„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Málum sem rata inn til rannsakenda fjölgar hratt

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri birti frétt á vef sínum 26. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem emb­ættið fór yfir aðgerðir sínar vegna pen­inga­þvættis á und­an­förnum árum. Þar kom fram að 37 pen­inga­þvætt­is­mál hefðu verið skráð hjá emb­ætt­inu á árunum 2016 til 2018. Meiri­hluti þeirra, eða 20 tals­ins, voru skráð í fyrra.

Málum sem rata inn til rannsakenda fjölgar hratt

Á árinu 2018 lauk rann­sókn í alls sex málum sem áttu rætur að rekja til grein­inga pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu. Í frétt­inni sagði að gera megi ráð fyrir að rík­is­sjóður hafi orðið af 178 millj­ónum króna í skatt­tekjur ein­ungis af þessum sex málum. „Nú eru á annan tug mála til með­ferðar og í ljósi áherslu stjórn­valda á þennan mála­flokk verður á næstu miss­erum lagður auk­inn kraftur í rann­sóknir þess­ara mála hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra.“

RÚV greindi svo frá því á mið­viku­dags­kvöld að til­kynn­ingar vegna grun­sam­legra pen­inga­færslna til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu hér­aðs­sak­sókn­ara, sem nú heitir skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu)  hafi marg­fald­ast á síð­ustu árum. Árið 2015 hafi þær verið 158 en í fyrra hafi fjöldi þeirra verið tæp­lega átt­falt fleiri, eða um 1.200 tals­ins. Þar var haft eftir Ólafi Þór Hauks­syni hér­aðs­sak­sókn­ara að helsta skýr­ing þessa væri sú að höftin hafi verið afnumin árið 2017 og þá hafi fjár­mála­færslur auk­ist í fram­hald­inu.

„Á sama tíma er verið að hvetja fjár­mála­stofn­anir og til­kynn­ing­ar­skylda aðila til þess að senda og gera við­vart þegar þeir sjá eitt­hvað grun­sam­legt. Síðan hefur sú ein­ing sem vinnur við þetta hjá okkur verið stækkuð sem gerir okkur fær um að herða aðeins á þessu.“

Fjallað var ítar­lega um hvernig Ísland er í kappi við tím­ann að sýna alþjóð­legum sam­tökum að landið sinni almenni­legu eft­ir­liti gagn­vart pen­inga­þvætti, eftir að hafa fengið fall­ein­kunn í úttekt í fyrra. Hægt að lesa í 10. tölu­blaði Mannlífs og á vef Kjarnans.

Texti / Þórður Snær Júl­í­us­son
Mynd / Hring­braut

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tekjur

Tekjuhæsta tónlistarfólkið árið 2019 – Taylor Swift á toppnum með 22,5 milljarða
Heimur

Tekju­hæsta tón­list­ar­fólkið árið 2019 – Taylor Swift á toppnum með 22,5 millj­arða

Söng­konan Taylor Swift trónir á toppi nýs lista við­skipta­tíma­rits­ins Forbes yfir tekju­hæsta tón­list­ar­fólkið árið 2019. Swift er sögð hafa þénað 185 millj­ónir doll­ara sem gerir um 22,5 millj­arða króna miðað við núver­andi gengi. Taylor Swift er á toppi lista Forbes yfir tekju­hæsta tón­list­ar­fólkið árið 2019. Mynd / EPA Í öðru sæti á list­anum er rapp­ar­inn Kanye West með 150 millj­ónir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins