„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Það er aldrei neinn slakur á Íslandi“

Hlynur Bær­ings­son og Jón Arnór Stef­áns­son hafa verið burða­rásar íslenska lands­liðs­ins í körfu­bolta und­an­farna tvo ára­tugi. Ekki bara leiddu þeir liðið á sitt fyrsta stór­mót heldur hafa þeir einnig rutt braut­ina fyrir unga og efni­lega leik­menn í atvinnu­mennsku erlendis. Þeir kvöddu íslenska lands­liðið í gær en segj­ast báðir eiga nóg eftir til að halda áfram að spila á Íslandi.

Þótt þeir Hlynur og Jón Arnór hafi verið sam­stiga í lands­lið­inu allt frá því þeir spil­uðu sinn fyrsta lands­leik árið 2000, þá er fer­ill þeirra og bak­grunnur tölu­vert frá­brugð­inn. Jón Arnór fór ungur að árum í fram­halds­skóla, varð annar Íslend­ing­ur­inn til að kom­ast á mála í NBA-deild­inni og eyddi svo lung­anum af ferl­inum í Suður-Evrópu með nokkrum af bestu liðum álf­unnar.

Ef undan er skilið eitt skraut­legt ár í Hollandi fór Hlynur hins vegar ekki í atvinnu­mennsk­una fyrr en hann var langt geng­inn á þrí­tugs­ald­ur­inn eftir að hafa lagt undir sig Vest­ur­landið, fyrst í Borg­ar­nesi og síðar í Stykk­is­hólmi. Hann lék í sex ár við góðan orðstír hjá Drekunum í Sund­svall í sænsku úrvals­deild­inni. Þeir hafa hins vegar verið sam­stiga í lands­lið­inu og því við­eig­andi að þeir hafi kvatt það í sam­ein­ingu í gær­kvöldi. Þeir félagar voru hinir kát­ustu þegar Mannlíf sett­ist niður með þeim á milli æfinga þótt til­hugs­unin um að fara að spila sinn síð­asta lands­leik veki blendnar til­finn­ingar.

„Fyrir mig per­sónu­lega er þetta pínu frelsandi, að það sé búið að taka þessa ákvörðun og maður getur horft til baka bæði stoltur og þakk­látur. Þetta hefur verið ofboðs­lega skemmti­legt en fyrir mitt leyti var kom­inn tími á þetta,“ segir Jón Arnór.

„Ég er leiður líka,“ skýtur Hlynur inn í. „Ég segi það sama og Jón með þetta allt saman. Það er gott að vera búinn að taka þessa ákvörðun. Ég hef verið á leið­inni að hætta í nokkur ár. Fer­ill­inn er stuttur og þetta er stór hluti af því sem þú ert og eitt­hvað sem þú tekur með þér út lífs­leið­ina. Ég er ekki dapur en þetta eru blendnar til­finn­ingar, skulum við segja.“

Jón Arnór tekur undir þetta. „Það kannski kemur seinna að maður eigi eftir að sakna þess gríð­ar­lega að vera í þessu. Eins og hann sagði, við höfum báðir verið að reyna að hætta í langan tíma sem kannski segir okkur að það er ofboðs­lega gef­andi að taka þátt í þessu. Mikið stolt að spila fyrir Ísland og allt þetta.“

Hápunkturinn í Berlín

Mikill upp­gangur hefur verið í íslenskum körfu­bolta und­an­farin ár og árið 2015 komst íslenska lands­liðið í fyrsta skipti á stór­mót þegar það vann sér þátt­töku­rétt í úrslita­keppni EM sem fram fór í Berlín. Þar sýndi íslenska liðið frá­bæra frammi­stöðu og þótt eng­inn sigur hafi unn­ist stóð það í nokkrum af bestu körfu­bolta­þjóðum heims. Leik­ur­inn var end­ur­tek­inn tveimur árum síðar og þá var leikið í Finn­landi. Þar var frammi­staðan langt undir vænt­ingum og töp­uð­ust flestir leik­irnir með miklum mun.

Því miður unnum við ekki leik en ótrú­legt en satt þá hefðum við í góðum heimi getað unnið þrjá leiki þarna

Hlynur: „Að spila á stór­móti var eitt­hvað sem kom svo ein­læg­lega á óvart því það var ekk­ert sem benti til þess að við færum á stór­mót í körfu­bolta. Ég bjóst ekki við því sjálfur, hefði aldrei giskað á það. Ég man að við Jón vorum á kaffi­húsi í Þýska­landi fyrir mótið, þá vorum við að tala um að við yrðum sáttir að vera ekki jarð­aðir í öllum leikj­unum, að ná einum leik sem væri jafn. En svo urðu bara allir leik­irnir jafnir. Því miður unnum við ekki leik en ótrú­legt en satt þá hefðum við í góðum heimi getað unnið þrjá leiki þarna.“

Jón Arnór: „Fyrra mótið var klár­lega hápunkt­ur­inn en það seinna var erf­ið­ara. Það gekk illa.“

Hlynur: „Við vorum að leita eftir sömu upp­lifun­inni og í Berlín en hún kom ekki. Það var ekki jafn­skemmti­legt, það voru ákveðnar vænt­ingar og menn náðu ekki að upp­fylla þær.“

Jón Arnór: „Ég held að það hafi aldrei hægt að toppa þær til­finn­ingar sem við fundum í Berlín. Við höfðum verið þarna áður og upp­lifað þessa útópíu í Berlín og menn voru kannski að elta þá til­finn­ingu. Mögulega var and­rúms­loftið öðru­vísi, pressan meiri á lið­inu og ætl­ast til að við myndum vinna leik. Við settum kannski á okkur þá pressu sjálfir að við vildum ekki fara í gegnum tvö stór­mót og vinna ekki leik en við vorum í svip­uðum ef ekki sterk­ari riðli. Vænt­inga­stjórn­unin hefði getað verið öðru­vísi.“

Hlynur: „Eðlilega fór körfu­bolta­á­huga­fólk á flug, við höfðum verið nálægt því að vinna þessa leiki og hugsað: Við hljótum að vinna einn leik næst. Þetta var umræða sem við höfðum ekki van­ist. Önnur lið og aðrir íþrótta­menn hafa kannski meiri reynslu af því. Það var alveg eðli­legt að fólk hefði ein­hverjar vænt­ingar en við vorum bara ekki vanir því. En það var ekki úrslitafaktor á þessu móti, alls ekki.“

 Vorum algjör­lega vopna­lausir

Það hefur margt breyst frá alda­mótum þegar þeir Hlynur og Jón Arnór léku sinn fyrsta lands­leik. Aðstaða, þjálfun og öll ytri umgjörð er orðin mun betri og ein­kenn­ist af fag­mennsku í stað áhuga­mennsku áður. Sem reynslu­bolt­anir í lið­inu und­an­farin ár hafa þeir félagar verið í því hlut­verki að deila reynslu sinni til sér yngri leik­manna. Allt þetta er eitt­hvað sem þeir Jón Arnór og Hlynur hefðu viljað njóta.

Lands­leik­ur­inn í gær var sá 100. hjá Jóni Arnóri en Hlynur hefur spilað alls 125 leiki í íslensku treyj­unni. Mynd/Hallur Karlsson

„Það eru him­inn og haf á milli hug­ar­fars­ins og æfinga eins og það er í dag. Ekki bara í lands­lið­inu heldur líka í Borg­ar­nesi þegar ég var að byrja. Eftir á að hyggja finnst mér leið­in­legt að hafa ekki verið í þessu umhverfi sem ungur maður. Ég hafði ekk­ert að stefna á, þannig. Jú, auð­vitað stefndi maður að því að verða góður en það var engin leið. Það var eng­inn búinn að ryðja leið­ina. Það voru vissu­lega margir góðir menn sem komu og töl­uðu við mann og ég er mjög þakk­látur fyrir það en það var engin kon­kret leið að næsta skrefi,“ segir Hlynur og bætir við að í þessu felist eng­inn áfell­is­dómur yfir einum eða neinum. Allir hafa verið að gera sitt besta en þekk­ingin ein­fald­lega ekki verið til staðar.

Ég hafði ekk­ert að stefna á, þannig. Jú, auð­vitað stefndi maður að því að verða góður en það var engin leið. Það var eng­inn búinn að ryðja leið­ina.

Jón Arnór sam­sinnir þessu. „Það var bara svona og menn þekktu ekk­ert annað. Bara umgjörðin í kringum liðið, það voru engin æfinga­sett og frekar lítið skipu­lag. Það var eig­in­lega engin fram­tíð­ar­sýn og ekki verið að keppa að neinu. Menn fóru bara út á völl og gerðu sitt besta, algjör­lega vopna­lausir. Það var samt alltaf rosa­lega gaman. Það voru öll tæki­færi nýtt og mikið verið að fagna, fagna góðri æfingu eða fagna góðum leik. Sá mórall í íslenska lands­lið­inu hefur alltaf verið til fyr­ir­myndar. En körfu­bolt­inn fylgdi aldrei með. Með Peter [Ögvist, fyrrum lands­liðs­þjálf­ara] og komu hans inn í lands­liðið fóru menn að setj­ast niður og setja sér mark­mið og fag­mennskan og allt í kring breytt­ist.“

 Ótímabær yfir­lýs­ing sett á ís

Þeir Hlynur og Jón Arnór eru báðir á 37. ald­ursári og því farið að síga á síð­ari hluta fer­ils­ins en báðir segj­ast þeir eiga nóg eftir. Jón Arnór gaf reyndar út þá yfir­lýs­ingu í haust að tíma­bilið í ár yrði hans síð­asta en hann virð­ist hafa fengið ein­hverja bak­þanka eftir því sem liðið hefur á tíma­bilið. „Það voru kannski pínu mis­tök að gefa það út að ég væri hættur í þessu. Ég ætla bara aðeins að þegja um það. Líkaminn á mér er miklu betri en ég hafði búist við. Ég dreg fyrri yfir­lýs­ingu kannski ekki til baka en ég set hana á ís.“

Hlynur er hins vegar ekk­ert á leið­inni að hætta. „Ég ætla að spila lengur. Mér finnst ég alveg geta það og ef ég held heilsu ætla ég að halda áfram. Ég þarf þá að vera í ákveðnu liði. Ég ætla ekki að fara í eitt­hvað hark með ein­hverju slöku liði. Ef við erum með gott lið eins og við erum með núna í Stjörn­unni þá get ég haldið áfram en þá í ein­hverju minna hlut­verki. Ég get ekki verið ein­hver burða­rás enda­laust. Ég held bara að ég myndi sakna þessa svo ofboðs­lega. Stundum nenni ég ekki á æfingu og er kom­inn með hund­leiða á þessu, ég við­ur­kenni það alveg. En að keppa, ég fæ aldrei leiða á því.“

Jón Arnór: „Það er mik­il­vægt þegar maður er kom­inn á þennan aldur að maður sé ekki alltaf drif­kraft­ur­inn eða „go-to“-gæinn, heldur að maður passi inn í liðið, geti gefið lið­inu eitt­hvað, að manni líði þannig að maður sé að leggja sitt af mörkum og maður eigi séns á að vinna eitt­hvað. Þessi körfu­bolti kemur aldrei aftur. Lífið getur svo­lítið beðið og ætli maður sjái ekki eftir því ef maður hættir of snemma.“

Hlynur: „Bróðir þinn, Ólafur [Stef­áns­son, fyrrum lands­liðs­maður í hand­bolta], sagði ein­hvern tím­ann við þig og þú sagðir það við mig að maður eigi aldrei að hætta.“

Jón Arnór: „Já, ef þú getur eitt­hvað áttu aldrei að hætta.“

Hlynur: „Það er kannski einum of.“

Jón Arnór: „Já, ég er núna far­inn að skilja hvað hann er að tala um. Maður á óneit­an­lega eftir að sakna þess gríð­ar­lega að vera í kringum liðið, vera í klef­anum, spila þessa fal­legu íþrótt, keppa og upp­lifa þessa litla og stóru sigra.“

 Lenti á svörtum lista í Banda­ríkj­unum

Þótt atvinnu­manna­fer­ill þeirra beggja sé glæsi­legur þá voru þeirra fyrstu skref ekki eins og þeir höfðu ímyndað sér. Sautján ára gam­all hélt Jón Arnór til Kali­forníu þar sem hann lék með fram­halds­skóla­liði Artesia sam­hliða námi. Það ævin­týri hlaut óvæntan endi af ástæðum sem voru Jóni óvið­kom­andi en höfðu þó áhrif á hans fram­tíð­arplön. „Þetta sner­ist um land­vist­ar­leyfið mitt. Það var þannig að í umsókn­inni var ég skráður í annan skóla en ég gekk í. Þetta var víst eitt­hvað sem var alltaf gert. Ég fékk bara papp­íra senda til mín sem ég fyllti út með for­eldrum mínum, fór með þá í sendi­ráðið og fékk þetta leyfi. Svo pældi ég ekk­ert meira í því.“

Þetta var hins vegar hluti af stærra og veiga­meira svindli í kringum rekstur liðs­ins sem komst upp og upp­hófst veiga­mikil rann­sókn. „Þetta varð stór­mál. Þannig að eftir þessi tvö ár þar varð ég að yfir­gefa landið, flýja nán­ast. Ég fór á ein­hvern lista hjá banda­rískum yfir­völdum í ein­hvern tíma sem var algjör­lega galið og um tíma gat ég ekki ferð­ast til Banda­ríkj­anna. Það leyst­ist allt upp þar, þjálf­ar­inn lét sig hverfa og ég veit ekk­ert hvað varð um hann. Skóla­stjór­inn var rek­inn og yfir­maður íþrótta­deild­ar­innar líka,“ útskýrir Jón Arnór.

„Hvarf hann bara? Er ekki búið að finna hann?“ spyr Hlynur sem hefur gaman af frá­sögn Jóns Arnórs. „Ég held að hann hafi dúkkað upp ein­hvers staðar, ég veit ekki hvar. En þetta var á öllum stærstu sjón­varps­stöð­unum, ESPN, USA Today og fleirum sem var algjör­lega sturlað. En þetta breytti svo­lítið plön­unum mínum á þessum tíma því ég hafði það alltaf sem mark­mið að kom­ast í banda­rískan háskóla en ég þurfti að fara heim,“ segir Jón Arnór sem með hjálp góðra manna tókst að koma sér af svarta list­anum alræmda. Bless­un­ar­lega því um fjórum árum síðar skrif­aði hann undir samn­ing við Dallas Mavericks í NBA-deild­inni eftir gott tíma­bil í þýsku úrvals­deild­inni.

 Skraut­legt ár í Hollandi

Ferill Hlyns fór hins vegar hægar af stað. Hann vakti fyrst athygli með Skalla­grími í Borg­ar­nesi og var val­inn fyrst í lands­liðið á 18. ald­ursári. Eftir það stóð honum til boða að fara til Spánar og fleiri landa að spila en hann ákvað frekar að færa sig vestur í Stykk­is­hólm þar sem hann varði næstu þremur árum. Þá steig hann sín fyrstu skref utan Íslands þegar hann gekk til liðs við hol­lenskt lið að nafni Aris Leeuwarden en það reynd­ist ekki það happa­skref sem Hlynur von­að­ist til.

Þeir Hlynur og Jón Arnór eru báðir á 37. ald­ursári og því farið að síga á síð­ari hluta fer­ils­ins en báðir segj­ast þeir eiga nóg eftir. Mynd/Hallur Karlsson

„Það var í raun og veru bara vit­leysa. Umhverfið var ekki gott og þetta var mjög skraut­legt,“ útskýrir Hlynur á meðan Jón Arnór hlær og býðst til að sýna blaða­manni mynd af „Hollands-Hlyni“. Hlynur heldur hins vegar áfram og lætur eins og hann hafi ekki heyrt þetta skot frá félaga sínum: „Við vorum ekki með kerfi þegar tíma­bilið byrj­aði og það var aldrei skoð­aður and­stæð­ingur fyrir leiki – þetta eru engar ýkjur.

Hann mætti bara, opn­aði kassa af bjór, setti ein­hvern leik í gang og fór svo bara eitt­hvert annað.

Ég man að það var ein­hvern tíma víd­eófundur og það leyst­ist bara upp í vit­leysu því þjálf­ar­inn var ekk­ert á fund­inum; hann mætti bara, opn­aði kassa af bjór, setti ein­hvern leik í gang og fór svo bara eitt­hvert annað. Einhvern tíma horfðum við á leik frá árinu áður og það voru ekki einu sinni sömu leik­menn og annar þjálf­ari. En þetta er allt skóli. Það er hægt að læra af þessu.“

Hlynur deilir fleiri sögum úr reynslu­bank­anum og hann er hrein­skil­inn með það þegar hann missti fók­us­inn snemma á ferl­inum og fór að slá slöku við. Tiltekur hann síð­ustu árin í Borg­ar­nesi og þau fyrstu í Stykk­is­hómi. „Þarna missti maður kannski fót­anna. Það vant­aði eitt­hvað, ein­hvern til að leið­beina manni eða eitt­hvað svo­leiðis. Frá svona 1999 til 2003 æfði ég ekki meira en þurfti og var með fók­us­inn ein­hvers staðar ann­ars staðar. Maður var bara kæru­laus og það var annað sem var í fyrsta sæti. Maður fór út að skemmta sér með félög­unum, spil­aði Championship Manager fram á nótt. Ég mætti alveg á æfingar en gerði bara það sem dugði til.“

Hlynur segir að þessi ár hafi kostað hann mikið upp á mögu­leika hans erlendis. „Ég eign­að­ist fyrsta barnið mitt 2007 og þá bara breytt­ist lífið og maður gat ekk­ert verið að gera það sem maður var að gera. Ég man að á þessum tíma­punkti stóð ég mig vel með lands­lið­inu þrátt fyrir að vera að spila á móti gaurum sem voru á miklu hærra „leveli“ en ég, voru atvinnu­menn sem æfðu tvisvar á dag alla daga vik­unnar. Samt náði ég að standa í þeim og ég hugs­aði hvort ég væri ekki bara betri en þeir ef ég myndi bara æfa eins og maður. Það var smá „wake-up call“.“

Maður var bara kæru­laus og það var annað sem var í fyrsta sæti. Maður fór út að skemmta sér með félög­unum, spil­aði Championship Manager fram á nótt.

Þessi hug­ar­fars­breyt­ing átti heldur betur eftir að skila sér því hann átti nokkur frá­bær tíma­bil árin þar á eftir og end­aði með því að skrifa undir samn­ing við Sund­svall Dragons í Svíþjóð. Þar lék hann við góðan orðstír í sex ár, varð Sví­þjóð­ar­meist­ari 2011 og tví­vegis val­inn besti varn­ar­maður sænsku deild­ar­innar.

 Alltaf eitt­hvað sem maður vildi gera öðru­vísi

Á sama tíma var Jón Arnór að gera góða hluti í Evrópu og lék með liðum í Rúss­landi, Ítalíu og lengst af á Spáni, einni allra sterk­ustu deild Evrópu. „Það var góður rúntur og mikil reynsla. Ég upp­lifði alveg topp­inn á evr­ópskum körfu­bolta og fékk að upp­lifa NBA-deild­ina í gegnum Dallas og sjá hvernig hlut­irnir eru gerðir þar. Auðvitað fullt af hlutum sem maður hefði viljað gera öðru­vísi en heilt yfir er ég nokkuð sáttur við fer­il­inn. Það eru kannski nokkur sumur sem ég hefði viljað nýta betur. Það var ofboðs­lega gaman að koma heim á sumrin, stundum of gaman. En það er nátt­úr­lega partur af því að vera ungur og allt það. Maður var alltaf í burtu, mér fannst ég vera að missa af ein­hverju hérna heima og reyndi að bæta það allt saman upp á þessum tveimur mán­uðum.“

Það var ofboðs­lega gaman að koma heim á sumrin, stundum of gaman.

Hlynur segir það liggja í manns­ins eðli að horfa til baka og velta upp ákvörð­unum sem voru teknar eða ekki teknar. Það eigi við jafnt um íþrótta­menn sem aðra. „Það er mann­legt að allir sjái eftir ein­hverju. Lífið er ekki skrifað hand­rit sem gengur alltaf 100 pró­sent upp. En ég græt ekk­ert í kodd­ann yfir ein­hverjum ákvörð­unum.“

Jón Arnór: „Maður lítur til baka og það eru ákveðin atriði en þau breyta engu fyrir okkur. Ég er alveg sáttur við allt og ég sé ekki eftir neinu því þetta var allt alveg ótrú­lega gaman. En þetta er eitt­hvað sem við getum miðlað áfram til ein­hverra, talað til ann­arra leik­manna.“

Hlynur: „Það er líka ýmis­legt annað sem ger­ist í líf­inu gott. Ég fór til dæmis ekki snemma út í atvinnu­mennsku. Ég hefði getað farið í prógram þar sem ég hefði getað orðið ennþá betri í körfu­bolta, en að sama skapi fer ég í Stykk­is­hólm og þar kynn­ist ég fjöl­skyld­unni minni. Það hefði til dæmis ekki gerst. Svona er bara lífið, maður tekur einn krók og það bara opn­ast eitt­hvað annað. Kannski hefði ég komið grát­andi heim frá Spáni með heim­þrá eftir tvær vikur.“

 Aldrei neinn slakur á Íslandi

Hlynur og Jón Arnór sneru báðir heim úr atvinnu­mennsku árið 2016. Þeir við­ur­kenna að það hafi kostað tölu­vert átak að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi á ný enda takt­ur­inn hér heima allt annar og hrað­ari en í Svíþjóð og Suður-Evrópu.

Jón Arnór: „Ég naut þess sér­stak­lega seinni hluta atvinnu­manns­fer­ils­ins þegar ég var kom­inn með konu og börn að geta átt tíma með þeim. Það er ofboðs­lega dýr­mætur tími þegar ég hugsa til baka, að maður hafi fengið að njóta þeirra for­rétt­inda að verja svona miklum tíma með börn­unum sínum. Ég finn mikið fyrir því þegar ég kem heim til Íslands að hrað­inn er meiri, konan er farin að vinna og krakk­arnir í skóla þannig að við sjáum minna hvert af öðru. Þessi dýr­mæti tími saman er eitt­hvað sem þegar ég horfi til­baka er mér ótrú­lega dýr­mætur.“

Hlynur: „Þar er ég sam­mála þér. Maður hafði alltaf tíma til að gera allt. Þegar ég var í Svíþjóð voru tvær æfingar á dag en samt hafði maður tíma til að fara á leik­skól­ann og maður sá miklu meira af fjöl­skyld­unni. Þegar maður horfir til baka þá eru það helstu for­rétt­indin við atvinnu­mennsk­una. Nú er bara allur dag­ur­inn und­ir­lagður. Það er veru­leik­inn hérna á Íslandi að það eru allir eru stress­aðir með kvíða­hnút í mag­anum um hvar þeir eiga vera hér og þar allan dag­inn, á þeyt­ingi út um allt, að gera betri hluti en þeir eru að gera. Mér finnst aldrei neinn vera í ró hérna. Það er aldrei neinn slakur á Íslandi.“

Jón Arnór: „Fólk er líka alltaf að hafa óþarfa áhyggjur af náung­anum sem er ekki að gera neitt. „Ertu í skóla, ertu að vinna?“

Hlynur: „Ég geri mér grein fyrir því að það er allt annað að vera atvinnu­maður en að vinna hérna heima. En tempóið er allt annað. Áherslan þar er mun meiri á tím­ann með fjöl­skyld­unni, þeir búa til sitt prógram í kringum það. Hérna finnst mér fólk alltaf þurfa að vera að sanna eitt­hvað, að það þurfi að vera að gera eitt­hvað, að vera á leið­inni eitt­hvað.“

Jón Arnór: „Maður alveg dettur í þetta sjálfur. Á Spáni og Ítalíu var allt byggt í kringum þessi fjöl­skyldu­gildi. Það er bara skylda um helgar, sama hvað þú ert gam­all eða með bull­andi ung­linga­veiki eða ekki, þá bara mætir þú í mat hjá stór­fjöl­skyld­unni og þið sitjið þarna saman í fimm klukku­tíma. Það er bara partur af rútín­unni. Fólk hitt­ist, öll stór­fjöl­skyldan, ekki bara á jólum eins og við kannski þekkjum.“

Hlynur: „Ég hed að það séu margir á Íslandi sem gengur mjög vel í starfi eða hverju sem er, en er svo með sam­visku­bit yfir því að hafa ekki tíma fyrir það sem það myndi helst vilja að gera. Krakk­arnir eru í skól­anum til fjögur, svo þarf að gera eitt­hvað og græja og svo er dag­ur­inn bara far­inn. En svo má heldur ekki gleyma því að fólk þarf að lifa af, það er fullt af fólki sem er ein­fald­lega í þeirri aðstöðu. Það væri ósk­andi að það væri aðeins hæg­ara tempó hérna.“

Jón Arnór: „Það er alla­vega mun­ur­inn á Íslandi og Spáni að gæinn sem á sjopp­una á horn­inu á Spáni, keyrir ekki um á Range Rover. Er það ekki lýsandi dæmi? Kaup­mað­ur­inn á horn­inu á Spáni á nóg fyrir sig og sína og hann reynir að vinna eins lítið og hann getur. Það eru öll frí brúuð, ef það er frí á fimmtu­degi þá er bara lokað á föstu­degi og fram á mánu­dag. Þetta getur verið mjög pirr­andi en er samt mjög fal­legt á sama tíma.“

Hlynur: „En ég held líka að það séu margir hér heima sem spenna bog­ann ansi hátt og eiga ekk­ert almenni­lega fyrir því sem þeir eru að gera. Þeir eru að fylla upp í ein­hverja ímynd af því sem þeir eiga að vera. Mér heyr­ist það á mörgum.“

Ekki mannréttindi að spila í úrvalsdeildinni

Úrslita­keppnin í úrvals­deild­inni nálg­ast og þar verða lið þeirra Jóns Arnórs og Hlyns, KR og Stjarnan, í eld­lín­unni. Sú breyt­ing var gerð á fyrir tíma­bilið að svokölluð 4+1-regla var afnumin, en í henni fólst að fjórir íslenskir leik­menn þurftu að vera inni á vell­inum hverju sinni á móti einum erlendum leik­manni. Þessi regla hafði verið við lýði í nokkur ár en fyrir lá að hún braut gegn EES-samn­ingum. Þetta hefur hins vegar verið afar umdeilt. Fylgj­endur 4+1 segja að þetta gefi ungum og upp­renn­andi leik­mönnum frá Íslandi meiri tíma inni á vell­inum og um leið meiri mögu­leika til fram­þró­unar en aðrir segja að þetta komi niður á gæðum deild­ar­innar. Þeir Hlynur og Jón Arnór til­heyra síð­ar­nefnda hópnum.

„Hérna finnst mér fólk alltaf þurfa að vera að sanna eitt­hvað, að það þurfi að vera að gera eitt­hvað, að vera á leið­inni eitt­hvað.“ Mynd/Hallur Karlsson

Jón Arnór: „Deildin hefur aldrei verið sterk­ari en einmitt núna. Mér finnst það jákvætt. Þetta eykur gæðin á leiknum og gerir öllum gott. Ég held að þetta haldi ekki aftur af jákvæðri þróun á íslenskum leik­mönnum.“

Hlynur: „Ef við bönnum alla útlend­inga í deild­inni, þá eðli­lega munu ein­hverjir skara fram úr í lélegri deild. En það þýðir ekk­ert að leik­menn­irnir séu orðnir það mikið betri. Það er alveg sama hversu lélegt liðið er, það er alltaf ein­hver stiga­hæstur. Þetta er gott fyrir þá sem eru bestir. Þeir munu alltaf fá að spila og eru að spila við betri menn. Í barna­í­þróttum á fók­us­inn að vera á jákvæða upp­lifun fyrir alla, hreyf­ingu og að und­ir­búa ein­stak­ling­ana fyrir fram­tíð­ina en þegar þú ert kom­inn yfir ákveð­inn aldur, um 16 ára, verða margir íþrótta­menn fyrir von­brigðum. Lang­flestir í raun­inni. Það eiga heldur ekk­ert allir að fá að spila í úrvals­deild­inni, það eru ekki sjálf­sögð mann­rétt­indi bara af því að þú ert frá Íslandi.

En fyrir mig yrði það fínt. Ég er að verða 37 ára og ég gæti fengið samn­ing þangað til ég yrði 42. Ég treysti mér alveg til að spila í útlend­inga­lausri deild alveg lengur. Það yrði bara minni sam­keppni. Ég geri heldur ekk­ert lítið úr því að til dæmis fólk sem er við­loð­andi yngri flokk­ana og aðrir vilja sá þetta öðru­vísi og sjá fleiri íslenska stráka spila, en það þarf að finna jafn­vægi í þessu. Ef ég væri að ráð­leggja 17 ára leik­manni sem stendur frammi fyrir því að fara í lið sem getur ekki neitt en fær að spila í 40 mín­útur og skjóta eins og hann vill, eða í gott lið þar sem hann fengi að mæta fullt af góðum leik­mönnum á hverri ein­ustu æfingu jafn­vel þótt spila­tím­inn yrði minni, þá myndi ég alltaf velja síð­ari kost­inn.“

Þessi sig­ur­hefð í KR sem hefur skap­ast, til dæmis, þetta smitar út frá sér.

Jón Arnór: „Ég er sam­mála þessu. Þetta eru sleggjur en svona er þetta bara. Þú ert í kringum þessa leik­menn, þú lærir af þeim, þessi sig­ur­hefð í KR sem hefur skap­ast, til dæmis, þetta smitar út frá sér. Ég get nefnt Þóri Þor­bjarn­ar­son, hann hefði getað fengið að spila 35 mín­útur eða meira ann­ars staðar en bara sem ungur leik­maður að vera í kringum það sem hefur verið í gangi í KR síð­ustu ár er ómet­an­legt. Ég myndi líka alltaf mæla með því heldur en að fara í slak­ara lið þar sem hann hefði fengið að spila hell­ing. Maður sá hann alltaf verða betri og betri.“

 Körfu­bolti eftir að ferl­inum lýkur

Í ljósi þess að hvorki Hlynur né Jón Arnór eru á þeim bux­unum að leggja skóna end­an­lega á hill­una þá kann það að vera ótíma­bært að spyrja hvort þeir séu farnir að huga að líf­inu utan körfu­bolt­ans. Fátt verður um svör en báðir hafa áhuga á að halda áfram að starfa við körfu­bolta með einum eða öðrum hætti. „Þetta er bara allt á bið. Þetta hefur nátt­úr­lega ein­kennt mann, að vera körfu­bolta­leik­maður.

Ég hef nátt­úr­lega pælt í því hvað maður vill gera og ég myndi segja að það væri eitt­hvað körfu­bolta­tengt. Ég hef áhuga á að vinna með sam­band­inu, eitt­hvað í kringum lands­liðin, í kringum KR, taka þátt í því að gera körfu­bolt­ann á Íslandi betri. Ég hef mik­inn áhuga á að hjálpa og miðla reynslu minni til ungra leik­manna sem vilja stíga skrefið að fara til útlanda, hvort sem það er í skóla eða atvinnu­mennsku eða eitt­hvað.“

Hlynur er á sama máli. „Ég vil algjör­lega gera eitt­hvað áfram í kringum körf­una. Ég er byrj­aður að þjálfa litla gutta, ég hef gaman af því. Ég veit ekki hvort ég sjái fyrir mér að gera það „full time“ en ég hef gaman af því. Það hlýtur að vera mjög gef­andi að koma ein­hverjum af stað og hjálpa honum að ná mark­miðum.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins