„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Við eigum að vera í góða liðinu“

Biskup Íslands hefur áhyggjur af upp­risu afla sem ala á ótta gagn­vart inn­flytj­endum og minni­hluta­hópum. Sjálf hefur hún skipað sér og kirkj­unni í það lið sem berst gegn slíkum mál­flutn­ingi með því að breiða út kær­leik og virð­ingu.

„Við eigum að vera í góða liðinu“
||

Frú Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, heim­sótti á dög­unum mosku múslíma í Skóg­ar­hlíð. Heim­sóknin var sögu­leg því þetta var í fyrsta skipti sem biskup heim­sækir mosku á íslenskri grundu. Skömmu áður hafði sést til hennar á Aust­ur­velli þar sem hæl­is­leit­endur höfðu safn­ast saman í von um að fá áheyrn ráða­manna.

Þótt fram­göngu Agnesar hafi almennt verið vel tekið mátti þó heyra gagn­rýn­is­raddir, meðal ann­ars úr sölum Alþingis. Agnes gefur lítið fyrir slíkar úrtöluraddir og segir sam­tal einu leið­ina til að byggja brú á milli ólíkra menn­ing­ar­hópa. Þetta sam­tal, þar sem kirkjan er virkur þátt­tak­andi, sé sér­stak­lega mik­il­vægt nú þegar upp rísa öfl sem nota ótt­ann til að reka fleyg á milli ólíkra þjóð­fé­lags­hópa.

Múslimar vilja vera góðir samfélagsþegnar

„Það var gaman að koma þarna og ein­stak­lega vel tekið á móti okkur og ýmis­legt sem kom mér kannski á óvart. Maður upp­lifði að maður væri komin inn í ver­öld sem væri manni ekki mjög þekkt, til dæmis fengum við te og arab­ískar kökur sem maður fær ekki á hverjum degi,“ segir Agnes um mót­tök­urnar sem hún fékk í Skóg­ar­hlíð.

Maður upp­lifði að maður væri komin inn í ver­öld sem væri manni ekki mjög þekkt.

Tilefnið var heim­sókn for­seta vett­vangs múslima í Evrópu, Abdul-Vakhed Niyzov, þar sem meðal ann­ars var rætt um mik­il­vægi friðar og aðgerða í kjöl­far atburð­anna hræði­legu í Christchurch í Nýja-Sjálandi þann 15. mars þegar vopn­aður maður réðst á tvær moskur og myrti 50 sak­lausa borg­ara. Agnes segir að það hafi verið hennar val að fund­ur­inn fór fram í mosk­unni.

„Mér var boðið að koma í mosk­una en þeir sögð­ust líka geta komið til mín eða hitt mig ann­ars staðar í bænum. Karim [Askari, for­stöðu­maður mosk­unnar í Skóg­ar­hlíð] hafði áður boðið mér í heim­sókn og ég vildi bara þiggja boð hans um að koma á hans heima­stöðvar.“

„Virðing, kær­leikur og traust. Þetta eru grunn­stoðir í mann­líf­inu. Þetta eru orðin sem vígslu­mað­ur­inn í kirkj­unni notar þegar fólk giftir sig, þetta eru þrjár und­ir­stöður sem eru sam­ofnar,“ segir Agnes.

Þar var Agnesi tekið með virktum og hjó hún sér­stak­lega eftir því að henni var heilsað með handa­bandi við kom­una, eitt­hvað sem hún hefur ekki alltaf upp­lifað í sam­skiptum hennar við múslima. Og það voru fleiri minn­is­stæð atriði í heim­sókn­inni.

„Þarna var ein kona með slæðu sem sat við hlið­ina á mér. Maður hefur svo sem hitt múslima­konur áður en mér fannst svo gaman að fá að sitja með henni í skjóli vin­átt­unnar. Hún fædd­ist í Sýrlandi og ég á Íslandi og þess vegna er ég eins og ég er og hún eins og hún er. Svo fannst mér svo gaman að sjá þegar ég fór út, að þegar þessi kona og hennar maður voru að fara af bíla­stæð­inu á sínum bíl og hver keyrði? Það var konan sem sat undir stýri. Þetta er ein­hvern veg­inn ekki sú mynd sem birt­ist manni í fjöl­miðlum en þetta segir manni að hvort sem fólk er múslimar, kristið, hindúar, búddistar eða hvað sem er, við erum öll fólk sem lifum í því sam­fé­lagi sem við erum í og göngum fram sem slík.“

Agnes leggur áherslu á að sam­tal sé besta tækið til að rjúfa múra og eyða for­dómum. Þess vegna sé sam­ráðs­vett­vangur trú­ar­bragð­anna, sem starf­ræktur hefur verið síðan 2006, svo mik­il­vægur. Þar sam­ein­ast ólíkir full­trúar trú­ar­bragð­anna um það sem sam­einar en ekki það sem sundrar.

„Ég upp­lifði það mjög sterkt í mosk­unni að múslimar hafa ein­lægan vilja til þess að vera góðir sam­fé­lags­þegnar í því sam­fé­lagi þar sem þeir búa hverju sinni. Þeir sem búa á Íslandi vilja verða Íslend­ingar og lifa hér sem slíkir, ala börnin sín upp sem Íslend­inga og eru ekki að reyna að breyta neinu. En auð­vitað er það þannig í öllum sam­fé­lögum að breyt­ingar eiga sér stað með hverri kyn­slóð og allar mann­eskjur hafa ein­hver áhrif ein­hvers staðar á ein­hvern, þess vegna verður þessi þróun.“

Það er ekki nóg að tala

Mótmæli hæl­is­leit­enda á Aust­ur­velli um miðjan mars­mánuð vöktu mikla athygli en þau voru líka umdeild. Til rysk­inga kom á milli mót­mæl­enda og lög­reglu og á sam­fé­lags­miðlum mátti greina tals­verða vand­læt­ingu á fram­ferði hæl­is­leit­enda. En þeir voru líka margir sem tóku undir mál­stað þeirra, meðal ann­ars um slæman aðbúnað þeirra og afskipta­leysi stjórn­valda. Agnes til­heyrir þeim hópi.

„Ég lít þannig á náung­ann að ég elska náung­ann. Ég elska Guð, náung­ann og sjálfa mig í þess­ari röð. Náungi minn eru allar mann­eskjur og sér­stak­lega þær mann­eskjur sem þarfn­ast hjálpar. Þjóð­kirkjan hefur, eins og aðrar kirkjur á Vest­ur­löndum, látið til sín taka varð­andi þessi mál­efni hæl­is­leit­enda vegna þess að við lítum ekki á hæl­is­leit­endur sem hæl­is­leit­endur, við lítum á þá sem fólk. Hæl­is­leit­endur eru bara fólk eins og við en flestir þeirra hafa upp­lifað miklu erf­ið­ari lífs­reynslu en við flest hér á Íslandi vegna þess að þau hafa þurft að flýja sitt land, flýja frá ófriði. Þau eru að sækj­ast eftir friði og þau eru að sækj­ast eftir mann­rétt­indum. Þetta vil ég styðja.“

Agnes bætir við að hluti þess fólks sem hafi verið á Aust­ur­velli hafi nýtt sér þjón­ustu kirkj­unnar.

„Ég fór niður á Aust­ur­völl því það er ekki nóg að tala, það verður líka að fylgja því eftir sem maður er að segja. Maður verður að lifa í sam­ræmi við boðun sína. Það er ég að reyna að gera, meðal ann­ars með því að vera nær­ver­andi í eigin skinni á Aust­ur­velli til að sýna að mér er ekki sama um þau og hjálpa þeim að ná áheyrn. Af því að þau langar til að tala við þau sem hér ráða og búa til lögin fyrir okkur. Það er nú bara þannig að eftir sem heyr­ist hærra í manni er meiri von til að á mann sé hlustað. Það að opna Dóm­kirkj­una fyrir öllu fólki, líka fyrir hæl­is­leit­endum, er bara í anda frels­ar­ans.“

Ósmekkleg ummæli á þingi

Það voru ekki allir sáttir við að kirkjan hafi verið opin hæl­is­leit­endum og slíka vand­læt­ingu mátti meðal ann­ars greina í sölum Alþingis. Þing­maður Mið­flokks­ins, Ólafur Ísleifs­son, fór þar fremstur í flokki. Talaði hann um „tjald­búðir“ hæl­is­leit­enda á Aust­ur­velli og að æðstu menn þjóð­kirkj­unnar hafi staðið fyrir því að breyta Dóm­kirkj­unni í „almenn­ings­náð­hús“ um leið og hann furð­aði sig á nær­veru æðstu manna þjóð­kirkj­unnar á Aust­ur­velli.

Agnes hefur ekki miklar áhyggjur af slíkum gagn­rýn­is­röddum. „Það er nú þannig að engin mann­eskja getur stjórnað annarri og maður á nú nóg með að stjórna sjálfum sér þannig að ég ræð svo sem ekki við­brögðum fólks eða hugs­unum og því síður skoð­unum. Við búum í frjálsu landi, sem betur fer, og það er öllum frjálst að hafa sína skoðun svo fram­ar­lega sem hún meiðir ekki annað fólk,“ segir hún og bætir við: „Menn hafa sínar skoð­anir og ef það má láta allar skoð­anir í ljós á þingi þá hljóta þing­menn að hafa leyfi til þess. En mér finnst þetta frekar ósmekk­legt. Það er hægt að nálg­ast öll mál á mis­mun­andi máta, maður getur verið jákvæður og nei­kvæður og alls konar en mér fannst þessi umræða frekar í nei­kvæð­ari kant­inum. Við opnum kirkj­urnar fyrir fólk­inu okkar og hjálpum hæl­is­leit­endum vegna þess að við erum kristin, ekki vegna þess að þau eru kristin.“

Að mati Agnesar mót­ast umræðan um inn­flytj­endur og hæl­is­leit­endur að miklu leyti af ótta, hræðslu gagn­vart hinu óþekkta.

Þetta er bara fólk sem þráir að lifa í frið­sömu landi þar sem mann­rétt­indi eru virt.

„Við erum hrædd við það sem við þekkjum ekki. Hvað getur hjálpað okkur í þeirri stöðu ef við þekkjum ekki hlut­ina? Við þurfum að kynn­ast þeim til þess að verða ekki hrædd. Við megum ekki láta ótt­ann stjórna okkur. Óttinn getur haft þau áhrif á okkur að við önum ekki áfram í ein­hverjum glanna­skap en hann má ekki stjórna lífi okkar. Hvernig er það með fólk sem er alltaf hrætt? Því líður ekki vel. Þannig að ég held að eina og besta leiðin sé sam­tal. Þess vegna fór ég í mosk­una og þess vegna reyndi ég með nær­veru minni á Aust­ur­velli að sýna að ég vil að þeir sem fara með lögin og regl­urnar, fólkið á þing­inu, að það komi út úr hús­inu og tali saman. Að það heyri frá fyrstu hendi sögur þeirra og hvað þau eru að biðja um. Múslimar vilja, eins og ég sagði áðan, vera góðir sam­fé­lags­þegnar og ég sé ekki betur en að þetta sé bara fólk eins og ég og þú. Þetta er bara fólk sem þráir að lifa í frið­sömu landi þar sem mann­rétt­indi eru virt, þar sem er borin virð­ing fyrir mann­eskj­unni eins og hún er, alveg sama af hvaða kyni hún er, hver kyn­hneigð hennar er, hverrar trúar hún er og svo fram­vegis.“

Trump og hans líkar tala ekki í nafni Guðs

En ótt­inn er víðar en á Íslandi. Víðs vegar um heim­inn hafa risið upp stjórn­mála­menn sem hafa kom­ist til valda með því að ala á ótta gagn­vart til­teknum þjóð­fé­lags­hópum. Fremstur þar í flokki fer Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, en einnig má nefna menn eins og Viktor Orban í Ung­verja­landi, Erdogan í Tyrk­landi, Jair Bol­son­aro í Brasilíu og svo mætti áfram telja. Agnes seg­ist vissu­lega hafa áhyggjur af þess­ari þróun.

„Óttinn er stjórn­tæki og Banda­ríkja­for­seti virð­ist nota hann sem slíkt. Að gera fólk ótta­slegið og hrætt þannig að það þori ekki annað en að fara eftir því sem hann segir. Ótti, og reyndar fýla líka, eru að mínum dómi bestu stjórn­tæki ver­aldar. Þetta eru samt nei­kvæð stjórn­tæki, ekki jákvæð, og þau búa til verri heim og meiri van­líðan hjá fólki. Auðvitað breið­ist þetta út því þetta er svo öfl­ugt stjórn­tæki. Þetta er stór­hættu­legt og leiðir bara til eins. Þetta leiðir bara til van­líð­unar, ófriðar, þetta leiðir til van­virð­ingar við allt líf á jörð­inni og þarna er Guð ekki með í verki. Það er ekki verið að hlusta á hvað Guð vill.“

En það er nú samt þannig að margir þess­ara leið­toga segj­ast einmitt tala í nafni Guðs.

„Ég trúi því ekki,“ segir Agnes ákveðin. „Fyrir mér er Guð kær­leiks­ríkur guð sem elskar allar mann­eskjur eins og þær eru og sáir ekki neinum ill­vilja í brjóst nokk­urs manns. En það eru önnur öfl í heim­inum sem eru að því og við berj­umst gegn þeim af öllu afli. Við eigum að vera í góða lið­inu en ekki hinu vonda.“

„Ég skil ekki svona reglur“

Á dög­unum greindu fjöl­miðlar frá máli sýr­lenskrar konu sem hafði flúið stríðs­á­tök í Sýrlandi og kom­ist í öruggt skjól undir vernd­ar­væng KFUM og KFUK. Hún missti eig­in­mann sinn í stríð­inu og neydd­ist til að skilja börnin eftir í Sýrlandi og hafði gengið í gegnum miklar raunir bæði á flótt­anum og í Grikk­landi þar sem hún steig fyrst á land í Evrópu. Hafði henni meðal ann­ars verið hótað líf­láti vegna þess að hún hafði tekið upp kristna trú. Konunni vegn­aði afar vel á Íslandi, hún hafði starfað um skeið á leik­skól­anum Vina­garði þar sem hún var afar vel liðin af börnum, for­eldrum og sam­starfs­fólki. En skyndi­lega var fót­unum kippt undan henni þegar íslensk stjórn­völd höfn­uðu því að taka umsókn hennar um alþjóð­lega vernd til efn­is­með­ferðar. Konunni var vísað úr landi á grund­velli Dyfl­ingn­ar­reglu­legarð­innar og hún send til Grikk­lands sem stjórn­völd álíta öruggt ríki fyrir flótta­menn.

Biskupi er sjá­an­lega mikið niðri fyrir þegar hún er spurð út í þetta mál. „Ég auð­vitað virði það að menn vinni vinn­una sína. Ef menn eru að fara eftir lögum og reglum, þá verður svo að vera. En ég held hins vegar að þetta sé óásætt­an­leg staða, að það sé verið að vísa fólki úr okkar stóra landi þar sem við höfum nóg pláss fyrir alla til að lifa góðu lífi.

Það er hræði­legt þegar er verið að senda fólk úr landi út í ein­hverja óvissu.

Ég skil ekki svona reglur, af hverju það þurfi að vísa í burtu góðu fólki sem hefur ekk­ert gert nema gott. Það er ekki svo að þessi kona hafi verið ein­hver glæpa­maður, hryðju­verka­maður eða eitt­hvað slíkt. Þetta er bara góð mann­eskja sem vann með börnum og öllum líkar vel við – börn­num, sam­starfs­fólki og for­eldrum. Af hverju má hún ekki vera hérna? Ég hef ekki skiln­ing á því. Mér finnst þetta ekki gott og ég myndi vilja að regl­urnar yrðu rýmkaðar þannig að fleiri ættu þess kost að vera hérna. Það er hræði­legt þegar er verið að senda fólk úr landi út í ein­hverja óvissu,“ segir Agnes sem ótt­ast um vel­ferð kon­unnar úti í Grikk­landi.

„Hvað getur hún gert þar? Það er ekk­ert fyrir hana að hafa þar. Vonandi býr hún þar við frið en hún fær ekki vinnu og verður ein­hvers staðar að finna húsa­skjól. Þetta hafði hún allt hér – hún hafði vinnu, húsa­skjól og hún hafði allt sem hún þurfti.“

Ísland þarf að leggja meira af mörkum

Biskup segir þetta mál vekja upp spurn­ingar um sið­ferð­is­lega afstöðu gagn­vart flótta­fólki almennt.

„Af hverju ættum við Íslend­ingar ekki að geta tekið á móti fólki á flótta alveg eins og aðrar þjóðir í Evrópu þurfa að gera. Af hverju eiga alltaf ein­hverjir aðrir að fást við vand­ann? Þurfum við ekki að leggja líka eitt­hvað af mörkum til að fást við þann vanda sem heim­ur­inn glímir við? Það er talað um í sam­bandi við loft­lags­málin að það gæti komið til þess að það verði óbyggi­legt í sumum löndum og þá fer fólkið meira hingað norður. Hvað ætlum við þá að gera? Ætlum við bara að segja: „Nei, nei, við tökum ekki á móti ykkur, við höfum það svo gott hérna og við viljum ekki bæta við. Við eigum nóg með að sinna þeim sem eru hér.“

Af hverju ættum við Íslend­ingar ekki að geta tekið á móti fólki á flótta alveg eins og aðrar þjóðir í Evrópu þurfa að gera. Af hverju eiga alltaf ein­hverjir aðrir að fást við vand­ann?

Um leið og hlúa þarf betur að flótta­fólki á Íslandi segir biskup að brýn þörf sé að standa vörð um rétt­indi krist­inna úti í heimi. Víða um heim, meðal ann­ars í Sýrlandi og nálægum ríkjum, sé kristið fólk ofsótt vegna trúar sinnar.

„Það er óásætt­an­legt að vita af því að kristið fólk sé ofsótt fyrir trú sína árið 2019. Við vitum hvernig þetta var í upp­hafi, við getum lesið um það í post­ula­sög­unni og kirkju­sög­unni, að kristnir menn voru ofsóttir og enn er fólk ofsótt fyrir trú sína, til dæmis í Sýrlandi og fleiri löndum. Það er líka eitt­hvað sem við verðum að vita af og leggja okkur fram um að breyta því. Það ger­ist bara með sam­tali og engu öðru.“

Ætla aldrei að hætta að predika

Talið berst að stöðu Þjóð­kirkj­unnar sem óhætt er að segja að hafi þurft að berj­ast á mörgum víg­stöðvum und­an­farin ár. Kallað hefur verið eftir aðskiln­aði ríkis og kirkju, fjár­mál kirkj­unnar eru jafnan undir smá­sjá fjöl­miðla og almenn­ings og það er stað­reynd að hlut­fall þeirra Íslend­inga sem skráðir eru í Þjóð­kirkj­una hefur farið ört minnk­andi.

Þannig eru nú 60 pró­sent Íslend­inga skráðir í Þjóð­kirkj­una sam­an­borið við 90 pró­sent undir lok síð­ustu aldar. Margir hafa líka efast um erindi Þjóð­kirkj­unnar í nútíma ver­ald­legu sam­fé­lagi. Eitt slíkt dæmi er þegar Alþingi kall­aði eftir umsögn kirkj­unnar um frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra um fóst­ur­eyð­ingar en þá var gagn­rýnt að kirkjan hafi verið yfir­höfuð spurð álits. Agnes kann­ast við þessa umræðu.

„En málið er að kirkj­unni kemur allt við sem við kemur mann­líf­inu. Það er bara þannig. Hver á að segja til um hvað öðrum kemur við eða ekki. Kirkj­unni kemur bara allt við sem við kemur mann­líf­inu. Ég frekar en aðrar mann­eskjur ræð því ekki hvernig fólk hugsar eða ber ábyrgð á því sem hver og einn segir. Við ráðum ekki yfir skoð­unum ann­arra og hver er ég að ætla að fara að segja öðrum hvaða skoð­anir það á að hafa.

Kirkj­unni kemur bara allt við sem við kemur mann­líf­inu.

En ég ætla samt aldrei að hætta að predika, segja frá því góða erindi sem kirkjan flytur um kær­leika og guð sem elskar okkur og við eigum að elska og hvert annað. Í elsk­unni felst líka virð­ingin og að við séum trausts­ins verð. Þjóð­kirkjan á, að mínum dómi, fyrst og fremst að halda áfram að boða orðið, að vera glöð með að flytja fagn­að­ar­er­indið og minna sig á það á hverjum degi að því fylgir ábyrgð og það er krafa um að vanda sig og vera fag­leg.“

En það er vissu­lega búið að setja kirkj­unni skorður til að breiða út þetta fagn­að­ar­er­indi. Það eru til dæmis sveit­ar­fé­lög sem hafa til­kynnt henni að nær­veru hennar í skólum sé ekki óskað og skóla­börnum hefur verið meinað að fara í kirkju­heim­sóknir.

„Það er einmitt þessi hræðsla sem fylgir því. Ekki eru það múslim­arnir sem segja að börnin megi ekki fara í kirkj­una. Nei, það eru ekki þeir. Ekki er það þjóð­kirkju­fólkið, hvíta­sunnu­menn­irnir eða kaþ­ólikk­arnir. Ég veit ekki með hindúa, búddista og gyð­inga, ég held ekki. Það eru þeir sem skil­greina sig með enga trú sem hafa á móti því að börnin fari í kirkj­una.

Þetta bygg­ist á þeirra skoðun á trú vænt­an­lega og það ber að virða. En á grund­velli ein­hvers ótta eða hræðslu, eins og mér finnst þetta vera, þá á ekki að byggja á boðum og bönnum. Og það finnst mér að þeir sem ráða til dæmis hér í borg­inni hafa gert. Úti á landi þar sem allir þekkja alla er minni hræðsla af því að hér í Reykja­vík, nú talar lands­byggð­ar­konan, fáum við svo mikið frétt­irnar í gegnum fjöl­miðl­ana. Fjöl­miðl­arnir fjalla um allt annað en almenn­ingur talar um sín á milli um það hvað ger­ist í dag­legu lífi. Þar er oft og tíðum alið á hræðsl­unni, að mínum dómi.“

Þjóðkirkjan er framsækin stofnun

Íslenskt sam­fé­lag hefur tekið örum breyt­ingum á und­an­förnum árum og hefur kirkjan þurft að aðlag­ast þeim. Ekki ein­göngu hefur hlut­fall inn­flytj­enda auk­ist umtals­vert sam­hliða gríð­ar­legri fjölgun ferða­manna, heldur hefur einnig verið opnað á umræðu um ann­ars konar sam­fé­lags­mál. Rétt eins og með mál­efni flótta­manna segir Agnes að lyk­ill­inn að opnu og kær­leiks­ríku sam­fé­lagi sé sam­talið.

„Nú eru ekki kynin bara karl og kona, það eru fleiri kyn komin og maður er settur í það að þurfa að fara að kynna sér þetta til að skilja þetta. Af því að við lítum á allar mann­eskjur jafnt þurfum við að skilja þessa breyt­ingu sem er orðin.“

Að mati Agnesar hefur íslenska Þjóð­kirkjan, þrátt fyrir að hún hafi yfir sér það yfir­bragð að hún sé gam­al­dags og svifa­sein stofnun, verið mjög fram­sækin. Það sýni til dæmis afstaðan til hjóna­banda sam­kyn­kyn­hneigðra.

„Ég fór niður á Aust­ur­völl því það er ekki nóg að tala, það verður líka að fylgja því eftir sem maður er að segja,“ segir biskup.

„Íslenska kirkjan var fyrsta kirkjan sem við­ur­kenndi hjóna­band sam­kyn­hneigðra. Það gleym­ist mjög oft. Kirkjan ákvað, fyrir minn tíma reyndar, að rann­saka ritn­ing­arnar og kanna hvað bókin segir um þetta mál­efni og að því loknu var sam­þykkt að prestar væru vígslu­menn sam­kvæmt hjú­skap­ar­lög­unum. Þegar ég var ung­lingur vissi maður nán­ast ekki hvað þetta var. En þegar börnin mín voru ung­lingar var talað um þetta eins og að þetta væri svo sjálf­sagður hlutur, sem það er. Þetta bara var og er svona. Alla vega núna er það þannig að ég spyr ekki fólk þegar ég vígi það til prests hver kyn­hneigð þess er. Dettur það ekki í hug. Þetta eru bara mann­eskjur fyrir mér sem Guð elskar og þá ber mér líka að gera það.“

Við megum ekki hrynja

Agnes hefur setið á bisk­ups­stóli frá árinu 2012. Aðspurð hvort hún seg­ist vera farin að velta því fyrir sér hvenær hún stígur af stóli svarar hún: „Já, ég hef velt því fyrir mér. Þar til ég er búin að ljúka því sem ég ætla mér að gera. Ég er 64 ára dag og má sitja sex ár í við­bót og ég vona að mér tak­ist að klára þetta innan sex ára.“

Eitt af því sem Agnes vill sjá ganga í gegn er sam­ein­ing presta­kalla sem á að skila sér í öfl­ugra og fag­legra kirkju­starfi. Nefnir hún sem dæmi sam­ein­ingu presta­kalla á Aust­fjörðum úr fimm í eitt. „Þetta er mikið fram­fara­skref fyrir kirkj­una, að mínum dómi. Prest­arnir verða áfram fimm en munu allir vinna saman, fólk getur valið prest til athafna og það verður hægt að velja inn í hóp­inn presta með mis­mun­andi styrk­leika og þekk­ingu. Fag­mennskan verður þar af leið­andi meiri. Þetta verður að klár­ast áður en ég hætti, til dæmis.“

Þess á milli seg­ist Agnes munu halda áfram að breiða út fagn­að­ar­er­indið þar sem þrjú lyk­il­hug­tök eru höfð að leið­ar­ljósi. „Virðing, kær­leikur og traust. Þetta eru grunn­stoðir í mann­líf­inu. Þetta eru orðin sem vígslu­mað­ur­inn í kirkj­unni notar þegar fólk giftir sig, þetta eru þrjár und­ir­stöður sem eru sam­ofnar. Ef við hættum að bera virð­ingu þá erum við búin að minnka traustið og komum ekki fram á kær­leiks­ríkan hátt. Ef við komum ekki fram á kær­leiks­ríkan hátt sýnum við van­virð­ingu og þá er ekki hægt að treysta manni, og svo fram­vegis.

Það er líka annað í þessum sam­tíma að það er svo margt að ger­ast, það eru svo mörg til­boðin í gangi að við missum sjónar á því sem mestu skiptir. Á hverju ætlum við að byggja líf okkar? Þetta er bara eins og að byggja hús, við verðum að byggja á traustum grunni svo að húsið geti risið. Það er eins og með þetta hús hér, það er verið að sprengja við Land­spít­al­ann og húsið hrist­ist stundum. En húsið stendur. Þannig er lífið líka, það er ýmis­legt sem skekur líf okkar eins og til dæmis þegar verið er að breiða út ótt­ann. Það er verið að skekja líf okkar, hrista það til. En ef við stöndum á þessum fasta grunni hrynjum við ekki. Við megum ekki hrynja.“ 

Texti / Magnús Geir Eyj­ólfs­son
Myndir / Hallur Karlsson
Förðun / Helga Sæunn Þor­kels­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur Lancôme á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins