„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég veit að bróðir minn hefði gert það sama fyrir mig“

„Þetta eru langir dagar og maður er óneit­an­lega örþreyttur. Ég er búinn að vera hérna í tvær vikur en líður stundum eins og það séu tveir mán­uðir,“ segir Davíð Karl Wiium, bróðir Jóns Þrastar Jóns­sonar sem hvarf spor­laust í Dublin að morgni dags þann 9. febr­úar síð­ast­lið­inn.

„Ég veit að bróðir minn hefði gert það sama fyrir mig“
|

Þegar blaða­maður nær í Davíð Karl að kvöldi þriðju­dags­ins 26. febr­úar er hann að und­ir­búa að skreppa heim í nokkra daga en það verður þó vænt­an­lega ekki lengi. „Ég þarf að fara aðeins heim og hitta börnin mín og ganga frá málum varð­andi vinn­una þar sem maður er búinn að ýta öllu til hliðar. En þetta er staðan, það er ekk­ert sem skiptir máli í stóra sam­heng­inu, maður gerir bara það sem þarf að gera.“

Tók tíma að átta sig

Davíð Karl segir fjöl­skyldan sé stór og sam­hent og að slíkt skipti miklu máli á stundum sem þessum. „Við höfum verið mörg hérna saman að vinna að því að finna Jón og ég get ekki ímyndað mér hvernig það væri ef við værum ekki svona mörg og sam­heldin. Það væri alveg hræði­legt því þetta er nú nógu erfitt eins og er.“

Aðspurður um hvernig aðkoma hans að hvarfi bróður síns hafi verið frá upp­hafi segir Davíð Karl að hann hafi fyrst heyrt í Jönu (Krist­jönu Guð­jóns­dóttur, kær­ustu Jóns) um hádegi sunnu­dag­inn 10. febr­úar.

„Ég heyrði frá Jönu þegar hún hringdi í mig og lét mig vita að Jón hefði ekki skilað sér upp á hótel í um sól­ar­hring. Þá var hún búin að hafa sam­band við lög­reglu og láta vita um stöð­una en fyrst þegar maður fær svona fréttir nær maður í raun ekki almenni­lega utan um þær. Ég var einn heima með börn­unum mínum þegar þetta gerð­ist og í raun var ég fyrst alveg viss um að hann mundi bara skila sér. En svo fór að líða á dag­inn og kvöldið og maður fór að ókyrr­ast eftir því sem á leið og ég neita því ekki að þá fór ákveðin hræðsla að grípa um sig. Eftir svefn­litla nótt var ég svo far­inn að átta mig á því að þetta væri alvar­legt.“

Ég var einn heima með börn­unum mínum þegar þetta gerð­ist og í raun var ég fyrst alveg viss um að hann mundi bara skila sér.

Davíð Karl segir að í fram­hald­inu hafi fjöl­skyldan farið að huga að því að kom­ast til Dublin og fyrsta flug sem þau hafi náð hafi verið næsta þriðju­dags­morgun. „Þá fórum við, ég og Katrín konan mín, ásamt Daníel bróður mínum og unn­ustu hans en Þórunn systir okkar kom svo dag­inn eftir beint frá Spáni. Mamma, Kristinn bróðir og Anna systir okkar og fleira gott fólk var svo að tín­ast út eftir því sem leið á vik­una.“

Heldur að þetta tengist ekki tapinu

Davíð Karl segir að lög­reglan hafi beðið eftir þeim ásamt Jönu á hót­el­inu til þess að setja þau inn í stöð­una og fara yfir næstu skref. „Á þessum tíma var aðal­lega verið að safna saman upp­tökum úr eft­ir­lits­mynda­vélum og reyna að átta sig á ferðum Jóns. Næsti dagur fór líka mikið til í að hitta lög­reglu­menn­ina og reyna að veita þeim allar þær upp­lýs­ingar sem þeir ósk­uðu eftir. Þeir vildu vita sem mest um Jón, hug­ar­á­stand hans og per­sónu­leika og það fór tals­verður tími í þetta. En þegar fór að líða á mið­viku­dag­inn og okkur fannst lítið þok­ast í leit­inni fórum við fjöl­skyldan að leggja grunn að ein­hverjum rót­tækum aðgerðum. Í fram­hald­inu settum við upp leit­ar­kort og byrj­uðum sjálf að leita.“

Jón tók þátt í póker­móti en fór aldrei út af hót­el­inu. Hann hafði ekki áður komið til Dublin, þekkti engan hér svo vitað sé og hafði engin tengsl við nokkurn mann í borg­inni

Eitt af því sem horft hefur verið til við leit­ina að Jóni er að átta sig á öllum hans ferðum í aðdrag­anda þess að hann hvarf og þar á meðal kvöldið áður, þegar Jana unnusta hans var enn ekki komin til borg­ar­innar. Davíð Karl segir að bróðir hans hafi aldrei farið út af hót­el­inu áður en hann hvarf. „Líklega lagði hann sig um dag­inn, og um kvöldið fór hann niður á pókerstað­inn í kjall­ara hót­els­ins og var þar að spila eitt­hvað fram eftir nóttu. Jón tók þátt í póker­móti en fór aldrei út af hót­el­inu. Hann hafði ekki áður komið til Dublin, þekkti engan hér svo vitað sé og hafði engin tengsl við nokkurn mann í borg­inni.“

Nú hefur komið fram í fjöl­miðlum að Jón hafi tapað tals­verðum fjár­munum þarna um nótt­ina en Davíð Karl segir að það sé ekk­ert sem hefði slegið Jón út af lag­inu. „Jón býr heima á Íslandi og hefur atvinnu af því að keyra leigu­bíl sem gengur vel en hans áhuga­mál er að spila póker. Jón er þannig gerður að hann lætur fátt, ef nokkuð, slá sig út af lag­inu, hann er jákvæður og lausn­a­mið­aður.

Jón veit fyrir víst að þegar eitt­hvað bjátar á eða kemur upp á þá stöndum við saman.

Vissu­lega gerð­ist það að hann tap­aði ein­hverjum pen­ingum en það var ekki slík upp­hæð að það hefði komið honum alvar­lega úr jafn­vægi. Við fjöl­skyldan erum líka náin og sam­heldin og Jón veit fyrir víst að þegar eitt­hvað bjátar á eða kemur upp á þá stöndum við saman. Ef þetta er eitt­hvað sem hefði komið illa við hann þá veit ég að hann hefði haft sam­band og því hefði verið bjargað. Ég held því að tapið þarna um nótt­ina teng­ist ekki þessu máli.“

Hann sé einfaldlega ekki þannig

Þegar Jón Þröstur fór af hót­el­inu að morgni laug­ar­dags­ins var hann með á sér bæði pen­inga og kort en skildi eftir síma og vega­bréf.

„Við vitum að sím­inn var ekki í lagi því Jón fékk að hringja í Jönu úr síma starfs­manns á hót­el­inu þarna um nótt­ina. Það er heldur ekk­ert óeðli­legt við að skilja vega­bréfið eftir og eins skildi hann veskið eftir en var að öllum lík­indum með ein­hvern pen­ing á sér ásamt debet­korti en hann er hins vegar ekki skráður fyrir kredit­korti. Pen­ing­arnir sem hann var mögu­lega með á sér, sem er ekki stað­fest, voru í mesta lagi þús­und evrur en að öllum lík­indum mun minna. Þannig að þetta var ekk­ert til að fram­fleyta sér á í lengri tíma hér í Dublin því þetta er ekki ódýr borg.“

Aðspurður um hvað hafi farið á milli Jóns Þrastar og Jönu unn­ustu hans um morg­un­inn þegar hún kom á hót­elið seg­ist Davíð Karl ekki vita til þess að það hafi verið annað en allt í góðu. „Jana vakti hann þegar hún kom á hót­elið og það voru ein­hver orða­skipti á milli þeirra en ég veit ekki til þess að það hafi verið nein læti. Það var að minnsta kosti ekk­ert sem hefði slegið Jón út af lag­inu. En síðan fór Jana í sturtu og svo niður í kaffi og þegar hún kom til baka var Jón horf­inn.

Fjöl­skylda Jóns Þrastar Jóns­sonar sem hvarf spor­laust í Dublin að morgni 9. febr­úar síð­ast­lið­inn unnir sér ekki hvíldar í leit­inni. Mynd / Hallur Karlsson

Hvort hann hefur ætlað að skreppa í göngutúr eða ná sér morg­un­mat eða hvað, það ein­fald­lega vitum við ekki og það er erfitt að ná utan um þetta. Þau komu bæði hingað til þess að spila póker og það var allt uppi á borð­inu þannig að ég get ekki ímyndað mér að það hafi orðið til þess að hann fór og hvað þá að hann gerði eitt­hvað heimsku­legt. Hann er ein­fald­lega ekki þannig.“

Davíð Karl leggur áherslu á að bróðir hans sé ábyrgur ein­stak­lingur sem sinni sínu fólki vel og hafi alltaf gert. „Hann er tveggja barna faðir og Jana unnusta hans á tvö börn sem hann sinnir eins og þau væru hans eigin. Þetta er ábyrgur maður sem sinnir sinni vinnu og þegar hann er að keyra fram eftir lætur hann alltaf vita ef honum seinkar. Við Jón erum í sam­bandi dag­lega vegna vinnu og traust­ari maður er vand­fund­inn.“

„Mitt markmið að finna bróður minn“

Aðspurður hvort fjöl­skylda Jóns Þrastar hafi í gegnum tíð­ina haft áhyggjur af þeim mögu­leika að bróðir hans glími við spilafíkn seg­ist Davíð Karl ekki vera sér­fræð­ingur í þeim efnum. „Sjálfur spila ég ekki póker og þekki ekki mikið til þessa heims. En ég veit fyrir víst að Jón spilar ekki önnur fjár­hættu­spil og að hann hefur alla tíð verið opin­skár um þetta. Hann segir fólki alveg frá því að hann spili og þetta hefur alltaf verið fyrst og fremst áhuga­mál. Kannski lítur hann ein­fald­lega á þetta sem íþrótt eins og margir gera.

Þetta með spilafíkn­ina er því mats­at­riði og eflaust færðu mis­mun­andi svör eftir því hvern þú spyrð.

En það er erfitt fyrir mig að vera að dæma um þetta. Ég veit bara að hann var ekki í ein­hverjum pen­inga­vand­ræðum út af þessu. Þetta með spilafíkn­ina er því mats­at­riði og eflaust færðu mis­mun­andi svör eftir því hvern þú spyrð. Það eina sem ég get sagt fyrir víst er að skulda­staðan var ekki til vand­ræða og and­legt atgervi Jóns eins og best verður á kosið.“

Aðspurður hvort hann viti til þess að Jóni hafi verið ein­hvern tím­ann verið hótað vegna spila­skulda seg­ist Davíð Karl ekki vita til þess. Eins bendir hann á að það sem Jón kann að hafa tapað kvöldið áður hafi ekki verið annað en hluti af eðli­legum sveiflum hjá pókerspil­ara. „Ég vísa líka til þess að þegar Jana kom á hót­elið var hann sof­andi og fólk sem er í miklu upp­námi liggur nú tæp­ast og sefur í friði og ró. Fyrir mér er það afar ólík­legur aðdrag­andi að því að hlaupa svo út og vinna sér mögu­lega mein eða vera með ein­hverja ógn yfir sér og auk þess er mað­ur­inn ekki fund­inn enn. Ég er ekki það barna­legur að gera mér ekki grein fyrir því að það getur ýmis­legt hafa gerst. En ég er hér með mitt mark­mið sem er fyrst og fremst að finna bróður minn.“

Ætla að halda áfram sjálf

Þegar talið berst að störfum lög­regl­unnar í Dublin og hvernig þar hefur verið haldið á mál­inu segir Davíð Karl að heilt yfir sé fjöl­skyldan sátt við hennar störf. „Þeir eru í góðu sam­bandi við okkur, alltaf til taks þegar við leitum til þeirra og hafa reglu­lega sam­band til þess að greina frá fram­vindu máls­ins. Það eina sem við höfum haft út á að setja er að þar sem gagna­öflun er mjög tíma­frek hafa þeir ekki viljað senda út sér­þjálf­aða björg­un­ar­sveit til þess að leita að Jóni.

Eitthvað sem yrði gert strax heima á Íslandi. Í stað­inn er verið að afla gagna skref fyrir skref og vinna úr þeim og það tekur mik­inn tíma. Okkur finnst því óneit­an­lega frústrer­andi að ekki skuli vera farið af stað með dróna og hunda og sér­þjálf­aða leit­ar­menn eins og við erum vön heima en þar sem það er ekki boði höfum við tekið það á okkur. Mér finnst það djöf­ul­legt, ef ég á að segja eins og er, en ég veit samt ekki hversu mikið eða hvort ég get gagn­rýnt lög­regl­una því ég er líka að mörgu leyti ánægður með störf hennar.“

Okkur finnst því óneit­an­lega frústrer­andi að ekki skuli vera farið af stað með dróna og hunda og sér­þjálf­aða leit­ar­menn eins og við erum vön heima en þar sem það er ekki boði höfum við tekið það á okkur.

Aðspurður um næstu skref segir Davíð Karl að lög­reglan sé núna að vinna úr þeim gögnum sem hefur verið aflað að und­an­förnu. „Við upp­haf leit­ar­innar hafði sam­band við okkur reyndur björg­un­ar­sveit­ar­maður sem hjálp­aði til við að setja upp kort út frá því hvar Jón sást, per­sónu­leika­grein­ingu og fleiri atriði. Þetta er gríð­ar­lega stórt kort og út frá því byrj­uðum við að leita skipu­lega og hengja upp um 5000 vegg­spjöld um alla borg.

Auk þess hafði sam­band við okkur írsk fjöl­skylda og bauð fram aðstoð og þau hafa reynst okkur ákaf­lega vel. Eins erum við mjög þakk­lát öllum þeim fjölda sjálf­boða­liða sem leit­uðu með okkur síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, en það voru um 85 Írar auk Íslend­ing­anna. Og staðan núna er að það er verið að vinna úr þeim gögnum og ábend­ingum sem þessi leit og sjón­varps­þátt­ur­inn sem við fórum í síð­ast­lið­inn föstu­dag skil­uðu til lög­regl­unnar. Við ætlum núna að gefa þessu mið­viku­dag­inn og aðeins að kasta mæð­inni og sjá hvað lög­reglan hefur að segja í fram­hald­inu.

En ef þessar ábend­ingar skila engu ætlum við að skipu­leggja aðra leit og halda áfram að leita sjálf. Það er mik­ill hugur í sjálf­boða­liðum hér að hjálpa okkur áfram og ef kemur til þess að við þurfum að fara aftur af stað og leita þá á ég jafn­vel von á enn fleira fólki.“

Verður að hreinsa hausinn

Davíð Karl segir að við leit­ina að Jóni hafi þau lagt mikla áherslu á að vera eins sýni­leg og þau mögu­lega gætu. „Við höfum talað við ótrú­legan fjölda fólks, erum klædd í boli með myndum af Jóni, búin að hengja upp öll þessi vegg­spjöld og koma mikið fram í fjöl­miðlum.

„Það er vart sá maður hér í Dublin sem veit ekki hver við erum en okkur hefur verið gríð­ar­lega vel tekið af heima­mönnum. Við erum mjög þakk­lát fyrir alla þá hjálp sem við höfum fengið og þann hlý­hug sem okkur hefur verið sýndur. Þetta gefur okkur mik­inn kraft og mikla von. Þetta fólk er komið til okkar klukkan átta á morgn­ana og rífur okkur af stað og hjálpar okkur í gegnum hvern dag­inn á fætur öðrum.

Það er vart sá maður hér í Dublin sem veit ekki hver við erum en okkur hefur verið gríð­ar­lega vel tekið af heima­mönnum.

Það hefur í raun verið lífs­breyt­andi reynsla að kynn­ast öllu þessu góða fólki, vel­vild þess, dugn­aði og kær­leika. Við eigum því mikið að þakka í öllu þessu ferli. Þetta ynd­is­lega fólk er með sama mark­mið og við fjöl­skyldan og það er að finna Jón og klára þetta mál.“

Aðspurður um hvort vonin lifi enn í honum og hans fólki segir Davíð Karl að vissu­lega geri hún það. „Maður er á fullu frá morgni til kvölds alla daga og gefur sér vart tíma til þess að anda, í þeim gír getur maður aðeins gleymt stöð­unni eins og hún er í raun og veru. En ef maður staldrar við þá hellist yfir mann sorgin og hræðslan um hvað hefur orðið um Jón. En þar sem maður veit ekki hver staðan er þá verður maður bara að hreinsa haus­inn og halda áfram þangað til hann er fund­inn. Þegar það ger­ist þá tekst maður á við það hvernig sem það fer. Ég veit að bróðir minn hefði gert það sama fyrir mig.“r

Sjá einnig nýtt við­tal við barns­móður Jóns Þrastar: „Vináttan er okkur mik­ils virði“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins