„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Virðist geta staðið flest allt af sér

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er án efa umdeild­asti stjórn­mála­maður sam­tím­ans. Hann kom mjög ungur inn í stjórn­mál þegar hann var kjör­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á skraut­legan hátt í byrjun árs 2009.

Virðist geta staðið flest allt af sér

Hann hafði skráð sig í flokk­inn tveimur vikum áður en flokks­þingið fór fram. Upp­haf­lega var greint frá því að Hösk­uldur Þór­halls­son hefði verið kjör­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins þar en síðar reynd­ist taln­ing hafa verið röng og var til­kynnt um að Sig­mundur Davíð væri rétt­kjör­inn for­maður. Hann vant­aði þá enn tvo mán­uði í að vera 34 ára gam­all.

Fjórum árum síðar var hann orð­inn yngsti for­sæt­is­ráð­herra lýð­veld­is­sög­unnar eftir mik­inn kosn­inga­sigur Fram­sókn­ar­flokks­ins í apríl 2013.

Sig­mundur Davíð sagði af sér því emb­ætti 5. apríl 2016 eftir að Panama­skjölin höfðu opin­berað hann sem eig­anda aflands­fé­lags­ins Wintris og kröfu­hafa í bú föllnu bank­anna sem rík­is­stjórn hans hafði verið að semja við. Viðtal þar sem Sig­mundur Davíð sagði ósatt þegar hann var spurður út í Wintris fór sem eldur um sinu út um allan heim. Daginn áður en hann sagði af sér fóru fram fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar á Aust­ur­velli þegar 26 þús­und manns mót­mæltu Sigmundi Davíð, öðrum ráð­herrum sem voru í Panama­skjöl­unum og rík­is­stjórn­inni sem þeir sátu í.

Í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sem gerð var á þeim tíma sem leið frá því að sér­stakur Kast­ljós­þáttur um skjölin var sýndur og þar til Sig­mundur Davíð steig til hliðar kom fram að 78 pró­sent lands­manna vildi að hann myndi segja af sér.

Þetta var ekki staða sem margir stjórn­mála­menn hefðu snúið aftur úr.

Eftir nokk­urra mán­aða frí vildi Sig­mundur Davíð, þá enn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, taka aftur við stjórn­ar­taumunum. Hann var sann­færður um að vera fórn­ar­lamb sam­særis og að hann hefði ekki gert neitt rangt. Síðar opin­ber­aði Kjarninn að Wintris hefði ekki greitt skatta í sam­ræmi við lög og reglur og óskað eftir því að fá að gera þá rétt upp við skatta­yf­ir­völd.

Sig­mundur Davíð tap­aði svo í for­manns­slag við Sigurð Inga Jóhanns­son í Fram­sókn­ar­flokknum í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2016 og sat í nokk­urs konar sjálf­skip­aðri útlægð sem þing­maður flokks­ins næsta tæpa árið. Á þeim tíma tók hann lít­inn þátt í þing­störfum en ein­beitti sér að því að stofna Fram­fara­fé­lagið, vett­vang utan um hug­myndir hans sem stjórn­mála­manns sem átti að nýt­ast til að fleyta honum aftur til valda innan Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Þegar kosn­ingar skullu skyndi­lega á haustið 2017 breytt­ust þau áform. Sig­mundur Davíð og nokkrir tryggir fylg­is­menn gengu úr Fram­sókn­ar­flokknum, stofn­uðu Mið­flokk­inn og buðu fram út um allt land. Einu og hálfu ári eftir Panama­skjölin vann hann kosn­inga­sigur.

Þegar Klaust­ur­málið kom upp voru áhrifin ekki ósvipuð og eftir Panama­skjala­hneykslið. Í könnun sem birt var 3. des­em­ber 2018 kom fram að á milli 74 og 91 pró­sent Íslend­inga er hlynnt afsögn alþing­is­mann­anna sex. Flestum fannst að Gunnar Bragi ætti að segja af sér en næstum jafn­háu hlut­falli fannst að Berg­þór ætti einnig að gera það. Þá töldu 86 pró­sent lands­manna að Sig­mundur Davíð ætti að víkja.

Þessa stöðu virð­ast Mið­flokks­menn nú hafa staðið af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klaustursmálið

Miðflokksmenn ætla ekki að fylgjast með eyðingu upptökunnar: „Bára hver?“
Innlentklaustursmálið

Mið­flokks­menn ætla ekki að fylgj­ast með eyð­ingu upp­tök­unnar: „Bára hver?“

„Bára hver?” spurði Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins og einn Klaust­urs­þing­manna, er Mannlíf innti hann eftir hvort búast mætti við honum og jafn­vel þing­flokk Mið­flokks­ins á Bára­móta­brennu í kvöld. Á við­burð­inum verður upp­töku Báru Hall­dórs­dóttur frá Klaustri eytt með form­legum hætti við hátíð­lega athöfn.
Klaustursupptökur á Bárubrennu að skipan Persónuverndar: „Ég hef svosem ekkert við upptökurnar að gera.”
Innlentklaustursmálið

Klaust­urs­upp­tökur á Báru­brennu að skipan Per­sónu­verndar: „Ég hef svosem ekk­ert við upp­tök­urnar að gera.”

„Lög­fræð­ing­ur­inn minn verður þarna með skörp augu á sím­anum og tekur eyð­ing­una upp” segir Bára Hall­dórs­dóttir, upp­ljóstr­ari í Klaust­urs­mál­inu, sem boðað hefur til Bára­móta­brennu í til­efni úrskurðar Per­sónu­verndar um að hún hafi brotið per­sónu­vernd­ar­lög í klaust­urs­mál­inu. „Mynd­bandið verður svo sent til per­sónu­verndar.”
Halldóra Mogensen um stjórnmálamenn í kosningaham: „Lofa öllu fögru til að halda völdum.”
Innlent

Halldóra Mogensen um stjórn­mála­menn í kosn­inga­ham: „Lofa öllu fögru til að halda völdum.”

„Lofa öllu fögru til að halda völdum,” sagði Halldóra Mogensen , þing­kona Pírata, um stjórn­mála­menn í kosn­inga­ham. Þetta sagði hún í eld­hús­dags­um­ræðum í kvöld. Halldóra bætti við að eftir kosn­ingar hefði fólk mátt venj­ast því að lof­orðin stand­ist ekki. Nefndi hún sem dæmi að allir flokkar hefðu lofað að enda krónu á móti krónu skerð­ingu en slíkt hafi enn ekki gerst.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins