„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Klaustursupptökur á Bárubrennu að skipan Persónuverndar: „Ég hef svosem ekkert við upptökurnar að gera.”

„Lög­fræð­ing­ur­inn minn verður þarna með skörp augu á sím­anum og tekur eyð­ing­una upp” segir Bára Hall­dórs­dóttir, upp­ljóstr­ari í Klaust­urs­mál­inu, sem boðað hefur til Bára­móta­brennu í til­efni úrskurðar Per­sónu­verndar um að hún hafi brotið per­sónu­vernd­ar­lög í klaust­urs­mál­inu. „Mynd­bandið verður svo sent til per­sónu­verndar.”

Klaustursupptökur á Bárubrennu að skipan Persónuverndar: „Ég hef svosem ekkert við upptökurnar að gera.”

Bára­móta­brenna fer fram á Gauknum klukkan 21.00 í kvöld. Frítt er inn og öllum frjálst að mæta.

Bára varð lands­fræg undir lok síð­asta árs eftir að hafa orðið vitni af fjög­urra klukku­stunda ölæði og grobbi þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins. Miðviku­dags­kvöldið 28. nóv­ember 2018 birtu Stund­in, DV og Kvenna­blaðið frétt­ir sem unn­ar eru upp úr hljóð­upp­töku af sam­tali fjög­urra þing­mann­anna Mið­flokks­ins; Sig­mund­ar Davíðs Guðlaugs­son­ar, Gunn­ars Braga Sveins­son­ar, Bergþórs Ólason­ar og Önnu Kol­brún­ar Árna­dótt­ur, og tveggja þing­manna Flokks fólks­ins; Karls Gauta Hjalta­son­ar og Ólafs Ísleifs­son­ar. Karl Gauta og Ólaf var vikið úr Flokki fólks­ins. Báðir hafa nú gengið í Mið­flokk­inn. Stjórn Per­sónu­verndar komst að þeirri nið­ur­stöðu í lok maí að Bára Hall­dórs­dóttir hefði brotið per­sónu­vernd­ar­lög þegar hún tók upp sam­talið í Klaustri í nóv­em­ber á síð­asta ári. Henni var ekki gert að greiða sekt en skal eyða upp­tök­unni

Báru þykir skipun Per­sónu­vernar um eyð­ingu upp­tök­unnar skondin. „Þetta er nú svo­lítið fyndin pæl­ing” segir hún spyr hvaða áhrif það hefur. „Þetta er nú þegar komið í fjöl­miðla.” Per­sónu­vernd mat lengd upp­tök­unnar sem þó náði ekki utan um allt sam­tal lög­gjafa­full­trú­anna óhóf­legt. Per­sónu­vernd felldi upp­tökun undir ákvæði um raf­ræna vöktun. „Ég skil þetta ekki alveg með raf­rænu vökt­un­ina en ég er sátt við þetta” segir Bára um dóm­inn og bætir við „ég hef svosem ekk­ert við upp­tök­urnar að gera.”

Fleyg orð þingmannanna fái verðskuldaðan sess

Á við­burð­inum í kvöld verða valdir kaflar upp­tök­unnar kvaddir sér­stak­lega. „Það sem var mik­il­væg­ast í þessu voru þessi fleygu orð sem fóru og það er einmitt mik­il­væg­asti part­ur­inn af þessu öllu saman. Mig langar að gefa þeim sinn sess.” Þó að nafnið á við­burð­inum ýjar að brennu seg­ist hún ekki ætla brenna sím­ann, enda sóða­skapur og mengun. „Held það sé best að lýsa því þannig að það verður tákn­rænn eldur en tækni­leg eyð­ing.”

„Ég var svo heppin að mér var gef­inn nýr sími af ónefndum vel­gjörð­ar­að­ila sem að fannst það ekki til sóma að ég væri með brot­inn síma.” segir Bára sem er aðil­anum afar þakk­lát. Hún seg­ist þó ekki ætla henda gamla sím­anum enda haldi hún uppá hann. „Hann er eig­in­lega orð­inn sögu­legur gripur. Veit ekki hvað verður um hann á end­anum en hann fer ekk­ert í ruslið greyið.”

Óminnismjöður og samviskuskot verða á tilboði

Á síðu við­burð­ar­ins kemur fram að óminn­is­mjöður og sam­visku­skot verða á til­boði, sömu­leiðis kok­teill kvölds­ins, Blackout36. „Þetta var hug­mynd sem að Starri vinur minn, sem rekur Gaukinn. Kom með” segir hún. „Hann er snið­ugur maður og hefur alltaf verið. Orð­hepp­inn.” Bára hefur ekki hug­mynd um hvað sé í drykkj­unum. „Ég hlakka til að kom­ast að því hvað þetta er” segir hún og hlær. „Það er gaman að gera eitt­hvað skemmti­legt úr þessum leið­indum.”

Bára hvetur alla til að koma með eigið upp­töku­tæki og í dul­ar­gervi. „Eins og ein­hver sagði: Best að vera meira sexy en í fyrra, meira sexy á hverju ári.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klaustursmálið

Miðflokksmenn ætla ekki að fylgjast með eyðingu upptökunnar: „Bára hver?“
Innlentklaustursmálið

Mið­flokks­menn ætla ekki að fylgj­ast með eyð­ingu upp­tök­unnar: „Bára hver?“

„Bára hver?” spurði Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins og einn Klaust­urs­þing­manna, er Mannlíf innti hann eftir hvort búast mætti við honum og jafn­vel þing­flokk Mið­flokks­ins á Bára­móta­brennu í kvöld. Á við­burð­inum verður upp­töku Báru Hall­dórs­dóttur frá Klaustri eytt með form­legum hætti við hátíð­lega athöfn.
Halldóra Mogensen um stjórnmálamenn í kosningaham: „Lofa öllu fögru til að halda völdum.”
Innlent

Halldóra Mogensen um stjórn­mála­menn í kosn­inga­ham: „Lofa öllu fögru til að halda völdum.”

„Lofa öllu fögru til að halda völdum,” sagði Halldóra Mogensen , þing­kona Pírata, um stjórn­mála­menn í kosn­inga­ham. Þetta sagði hún í eld­hús­dags­um­ræðum í kvöld. Halldóra bætti við að eftir kosn­ingar hefði fólk mátt venj­ast því að lof­orðin stand­ist ekki. Nefndi hún sem dæmi að allir flokkar hefðu lofað að enda krónu á móti krónu skerð­ingu en slíkt hafi enn ekki gerst.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins