„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tekur tíma að jafna sig á áfallinu

Hrefna Rósa Sætran segir lokun Skel­fisk­mark­að­ar­ins hafa verið áfall en það hafi samt að sumu leyti verið jákvæð reynsla að lenda í. Hún sé heldur ekki týpan sem dvelur við það leið­in­lega í líf­inu, hún haldi ótrauð áfram að gera sitt besta.

Tekur tíma að jafna sig á áfallinu
Hrefna Rósa Sætran. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Hrefna Rósa er á hlaupum úti á götu þegar blaða­maður nær sam­bandi við hana, brjálað að gera eins og alltaf, en hún gefur sér þó tíma til að spjalla og við byrjum á því að ræða æsk­una og bak­grunn Hrefnu.

„Ég er úr Breið­holt­inu, ólst upp í Selja­hverf­inu til tólf ára ald­urs,“ útskýrir Hrefna. „Ég er einka­barn og við bjuggum við hlið­ina á afa og ömmu, þannig að fjöl­skyldan sam­an­stóð af mér og for­eldrum mínum og ömmu og afa. Pabbi og mamma skildu reyndar þegar ég var tveggja ára en byrj­uðu svo aftur að vera saman þegar ég var tíu ára. Þau skildu svo aftur þegar ég var átján ára, en það breytti ekki miklu því þau eru enn þá bestu vinir og eru eig­in­lega alltaf saman,“ segir hún, en for­eldrar Hrefnu eru Sigrún Sætran og Jóhann Frímann Trausta­son, betur þekktur sem Jói í Mótor.

Langaði að betrumbæta matseðla sjö ára

For­eldrar Hrefnu Rósu voru báðir í rekstri og spurð hvort hún hafi smit­ast af biss­ness­á­hug­anum af þeim, seg­ist hún eig­in­lega ekki vita það. Hún hafi aldrei hugsað út í það en vissu­lega hafi hún alist upp við að fólk væri með eigin rekstur, það hafi kannski haft sitt að segja þegar hún ákvað að reka eigin veit­inga­hús. Mat­reiðslu­á­hug­ann hafi hún hins vegar ekki fengið frá þeim og hún hafi svo sem enga hug­mynd um hvaðan hann sé sprott­inn.

„Það er eng­inn í fjöl­skyld­unni neitt tengdur inn í veit­inga­húsa­geir­ann eða mat­ar­gerð,“ segir hún og hlær. „Mamma var hins vegar rosa­lega dug­leg við að fara með mig út að borða þegar ég var lítil og mér fannst það alltaf mjög gaman. Við fórum líka oft með afa og ömmu út að borða, þau voru ekk­ert mikið að elda heima og ég held að við höfum farið mjög oft út að borða miðað við flesta aðra á þeim tíma. Ég fann alltaf að ég hafði mik­inn áhuga á mat og öllu í kringum veit­inga­hús og ég var strax, sjö eða átta ára, farin að velta því fyrir mér hvernig hægt væri að betrumbæta rétt­ina sem við fengum og byrj­aði snemma að gera mínar eigin til­raunir með slíkt. Auk þess var ég mik­ill aðdá­andi sjón­varps­þátta þar sem kokkar léku listir sínar og tók þá upp á vídeó til að geta horft aftur og aftur. Svo fór ég að leika veit­inga­húsa­leiki, fór að búa til mat­seðla og var alltaf að reyna að koma öllu sem mér fannst gott í sama rétt­inn, til að þurfa bara að elda einn rétt. Það var líka vin­sælt hjá mér að bjóða vinum mínum heim eftir skóla og bjóða þeim upp á eitt­hvað sem ég hafði búið til sjálf. Ég gerði enda­lausar til­raunir með bæði mat og drykki og lét þá borða og drekka.“

Erfitt fyrir stelpu að fá samning

Hrefna Rósa fór þó ekki strax í kokk­a­nám eftir grunn­skól­ann heldur lærði hönnun í Iðn­skól­anum en draum­ur­inn um kokk­inn blund­aði alltaf í henni og hún byrj­aði snemma að reyna að kom­ast á samn­ing sem kokka­nemi á ein­hverju veit­inga­húsi sem var frum­for­senda þess að hægt væri að fara í námið. En það gekk ekki auð­veld­lega enda ekki algengt á þeim tíma að konur væru kokkar á veit­inga­húsum.

Hrefna Rósa Sætran fékk óbilandi áhuga á mat­ar­gerð strax í æsku og var orðin annar eig­enda hins vin­sæla veit­inga­staðar Fisk­mark­að­ar­ins 27 ára gömul.

„Maður þarf að fara sjálfur og finna sér samn­ing áður en maður getur byrjað í skól­anum,“ útskýrir hún. „Maður var labbandi inn á veit­inga­hús og hótel að reyna að fá samn­ing en það gekk ekk­ert sér­lega vel. Þetta voru auð­vitað ekk­ert rosa­lega margir staðir á þeim tíma, en ég fór á þónokkra staði og fékk neitun frá þeim öllum þannig að það tók tölu­verðan tíma fyrir mig að geta byrjað. Það var ekki fyrr en Apótekið var opnað að ég fékk vinnu á veit­inga­húsi, en ekki samn­ing. Ég var nítján ára og hafði aldrei unnið í eld­húsi en vinur hans pabba var að vinna á Apó­tek­inu og hann bauð mér að koma í prufu en þau vildu ekki vera með kokka­nema þannig að ég byrj­aði bara að vinna sem eld­hús­starfs­maður. Eftir um það bil þrjá mán­uði spurði yfir­kokk­ur­inn mig svo hvort ég hefði enn þá áhuga á því að læra kokk­inn og ég hélt það nú, þannig að hann sótti um nema­leyfi fyrir mig og ég gat loks­ins byrjað að læra í alvöru.“

Hrefna vann á Apó­tek­inu þau fjögur ár sem námið tók en um það leyti sem hún var að útskrif­ast bauð eig­andi Apó­teks­ins henni starf á nýjum stað sem hann var að opna sem hét Maru og var til húsa þar sem Fisk­mark­að­ur­inn er í dag og það segir hún hafa verið gríð­ar­lega mik­il­vægt tæki­færi til að sanna sig.

„Þar var ég meira og minna ein í eld­hús­inu og bar mikla ábyrgð sem ég lærði mjög mikið af,“ segir hún. Það hafi þó alltaf blundað í henni að opna sinn eigin stað, enda hafi hún ekki bara áhuga á mat­ar­gerð­inni heldur öllu sem við kemur veit­inga­húsum og rekstri þeirra. „Ég fann það mjög fljótt að mig lang­aði til að vera þátt­tak­andi í því að skapa heild­ar­mynd stað­ar­ins og halda um alla tauma.“

Skrýtið að fá skipanir frá konu í eldhúsinu

Eftir útskrift var Hrefnu boðið að ganga til liðs við Sjáv­ar­kjall­ar­ann, sem hún segir að hafi verið einn vin­sæl­asti veit­inga­staður bæj­ar­ins á þeim tíma og þegar hún hóf störf þar byrj­aði hún á því að til­kynna eig­and­anum að sig lang­aði til að opna veit­inga­stað í fram­tíð­inni. Hún segir hann hafa sýnt mik­inn áhuga á því og hún hafi fljót­lega verið orðin vakt­stjóri í eld­hús­inu, þótt það væri ekki algengt á þeim tíma að konur væru yfir­menn í eld­húsum.

„Ég vann mig síðan upp í það að verða yfir­kokkur og eig­and­inn sagði mér seinna að það hefði tekið hann mjög langan tíma að átta sig á því að það ætti að hlusta á þessa konu­rödd sem væri að skipa fyrir í eld­hús­inu, það var eng­inn vanur því, hvorki hann né aðrir. Þessi eig­andi Sjáv­ar­kjallar­ans er reyndar með­eig­andi minn í dag og það var hann sem kom til mín einn dag­inn fyrir tólf árum og spurði hvort ég vildi enn þá opna veit­inga­stað. Ég hélt það nú og til varð Fisk­mark­að­ur­inn sem við rekum enn í dag.“

„Ég vann mig síðan upp í það að verða yfir­kokkur og eig­and­inn sagði mér seinna að það hefði tekið hann mjög langan tíma að átta sig á því að það ætti að hlusta á þessa konu­rödd sem væri að skipa fyrir í eld­hús­inu, það var eng­inn vanur því, hvorki hann né aðrir.“

Þessi saga af við­brögðum við konu sem stjórn­anda í eld­hús­inu vekur upp spurn­ing­una um hvort Hrefna hafi upp­lifað eitt­hvert mót­læti í geir­anum vegna þess að hún er kona. Hún vill sem minnst gera úr því.

„Það gerð­ist aldrei eftir að maður fór að vinna með fólki,“ segir hún ákveðin. „Maður þurfti auð­vitað alltaf að sanna sig í byrjun fyrir þeim sem maður var að vinna með, en það var aðal­lega fólk sem maður þurfti að eiga sam­skipti við utan eld­húss­ins sem átti erfitt með þetta. Ég man sér­stak­lega eftir einum manni sem ég þurfti oft að tala við og hann bað sífellt um að fá að tala við yfir­kokk­inn og tók ekk­ert mark á mér þegar ég sagði að það væri ég. Körlunum sem ég var að vinna með fannst hins vegar bara voða gaman að fá konu í eld­húsið og töl­uðu oft um hvað það breytti umræð­unni á vakt­inni að þar væru ekki bara karlar. Þetta var búið að vera nán­ast hrein­ræktað karla­sam­fé­lag svo lengi að ég held í alvöru að allir hafi verið ánægðir með að það breytt­ist.“

Síðan Hrefna Rósa kom fram á sjón­ar­sviðið sem kokkur hefur kon­unum í stétt­inni þó fjölgað tölu­vert og hún er að vonum ánægð með það.

„Það er alla­vega orðið mun meira af sýni­legum konum í kokka­stétt­inni,“ segir hún. „Það eru til dæmis nokkrar konur í kokka­lands­lið­inu, ég held þær séu orðnar helm­ingur af lið­inu, en það end­ur­spegl­ast ekki í eld­húsum veit­inga­hús­anna, það er meira valið í liðið til að passa upp á að kynja­hlut­föllin séu ekki óhag­stæð.“

Samdráttur í ferðamannaiðnaði bitnar lítið á rótgrónum stöðum

Árið 2011 opn­uðu Hrefna og tveir með­eig­endur hennar síðan Grill­mark­að­inn, sem nán­ast frá fyrsta degi hefur notið gríð­ar­legra vin­sælda sem hún segir að ekki hafi dregið úr, þrátt fyrir sam­drátt í ferða­manna­iðn­að­inum.

„Það er vissu­lega sam­dráttur en veit­inga­staðir sem eru orðnir tólf og sjö ára standa auð­vitað mun betur að vígi en þeir sem eru nýir.“

„Það er alltaf stemn­ing á Grill­mark­aðnum og alltaf nóg að gera,“ full­yrðir hún. „Það kemur mikið af íslenskum fastakúnnum þangað þannig að hann er ekki háður ferða­manna­straumnum. Á Fisk­mark­að­inum höfum við aðeins fund­ist fyrir sam­drætti í aðsókn en ekk­ert stór­kost­lega. Það er vissu­lega sam­dráttur en veit­inga­staðir sem eru orðnir tólf og sjö ára standa auð­vitað mun betur að vígi en þeir sem eru nýir. Þeir eru orðnir rót­grónir og hafa trygg­ari rekstr­ar­grund­völl.“

Lokun Skelfiskmarkaðarins áfall

Hér talar Hrefna af eigin reynslu því nýjasta staðnum sem hún var með­eig­andi að, Skel­fisk­mark­aðnum sem komst í fréttir í fyrra vegna til­fellis af mat­ar­eitrun gesta, var lokað fyrir skömmu. Hún við­ur­kennir fús­lega að það hafi verið áfall.

„Það voru auð­vitað margar ástæður fyrir því að hann gekk ekki,“ segir hún. „Mat­ar­eitr­unin var stærsta ástæðan og ýmis­legt annað sem við höfðum ekki stjórn á. Janúar var einn versti mán­uður í ferða­manna­iðn­að­inum síð­ast­liðin tíu ár og fyrir svona nýtt fyr­ir­tæki var það mjög erfitt. Það var ekki næg inn­koma til að borga niður skuldir og þótt við reyndum að létta undir með því að setja inn í hann pen­inga frá Fisk­mark­að­inum og Grill­mark­að­inum, þá gekk það auð­vitað ekki til lengdar og við neydd­umst til þess að loka staðnum.“

Eigendur Skel­fisk­mark­að­ar­ins voru fimm og spurð hvort sá hópur hafi ein­hver áform um að stofna nýjan stað segir Hrefna það ekki inni í mynd­inni.

„Það tekur auð­vitað smá­tíma að vinna sig út úr svona áfalli en ég myndi segja að það hafi gert okkur að enn nán­ari vinum en áður.“

„Við þrjú sem eigum Grill­mark­að­inn vorum öll eig­endur að Skel­fisk­mark­að­inum og tveir aðrir með okkur sem ekki tengj­ast neinu öðru hjá okkur og þegar þetta gekk ekki upp hurfu þeir bara til ann­arra starfa en við þrjú stöndum eig­in­lega sterk­ari eftir þessa reynslu,“ segir hún. „Við höfum alltaf verið dálítið sól­ar­megin í líf­inu og það er auð­vitað öðru­vísi sam­starf þegar allt gengur vel heldur en þegar hlut­irnir verða erf­iðir þannig að það var í raun­inni ótrú­lega gott fyrir okkar sam­starf að ganga í gegnum þessa reynslu og finna hvað við stöndum vel saman. Það tekur auð­vitað smá­tíma að vinna sig út úr svona áfalli en ég myndi segja að það hafi gert okkur að enn nán­ari vinum en áður.“

Engin ofurkona

Við erum enda­laust búnar að vera að tala um mat og veit­inga­húsa­rekstur, er það það eina sem kemst að í lífi Hrefnu?

„Nei, ekki alveg,“ segir hún og hlær. „Það er mjög stór partur af mér en ég hef mik­inn áhuga á ýmsum öðrum hlutum. Ég lærði hönnun á sínum tíma og lang­aði að verða vöru­hönn­uður eða inn­an­húss­arki­tekt, fannst það mjög spenn­andi. Ég hef mik­inn áhuga á húsum og snið­ugum vörum og fæ alls konar hug­myndir í sam­bandi við það. Og hver veit, nú á dögum getur fólk skipt um starfs­vett­vang hvenær sem er eða gert mis­mun­andi hluti í einu og ég er ekki nema 38 ára þannig að ég gæti kannski ein­hvern tíma seinna skipt um vett­vang. Við sjáum til.“

Hrefna við­ur­kennir fús­lega að hún sé afskap­lega mikið í vinn­unni og alltaf til­búin að stökkva til ef á þarf að halda þótt hún hafi ætlað sér að vera í fríi. Hún vill þó engan veg­inn meina að hún sé ein­hver ofur­kona.

Hrefna Rósa er gift Birni Árnasyni ljós­mynd­ara og þau eiga tvö börn, sex og sjö ára. Björn er nýtek­inn aftur við rekstri Skúla craft bar sem þau hjónin eiga með öðrum, hvernig gengur að púsla saman heim­il­is­líf­inu og allri þess­ari vinnu?

„Þetta hefur verið heil­mikið púsl,“ segir Hrefna og brosir. „En maður er búinn að læra á þetta og þótt það verði að segj­ast eins og er að við hjónin erum nán­ast alltaf að tala um vinn­una þá gefum við okkur alveg tíma til að sinna öðru með. Ömmur og afar hjálpa okkur mikið með krakk­ana, enda finnst þeim alveg óskap­lega skemmti­legt að vera amma og afi og eru svaka­lega sam­hent í því. Við for­eldrar mínir höfum alltaf öll verið óskap­lega góðir vinir og getum talað um alla hluti og þegar fólk spyr hvort það hafi verið áfall þegar þau skildu, klóra ég mér eig­in­lega bara í koll­inum. Ég man ekki til þess að ég hafi verið að velta því eitt­hvað sér­stak­lega fyrir mér á þeim tíma. Ég flutti að heiman átján ára og um svipað leyti flutti pabbi út en það var bara svo margt annað í gangi hjá manni sem ung­lingi að þetta olli mér eig­in­lega aldrei neinum vanga­veltum. Þetta var bara partur af líf­inu.“

Hrefna við­ur­kennir fús­lega að hún sé afskap­lega mikið í vinn­unni og alltaf til­búin að stökkva til ef á þarf að halda þótt hún hafi ætlað sér að vera í fríi. Hún vill þó engan veg­inn meina að hún sé ein­hver ofur­kona.

„Ég bara geri það sem þarf að gera hverju sinni,“ segir hún. „Ég er voða­lega lítið fyrir það að mikla hlut­ina fyrir mér eða aug­lýsa það eitt­hvað sér­stak­lega hvað ég er að gera. Fólk er oft að furða sig á því hvað ég sé með mikið í tak­inu en ég hugsa aldrei þannig. Þetta varð reyndar svo­lítið mikið þegar við vorum með Skel­fisk­mark­að­inn en í dag finnst mér bara gaman að fara aftur í það sem ég veit að við gerum vel og gera það enn betur.“

Aldrei tekið sumarfrí

Hrefna seg­ist alltaf hafa verið svona aktíf, hún hafi alltaf haft meira en nóg að gera. Hún hafi til dæmis æft og keppt í sam­kvæm­is­dansi frá fjög­urra ára aldri þangað til hún varð fjórtán ára og verið á stöð­ugum ferða­lögum til útlanda til þess að æfa og keppa en hún afi hætt því á ung­lings­ár­unum þegar vin­irnir fóru að skipta mestu máli í líf­inu. Hún hlýtur þó stundum að verða þreytt á þessu enda­lausa ati, hvað gerir hún til að kúpla sig frá vinn­unni og slappa af?

„Ef ég ætla að eiga frí verð ég að fara úr bænum,“ segir hún. „Ég get ekki verið heima og verið í fríi. Það er alltaf verið að hringja og biðja mann að koma og gera eitt­hvað og ég segi alltaf já. Þannig að ef ég ætla að fá frí fer ég til útlanda eða út á land svo ég geti með góðri sam­visku sagt að ég bara því miður kom­ist ekki. En það er alltaf bara í nokkra daga í einu. Ég held að lengsta sam­fellda frí sem ég hafi tekið mér um ævina hafi verið þrjár vikur en þá var ég samt alltaf að gera eitt­hvað sem tengd­ist vinn­unni, það er eng­inn sem leysir mann af og ég hef aldrei farið í langt sum­ar­frí eins og fólk gerir þegar það vinnur hjá öðrum. Ég sakna þess samt ekk­ert, mér finnst óskap­lega gaman í vinn­unni en ég held ég myndi samt ekki segja nei við því ef tæki­færi byð­ist til að vera frá lengur. Og núna eftir að Skel­fisk­mark­að­inum var lokað hefur hægst aðeins um og það eru meiri líkur á því að maður kom­ist kannski í alvöru­frí. Ég var einmitt að hugsa um það fyrir stuttu að mig lang­aði til að vera í fríi heima hjá mér til að gera og græja eitt­hvað í hús­inu sem ég flutti í fyrir níu árum. Þannig að ég er að spá í að reyna það í sumar, ég veit reyndar ekki hvernig ég á að fara að því, hvort ég þurfi að segj­ast vera í útlöndum eða eitt­hvað en ég fer að sjálf­sögðu ekki að blaðra frá því í blöð­unum,“ segir hún og skelli­hlær. „Hugs­an­lega gæti ég prófað að segja bara að ég kom­ist ekki en ég sé ekki alveg sjálfa mig gera það.“

Flytur inn vín með fótboltastjörnu

Spurð hvort hún hafi ekki orðið fyrir neinum alvar­legum áföllum í líf­inu vill Hrefna sem minnst gera úr því. Hún sé ekki týpan sem leggur slæma reynslu á minnið.

„ Meg­in­mark­miðið hjá mér akkúrat núna er bara að reyna að ein­falda lífið,“ segir Hrefna. „Hugsa vel um það sem ég þegar er með og reyna að gera það sem full­komn­ast.“

„Það var áfall hvernig fór með Skel­fisk­mark­að­inn, ég við­ur­kenni það, og tekur tíma að jafna sig á því,“ segir hún. „En ég er ofboðs­lega jákvæð mann­eskja þannig að ég man eig­in­lega bara það góða úr líf­inu og er fljót að gleyma því slæma. Auðvitað ger­ist margt í líf­inu, hjá mér eins og öllum öðrum, mér fannst til dæmis óskap­lega erfitt þegar afi og amma, sem ég hafði verið svo mikið hjá, dóu þegar ég var tólf og þrettán ára og hin amma mín þegar ég var sautján ára, það var erfið reynsla, sér­stak­lega á þessum aldri að missa fólkið sem var stoð manns og stytta. En það er bara hluti af því að lifa, er það ekki? Ég vann um tíma þegar ég var ung­lingur í býti­búri á hjarta­deild og gjör­gæslu Land­spít­al­ans og það var mjög þrosk­andi og gef­andi að fá að upp­lifa að vera með í því. Það breytir svo­lítið áhersl­unum hjá manni.“

Hrefna seg­ist ekki vera með nein ný verk­efni á prjón­unum í augna­blik­inu, fyrir utan að taka sum­ar­frí án þess að forða sér úr landi en það komi samt alltaf ein­hver ný til­boð inn á borð til hennar sem veki áhuga hennar. Hana langi til dæmis að gera fleiri sjón­varps­þætti í lík­ingu við þætt­ina um Japan sem voru sýndir í Sjón­varpi Símans en það sé ekki haf­inn neinn und­ir­bún­ingur að því. Hins vegar byrji tökur á fjórðu seríu af Ísskápa­stríð­inu í næstu viku.

„Meg­in­mark­miðið hjá mér akkúrat núna er bara að reyna að ein­falda lífið,“ segir hún. „Hugsa vel um það sem ég þegar er með og reyna að gera það sem full­komn­ast. Við erum líka að flytja inn vín frá Ítalíu í sam­starfi við Emil Hall­freðs­son fót­bolta­mann sem býr þar og teng­ist inn í fjöl­skyldu með­eig­anda míns. Það er alveg sér­fyr­ir­tæki í kringum það og mér finnst sá bransi mjög áhuga­verður og okkur langar að leggja meiri áherslu á þennan hluta starf­sem­innar í fram­tíð­inni. Svo kemur bara í ljós hvað manni dettur í hug næst, en það verður alla­vega ekki opnun á nýjum veit­inga­stað. Ekki neitt á næst­unni að minnsta kosti.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur YSL á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins