„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þetta er ólæknandi sjúkdómur og ég vil að mínir nánustu geti rætt þetta“

Gunnar Ármanns­son missti eig­in­konu sína úr krabba­meini fyrir fimm árum og hefur sjálfur í fjórtán ár glímt við ólækn­andi blóð­krabba­mein sem tók að áger­ast á síð­asta ári. Hann lætur engan bil­bug á sér finna og er á leið­inni til Suð­ur­skauts­lands­ins þar sem hann ætlar að hlaupa mara­þon.

„Þetta er ólæknandi sjúkdómur og ég vil að mínir nánustu geti rætt þetta“

„Þetta var nú tví­sýnt því ég fékk ekki vita það fyrr en í dag hvort ég kæm­ist eða ekki,“ segir Gunnar.

„Ég fór í skoðun á föstu­dag­inn fyrir tveimur vikum og fékk nán­ast rauða spjaldið varð­andi ferð­ina en lækn­ir­inn minn lum­aði á einum ás uppi í erminni. Það fól í sér að senda mig í blóð­skiljun en þá er blóðið tekið út og hreinsað af ákveðnu próteini. Það tókst svo vel að ég fékk fína mæl­ingu í kjöl­farið og þar með far­ar­leyfi frá lækn­inum.“

Gunnar fékk fyrst grein­ingu þann 23. des­em­ber árið 2005. „Í fram­hald­inu tók það lækn­ana um þrjár vikur að greina hvaða teg­und hvít­blæðis var um að ræða áður en ég var settur í lyfja­með­ferð. En þá fékk ég einnig að vita að þessi teg­und hvít­blæðis væri ekki bráð­drep­andi.“

Gunnar segir að það sem hafi fengið hann til þess að fara í prufu hafi verið margir litlir hlutir sem hann hefði átt að kveikja á. „Eftir á að hyggja þá er ég á því að ég hefði átt að vera búinn að átta mig á þessu mörgum mán­uðum áður sem segir manni hversu brýnt er að hlusta á lík­amann. Það voru fyrst og fremst óeðli­leg þreytu­ein­kenni sem ég hefði átt að kveikja á en það er svo sem ekki til neins að dvelja við það í dag.“

Af hverju ekki ég?

Gunnar var fyrst greindur með ákveðna teg­und hvít­blæðis en fyrir um tveimur árum var grein­ing­unni breytt yfir í sjúk­dóm­inn Waldenströms Macroglobulinemia. Gunnar segir að hér sé á ferð­inni teg­und blóð­krabba­meins sem er mjög skyld hvít­blæði.

Ég skoð­aði reyndar Inter­netið fyrst eftir að ég greind­ist en það var leið­in­leg lesn­ing sem fjall­aði helst um hvað maður ætti stutt eftir.

„Upp­runa­lega með­ferðin mið­aði við að ég væri með hvít­blæði og ég hefði að öllum lík­indum fengið sömu lyfin ef rétt grein­ing hefði legið strax fyrir. Þannig að það breytti í sjálfu sér engu. Ég sé að þeir sem eru með minn sjúk­dóm og fylgj­ast með fram­þróun lækna­vís­ind­anna skoða það sem er að ger­ast hjá hvít­blæð­is­sjúk­lingum.“

En Gunnar segir að hann hafi fyrst valið að skoða ekki hvað væri helst í gangi. „Ég skoð­aði reyndar Inter­netið fyrst eftir að ég greind­ist en það var leið­in­leg lesn­ing sem fjall­aði helst um hvað maður ætti stutt eftir. Þannig að ég ein­fald­lega hætti því. En eftir að þetta fór af stað aftur síð­asta sumar ákvað ég núna eftir ára­mótin að kynna mér þetta og hef lesið mér til um að það er margt í gangi og ýmsir mögu­leikar fram undan.“

Gunnar Ármanns­son glímir við ólækn­andi krabba­mein en lætur það ekki stöðva sig. Ef allt gengur að óskum verða Gunnar og vinur hans, Unnar Hjalta­son, fyrstir Íslend­inga til þess hlaupa mara­þon í öllum heims­álf­unum sjö. Mynd / Hallur Karlsson

Gunnar fór í gegnum sjö mán­aða með­ferð á sínum tíma og hans líðan á þessum tíma verður helst lýst með því að hún hafi verið skringi­leg. „Ástæðan er kannski sú að ég hafði aldrei verið alvar­lega veikur og það var ný upp­lifun að vera með sjúk­dóm sem gæti leitt til dauða. Fyrstu þrjár vik­urnar, áður en ég greind­ist rétt, hafði ég ekki hug­mynd um hvort að ég ætti aðeins fáar vikur eða meira eftir og það er staða sem setur koll­inn í nýjar áttir. En bless­un­ar­lega náði ég ákveð­inni núll­still­ingu. Fyrsta hugs­unin var: Af hverju ég? En þegar ég fór að velta þessu betur fyrir mér hugs­aði ég með mér: Af hverju ekki ég?

Maður er ekk­ert stikk­frí eða fær ein­hverja ábyrgð við fæð­ingu um að það verði allt í lagi. Þetta er bara hluti af líf­inu.“

Erfiðara að vera aðstandandi

Gunnar var á þessum tíma kvæntur Margréti Gunn­ars­dóttur og áttu þau hvort sitt barnið frá fyrri sam­böndum. Dóttir Gunnars er fædd 1995 en sonur Mar­grétar árið 1982. Gunnar segir að vissu­lega hafi verið erfitt fyrir svo ungar sálir að standa frammi fyrir alvar­legum veik­indum innan fjöl­skyld­unnar.

„Á hinn bóg­inn fórum við þá leið­ina að við gerðum heldur minna úr þessu en meira og þau gerðu sér því ekki alveg grein fyrir því hvað þetta var alvar­legt. Svo líður tím­inn og maður heldur áfram að lifa og hugs­unin breyt­ist með og maður verður ekki eins upp­tek­inn af þessu.“

En lífið hélt áfram að færa fjöl­skyld­unni áföll og Margrét veikt­ist af leg­hálskrabba­meini árið 2013. „Við fengum þær fréttir fyrst að það væru um helm­ings­líkur að hún lifði þetta af. Á þeim tíma hugs­uðum við með okkur að fyrst ég hafði kom­ist í gegnum mitt þá skyldi hún gera slíkt hið sama. Við eig­in­lega gerðum ráð fyrir því að það yrði þannig. Hún greind­ist 21. júní árið 2013 og við fengum að vita í nóv­em­ber sama ár að þetta hafi gengið vel og hún að öllum lík­indum sjúk­dóms­frí. Síðan kom des­em­ber og hún í sjálfu sér ekki alveg sátt við líð­an­ina og eins inn í jan­úar, en þá vökn­uðu með okkur grun­semdir. Í febr­úar fengum við svo að vita að meinið væri farið af stað aftur og nú ólækn­andi. Það var auð­vitað gríð­ar­legt áfall.

Þegar ég var veikur á sínum tíma var ég eig­in­lega búinn að sætta mig við að ég væri mögu­lega að fara.

Á þessum tíma og þar til viku, tíu dögum áður en hún dó héldum við þeim upp­lýs­ingum hjá okkur. Það var hennar val að fara þá leið­ina. Hún vildi ekki ræða þessa stöðu svo ég hafði nokkuð langan tíma til þess að íhuga í hvað óhjá­kvæmi­lega stefndi en án þess að ræða það við sálu. Ég sótti mikið í mína reynslu og velti fyrir mér hvað Margrét hafði þá verið að hugsa. Þegar ég var veikur á sínum tíma var ég eig­in­lega búinn að sætta mig við að ég væri mögu­lega að fara, fannst það ekk­ert skelfi­leg til­hugsun, þó svo ég hefði gjarnan viljað vera í annarri stöðu. Hugsaði sem svo að á end­anum myndi ég sofna og þar með yrði þetta ekki mitt vanda­mál lengur.

En að sama skapi hugs­aði ég mikið um hvað yrði þá um mína nán­ustu. Það fannst mér erf­ið­ari til­hugsun en að ég væri mögu­lega að fara sjálfur. En þegar hún var komin í þessa stöðu var ég allt í einu orð­inn aðstand­and­inn. Þessi sem þyrfti að takast á við afleið­ing­arnar og það fannst mér erf­ið­ari staða en í mínum eigin veik­indum. Af því að sá sem fer lifir ekki við neitt, heldur ein­fald­lega hverfur, enda er ég þeirrar trúar að ljósin slökkni og að það sé engin vit­und eftir það.“

Opinskátt og feimnislaust

Gunnar segir að hann hefði sjálfur valið þá leið að deila stöð­unni með öðrum ef valið hefði verið hans. „Alveg klár­lega. Þegar minn sjúk­dómur fór af stað þá völdum við að tala mikið um þetta en svo kom í ljós eftir ein­hverjar vikur að ég væri ekki að fara alveg á næst­unni, gæti átt eftir mán­uði eða ár, eins og svo kom í ljós.

Með­vit­aður um þá óvissu hvernig þetta mundi þró­ast valdi ég að vera ekki alltaf að tala um þetta. En í hennar til­viki var engin óvissa. Það lá bara fyrir að hún væri að kveðja smátt og smátt. Og það sem reynd­ist svo óhemju erfitt var að sjá mann­eskj­una deyja smátt og smátt, ef svo má segja. Geta hennar minnk­aði og heim­ur­inn dróst saman.

Ég ímynd­aði mér að ég hefði viljað bregð­ast öðru­vísi við, að ég hefði viljað tala um þetta við mína nán­ustu og þá ekki síður að hún hefði getað rætt þetta við sína nán­ustu. En það er svo erfitt að ætla að fara að segja mann­eskju sem er að kveðja þessa jarð­vist hvernig hún eigi að gera það. Hún verður að ráða því sjálf.

Ég vil að þetta sé rætt feimn­is­laust en ekk­ert endi­lega alveg út í eitt.

En þessi reynsla sann­færði mig um að það sé skyn­sam­legt að ræða þetta. Ef ekki við maka sem mögu­lega vill ekki ræða þetta, þá vini eða aðra sem geta veitt stuðn­ing og ráð. Ég gerði það ekki og þess vegna hef ég ákveðið núna, þegar minn sjúk­dómur er far­inn af stað aftur, að ræða það opin­skátt og feimn­is­laust. Þetta er ólækn­andi sjúk­dómur og ég vil að mínir nán­ustu geti rætt þetta. Ég vil ekki að það sé verið að fara í kringum þetta eða vand­ræð­ast með þetta. Ég vil að þetta sé rætt feimn­is­laust en ekk­ert endi­lega alveg út í eitt.“

Valdi að hafa ástina í lífi sínu

Gunnar fann sína leið til þess að takast á við veik­indin og síðar sorg­ina en hann hefur stundað hlaup af miklu kappi allt frá árinu 2009. „Þetta hent­aði mér vel og mér fannst þetta gaman. Ég var reyndar með lak­ara ónæm­is­kerfi en gengur og ger­ist vegna sjúk­dóms­ins sem ég ber og þurfti því að hlaupa mikið á bretti í lík­ams­rækt­ar­stöð yfir vetr­ar­mán­uð­ina. Þá hefur maður tíma og næði til að hugsa og ég gerði til að mynda mikið af því þegar konan mín veikt­ist.

Í þessum aðdrag­anda öllum hugs­aði ég meðal ann­ars mikið um hvað ég vildi gera í einka­líf­inu. Hugsaði hvort að ég vildi vera einn eða kannski ger­ast atvinnu­hlaup­ari og ein­beita mér að því. En eftir því sem ég hugs­aði þetta meira fann ég að það var ekki það sem ég vildi. Ég hugs­aði um hvað við hjónin höfðum átt gott sam­band og að hún hefði verið minn besti félagi og vinur og það fannst mér eft­ir­sókn­ar­vert. Þess vegna fann ég út að ég vildi finna mér annan lífs­föru­naut og þá von­andi mann­eskju sem mér gæti liðið jafn­vel með og henni.

Nokkru eftir að konan mín féll frá var ég að ræða þetta við góðan vin minn, Unnar Stein Hjalta­son, sem spurði mig hreint út hvort ég væri með konu í huga. Ég neit­aði því en ját­aði að það væri þó kona sem ég gæti hugsað mér að bjóða út og hann hvatti mig til þess að gera það sem ég og gerði. Ég bauð þess­ari konu út að borða, hún heitir Þóra Helga­dóttir og nú erum við gift. Ef vinur minn hefði ekki ýtt á mig hefði þetta aldrei orðið, svo þetta er heldur betur gott dæmi um hvað það er dýr­mætt að tala við þá sem maður treystir. Ég sé svo sann­ar­lega ekki eftir því.“

Á vit ævintýranna

Eins og komið var inn á í upp­hafi er Gunnar á leið til Suð­ur­skauts­lands­ins í þeim til­gangi að hlaupa mara­þon. Með í för og á hlaupum ásamt Gunnari er Þóra eig­in­kona hans og vin­ur­inn Unnar Steinn ásamt eig­in­konu sinni, Unni Þor­láks­dóttur. Ferðin var pöntuð árið 2016 og hann seg­ist vissu­lega hafa hugsað á þeim tíma að margt gæti gerst sem kæmi í veg fyrir þessa ferð.

„Það þyrfti þó ekk­ert endi­lega að vera tengt þessum sjúk­dómi svo það yrði þá bara að koma í ljós. En svo gerð­ist það að blóð­krabb­inn fór aftur af stað síð­asta sumar og ég von­að­ist eftir að þurfa ekki að fara í með­ferð fyrr en í vor en átti svo að byrja í síð­ustu viku. Ég er því þakk­látur lækn­inum fyrir þetta útspil sem dugði til þess að ég er að fara í þessa ferð.“

„Það sem skiptir máli er að vera ekk­ert að fresta hlut­unum. Þú veist aldrei hvenær eitt­hvað stoppar þig, það þarf ekki að vera dauði heldur getur verið svo margt, en þá er kannski of seint að láta draumana ræt­ast.“ Mynd / Hallur Karlsson

Gunnar segir að ferðin eigi sér langan aðdrag­anda. „Árið 2015 hlupum við félag­arnir mara­þon í Tókýó og eftir það var ég að hugsa að þetta væri önnur heims­álfan sem ég hefði hlaupið mara­þon í. Var svo skráður í mara­þon í Banda­ríkj­unum um haustið og þar með fædd­ist þessi hug­mynd að hlaupa í öllum heims­álf­unum. Ég spurði því þennan góða vin minn hvort hann væri ekki til í þetta og það tók hann, held ég, tvær og hálfa sek­úndu að sam­þykkja þetta. Við tókum Afríku 2016, Eyjaálfu 2017, Suður-Ameríku 2018 og svo er það núna Suð­ur­skauts­landið 2019. Ef þetta tekst verðum við Unnar fyrstir Íslend­inga til þess að klára álf­urnar sjö og eig­in­kon­urnar verða þá að klára sínar sjöttu álfur.“

Gunnar segir að þarna suður frá sé farið að halla sumri og að hlaupið sé haldið á eyja­klasa sem teygir sig í átt­ina að Suður-Ameríku. „Þarna eru stór­þjóðir með sínar rann­sókn­ar­stöðvar og hlaupið er frá þeirri rúss­nesku og að öðrum slíkum á svæð­inu og aftur til baka. Það er hlaupið á grófum mal­ar­vegum og allra veðra von en ef við erum heppin fáum við hefð­bundið sunn­lenskt vetr­ar­veður með hita­stigi frá núll og niður í fjórar gráður.“

Aðspurður um hvort að hann væri ekk­ert hræddur, segir Gunnar ein­fald­lega: „Alls ekki. Við hvað ætti maður að vera hræddur? Ég lifi í núinu sem er sama jafn­væg­is­listin og allir þurfa að stunda. Það sem skiptir máli er að vera ekk­ert að fresta hlut­unum. Þú veist aldrei hvenær eitt­hvað stoppar þig, það þarf ekki að vera dauði heldur getur verið svo margt, en þá er kannski of seint að láta draumana ræt­ast.“

Mynd / Hallur Karlsson

Sjá: „Eina svarið sem ég fékk ekki var: Hvar er mamma núna?“

Sjá líka: „Það er eng­inn sem grípur mann“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins