„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðmundur tilkynnir HM-hópinn – Guðjón Valur meiddur og verður ekki með

Guðmundur tilkynnir HM-hópinn – Guðjón Valur meiddur og verður ekki með
Mynd/Mannlíf

Guð­mundur Þórður Guð­munds­son, lands­liðs­þjálf­ari Íslands í hand­bolta, hefur til­kynnt um þá 16 leik­menn sem keppa munu á heims­meist­ara­mót­inu í Danmörku og Þýska­landi.

Guð­mundur til­kynnti hóp­inn á blaða­manna­fundi í höf­uð­stöðvum Alvogen.

Guð­mundur færði þjóð­inni slæm tíð­indi því leikja- og marka­hæsti leik­maður liðs­ins, fyr­ir­lið­inn Guðjón Valur Sig­urðs­son, verður ekki í hópnum vegna meiðsla. Þetta kom í ljós rétt fyrir blaða­manna­fund­inn. Hann úti­lokar þó ekki að Guðjón Valur komi inn á seinni stigum móts­ins en Guðmundi er frjálst að gera þrjár breyt­ingar á lið­inu á meðan mót­inu stendur.  Mark­vörð­ur­inn Aron Rafn Eðvarðs­son er sömu­leiðis meiddur og verður ekki með.

Aron Pálm­ars­son verður fyr­ir­liði liðs­ins í stað Guðjóns Vals.

Á fund­inum sagði Guð­mundur að miklar breyt­ingar væru að eiga sér stað í íslenska lið­inu um þessar mundir, liðið sé ungt að árum og vænt­ing­arnar í sam­ræmi við það. Vissu­lega sé skellur að einn besti horna­maður heims geti ekki verið með lið­inu en sem betur fer eigi Íslend­ingar tvo frá­bæra horna­menn til að fylla hans skarð.

Mótið hefst á fimmtu­dag­inn en íslenska liðið hefur leik gegn gríð­ar­sterku liði Króatíu á föstu­dag­inn. Síðan mætum við Spáni, Barein, Japan og Makedóníu.

Hópinn skipa:

Mark­verðir:
Björg­vin Páll Gúst­avs­son, Skjern
Ágúst Elí Björg­vins­son, Sa­vehof

Vinstra horn:
Bjarki Már Elís­son, Füch­se Berl­in
Stefán Rafn Sig­ur­manns­son, Pick Sze­ged

Hægra horn:
Arn­ór Þór Gunn­ars­son, Berg­ischer
Sig­valdi Guðjóns­son, El­ver­um

Vinstri skytt­ur:
Aron Pálm­ars­son, Barcelona
Ólaf­ur Guðmunds­son, Krist­i­an­stad

Hægri skytt­ur:
Ómar Ingi Magnús­son, Aal­borg
Teit­ur Örn Ein­ars­son, Krist­i­an­stad

Leik­stjórn­end­ur:
Elv­ar Örn Jóns­son, Sel­fossi
Gísli Þor­geir Kristáns­son, Kiel

Línu­menn:
Arn­ar Freyr Arn­ars­son, Krist­i­an­stad
Ýmir Örn Gísla­son, Val

Varn­ar­menn:
Ólaf­ur Gúst­afs­son, Kol­d­ing
Daní­el Þór Inga­son, Hauk­um

17 maður:

Hauk­ur Þrast­ar­son, Sel­fossi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm 2019

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins