„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fékk þau skilaboð frá yfirmanninum að hún væri nú ekkert í Pepsi-deildinni

Krist­jana er dóttir Arnars Björns­sonar, íþrótta­f­rétta­manns á Stöð 2, en seg­ist aldrei hafa notað þau sam­bönd til að kom­ast að sem íþrótta­f­rétta­maður, þvert á móti hafi það frekar verið notað gegn henni.

Fékk þau skilaboð frá yfirmanninum að hún væri nú ekkert í Pepsi-deildinni
Mynd / Hallur Karlsson||

„Já,“ segir hún hugsi. „En svo ég byrji nú alveg á byrj­un­inni þá er ég nátt­úr­lega alin upp í þessu umhverfi, það sner­ist allt um íþróttir. Við pabbi horfðum til dæmis alltaf saman á enska bolt­ann alveg frá því að ég var svona fimm ára. Svo fór ég sjálf að æfa fót­bolta og hef bara verið á kafi í íþróttum síðan ég man eftir mér. Það var alltaf horft á íþrótta­f­réttir heima og við fylgd­umst vel með öllu sem var að ger­ast í þeim heimi. Barnæska mín sner­ist öll um þetta og ég þekkti ekk­ert annað.

Ég við­ur­kenni að ég hafði alltaf lúmskan draum um það að reyna að kom­ast inn í íþrótta­f­rétta­mennsk­una en á sama tíma þá er ekki hægt að segja að þessi stétt hafi verið opin fyrir konum, það var engin kven­fyr­ir­mynd í þessu starfi þegar ég var krakki, þannig að ég setti bara sama­sem­merki þarna á milli og ákvað að ég gæti aldrei gert þetta því það væru engar konur í þessu. Hvernig ætti ég að geta komið inn í þetta fag? Það var ein­fald­lega ekki raun­hæfur mögu­leiki.“

Krist­jana segir það hafa verið æsku­draum­inn að starfa við íþrótta­f­rétta­mennsku, henni hafi bara ekki dottið í hug fyrr en fyrir nokkrum árum að kona gæti fengið vinnu við að segja fréttir af íþróttum. Mynd / Hallur Karlsson

Krist­jana byrj­aði feril sinn í fjöl­miðlum árið 2010 sem almennur blaða­maður á Frétta­blað­inu þar sem hún var á inn­blað­inu, eða eins og hún segir í „bleiku frétt­unum.“

„Ég leit svo á, á þeim tíma, að þetta væri senni­lega það lengsta sem ég kæm­ist í blaða­mennsk­unni, engar íþrótta­f­réttir heldur var ég að skrifa um hluti sem ég hafði í raun­inni engan áhuga á. Ég við­ur­kenni fús­lega að ég fylgist ekk­ert með Hollywood-slúðri eða veit nokkuð um Kar­dashian-klanið og ég hlæ stundum að því enn þann dag í dag að ég hafi verið að vinna við þetta svona lengi. Ég var í þessu alveg til 2015, með smá­vegis hléum reyndar.

Til þess að setja í sam­hengi hversu fjar­lægur draumur mér fannst það vera að ég gæti farið að vinna í svona hrein­rækt­aðri karla­stétt eins og íþrótta­f­rétta­mennska var þá, get ég nefnt sem dæmi að ég var í fót­bolta á þessum tíma og bað ein­hvern tíma um að fá að fara korteri fyrr af því ég þurfti að spila leik á Akranesi um kvöldið, þá fékk ég þau skila­boð frá yfir­mann­inum að ég væri nú ekki í Pepsi-deild­inni og þyrfti nú ekk­ert að vera að stökkva fyrr úr vinnu fyrir ein­hvern leik. Svona athuga­semdir voru alltaf að koma og þá sann­færð­ist ég meira og meira um að það þýddi ekk­ert fyrir mig að hugsa um íþrótta­f­rétt­irnar, ég væri bara ein­hver kona sem skipti engu máli.“

Spurð hvort hún hefði ekki getað fengið pabba sinn til að tala máli sínu hristir Krist­jana höf­uðið ákaft.

„Ég vildi alls ekki koma pabba í þá stöðu. Ég vildi halda honum algjör­lega fyrir utan þetta. Ein­hverra hluta vegna var það samt komið í umræðu hvort ég vildi ekki prófa að spreyta mig á íþrótta­deild­inni en ég gerði ekk­ert í því, ekki síst eftir að ákveð­inn maður á blað­inu sagði mér að það þýddi sko ekk­ert fyrir mig að ætla að kom­ast áfram á því að vera ein­hver pabbastelpa, ég gæti ekk­ert valsað bara inn í íþrótt­irnar þegar mér sýnd­ist af því að ég væri dóttir Arnars. Ég fékk enda­lausar svona athuga­semdir þannig að ég jarð­aði þennan draum bara.“

Viðtalið við Krist­jönu má lesa í heild sinni hér.

Krist­jana Arn­ars­dóttir er í for­síðu­við­tali í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíða

Mótlætið styrkir mann
Innlentforsíða

Mótlætið styrkir mann

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er bjart­sýnn þrátt fyrir erf­iða stöðu tengda COVID 19-heims­far­aldr­inum. Hann seg­ist trúa því að Íslend­ingar muni koma hraðar til baka heldur en flestar aðrar þjóðir meðal ann­ars vegna þess að við höfum sjálf­stæðan gjald­miðil. Bjarni er mik­ill fjöl­skyldu­maður, nýorð­inn afi og hann notar úti­vist til að rækta lík­ama og sál. Spritt­brúsi stendur á skrif­borð­inu. Heims­far­ald­ur­inn...
Fór ekki í brjóstahaldara fyrr en á þingi
Innlentforsíða

Fór ekki í brjósta­hald­ara fyrr en á þingi

Guðrún Ögmunds­dóttir hefur alla sína ævi barist fyrir rétt­indum minni­hluta­hópa og þeirra sem minna mega sín. Í sumar hlaut hún fálka­orð­una og á sunnu­dag­inn verður hún sæmd heið­urs­merki Sam­tak­anna ’78 fyrir bar­áttu sína. Hún seg­ist þakk­lát fyrir við­ur­kenn­ing­una en besta hrósið sé þegar fólkið sem hún hefur verið að berj­ast fyrir líti á hana sem eina úr hópnum.
Óttast að taka rangar ákvarðanir
Innlentforsíða

Óttast að taka rangar ákvarð­anir

Hulda Björk Svans­dóttir hefur í þrjú ár barist fyrir því að sonur hennar, Ægir Þór, fái með­ferð við Duchenne-vöðva­rýrnun en alls staðar er komið að lok­uðum dyrum í heil­brigð­is­kerf­inu. Nú stendur Ægi mögu­lega til boða að taka þátt í til­rauna­með­ferðum bæði í Banda­ríkj­unum og Svíþjóð og fjöl­skyldan stendur því frammi fyrir því að þurfa að flytj­ast af landi brott í nokkur ár.
Tekur slaginn fyrir náttúruna og dýrin í landinu
Innlent

Tekur slag­inn fyrir nátt­úr­una og dýrin í land­inu

Ragn­heiður Þor­gríms­dóttir, bóndi á Kúlu­dalsá í Hval­firði, hefur þurft að láta fella nítján hross síðan sum­arið 2007 vegna veik­inda sem hún telur stafa af flú­or­mengun frá álver­inu á Grund­ar­tanga. Hún höfð­aði mál gegn Norð­ur­áli vegna meng­un­ar­slyss sem varð í álver­inu árið 2006, tap­aði því fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á síð­asta ári og í síð­ustu viku stað­festi Lands­réttur dóm Hér­aðs­dóms og frí­aði Norðurál allri ábyrgð.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins