Ing­veldur, talar hann hreint út og opin­skátt, án þess að beygja af.

Eftir marga erf­iða daga og nætur á sjúkra­húsi og til­stand við að skipu­leggja útför­ina er lífið smám saman að kom­ast í eðli­legt horf. Hann er búinn að koma börn­unum í skóla og leik­skóla og fram undan eru fundir í vinn­unni. Aðeins á eftir að jarð­setja duft­kerið og svo fer fjöl­skyldan í lang­þráð frí til Tenerife.

Sá ekki dótturina í átta ár

Eftir allt sem á undan er gengið leggur Kristinn áherslu á tvennt, að vera sáttur við lífið og að vera til staðar fyrir börnin. „Að koma í veg fyrir algjört hrun, því ég hef gert það áður,“ segir Kristinn og vísar þar í mál sem hann hefur aldrei áður viljað tala opin­skátt um.

Árið 1991 eign­að­ist Kristinn dóttur, Stein­unni Helgu, með þáver­andi sam­býl­is­konu sinni. Þau slitu sam­vistum og þremur árum síðar flutti barns­móðir hans til Banda­ríkj­anna en Steinunn varð eftir hjá honum á Íslandi. Árið 1997 var gerð dómsátt um að Kristinn fengi fullt for­ræði en að Steinunn væri hjá móður sinnni í Banda­ríkj­unum yfir sum­ar­tím­ann. Það gekk eftir fyrstu árin en í ágúst 2000 fór af stað atburða­rás sem leiddi til þess að hann fékk ekki að sjá dóttur sína í átta ár.

„Á föstu­dags­kvöld­inu áður en ég ætl­aði að sækja hana út á Kefla­vík­ur­flug­völl hringdi mamma hennar í mig og sagði að hún kæmi ekki aftur. Ég var alltaf viss um að þetta myndi ger­ast á ein­hverjum tíma­punkti en þarna fór ég í algjöra afneitun. Ég var staddur í sum­ar­bú­stað á Búðum á Snæ­fells­nesi og ég brun­aði af stað til Kefla­víkur og ætl­aði að sækja hana út á flug­völl. Ég var þar í 6-7 tíma, bara að bíða eftir að hún kæmi út um hliðið. Ég fór bara í mók.“

Draumur þeirra Kristins og Ing­veldar var að gift­ast í Gaul­verja­bæj­ar­kirkju en þess í stað fór athöfnin fram á deild 11E á Land­spít­al­anum. „Þetta var mjög fal­leg og góð stund,“ segir Kristinn.

Kristinn stóð uppi algjör­lega bjarg­ar­laus. Þetta var fyrir tíma sam­skipta­miðla og í árdaga Inter­nets­ins þar sem upp­lýs­ingar voru af skornum skammti og allar sam­skipta­leiðir mun hæg­ari en í dag. „Ég hringdi í sýslu­mann og þar var bara spurt hvort hún hefði það ekki fínt hjá mömmu sinni. Ég hringdi út um allt – í lög­fræð­inga, þing­menn, sendi­herr­ann í Banda­ríkj­unum. Þessi vetur fór í algjört mók hjá mér og ég man satt best að segja ekk­ert eftir honum. Heim­ur­inn bara hrundi.“

Úr varð að Kristinn fór til Banda­ríkj­anna þar sem hann fékk að hitta dóttur sína á hót­el­her­bergi undir eft­ir­liti. Hann tal­aði við lög­fræð­ing sem útskýrði fyrir honum að hann væri í afar þröngri stöðu.

„Banda­ríkin við­ur­kenndu ekki Haag-sátt­mál­ann og Texas [þar sem barns­móðir Kristins bjó] alls ekki. Hún sagði að ef ég færi með málið í gegnum dóms­kerfið í Banda­ríkj­unum myndi ég lík­lega vinna það en til þess þyrfti ég að vera í dóm­sal í átta ár. Þá yrði hún orðin 18 ára. Þannig að ég gerði sam­komu­lag um að snúa þessu við, að hún myndi búa í Banda­ríkj­unum og koma til mín á sumrin.“

Úr varð að Steinunn kom til Íslands vorið 2001 en Kristinn segir að and­legt ástand hans hafi verið þannig að hann muni lítið eftir þessum tíma. „Ég man ekki eftir þessu sum­ari nema á myndum og af þeim að dæma var þetta ágætis sumar. Eftir þetta sumar fékk hún ekki að koma aftur og hún kom ekk­ert aftur fyrr en 2009 þegar hún var orðin 18 ára og ákvað að koma sjálf. Ég heyrði eða sá lítið af henni í átta ár. Síðan hefur hún komið í heim­sóknir og hún bjó hérna hjá okkur einn vetur í hitteð­fyrra, hún og afa­strák­ur­inn Alan. Það var mjög góður tími. Hún er nátt­úr­lega full­orðin kona núna og kemur bara þegar hún vill koma.“

Bar grímu í mörg ár

Kristinn segir að þessi reynsla hafi haft djúp­stæð áhrif á hann, bæði til skemmri og lengri tíma. Lífið hafi vissu­lega haldið áfram en hann hafi mætt því með því að setja upp grímu og látið sem allt væri í lagi.

„Þegar þetta gerð­ist þá hrundi heim­ur­inn alveg, en ég hélt samt ein­hvern veg­inn áfram, var í vinn­unni og svo­leiðis en samt aldrei almenni­lega til staðar. Á tíma­bili vildi maður ekki lifa. Það komu ekki upp sjálfs­vígs­hug­leið­ingar eða slíkar lang­anir, ein­fald­lega af því að ég er svo for­vit­inn að vita hvað ger­ist næst. En það var oft sem maður hugs­aði hvað það væri nú nota­legt ef maður lenti í bílslysi, þá væri þetta bara búið.“ Kristinn segir að næstu árin á eftir hafi hann hrunið niður í tíma og ótíma en eftir því sem lífið vatt upp á sig hafi slíkum augna­blikum fækkað. „Það bætt­ust aðrir hlutir inn í lífið. Ég kynnt­ist annarri konu og eign­að­ist með henni tvö börn, við fórum út til Dan­merkur og ég fór í vél­tækni­fræði og kláraði það.“

„En það var oft sem maður hugs­aði hvað það væri nú nota­legt ef maður lenti í bílslysi, þá væri þetta bara búið.“

Kristinn segir að sú bitra lífs­reynsla sem hann gekk í gegnum hafi orðið honum leið­ar­ljós í líf­inu. Að líta á lífið sem eina sam­fellda heild en ekki röð ein­stakra við­burða. Öðruvísi geti maður ekki orðið sáttur við lífið.

„Ef henni hefði ekki verið rænt af mér hefði ég aldrei eign­ast næstu börn á eftir og aldrei farið að mennta mig. Ég hefði kannski keypt mér lottómiða og unnið millj­arða í lottói, ég veit ekk­ert um það. En þessi far­vegur sem hefur átt sér stað síðan hefði aldrei orðið. Ef ég er sáttur við lífið í dag, sem ég er, þá verð ég að vera sáttur við allt sem á undan er gengið, gott eða slæmt. Ég get ekki sagt að ég sé sáttur í dag en ósáttur við eitt­hvað sem er búið að ger­ast. Sú reikni­for­múla gengur ekki upp.“

Það er einmitt þannig sem Kristinn hefur tek­ist á við veik­indi og and­lát Ing­veldar. „Ég hef val. Ann­að­hvort að vera ósáttur við næstu ár eða vera sáttur við næstu ár. Ef ég ætla að vera sáttur næstu ár verð ég að sætta mig við það sem hefur gerst. Ég gæti farið sömu leið og síð­ast, sett upp grímu og látið eins og allt sé í lagi en hrunið svo niður ein­hvers staðar. En það er bara vondur far­vegur, ég er búinn að prófa það og það virkar ekki. Ég þarf að vera til staðar fyrir börnin og ég vel það.“

Bakslag eftir bata

Ing­veldur greind­ist með ill­kynja æxli í brjósti haustið 2014. Hún var þá gengin fjóra mán­uði á leið og var strax tekin sú ákvörðun að ganga alla leið með barnið. Brjóstið var strax tekið og svo hófst lyfja­með­ferð sem gert var hlé á fram að fæð­ingu og hófst að nýju skömmu eftir. Allt gekk að óskum, Ing­veldur losn­aði við meinið og var farin að vinna í að ná fullum styrk.

„Í febr­úar í fyrra var hún ekki alveg eins og hún átti að sér að vera. Hún var þreytt­ari og fékk oftar höf­uð­verk. Hún tal­aði við krabba­meins­lækn­inn og bað um að láta skoða sig en það var ekki gert. Þetta hélt áfram og það var ekki fyrr en í júní sem við fórum niður á bráða­mót­töku og neit­uðum að fara út nema að það væri tekin mynd.“

Kristinn ann­ast nú fjög­urra ára dóttur hans og Ing­veldar, Gerði Freyju, en fyrir á hann tvö börn úr fyrra sam­bandi sem í dag eru 14 og 15 ára, og upp­komna dóttur. Ing­veldur átti einnig fyrir son sem í dag er 11 ára.

Þá kom í ljós þriggja og hálfs sentí­metra hrað­vax­andi æxli í höfði Ing­veldar. Þeim var tjáð að æxlið væri á góðum stað og ekki væri hætta á miklum fylgi­kvillum af aðgerð­inni. Í henni kom hins vegar í ljós að það var komið smit í heila­himn­una og Ing­veldur var því send í geisla­með­ferð.

„Það virt­ist ganga mjög vel og hún var útskrifuð. Við komum heim og hófum okkar upp­bygg­ing­arfasa en hún var alltaf með ein­hvern doða í vinstri hönd og hægri fæti. Lækn­arnir sögðu að lík­leg­ast væri þessi doði til­kom­inn vegna aðgerð­ar­innar, að tauga­boðin skil­uðu sér ekki rétt og þetta myndi mögu­lega koma til baka. Nema þessi doði jókst bara. Við vorum ekki búin að vera lengi heima, kannski þrjár vikur, þegar við fórum aftur niður á bráða­mót­töku og þá kom í ljós að það var komið sáldur í mæn­una, krabba­meins­sáldur.“ Það var á þessum tíma sem þeim var gerð grein fyrir því að meinið yrði ekki læknað. Þetta væri því aðeins spurn­ing um tíma.

Þetta var staða sem Kristinn hafði áður verið í því fjórum árum áður hafði hann fylgt móður sinni til grafar. Banamein hennar, líkt og Ing­veldar, var krabba­mein. „Mamma greind­ist 2012 og þá var meinið búið að dreifa sér. Mamma var alltaf bros­andi, sama hvað gekk á, en ég man að það fékk mjög á hana þegar Ing­veldur greind­ist. Hún fór svo 1. des­em­ber 2015. Ári áður dó frænka mín líka úr brjóstakrabba­meini. Hún dó ung frá börnum og útförin var mjög erfið. Það var eftir að brjóstið var tekið af Ingveldi og hún komin í með­ferð­ina. Þarna sá maður hvert þessi með­ferð gat leitt.“

Átti ekki að fá að fara á afmælisdaginn

Síð­ast­liðið haust var Ing­veldur orðin mjög veik og dvaldi lang­tímum saman á sjúkra­húsi. Fyrir til­stuðlan Óskars Jóhanns­sonar krabba­meins­læknis fékkst sam­þykki fyrir að flytja inn sér­stakt lyf sem hafði mjög góð áhrif á Ingveldi.

„Hún var orðin þannig að hún þurfti aðstoð við allt en þegar hún fékk þetta lyf fór hún að fá kraft­inn smám saman aftur. Hún gat farið í búð og í sauma­klúbb­inn án þess að nota hjóla­stól og var orðin sjálf­stæð með allt sitt sem var í raun krafta­verk miðað við hvernig staðan var orðin. Þetta var mjög góður tími. En svo kom að því að lyfið hætti að virka. Óskar var búinn að segja okkur að það myndi ger­ast þar sem lyfið ræðst ein­ungis gegn BRCA-sýktum frumum en hefð­bundnar krabba­meins­frumur héldu áfram að fjölga sér. Þetta gerð­ist í mars og þá var krabba­meinið komið í mæn­una.“

Í byrjun apríl var staðan orðin afar slæm. Kristinn var staddur í Þýska­landi í vinnu­ferð þegar hann fékk sím­tal frá læknum og hann beð­inn um að koma með fyrstu vél heim því þetta væri mögu­lega aðeins spurn­ing um klukku­stundir. „Á laug­ar­deg­inum, á afmæl­is­degi dóttur okkar, 6. apríl, var hún með­vit­und­ar­laus og svaf allan dag­inn. Við héldum upp á fjög­urra ára afmælið niðri á spít­ala en Ing­veldur vakn­aði aldrei þann dag­inn. Ég hélt þá að hún væri að fara og búið var að segja okkur að það yrði ekki reynd end­ur­lífgun á þessu stigi. Ég var samt alveg ákveð­inn í að hún fengi ekki að fara á afmæl­is­degi dóttur okkar og var til­bú­inn til að fara fram á að henni yrði haldið á lífi fram yfir mið­nætti alla vega. En svo gerð­ist það að hún vakn­aði dag­inn eftir og var bara öll hin hress­asta.“

Dýrmæt stund á dánarbeðinum

Það kom Kristni ekki á óvart að Ing­veldur skyldi hafa vaknað á þessum tíma­punkti. Ekki bara hafi hún þurft að gefa stórum vina­hópi sínum tæki­færi til að kveðja heldur eigi margir í fjöl­skyldu hennar afmæli í apríl.

„Hún teygði sig fram yfir afmæl­is­dag­ana í fjöl­skyld­unni í apríl, ferm­ing­una hjá dóttur minni og hún fór ekki fyrr en tveimur dögum eftir síð­asta afmæl­is­dag. Þekkj­andi hana held ég að það hafi haft eitt­hvað með það að gera. Hún ætl­aði ekki að fara að deyja á ein­hverjum afmæl­is­degi hjá ein­hverjum nánum.“

Dagana eftir að Ing­veldur vakn­aði tók hún á móti vinum og vanda­mönnum sem fengu tæki­færi til að kveðja hana í hinsta sinn. „Það var alveg merki­legt að þegar gest­irnir komu þá setti hún sig í ein­hvern hærri gír og var alveg með á nót­unum. Heim­sókn­irnar tóku vissu­lega orku frá henni og hún þurfti að leggja sig á milli þeirra. En hún setti alla sína orku í að kveðja vel og almenni­lega.“

„Hún ætl­aði ekki að fara að deyja á ein­hverjum afmæl­is­degi hjá ein­hverjum nánum.“

En tím­inn var að renna út. Ing­veldur sýndi lítil við­brögð, hún var mikið verkja­stillt og nærð­ist lítið. En svo gerð­ist nokkuð sem kom Kristni algjör­lega í opna skjöldu. „Eina nótt­ina vakn­aði hún um sex­leytið. Hún var þá stödd í skemmti­ferða­skipi og spurði mig hvenær við færum næst í land. Hún var eitt­hvað óró­leg og vildi ekki sofa þannig að ég kveikti á útvarp­inu og skömmu síðar byrj­aði Jónas Sig að syngja lagið „Dansiði“. Þá byrj­aði hún skyndi­lega að baða út öllum öngum og hún dans­aði allt lagið þarna í rúm­inu. Þarna fór orkan alveg í botn en um leið og lagið klárað­ist var hún alveg búin og sofn­aði. Þetta var skemmti­leg og dýr­mæt stund.“ Örfáum dögum síðar lést Ing­veldur.

Mamma er núna í hjartanu í mér

Kristinn segir að í öllu þessu hafi bæði hann og Ing­veldur verið vel með­vituð um að enda­lokin væru óum­flýj­an­leg. Þau hafi lagt áherslu á að gera börn­unum grein fyrir því líka og alltaf talað hreint út um veik­indin við börnin. „Við þá yngstu líka þótt hún hafi ekki enn fangað hug­takið dauð­ann. Hún fangar þetta svo­lítið þannig að „nú er mamma ekki lengur á sjúkra­hús­inu. Núna er hún í hjart­anu í mér. Hún er með hús þar.“ Svo á þetta bara eftir að þró­ast með hennar þroska. Hún var nátt­úr­lega búin að upp­lifa það að mamma hennar hafði verið á sjúkra­hús­inu í um 100 daga síð­ast­liðna níu mán­uði. Þetta var svo­lítið langur tími sem hún hitti alltaf mömmu sína á spít­ala. Það kom mér nokkuð í opna skjöldu að hún var vissu­lega sorg­mædd en samt glöð yfir því að nú væri mamma hjá sér. Svo þegar hún er að melta þetta hug­tak, dauði, þá koma spurn­ingar eins og „við erum ekki dáin, er það?“ Það þarf bara svo­lítið að halda henni við efnið og tala um þetta. Að vera ekki að vernda börnin gagn­vart þessu. Þetta er bara staðan og ég hef ekk­ert verið að segja við hana að mamma hennar sé á himnum með englum eða eitt­hvað svo­leiðis. Hún er bara dáin og hún lifir í minn­ingum okkar.“

„Eins og 100 kíló væru tekin af mér“

Útför Ing­veldar fór fram frá Graf­ar­vogs­kirkju þann 14. maí. Kristinn segir að í ágúst, þegar ljóst varð hvert stefndi, hafi þau haf­ist handa við að und­ir­búa jarð­ar­för­ina. En jafn­vel þótt allt hafi verið á hreinu og Kristinn vel með­vit­aður um hvernig Ing­veldur hafi viljað hafa útför­ina fann hann fyrir miklu stressi.

„Það lá svo þungt á mér að þetta yrði gert eins og hún myndi vilja hafa þetta, helst aðeins umfram það. Svo kom önnur skrítin til­finn­ing, þegar síð­asta atrið­inu í útför­inni var lokið var léttir­inn svo mik­ill, það var eins og 100 kíló væru tekin af mér. Þetta var full­komin jarð­ar­för, alveg eins og hún hefði viljað hafa hana og vel það. Ef það hefði ekki verið svona margt fólk þarna hefði ég hoppað upp og gargað „yes!“ Það var mjög skrítin til­finn­ing að vera, á þessum tíma, jafn­glaður og ég var. Eftir á að hyggja getur maður hlegið að þessu, en í móment­inu var maður að hugsa að þetta væri hvorki stað­ur­inn né stundin til að vera glaður.“

„Þetta var full­komin jarð­ar­för, alveg eins og hún hefði viljað hafa hana og vel það. Ef það hefði ekki verið svona margt fólk þarna hefði ég hoppað upp og gargað „yes!““

Fann sterkt fyrir henni í sveitinni

Ing­veldur var fædd og upp­alin á Gerðum í Gaul­verjabæ og segir Kristinn að hún hafi hvergi notið sín betur en þar. Planið hafi verið að þau myndu gifta sig í Gaul­verja­bæj­ar­kirkju en þess í stað hafi þau gift sig á kaffi­stof­unni á deild 11E á Land­spít­al­anum. „Okkur var ráð­legt að klára þetta upp á praktísk mál þannig að við giftum okkur 24. ágúst. Þetta var á föstu­degi. Við töl­uðum við Gunnar sjúkra­hús­prest og svo var náð í börnin og systur hennar Ing­veldar. Þetta var mjög fal­leg og góð stund, en við höfðum þann fyr­ir­vara að þegar hún væri komin með ork­una aftur ætl­uðum við að fara með Gunnari í Gaul­verja­bæj­ar­kirkju og gifta okkur þar. En það varð því miður ekki en Gunnar kemur samt með okkur í Gaul­verjabæ þegar duft­kerið verður jarð­sett í lít­illi athöfn.“

„Ég átti svo­lítið erfitt með mig í gær þar sem ég horfði út um glugg­ann og … ég nán­ast sá hana.“

Kristinn var einmitt nýkom­inn frá Gerðum þegar við­talið fór fram og sagð­ist hann hafa fundið sterkt fyrir nær­veru Ing­veldar þar. „Ég er ekki trú­aður á þann hátt að ég haldi að það sé líf eftir dauð­ann eða að það séu draugar sem ganga hér um. En ég finn sterkt fyrir henni og aldrei eins og í sveit­inni. Ég átti svo­lítið erfitt með mig í gær þar sem ég horfði út um glugg­ann og … ég nán­ast sá hana. Ég fann ein­hvern veg­inn að hún væri þarna, að fara út í fjósið. Þarna var hennar heima­völlur. Það var mjög skrítin til­finn­ing og ég hef aldrei upp­lifað þetta áður. En það var mjög gott að upp­lifa þetta, að finna hana.“

Ætlar að vinna í sjálfum sér

Eðli máls­ins sam­kvæmt hafa und­an­farnar vikur verið anna­samar hjá Kristni. Auk þess að skipu­leggja útför­ina og ganga frá öðrum praktískum málum hefur verið gest­kvæmt á heim­il­inu. En það er aðeins farið að hægja á og þá vill það oft ger­ast að sorgin hellist yfir. Kristinn seg­ist mjög með­vit­aður um þetta. „Núna hefur lífið snú­ist um að klára útför­ina og þessi praktísku mál, taka börnin úr þessu umhverfi og fara með þau til Tenerife og svo í úti­legur í sumar. Ég geri alveg ráð fyrir því að það komi skellur í haust. Ég veit að það mun ger­ast en ég ætla þá alla vega að vera búinn að und­ir­búa það með því að vera kom­inn í rútínu með leik­skól­ann, að þetta verði eins og smurð vél. Varðandi fram­haldið þá bara er það að halda minn­ingu Ing­veldar á lofti fyrir börn­unum og ekki reyna að grafa þetta niður til að ein­falda lífið. Við tölum bara um þetta, grátum saman þegar þarf að gráta saman. Það er allt í lagi. Það verður erfitt að halda jólin, það verður erf­iður apr­íl­mán­uður á næsta ári þegar öll barna­af­mælin eru. En ég hef ekk­ert rosa­lega miklar áhyggjur af því enn þá.“

Mynd sem Aldís Páls­dóttir tók af Ingveldi árið 2015 fyrir Vikuna. Kristinn ætlar að hlaupa 21 kíló­metra í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu sem vill svo til að ber upp á brúð­kaups­dag hans og Ing­veldar, 24. ágúst.

Í fyrsta skipti ætlar Kristinn svo að vinna skipu­lega í sjálfum sér. „Ég hef verið að hugsa um það að ég þurfi að finna mér nýjan takt, hvernig ég ætli að hafa hlut­ina. Ég er búinn að panta mér við­tals­tíma hjá Ljósinu eftir að ég kem heim frá Tenerife og þá ætla ég að byrja að spá í mig. Það er eitt­hvað sem ég hef aldrei gert áður og ég finn að það hjálpar að tala. Bara það að tala opin­skátt við börnin hefur verið eins og sál­fræði­tími fyrir mig. Ég vor­kenni stundum fólki sem slys­ast til að spyrja hvernig ég hafi það því ég segi það bara hreint út. Fólk verður þá bara að taka því og höndla það ef ég fer að gráta.“

Reykja­vík­ur­mara­þonið er fram undan og svo vill til að það ber upp á brúð­kaups­dag­inn, 24. ágúst. Þar ætlar Kristinn að hlaupa 21 kíló­metra í nafni Ljóssins. Hann við­ur­kennir að lang­hlaup séu ekki hans sterkasta hlið enda stór og mik­ill maður. Ástríða hans liggur í ruðn­ingi (rugby) en Kristinn er einn af for­víg­is­mönnum íþrótt­ar­innar hér á landi. „Ég fer bara hægt og örugg­lega yfir. Ég hef engar áhyggjur að kom­ast ekki í enda­markið.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins