„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Það er verið að hrúga salti í öll sár, dag eftir dag

Erla Bolla­dóttir segir að enn sé margt órann­sakað í þagn­ar­hjúpi kerf­is­ins í tengslum við Guð­mundar- og Geir­finns­málið og að stjórn­völd, allt til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herrra, sýni sak­born­ingum sömu lít­ils­virð­ingu og þau hafi alltaf mátt þola. Samt er ekki að finna að Erla sé bitur eða reið kona þegar blaða­maður hittir hana að máli. Þvert á móti er hún einkar yfir­veguð og við­kunn­an­leg mann­eskja sem hefur barist lengi af ein­urð og yfir­vegun fyrir rétt­læti til handa sér og sínum í stærsta glæpa­máli síð­ari tíma á Íslandi.

Það er verið að hrúga salti í öll sár, dag eftir dag
||Erla Bolla­dóttir

Eins og kunn­ugt er var Erla dæmd fyrir mein­særi í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu en ekki morð eins og hinir. „Og sú sök er látin standa,“ segir hún og vísar þar til sýknu­dóms Hæsta­réttar í kjöl­far end­ur­upp­töku í mál­inu síð­ast­liðið haust, „óháð því hvernig orð mín voru fengin fram á sínum tíma. Að lifa með þessum dómi hefur reynst þung­bært og að sökin skuli standa enn í dag er áfall út af fyrir sig.

Eins útskýr­ingin sem ég fékk á því þegar Björn Bergsson, for­maður end­ur­upp­töku­nefndar, var fyrir til­viljun sessu­nautur minn í flugi milli Reykja­víkur og Ísa­fjarðar. Hann úskýrði að það væri ekki inni í mynd­inni að sýkna mig af mein­særi þar sem glæp­ur­inn „lægi fyrir“. Að þeir væru með skýrslu sem ég hefði skrifað undir og í því væri glæpur minn fólg­inn. Alveg óháð því hvernig því var náð fram.

Ég gat nú ekki annað en innt hann eftir því hvort það angr­aði ekk­ert rök­hugsun þeirra að sam­þykkja end­ur­upp­töku á morð­unum þar sem sýkna var ljós en sam­þykkja að við hefðum engu að síður verið að taka saman ráð okkar um eitt­hvað sem aldrei gerð­ist.“

Hún bendir á að þetta mál hafi svipt sex­menn­ing­ana svo miklu meiru en þeim tíma sem þau sátu í ein­angrun og fang­elsi. „Þetta tók frá okkur öllum og í raun börn­unum okkar líka, allt það líf sem hefði getað orðið. Ég fékk ekki lífið mitt, heldur lífið HENNAR – kon­unnar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu, útskúfuð og hötuð í ára­tugi.“

Gæsluvarðhald og lyfjanauðung

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því Guð­mundar- og Geir­finns­málin áttu sér stað og fram til þess að sýknu­dóm­ur­inn féll síð­ast­liðið haust. Sem stendur er verið að sýna heim­ilda­þætt­ina Skandall, eftir þýska blaða- og kvik­mynd­ar­gerð­ar­mann­inn Boris Quatram, þar sem áður órann­sak­aðir hlutar máls­ins eru teknir til skoð­unar. Áherslan er á hvarf Geir­finns Ein­ars­sonar og hvert rann­sóknin hefði eðli­lega átt að leiða lög­regl­una í Keflavík á fyrstu dögum máls­ins og rætt við ýmsa máls­að­ila og sér­fræð­inga en þar kemur fjöl­margt athygl­is­vert í ljós.

Erla Bolla­dóttir hefur barist lengi af ein­urð og yfir­vegun fyrir rétt­læti til handa sér og sínum í stærsta glæpa­máli síð­ari tíma á Íslandi.

Erla bendir á að þætt­irnir sýni vel þá und­ar­legu afgreiðslu sem málið fékk hjá lög­regl­unni, fyrst í Keflavík en síðan einnig í Reykja­vík. „Þeir virð­ast hafa haft eitt­hvert annað mark­mið en það að upp­lýsa hvarf Geir­finns og svo virð­ist sem, leynt og ljóst frá árinu 1972, að það hafi verið að koma höggi á Sig­ur­björn Eiríks­son sem átti Klúbbinn í Reykja­vík en Hall­varður Ein­varðs­son hafði þá horn í síðu þeirra Klúbbs­manna. Ég þekki þá sögu ekki til fulls en Hall­varður var vara­rík­is­sak­sókn­ari þegar við vorum í ein­angr­un­inni og kom ein­kenni­lega mikið að rann­sókn­inni sjálfri. Hann var við­staddur yfir­heyrslur en ég hitti hann í fyrsta sinn þegar ég var fengin til þess að játa að ég hefði myrt Geirfinn. Þeir vissu full­vel að ég gerði það ekki en þeir töldu sig þurfa játn­ing­una frá mér til að að geta sett mig í gæslu­varð­hald. Í kjö­farið hófu þeir að troða í mig risa­vöxnum lyfja­skammti fjórum sinnum á dag og hnoða saman ein­hvers konar atburða­rás sem hent­aði þeirra mark­miði frá fyrsta degi.“

Ætluðu sér að negla manninn

Hall­varður hafði stjórnað rann­sókn á skemmti­staðnum Klúbbnum í Reykja­vík, sem var í eigu fyrr­nefnds Sig­ur­björns og undir fram­kvæmda­stjórn Magnúsar Leó­polds­sonar. Erla segir að Hall­varður hafi haldið því stað­fast­lega fram að það hafi verið stunduð sala á ólög­legu áfengi í Klúbbnum og látið loka staðnum við rann­sókn máls­ins. Þegar ekk­ert fannst á Klúbbnum þrátt fyrir viða­mikla leit var staðnum engu að síður enn haldið lok­uðum. „Það barst svo beiðni frá eig­anda Klúbbs­ins til dóms­mála­ráðu­neytis um að lok­unar­úr­skurður lög­reglu­stjóra yrði ógiltur og það fram hjá Hall­varði. Það virð­ist hafa orðið til þess að Hall­varður þró­aði með sér ein­hvers konar þrá­hyggju um Klúbbs­menn og ímynd­aða und­ir­heima­starf­semi þeirra.

Þegar Geir­finnur svo hvarf í nóv­em­ber 1974 fór fljót­lega að bera á orðrómi sem barst frá rann­sókn­ar­að­ilum um að Klúbbs­menn væru viðriðnir hvarf hans. Samt var ekk­ert sem tengdi þá við Geirfinn eða Keflavík. Lög­reglan reyndi jafn­framt mikið að blanda ein­hverjum spíra­málum inn í rann­sókn­ina. Það sem vekur hins vegar athygli er að ekk­ert spíra­smygl var til rann­sóknar á þessum tíma sam­kvæmt yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar í Keflavík sem birt­ist í fjöl­miðlum 14. jan­úar 1975, tveimur mán­uðum eftir hvarfið. Þar segir að rúmum þremur vikum eftir hvarfið hafi lög­reglu verið það ljóst að engin tengsl voru á milli Geir­finns og spíra­mála. Þessu geta allir flett upp sem vilja.

Enn virð­ast menn þó leggja sig fram við að við­halda slíkum tengslum í hugum fólks, nú síð­ast Haukur Guð­munds­son, fyrrum lög­reglu­maður í Keflavík, í þátt­unum Skandall. Hann virð­ist þar reyndar vera að reyna að koma sér undan spurn­ing­unni um hvers vegna lög­reglan kann­aði ekki mögu­legan þátt elsk­huga Guðnýjar Sig­urð­ar­dóttur, eig­in­konu Geir­finns, þar sem hann ber því við að rann­sókn­ar­að­ilar hafi ekki haft tíma til að kanna fjar­vist­ar­sönnun svo grun­sam­legs aðila vegna anna við spíra­mál. Þarna er um hrein ósann­indi að ræða.“

Erla bendir á að hver sem kynnir sér málið geti séð að Haukur Guð­munds­son sem vann að lög­reglu­rann­sókn­inni í Keflavík þurfi að svara ýmsum spurn­ingum. Mynd / Hallur Karlsson

Erla er greini­lega hugsi yfir því með hvaða hætti rann­sóknin í Keflavík var unnin og bendir á að seinna hafi Haukur, lög­reglu­maður í Keflavík, hlotið dóm í máli Guð­bjarts Páls­sonar leigu­bíl­stjóra.

„Haukur fékk dóm fyrir að koma fyrir sönn­un­ar­gögnum og hand­taka Guðbjart á fölskum for­sendum. Þetta eru óskyld mál en að mínu mati nákvæm­lega sama aðferða­fræði og Haukur not­aði þegar hann lét Magnús Gíslason, teikn­ara hjá tækni­deild­inni í Keflavík, fá ljós­mynd af Magnúsi Leó­polds­syni, fram­kvæmda­stjóra Klúbbs­ins, og sagði honum að teikna mynd af mann­inum á ljós­mynd­inni. Þá teikn­ingu fer hann síðan með til Ríkeyjar Ingi­mund­ar­dóttur skúlp­t­úrista og biður hana um að gera eftir henni leir­styttu. Styttuna not­aði hann svo til þess að láta fólk benda á Magnús Leó­polds­son og bendla hann þannig við málið. Þetta sýnir að þeir ætl­uðu sér að negla Klúbb­menn, hvað sem það kost­aði.“

Nær fram dómþingi

Þrátt fyrir að sýknu­dómur hafi fallið í Hæsta­rétti síð­ast­liðið haust og að öllum sé orðið ljóst það harð­ræði sem beitt var til þess að ná fram sekt á sínum tíma, hefur eng­inn sem stóð að rann­sókn máls­ins þurft að svara fyrir þær gjörðir. Aðspurð um hvað Erlu finn­ist um það segir hún að það eitt og sér hljóti að vera rann­sókn­ar­efni.

„Allt í þessu er rann­sókn­ar­efni. Það fékk ég end­an­lega stað­fest árið 2015 þegar end­ur­upp­töku­nefnd var enn með málið á sínu borði. Þá fékk ég umsögn Davíðs Þórs Björg­vins­sonar, setts rík­is­sak­sókn­ara í mál­inu, um að ekki væri for­senda til end­ur­upp­töku á mínu máli. Þar sem ég var ekki í ein­angrun þegar ég skrif­aði undir fyrstu skýrsl­una í Geir­finns­málinnu sem fól í sér mein­særi taldi nefndin ekki hægt að segja að ég hafi verið pyntuð á þeim tíma.

Davíð Þór hins vegar skildi eftir þann mögu­leika að nefndin gæti farið fram á nán­ari rök starfs­hóps­ins fyrir því að mínar játn­ingar væru líka óáreið­an­legar. End­ur­upp­töku­nefnd tók þetta til greina og boð­aði dóm­þing sem haldið var í saka­dómi Reykja­víkur til þess að yfir­heyra starfs­hóp­inn sem vitni, þá einkum rétt­arsál­fræð­ing­ana Gísla H. Guð­jóns­son og Jón Friðrik Sig­urðs­son sem eru sér­fróðir um falskar játn­ingar, um umræddar rök­semdir.

Á þessum tíma­punkti fékk ég mig fullsadda af því að enn væri kraf­ist við­bóta við þau ótelj­andi máls­skjöl sem sönn­uðu sak­leysi okkar og ólög­lega með­ferð rann­sókn­ar­að­ila á mál­inu. Ég bar þessa aðila þungum sökum um að hafa vís­vit­andi pínt mig til að ljúga frá upp­hafi, en það heyr­ist aldrei píp þaðan. Fyrst við vorum komin með dóm­þing fór ég fram á og fékk sam­þykki end­ur­upp­töku­nefndar fyrir því að þessir þrír lyk­il­rann­sókn­ar­menn, Örn Hösk­ulds­son sem stjórn­aði rann­sókn­inni, Sig­ur­björn Víðir Egg­erts­son og Eggert Bjarna­son, yrðu yfir­heyrðir sem vitni og spurðir þriggja lyk­il­spurn­inga:

Hvert var til­efni þess að þeir fóru að yfir­heyra okkur um hvarf Guð­mundar? Hvert var til­efni þess að þeir fóru að yfir­heyra okkur um hvarf Geir­finns? Hver var aðkoma Hall­varðs Ein­varðs­sonar að rann­sókn máls­ins? Ég þótt­ist vita að þessir aðilar myndu bera við minnis­leysi en vildi að þeir þyrftu þá að minnsta kosti að ljúga því sjálfir að öllum við­stöddum.“

Enn er logið

Erla segir að end­ur­upp­töku­nefnd hafi fall­ist á að kalla þessa þrjá menn fyrir sem vitni. „Þeir reyndu að koma sér undan en bar laga­leg skylda til þess að mæta, sem þeir þá gerðu og það var í fyrsta skipti sem spurn­ingum var beint í þessa átt. Í fyrsta sinn sem ljós­inu var að ein­hverju leyti varpað á ein­hvern í kerf­inu í öllu þessu stóra máli. Þetta voru þeir sem stóðu að rann­sókn­inni í Reykja­vík en upp­hafs­menn rann­sókn­ar­innar í Keflavík hafa aldrei verið spurðir út í eitt né neitt.

En þre­menn­ing­arnir lugu aug­ljós­lega fyrir þessu dóm­þingi,“ segir hún og er greini­lega tals­vert niðri fyrir enda er hér verið að ræða um atburði og áhrifa­valda í lífi hennar allt til dags­ins í dag.

„Örn var fyrst yfir­heyrður og kvaðst ekki muna til­efni þess að við vorum fyrst yfir­heyrð. Ragnar Aðal­steins­son, minn lög­maður í þessu máli, vís­aði til þess að þetta væri nú stærsta saka­mál sem Örn hefði komið að en hann sagð­ist í svari sínu nú ekki vera viss um það. Ragnar ítrek­aði samt spurn­ing­una en Örn svar­aði alltaf með skyndi: „Nei, ég man það ekki.“ Hann var aug­ljós­lega búinn að ákveða þetta svar og við það stóð hann.

Að end­ingu spurði Ragnar hver hefði stjórnað rann­sókn­inni, tekið ákvarð­anir um hver yrði yfir­heyrður og ákveðið stefnu rann­sókn­ar­innar. Örn svar­aði því til að það hefði verið rann­sókn­ar­lög­reglan og að hann hafi ekki haft neitt með stjórn rann­sókn­ar­innar að gera, enda hefðu þarna verið mjög reyndir og færir rann­sókn­ar­menn og vísar þar fyrst og fremst til tvíeyk­is­ins Sig­ur­björns Víðis og Eggerts Bjarna­sonar.

Sig­ur­björn var næstur til vitnis og þegar hann er spurður sömu spurn­ingar svarar hann afdrátt­ar­laust að Örn sem rann­sókn­ar­dóm­ari hefði stjórnað rann­sókn­inni, enda hafi hann sjálfur verið lítt reyndur sem rann­sókn­ar­lög­reglu­maður á þessum tíma. Þá fór kliður um sal­inn því Örn var nýbú­inn að halda allt öðru fram og það er ekki hægt að mis­minna um atriði á borð við þetta. Það getur engan mis­minnt um að hafa leitt í tvö ár rann­sókn á einu stærsta saka­máli þjóð­ar­innar.

„Allt þetta ósam­ræmi, allar þessar lygar og sú með­ferð sem við máttum sæta. Allt liggur þetta enn órann­sakað í þagn­ar­hjúpi kerf­is­ins.“

Það er með ólík­indum að ekki einn þess­ara aðila geti svarað með heið­ar­legum hætti til um það hvers vegna farið var í þessa veg­ferð að yfir­heyra okkur og það með þessum hætti sem raunin var. Aðeins á einum stað er að finna eitt­hvað um að „lög­regl­unni hafi borist til eyrna hugs­an­leg tengsl Sævars við hvarf Guð­mundar“ eins og mig minnir að það sé orðað en það er allt og sumt. Allt þetta ósam­ræmi, allar þessar lygar og sú með­ferð sem við máttum sæta. Allt liggur þetta enn órann­sakað í þagn­ar­hjúpi kerf­is­ins.“

Rannsóknarleysa í Keflavík

Erla bendir einnig á að hver sem kynnir sér málið, til að mynda með því að horfa á þætt­ina Skandall, geti séð að Haukur Guð­munds­son sem vann að lög­reglu­rann­sókn­inni í Keflavík þurfi að svara ýmsum spurn­ingum. „Hann þarf að svara því hvað vakti tengsl á milli hvarfs Geir­finns og spíra­smygls sem var þá þegar upp­lýst mál. Í þátt­unum talar hann um Geirfinn sem vamm­lausan mann og hvers vegna þá að bendla hann við spíra­mál? Að auki setur hann í þátt­unum fram kenn­ingu um það að Geir­finnur hafi lát­ist af slys­förum en útskýrir það ekk­ert nánar. Hann hlýtur að þurfa að útskýra þessa kenn­ingu fyrir yfir­völdum ekki seinna en strax.

Einnig kemur fram ábend­ing frá við­mæl­anda í þátt­unum um að aðeins tveimur dögum eftir hvarf Geir­finns hafi Haukur verið á ferð­inni að leita að líki. Ekki týndum manni, heldur líki. Það hlýtur að þarfn­ast skýr­inga. Og hvers vegna var sú rann­sókn­ar­stefna sem unnin er í þátt­unum aldrei unnin af hálfu lög­regl­unnar?

Í því sem snýr að ónafn­greindum elsk­huga Guðnýjar, eig­in­konu Geir­finns, gætir mis­ræmis á milli fram­burðar hennar og Sjafnar Trausta­dóttur, bestu vin­konu hennar, um það hvar elsk­hug­inn gisti um nótt­ina og þannig mætti áfram telja.“

„Einnig kemur fram ábend­ing frá við­mæl­anda í þátt­unum um að aðeins tveimur dögum eftir hvarf Geir­finns hafi Haukur verið á ferð­inni að leita að líki. Ekki týndum manni, heldur líki.“

Erla segir vert að nefna að allt sem kemur fram um upp­hafs­rann­sókn á hvarfi Geir­finns í þessum þáttum er aðgengi­legt á Netinu í gögnum máls­ins. „Það er ekk­ert þar sem er ekki hægt að fletta upp ef við­kom­andi hefur hug á að berja eigin augum grun­sam­leg störf lög­regl­unnar í Keflavík þegar Geir­finnur hvarf. Þar kemur meðal ann­ars fram nafn elsk­huga Guðnýjar sem flutti fljót­lega til Þýska­lands eftir að hafa verið yfir­heyrður aftur 1976. Ekki veit ég hvort hann eða aðrir sem eðli­legt hefði verið að rann­saka fyrst beri ábyrgð á hvarfi Geir­finns. Það sem málið snýst um er að sú rann­sókn sem fram fór í Keflavík er aug­ljós­lega ekki í lagi.

Erla Bolla­dóttir segir að stjórn­völd, allt til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herrra, sýni sak­born­ingum sömu lít­ils­virð­ingu og þau hafi alltaf mátt þola.

Þar er vís­vit­andi hunsað allt sem gæti leitt til þess að Geir­finnur fynd­ist. Alveg sama hvar litið er á þessar skýrslur rann­sókn­ar­innar í Keflavík þá má sjá á dag­setn­ingum skýrslna og fjölda ann­arra þátta að ekki er allt með felldu varð­andi hegðun rann­sókn­ar­að­ila. Eitthvað voru þeir  að bralla og virð­ast jafn­vel hafa verið við­búnir áður en Geir­finnur hvarf.

Þegar Geir­finnur skil­aði sér ekki um morg­un­inn var það ekk­ert nýtt að hann væri á kennd­erí í bænum eins og t.d. á sunnu­deg­inum tveimur kvöldum áður. Ef horft er til þess sem komið hefur fram um lífs­stíl þeirra hjóna, Geir­finns og Guðnýjar, virt­ist þetta ekki vera neitt sem ein­hver þyrfti að missa sig yfir. Samt hringir Guðný ekki í félag­ana eða vinn­una og athugar hvort hann sé með þeim, heldur hringir Sjöfn vin­kona hennar í lækni og segir að vin­kona hennar sé í miklu upp­námi vegna þess að mað­ur­inn hennar hafi ekki skilað sér heim um nótt­ina. Að hún sé viti sínu fjær af áhyggjum og biður lækn­inn um að skrifa upp á róandi fyrir hana sem hann gerir. Þetta kom fram löngu síðar en á þessum tíma­punkti var ekki búið að til­kynna að hann væri horf­inn. Ekki búið að hringja í einn eða neinn sem þekkti hann eða eitt­hvað slíkt. Var þarna ein­hver vit­neskja um að Geir­finnur ætti ekki aft­ur­kvæmt? Það læð­ist að manni sá grunur og að form­leg skýrsla sé ekki tekin af Guðnýju fyrr en níu dögum síðar inni á eigin heim­ili er auð­vitað í meira lagi und­ar­legt.“

Nú er orðið þungt í Erlu við upp­rifjun máls­ins og hún er greini­lega sér­stak­lega hugsi yfir rann­sókn­ar­að­il­unum Valtý Sig­urðs­syni, Hall­varði Ein­varðs­syni, Krist­jáni Pét­urs­syni og Nirði Snæhólm en allir komu þeir með afdrifa­ríkum hætti að rann­sókn máls­ins og fóru þar með mikla ábyrgð. „Mín upp­lifun af þessu máli er ekki síst sú að þessir fjór­menn­ingar eru allir óhugn­an­lega dimmir, hef hitt alla þessa menn og ég skynjað þetta myrkur í þeim öllum. Og allir vissu þeir eitt­hvað sem við hin vitum ekki.“

„Alveg sama hvar litið er á þessar skýrslur rann­sókn­ar­innar í Keflavík þá má sjá á dag­setn­ingum skýrslna og fjölda ann­arra þátta að ekki er allt með felldu varð­andi hegðun rann­sókn­ar­að­ila.“

Forsendan fyrir meinsæri brostin

Allt er þetta aðeins brot af því sem þarf að rann­saka af fullri alvöru í þessu máli en Erla leggur áherslu á að hennar bar­átta hafi snú­ist um að rétt­læt­inu verði full­nægt í máli sex­menn­ing­anna. „Mín bar­átta snýst um mál okkar sex­menn­ing­anna sem vorum höfð í ein­angrun og pyntuð til þess að játa eitt­hvað sem við gerðum aldrei og þannig svipt því lífi sem við hefðum átt að eiga. Ekkert okkar bíður þess nokkurn tíma bætur. Mín bar­átta hefur snú­ist um þetta og ég hef þurft á öllum mínum kröftum að halda í þeirri bar­áttu.

Hins vegar eru menn með ýmsar kenn­ingar en ég tek ekki afstöðu til þeirra per­sónu­lega. Ég veit ekki hvað lá að baki starfs­háttum lög­reg­unnar í Keflavík á sínum tíma og svo í Reykja­vík í fram­hald­inu. En miðað við hvernig komið var fram við okkur af hálfu yfir­valda í öll þessi ár og enn í dag þá á ég ekki von á miklu af hálfu hins opin­bera. Að enn sé komið svona fram og að það sé búið að stað­festa sök mína, þvert á öll rök og skyn­semi er enn eitt áfallið eftir öll þessi ár. Í raun erf­ið­ara núna þar sem ég er að verða sex­tíu og fjög­urra ára og fram­koma stjórn­valda við mig í dag er til þess fallin að halda mér enn fang­inni í mál­inu.

Ég hef fundið mig milli steins og sleggju í ákvarð­ana­töku um næsta skref en góðu heilli lærði ég síð­ast­lið­inn mánu­dag að mér er fært að krefj­ast aftur end­ur­upp­töku í ljósi nýrra gagna, þ.e. að dómur um mein­særi stand­ist ekki þar sem allir þeir sem dæmdir voru fyrir morð á Geir­finni eru sýkn­aðir. Um leið er for­senda fyrir mein­særi aug­ljós­lega brostin.

Ég hef hins vegar per­sónu­lega enga trú á þeim ein­stak­lingum í kerf­inu sem eru í aðstöðu til að ákveða hvort ólög­legir starfs­hættir rann­sókn­ar­að­ila verði rann­sak­aðir eður ei. Ég hef enga trú á dóms­mála­kerf­inu og þeim sem í því starfa. Ég geri mér þess vegna engar vonir um að málið sjálft verði tekið til rann­sóknar en það má ekki verða minn höf­uð­verkur. Þegar ég verð komin alla leið í minni bar­áttu verður hlut­verki mínu lokið en ann­arra að kom­ast að því hvað gerð­ist þarna í raun og veru.“

Sáttanefnd í bissness

Hæsti­réttur kvað upp sinn sýknu­dóm þann 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en um það segir Erla: „Það var eins snaut­legt og verið gat. Það er Hæsta­rétti til full­kom­innar skammar um ókomna  tíð að koma ekki með stakt orð um for­sendur fyrir sýkn­unni af sinni hálfu.

Daginn eftir kom svo Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fram fyrir þjóð­ina fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar og bað alla sem sýkn­aðir voru og aðstand­endur þeirra afsök­unar, en auð­vitað ekki mig. Þegar hún gerði þetta þá gerði hún nákvæm­lega það sama og Hæsti­réttur; hún hélt sína leið og henti okkur í ruslið. Síðan var stofnuð svokölluð sátta­nefnd,“ segir Erla.

Hún kveðst vera lang­þreytt í sinni bar­áttu og hún segir að hún hafi ekki lengur orku í það að vera sífellt kurt­eis og tipla á tánum í kringum þetta fólk sem hafi sýnt henni alla þessa lít­ils­virð­ingu. „Í fyrsta lagi þá er ég hneyksluð á því að þetta skuli vera kallað sátta­nefnd eftir að hafa orðið vitni að störfum sátta­nefndar í for­seta­tíð Nelsons Mandela í Suður-Afríku á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, þar sem ég var búsett um fimm ára skeið.

Hér höfum við bara full­trúa for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og þá einkum Kristrúnu Heim­is­dóttur [sem var for­maður sátta­nefndar, innsk. skota­blaða­manns] með rík­is­lög­mann í bak­grunni að fara fyrir því að ræða við sak­born­inga um hvernig ríkið geti sloppið sem best frá þessu. Hún er fremur í biss­ness en að ræða neina raun­veru­lega sátt. Á átt­unda mán­uði frá því að „nefndin“ tók til starfa kemur svo ein­hliða ákvörðun for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um upp­hæð skaða­bóta sem er lítið meira en 10% af þeim skaða­bótum sem sak­lausum fjór­menn­ingum í mál­inu voru greiddar á sínum tíma. Auk þess hefur komið í ljós að umrædd „sátta­nefnd“ er ekki lengur starf­andi. Þetta virð­ist allt komið í ein­hverja alls­herjar vit­leysu.“

Lítilsvirðandi framkoma

Það leynir sér ekki að Erla er ekki sátt við fram­komu stjórn­valda enda er mál­inu hvergi nærri lokið. „Það sem mér finnst erfitt núna er að það er verið að hrúga salti í öll sár, dag eftir dag, á meðan eng­inn lætur í sér heyra. Að auki liggur þarna inni krafa frá mér um skaða­bætur vegna ein­angr­unar minnar 1976 því hún var klár­lega ólög­leg, hvað sem öllu öðru líður. En það hefur eng­inn talað við mig. Það er bara eins og ég sé ekki til en það erindi fór samt form­lega í jan­úar frá lög­manni mínum til „sátta­nefndar“. Ég hef ekki verið virt við­lits.“

Eftir dóms­úr­skurð­inn síð­ast­liðið haust ákvað Erla að biðja um við­tal við Katrínu Jak­obs­dóttur til þess að ræða sitt mál. „Erindi mitt við Katrínu var meðal ann­ars að reifa þann mögu­leika að ef ég kærði nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar sam­þykkti hún að rík­is­lög­maður semdi við mig utan dóms með því að sam­þykkja ógild­ing­una; ég er jú með mjög sterkt mál í hönd­unum. Þetta kæmi í veg fyrir heilt ár í dóms­sölum með öllu því álagi og öllum þeim kostn­aði sem því fylgir.

„Það væri betra ef rík­is­stjórnin hefði sleppt því að biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar því hugur virð­ist ekki hafa fylgt þar máli,“ segir Erla.

Ein­hverjum tíu dögum síðar fékk ég þau skila­boð að Katrín vildi að ég hitti fyrst Kristrúnu Heim­is­dóttur. Ég hafði ekk­ert við hana að tala, ekki komin með skaða­bóta­kröf­una þá og sá enga ástæðu til þess að hitta hana. En Katrín var sögð leggja áherslu á þetta og að hún ætl­aði síðan að hitta mig í fram­hald­inu svo ég fór til fundar við Kristrúnu ásamt fylgd­ar­manni, af feng­inni reynslu.

Ég gat ekki borið upp erindi mitt við Kristrúnu og allra síst eftir að ég var búin að setj­ast niður með henni. Ég á erfitt með opin­bert starfs­fólk sem heldur fundi og tikkar í öll box en svo ger­ist ekk­ert,“ segir Erla og hefur greini­lega fengið sig sadda af inn­an­tómu orða­gjálfri kerf­is­ins sem fór langt með að eyði­leggja fyrir henni lífið.

Hún heldur áfram og seg­ist hafa bent Kristrúnu á að erindi hennar væri við Katrínu. „Ég spurði því ein­fald­lega hvers vegna ég væri þarna að hitta hana og fékk það svar að það væri svo Katrín fengi betri inn­sýn í málið.

Í fram­hald­inu kom Kristrún svo t.d. með spurn­ingu eins og „hvernig hefur þér liðið yfir þessu máli?“ Mér var illa mis­boðið, leið eins og leiða ætti mig út í kvik­syndi. Hún fann það auk þess hjá sér að segja að ef mér liði ein­hvern tíma illa yfir þessu máli eða væri kvíðin þá væri mér vel­komið að hringja í hana hvenær sem væri. Ekki veit ég í hvaða vídd svona fólk hrær­ist. Að tala við mig eins og ég hefði verið alein skríð­andi um í myrkr­inu í meira en fjöru­tíu ár þangað til hún birt­ist til þess að vera vin­kona mín. Þetta fannst mér lít­ils­virð­andi fram­koma við mína per­sónu og allt sem á undan var gengið.“

Þögn Katrínar meiðir meira

Erla segir að eftir þennan fund með Kristrúnu hafi ekk­ert gerst. Að lokum fékk hún fund með Katrínu þann 27. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

„Ég hitti Katrínu og reif­aði þau mál sem þurfti og það var fínt að tala við hana. Hún sagði reyndar í upp­hafi fundar að hún vildi að við hitt­umst aftur í lok jan­úar því þá ætl­aði hún að geta útskýrt fyrir mér stöð­una. Seinna á þessum fundi ítrek­aði hún að við hitt­umst aftur í lok jan­úar. Þann sjö­unda febr­úar sendi ég henni tölvu­póst og sagð­ist vera orðin lang­eyg eftir fund­inum til þess að geta ákveðið næstu skref. Ekkert svar. Í fyrri­hluta mars sendi ég aftur póst og sagði að enn hefði ég ekk­ert heyrt. Var vissu­lega orðin sár og að reyna að skilja hverju sætti að mér væri ekki svarað. Enn hef ég ekk­ert heyrt.

„Ég er sár út í Katrínu. Ég fyllt­ist von um að nú kæmi ein­hver nið­ur­staða sem mundi feykja skýj­unum frá sól­inni.“

Ef þú biður ein­hvern fyr­ir­gefn­ingar en heldur svo áfram að sparka í við­kom­andi, er það þá mark­tæk fyr­ir­gefn­ing­ar­beiðni? Þetta tvö­falda sið­ferði að biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar en halda svo öllum á stað sem heldur áfram að meiða og særa við­kom­andi. Að halda þessu svona vof­andi yfir þeim sem hafa mátt þola allt sem á undan er gengið er fram­koma sama eðlis og við höfum alla tíð mátt þola af hálfu þessa kerfis.

Ég er sár út í Katrínu. Ég fyllt­ist von um að nú kæmi ein­hver nið­ur­staða sem mundi feykja skýj­unum frá sól­inni. Ég hafði á til­finn­ing­unni að þessi kona sem ég hafði haft mætur á væri einmitt mann­eskjan sem myndi ljúka langri og myrkri göngu okkar allra. Veru­leik­inn er hins vegar sá að þögn hennar meiðir mig meira en margt annað hefur gert. Það væri betra ef rík­is­stjórnin hefði sleppt því að biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar því hugur virð­ist ekki hafa fylgt þar máli.

Þessu máli er ekki lokið fyrr en ég, Sævar og Kristján höfum verið sýknuð af röngum sak­ar­giftum. Enginn vilji virð­ist hins vegar hafa verið í rétt­ar­kerf­inu á neinu stigi máls­ins til að takast á við þá ábyrgð sem á því hvílir í þessu hörmu­lega máli.“

Myndir / Hallur Karlsson
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur YSL á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins