„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Allir vissu að maðurinn var sekur

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, sem missti son sinn sem svipti sig lífi fyrir þremur árum í kjöl­far kyn­ferð­is­of­beldis, segir að allir hafi vitað að ger­and­inn í mál­inu hafi verið sekur. Hann hafi hins vegar ekki verið ákærður í því til­tekna máli þar sem óvíst var hvort sönn­un­ar­gögnin nægðu til sak­fell­ingar. Sig­ur­þóra segir það ömur­lega til­hugsun.

Allir vissu að maðurinn var sekur
Mynd / Hallur Karlsson

Ítarlega er rætt við Sig­ur­þóru í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Bergur Snær Sig­ur­þóru­son, svipti sig lífi þegar hann var aðeins 19 ára, í mars árið 2016. Bergur Snær hafði verið beittur kyn­ferð­is­of­beldi og það sem dró hann til sjálfs­vígs var áfallastreituröskun sem hann hlaut í kjöl­far þess. Sig­ur­þóra segir að það hafi verið erfitt að átta sig á þeim erf­iðu aðstæðum sem Bergur Snær var í á sínum tíma. „Við vorum með ung­ling sem átti klár­lega í erf­ið­leikum og við höfðum áhyggjur af honum. Hann flosn­aði upp úr skóla, var að fikta við að reykja marjúana og svona vesen á honum. Síðan kom í ljós að hann hafði lent í mjög alvar­legu kyn­ferð­is­of­beldi en það upp­götv­að­ist eftir að við vorum búin að vera að vand­ræð­ast með þetta í ein­hvern tíma.

Þá fór af stað ótrú­lega erfitt ferli þar sem við biðum eftir ákæru á hendur ger­and­anum en það end­aði með því að málið var fellt niður. Við fréttum að það væri búið að leggja fram ákæru á hendur mann­inum en þær fréttir að mál Bergs Snæs væri ekki á meðal þeirra brota sem ákært var fyrir þurftum við að sækja inn í kerfið eftir miklum króka­leiðum.

Ég hef talað mikið fyrir því að við breytum rétt­ar­stöðu þolenda í kyn­ferð­is­brota­málum sem er núna í umræð­unni. Það er auð­vitað algjör­lega fárán­leg staða fyrir þolendur að vera vitni í máli sem bein­ist gegn þeim og þeirra eigin lík­ama. Það er algjör­lega galið.

Ef við hefðum vitað af því að það stefndi í þessa nið­ur­stöðu hjá sak­sókn­ara hefðum við auð­vitað brugð­ist við því. Það vissu allir og sak­sókn­ari með­tal­inn að mað­ur­inn var sekur um það sem Bergur Snær kærði hann fyrir. Sak­sókn­ari bara valdi þann kost­inn að sleppa því að ákæra vegna þess að hann var ekki viss um að hann gæti náð fram sak­fell­ingu í kæru Bergs, eins og í hinum mál­unum sem þessi sami maður var kærður fyrir. Í þeim málum fékk hann fram játn­ingu og því breyttu fleiri mál ekki neinu um þyngd dóms­ins. Ég get auð­vitað ekk­ert full­yrt en óneit­an­lega hvarfl­aði að okkur að þess vegna hafi sak­sókn­ara ekki þótt taka því að taka slag­inn í máli Bergs Snæs. Það er ömur­leg til­hugsun.“

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins