„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Draumurinn sem dó varð kveikjan að tónlistarferlinum

Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhann­es­dóttir, betur þekkt sem tón­list­ar­konan GDRN, hefur verið á allra vörum und­an­farna mán­uði eftir að fyrsta plata hennar, Hvað ef, sló hressi­lega í gegn og sóp­aði til sín verð­launum. Vel­gengnin hefur að sumu leyti komið Guðrúnu á óvart, enda ætl­aði hún sér ekki að verða tón­list­ar­kona heldur atvinnu­fót­bolta­kona þegar hún var yngri. Slitin kross­bönd bundu enda á þann draum og það var ekki fyrr en þá sem Guðrún hellti sér af fullum krafti út í tón­list­ina með þessum glæsi­lega árangri.

Draumurinn sem dó varð kveikjan að tónlistarferlinum
Mynd / Hallur Karlsson

Guðrún Ýr hefur búið í Mos­fells­bænum síðan hún var fjög­urra ára og býr þar enn í for­eldra­húsum með for­eldrum sínum og tveimur yngri bræðrum. Hún hóf nám í fiðlu­leik fjög­urra ára gömul og stund­aði það í ell­efu ár en ákvað þá að hætta og sneri sér að námi í djass­söng og seinna djas­spí­anó­leik. Hún hafði þó ekki samið tón­list sjálf fyrr en eftir útskrift úr mennta­skóla.

„Ég fór ekki að semja sjálf fyrr en ári eftir að ég útskrif­að­ist úr mennta­skóla,“ segir Guðrún. „Það var ekki fyrr en þá sem ég þorði að prófa að semja tón­list sjálf. Ég átti í raun­inni ekki von á þessum góðu mót­tökum, það er svo erfitt að dæma um það þegar maður hefur verið með haus­inn á kafi í ein­hverju verk­efni í meira en ár hvort ein­hverjum muni finn­ast það flott eða ekki. En það er óskap­lega gaman að fólk skuli hafa tekið plöt­unni svona vel.“

„Þetta síð­asta ár fól í sér rosa­lega mikið af nýjum verk­efnum og giggum þannig að eins og staðan er núna get ég lifað af tón­list­inni.“

Guðrún er nýorðin 23 ára, á kærasta og seg­ist vera að reyna að spara til að geta keypt sér íbúð og losnað við leigu­mark­að­inn, sem sé hæg­ara sagt en gert. Til að byrja með vann hún sem skóla­liði í Mos­fellsbæ með fram tón­list­ar­sköp­un­inni en er nýhætt því til að ein­beita sér að tón­list­inni. „Þetta síð­asta ár fól í sér rosa­lega mikið af nýjum verk­efnum og giggum þannig að eins og staðan er núna get ég lifað af tón­list­inni,“ útskýrir hún og seg­ist vona að það verði þannig áfram.

Aldrei verið mismunað vegna kyns

En hvernig er að vera ung kona að hasla sér völl í tón­list­ar­heim­inum? Mikið hefur verið talað um hvað sá heimur sé karllægur og erfitt fyrir stelpur að kom­ast þar inn, en Guðrún segir það ekki sína reynslu.

„Ég held að ég og fleiri stelpur af minni kyn­slóð séum að koma af stað nýrri bylgju í tón­list,“ segir hún ákveðin.

„…ég hef í raun­inni hingað til ekki upp­lifað neina mis­munun vegna kyns míns, sem er mjög jákvætt.“

„Það hefur orðið mikil vit­und­ar­vakn­ing í sam­fé­lag­inu og bæði strákar og stelpur í tón­list­ar­brans­anum eru með­vituð um að það þarf að breyta og bæta við­horfin í garð stelpna. Ég fæ þessa spurn­ingu oft en ég get svarað því alveg hrein­skiln­is­lega að ég hef í raun­inni hingað til ekki upp­lifað neina mis­munun vegna kyns míns, sem er mjög jákvætt og ég vona að sú þróun haldi áfram og opni dyr fyrir aðrar stelpur að koma inn í for­dóma­laust tón­list­ar­sam­fé­lag. Við erum á leið þangað, eitt skref í einu, held ég.“

Guðrún er með nýja plötu í vinnslu og langar að koma henni út sem allra fyrst. „Það er svo erfitt að setja sér „dea­d­line“ þegar maður er tón­list­ar­maður, manni er alltaf að detta eitt­hvað nýtt í hug.“

Guðrún hefur unnið mikið með karl­mönnum úr rapp­brans­anum, sem hefur sér­stak­lega illt orð á sér í þessum málum, vera kven­fjand­sam­legur, en hún seg­ist ekki hafa orðið vör við það.

„Ég hef verið að syngja inn á fullt á plötum hjá röpp­urum og auð­vitað eru þeir mis­fróðir um kven­rétt­indi en mér finnst margir þeirra hafa tekið vel á þeim málum, eins og til dæmis Logi Pedro og Unn­steinn og Emmsjé Gauti, sem hafa verið mjög kraft­miklir í femín­ism­anum. Svo ég held að þetta orð­spor eigi ekki lengur við rök að styðj­ast.“

Stelpur gagnrýnni á sjálfar sig

Guðrún hefur sjálf lagt femínískar áherslur í sinni fram­komu, enda segir hún mik­il­vægt að hvetja stelpur til dáða og sýna þeim að þessi leið sé þeim fær alveg eins og strák­unum.

„For­eldrar mínir hafa svo­lítið alið mig upp í þeirri trú að ég geti gert hvað sem er og ef mann langi að gera eitt­hvað þá eigi maður bara að gera það. Ég er líka dálítið með­vituð um að það sé nauð­syn­legt að hvetja ungar stelpur til að gera það sem þær langar því margar ungar stelpur hafa sent mér skila­boð eða komið til mín og spjallað um hvernig þær komi sér á fram­færi því þær þori ekki alveg að taka það skref. Ég held að stelpur séu yfir­leitt gagn­rýnni á sjálfar sig og það sem þær gera heldur en strák­arnir. Ég var það líka þegar ég var að byrja, dauð­hrædd við við­brögð ann­arra á meðan strák­arnir henda sér bara út í djúpu laug­ina og sjá til hvað flýtur.“

Var ástæðan fyrir því að þú fórst ekki að semja tón­list sjálf fyrr en upp úr tví­tugu sem sagt þessi ótti við dóma ann­arra?

„Að ein­hverju leyti, kannski, en ég var ekki búin að setja stefn­una beint á ein­hvern söng­feril, þannig að þegar ég útskrif­að­ist úr MR var ég alveg á því að fara í háskóla­nám, kannski í lækn­is­fræði, en ég var dálítið óviss um hvað mig lang­aði að gera. Svo fékk ég styrk úr Minn­ing­ar­sjóði Vil­hjálms Vil­hjálms­sonar sem borg­aði upp tón­list­ar­námið og hafði þess vegna tæki­færi til að bæta píanó­n­ám­inu við. Þá ákvað ég að gefa mér ár til þess að hella mér alveg út í tón­list­ina og bara njóta þess og svo gæti ég farið í háskóla­nám. En eftir það ár var bolt­inn far­inn að rúlla í söng­ferl­inum sem tón­list­ar­mað­ur­inn GDRN, og það varð ekki aftur snúið.“

Martröð fyrir lesblinda

Talandi um lista­manns­nafnið, sem hefur vaf­ist fyrir mörgum, hvaðan kemur þessi skamm­stöfun eig­in­lega? „Heyrðu, það var eig­in­lega til­viljun,“ segir Guðrún og hlær.

„Um leið og maður útskýrir að þetta sé Guðrún án sér­hljóða þá skilur fólk þetta yfir­leitt.“

„Ég var að vinna með strákum sem heita Bjarki og Teitur og kalla sig ra:tio þegar við vorum öll nýbyrjuð í brans­anum. Við ákváðum að senda fyrsta lagið sem við gerðum saman í mix og master­ingu, bara til þess að klára það, og þegar við fengum það til baka hafði sá sem var að mixa og mastera tekið út alla sér­hljóð­ana í nafn­inu mínu þannig að eftir stóð GDRN. Mér fannst það dálítið skemmti­legt og ákvað að nota það. Ég við­ur­kenni hins vegar að mörgum finnst þetta nafn mjög flókið og til dæmis fyrir fólk sem er les­blint er þetta algjör martröð. Ég hef verið í sjón­varps­við­tölum þar sem fólk rugl­ast alveg til hægri og vinstri í þessu, en um leið og maður útskýrir að þetta sé Guðrún án sér­hljóða þá skilur fólk þetta yfir­leitt. Ég sé það svona eftir á að ég hefði kannski átt að fara aðeins auð­veld­ari leið í nafn­gift­inni.“

Fyrsta lagið sem Guðrún gaf út undir eigin nafni var Ein, sem kom út sum­arið 2017 og fékk góðar við­tökur. Síðan hefur ekk­ert lát verið á útgáf­unni frá henni og nú vinnur hún að plötu númer tvö, það eru ansi mikil afköst á tæpum tveimur árum, ekki satt? „Eftir að fyrsta lagið kom út þarna vorið 2017 gaf ég út annað lag í lok þess árs. Þarnæsta lag kom út sum­arið 2018 og svo kom platan mín, Hvað ef, út í ágúst 2018, þetta hefur verið heil­mikil keyrsla.“

Fárveik eftir Íslensku tónlistarverðlaunin

Hvað ef fékk gey­sigóðar við­tökur og Guðrún fór heim með fern verð­laun af Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum í ár, hún seg­ist hafa verið alveg búin á því eftir það.

„Ég fór í svo mikið spennu­fall að ég var bara fár­veik í þrjár vikur eftir verð­launa­af­hend­ing­una,“ segir hún hlæj­andi. „Ég held ég hafi bara aldrei orðið svona veik á ævinni, fór á sýkla­lyfjakúr og allt, ég bara hrundi.“

Álagið sem fylgir skyndi­legri frægð og vel­gengni getur verið mikið en Guðrún seg­ist ekki hafa lent í neinum óþægi­legum atvikum eftir að hún varð þekkt and­lit. „Þetta hefur nátt­úr­lega gerst svaka­lega hratt,“ segir hún.

„Við­brögðin sem ég hef fengið hafa verið miklu meiri en ég bjóst nokkurn tím­ann við. Fyrir utan Íslensku tón­list­ar­verð­launin hef ég fengið alls konar verð­laun sem er í raun­inni alveg fárán­legt. Ég fékk bæði Kraumsverð­launin og tón­list­ar­verð­laun Grapevine og svo var ég til­nefnd til Nordic Music Prize og fór til Óslóar til að taka þátt í verð­launa­af­hend­ing­unni. Áhuga­verð­ast þar var að tíu af tólf til­nefndum plötum voru sól­ó­verk­efni kvenna, það hafði aldrei gerst áður. Þannig að það er mik­ill upp­gangur í tón­list hjá konum. Það er alda af tón­list­ar­konum sem ég held að fari að verða mjög áber­andi núna. Sem er mjög jákvætt og skemmti­legt.“

Þótt Guðrún hafi lært djass­söng flokk­ast tón­listin hennar ekki sem djass og hún segir í raun­inni dálítið erfitt að setja ein­hvern ákveð­inn stimpil á hana. „Þetta er nátt­úr­lega flokkað sem popp,“ segir hún. „En þetta er mjög mikil blanda af hinu og þessu. Strák­arnir sem ég hef verið að vinna með hafa mikið unnið með rapp og R’n’B-tón­list og svo kem ég bæði með klass­ískan og djass­aðan bak­grunn í söng, þannig að ég held að megi flokka mína tón­list sem ein­hvers konar blöndu af R’n’B, djassi og poppi.“

Í fjölskylduboðum með átrúnaðargoðinu

Spurð hvaða söng­konur séu hennar helstu fyr­ir­myndir, hvaða söng­konum hún hafi verið hrifn­ust af þegar hún var yngri er Guðrún fljót að svara. „Ég var rosa­lega hrifin af Birgittu Haukdal og Jóhönnu Guðrúnu,“ segir hún.

„Þær voru alveg í guða­tölu. Ég man að á tíma­bili var Jóhanna Guðrún oft í Stund­inni okkar og ég lá alveg heilluð fyrir framan sjón­varpið og spurði mömmu hvort hún héldi að ég mætti fara að syngja í Stund­inni okkar líka. Hún benti mér á að ég yrði alla­vega að verða aðeins eldri fyrst, en úti­lok­aði það ekki. Svo var Birgitta Haukdal alveg rosa­lega fræg á þessum tíma og ég var alltaf að hlusta á hana og Jónsa í Grease. Ég átti lít­inn geisla­spil­ara með heyrn­ar­tólum og hjólaði um allt hverfið með Írafár alveg á blasti. Mér fannst Birgitta svo æðis­leg.“

for­síða, GDRN, Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhann­es­dóttir, Mannlíf, tón­list, tón­list­ar­kona, ML1904035861, Aldís Páls­dóttir

Spurð hvort hún hafi hitt Birgittu eftir að hún fór sjálf út í tón­list­ar­brans­ann fer Guðrún að skelli­hlæja og segir að það sé nú gott betur en það. „Sko, pabbi kærastans míns er bróðir Birgittu Haukdal,“ segir hún og hlær enn meira.

„Þannig að ég er alltaf að hitta hana í fjöl­skyldu­boðum. Það finnst mér ótrú­lega skemmti­leg til­viljun. Þegar ég hitti hana fyrst var ég auð­vitað með smá stjörnur í aug­unum eftir að hafa litið svona mikið upp til hennar þegar ég var lítil, en það vand­ist fljótt. Hún er líka alveg frá­bær og hefur gefið mér fullt af góðum ráðum fyrir tón­list­ar­brans­ann.“

Dálítil tilfinningaklausa

Guðrún semur alla sína texta sjálf, hvaðan koma hug­mynd­irnar að þeim, er ein­hver sér­stakur boð­skapur sem hún vill koma á fram­færi? „Það er bara voða­lega mis­jafnt,“ segir hún hugsi.

„Þegar ég gerði fyrstu plöt­una var mjög lítil pressa, þannig að ég var bara að semja um ein­hver til­finn­inga­leg mál, það að hætta með ein­hverjum eða eitt­hvað í þá átt­ina. Það var dálítil til­finn­inga­klausa í þessum textum. Stundum voru þetta bara ein­hverjar setn­ingar sem mér duttu í hug, svo skáld­aði ég bara í kringum þær. Sumt var rosa­lega ein­lægt, annað voru ein­hverjar hug­myndir héðan og þaðan. Maður fær líka stundum inn­blástur af því að hlusta á aðra tón­list og fer að semja eitt­hvað út frá því. Ég hef í raun­inni ekk­ert skýrt mark­mið með texta­gerð­inni enn þá. Það verður meira í næsta verk­efni, bæði tón­list­ar­lega og texta­lega. Þar er ég að vinna út frá heild­ar­hug­mynd, það verður miklu heild­stæð­ari plata en sú fyrsta.“

Margar tón­list­ar­konur hafa kvartað undan því að karl­arnir sem þær hafa unnið með eigni sér oft heið­ur­inn af verkum þeirra. Guðrún seg­ist aldrei hafa upp­lifað neitt í þá átt­ina.

„Við sem vinnum saman erum sem betur fer öll óskap­lega ánægð hvert með annað,“ segir hún með sann­fær­ingu. „Þeir eru ekk­ert að taka kredit fyrir mín verk en það er auð­vitað líka þeirra verk að þessi plata varð til og við erum mjög dug­leg við að gefa hvert öðru kredit. Það er eng­inn rígur. Við virðum hvert annað full­kom­lega.“

Auk þess að fylgja fyrstu plöt­unni eftir og vinna að þeirri næstu er Guðrún á fullu við að koma fram við alls konar tæki­færi. Hún segir það eig­in­lega hafa komið sér mest á óvart hvað hún sé oft beðin um að koma fram.

„Það hefur verið alveg ofboðs­lega mikið af því,“ útskýrir hún. „Ég hef sungið á alls kyns árs­tíðum og fram undan er söngur í hverju brúð­kaup­inu af öðru og alls kyns aðrir við­burðir. Ég hef bara alveg brjálað að gera, sem betur fer.“

Slitin krossbönd og draumurinn sem dó

Þótt tón­listin hafi alla tíð verið stór þáttur í lífi Guðrúnar seg­ist hún ekki hafa stefnt að því að leggja hana fyrir sig sem ævi­starf þegar hún var yngri. Hana dreymdi um allt aðra frægð og frama en örlögin gripu í taumana.

„Ég byrj­aði snemma að æfa og spila fót­bolta með Aft­ur­eld­ingu og var mjög efni­leg,“ útskýrir hún. „Ég ætl­aði mér alltaf að kom­ast í nám út til Banda­ríkj­anna á skóla­styrk út á fót­bolt­ann. Ég hafði í raun­inni ekki annað mark­mið á þeim tíma. Rétt áður en ég byrj­aði í mennta­skól­anum sleit ég hins vegar kross­band í fæt­inum og gat ekki spilað um tíma. En ég fór í aðgerð og stefndi alltaf á að koma aftur inn í fót­bolt­ann því ég hafði svo mik­inn metnað. Stuttu eftir að ég komst aftur að spila gerð­ist það sama aftur og ég þurfti í aðra aðgerð. Þá var þetta búið. Sá draumur fór í vaskinn.“

Þegar einn draumur endar tekur annar við og það má eig­in­lega segja að meiðslin hafi orðið til góðs því það var í kjöl­far þeirra sem Guðrún ákvað að leggja tón­list­ina fyrir sig.

„Þá var ég hætt í fiðlu­nám­inu, var búin að missa áhug­ann þar,“ segir hún. „En eftir seinni meiðslin ákvað ég að breyta um stefnu og fara út í söng­inn, þannig að ef ég hefði ekki slasast svona í fót­bolt­anum hefði ég aldrei orðið söng­kona.“

Þú tal­aðir um að þú hefðir verið að hugsa um nám í lækn­is­fræði, var það gam­all draumur? „Nei, eða ég veit það ekki. Ég hafði alltaf áhuga á að fara í lækn­is­fræði eða sjúkra­þjálfun eða eitt­hvað annað sem tengd­ist því að hjálpa fólki,“ útskýrir Guðrún. „Ég fékk mjög mik­inn áhuga á sjúkra­þjálfun eftir að ég var svona mikið í sjúkra­þjálfun en það þró­að­ist svo út í löngun til að verða læknir. Ég fór í MR þar sem mikil áhersla er lögð á að fólk sé vel statt fyrir lækna­nám eftir stúd­ents­próf. Ég var á nátt­úru­fræði­braut þannig að ég hafði ein­hverja smá­vegis hug­sjón um gaman gæti orðið að verða læknir. En ég veit ekki hvað verður. Eins og staðan er núna á tón­listin hug minn allan og ég er ekk­ert að velta fyrir mér að gera eitt­hvað annað á næst­unni. Ég bý hins vegar að því að for­eldrar mínir hafa kennt mér að þegar einar dyr lok­ast þá opn­ast aðrar og maður á aldrei að úti­loka neitt, svo við sjáum bara til.“

Mikilvægast að hlusta á sjálfa sig

Þegar ég spyr hvenær nýja platan sé vænt­an­leg, verður Guðrún óákveðin í svörum í fyrsta sinn í við­tal­inu, en segir þó að hana langi til þess að koma henni út sem allra fyrst. „Kannski í sumar,“ segir hún.

„Það er ekki alveg ákveðið. Það er svo erfitt að setja sér „dea­d­line“ þegar maður er tón­list­ar­maður, manni er alltaf að detta eitt­hvað nýtt í hug og það er alltaf eitt­hvað sem kemur upp á, en já, ég vil koma henni út eins fljótt og hægt er.“

Hvernig sérðu fram­tíð­ina fyrir þér? Heldurðu að þú verðir ennþá í tón­list­ar­brans­anum þegar þú verður fimm­tug?

„Ég vona það, en það er aldrei að vita,“ segir Guðrún og brosir breitt. „Það sem mig langar mest til núna er að fara út og í tón­leika­ferða­lag þar, helst að spila á Hró­arskeldu, það hefur mig lengi langað til að gera. En ég veit ekki hvernig þetta þró­ast allt saman. Þegar ég byrj­aði hafði ég ekki neinn rosa­legan draum um hvað ég vildi, en ég hef mjög mik­inn metnað og er alveg hel­tekin af því sem ég geri. Svo finnst mér gaman að sjá bara hvert það fer, þannig að ég set enga pressu á mig varð­andi hvert stefnan er tekin.“

Spurð hvað hafi komið henni mest á óvart í tón­list­ar­brans­anum verður Guðrún dálítið hugsi. „Eig­in­lega það hvað jákvæð við­brögð geta haft mikil áhrif á mann, bæði til góðs og ills,“ segir hún hægt.

„Það er alltaf verið að minna mann á að vera við­bú­inn nei­kvæðum við­brögðum og að ein­hverjir muni ekki fíla tón­list­ina manns og það ger­ist auð­vitað alveg að maður fái nei­kvæð skila­boð og athuga­semdir. En það er miklu algeng­ara að ég fái jákvæð við­brögð frá fólki og fal­leg skila­boð um hvað fólki þyki vænt um tón­list­ina mína, sem er alveg æðis­legt. Því fylgir hins vegar líka ákveðin pressa um að það næsta sem maður gerir verði æðis­lega gott, að maður þurfi að standa undir ein­hverjum ákveðnum stand­ard. Það getur ruglað mann en mik­il­væg­asta lexían sem ég hef lært af þessu er að maður á alltaf að hlusta á sjálfan sig, ekki gera hlut­ina út frá því sem maður heldur að öðrum eigi eftir að finn­ast. Ef maður er sjálfur ánægður með verkin sín þá er þetta þess virði að gefa út. Það er eina við­mið­unin sem hægt er að hafa.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur YSL á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Feminíski aðgerðarhópurinn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar framlagi“
Innlent

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar fram­lagi“

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur. Stjórn­endur Öfga sendu frá sér til­kynn­ingu á Instagram þar sem sagt er frá því að hóp­ur­inn sé hættur. Hópurinn hefur inni­haldið ýmsar konur en sem dæmi má nefna um þær sem hafa komið fram undir nafni Öfga má nefna Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur, Helgu Bene­dikts­dóttur, Ninnu Körlu Katrín­ar­dóttur, Huldu Hrund Guðrúnar Sig­munds­dóttur, Tönju Mjöll Ísfjörð Magn­ús­dóttur...
Femínismi – um hvað ræðir?
Skoðun

Salome Friðgeirsdóttir

Femín­ismi – um hvað ræðir?

„Femínisti er mann­eskja sem veit að jafn­rétti kynj­anna hefur ekki verið náð og vill gera eitt­hvað í því.“ Þessa skil­grein­ingu er að finna á heima­síðu Femínista­fé­lags­ins. Mikið hefur verið rætt um femín­isma síð­ustu ára­tugi, en hvað stendur þessi póli­tíska og hug­mynda­fræði­lega stefna fyrir? Einhvers staðar voru umræður á þessa leið: „þeir eru leið­in­legir og gera lítið úr konum með öfga...
„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“
Innlent

„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“

„Hvernig held­urðu í heil­indi þín sem femínisti, þegar það er auð­veld­ara að skil­greina sig opin­ber­lega sem femínista heldur en að gera það ekki?“ var spurn­ing sem níger­íski rit­höf­und­ur­inn og bar­áttu­konan Chimamanda Ngozi Adichie fékk, í opnum umræðum eftir fyr­ir­lestur sinn í Háskóla­bíói á föstu­dag­inn. „Virki­lega? Finnst þér í alvöru auð­veld­ara að skil­greina þig sem femínista heldur en að gera það...
Feminískar stúdínur knýja fram ókeypis tíðavörur fyrir stúlkur
Innlentfemínismi

Fem­inískar stúd­ínur knýja fram ókeypis tíða­vörur fyrir stúlkur

Þrjár tíundu bekkjar stúd­ínur sem saman stofn­uðu Femínista­fé­lag Grunn­skól­ans í Hvera­gerði og hrundu af stað styrkja­leit fyrir dömu­bindum og tíða­vörum síð­ast­liðið haust hafa sann­fært bæj­ar­stjórn um nauð­syn þess að bjóða ókeypis tíða­vörur í skól­anum og félags­mið­stöð­inni frá og með næsta hausti. Rannveig Arna Sig­ur­jóns­dóttir, sem lauk tíunda bekk nú í vor segir í við­tali við Frétta­blaðið að stelpur eigi ekki...
„Lúserar landsins“ reyna að stöðva samfarakennslu Sólborgar
Innlentfemínismi

„Lúserar lands­ins“ reyna að stöðva sam­fara­kennslu Sól­borgar

„Einhver segja útópía. Þetta er hins vegar 100% mögu­leg staða. Snýst bara um for­gangs­röðun fjár­magns og að drulla þessu af stað. Getið þið plís verið fólkið sem tekur þetta risa­stóra skref til að vernda næstu kyn­slóðir?“ tísti Sólborg Guð­brands­dóttir tón­list­ar­kona, fyr­ir­les­ari, bar­áttu­kona gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og stofn­andi Instagram-síð­unnar Fávitar fyrir fáeinum dögum en tíst Sól­borgar rataði í fjöl­miðla og vakti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins