„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Börnin okkar vildu ekkert vita af nýja manninum mínum“

„Börnin okkar vildu ekkert vita af nýja manninum mínum“

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Börnin mín voru orðin uppkomin þegar ég fann mann sem mig langaði að verja lífinu með. Neikvæð viðbrögð þeirra komu mér á óvart. Ég fékk hjálp úr óvæntri átt við að koma vitinu fyrir þau.

Við Hjálmar skildum þegar börnin okkar voru átta og tíu ára. Skiln­að­ur­inn fór fram í nokkuð góðri sátt. Við höfðum vaxið hvort frá öðru og öll ást horfin, bara van­inn eftir. Mér til undr­unar tók Hjálmar því illa þegar ég bað hann um skilnað. Hann jafn­aði sig þó smám saman og við gátum rætt málin af skyn­semi. Við ákváðum að reyna af öllum mætti að láta skiln­að­inn ekki bitna á börn­unum. Bæði kusu börnin að búa áfram hjá mér en við leyfðum þeim að velja. Þau hittu pabba sinn mjög reglu­lega en hann keypti sér íbúð skammt frá hús­inu sem við bjuggum í og heim­ili hans varð þeirra annað heim­ili. Hjálmar vildi ekki að ég borg­aði hann út úr hús­inu þótt hann hefði fullan rétt á því að fá helm­ing and­virðis þess en ég hafði reyndar erft húsið eftir föður minn sem lést skömmu eftir að við Hjálmar fórum að vera saman.

Við höfðum það bæði mjög gott og ég hef aldrei þurft að hafa fjár­hags­á­hyggjur.

Nýir makar

Ég hafði lít­inn áhuga á því að kynn­ast mönnum fyrstu árin eftir skiln­að­inn og fannst óvirð­ing við börnin mín að bjóða þeim upp á stjúp­feður í röðum. Börnin mín sátu ein að mér og þekktu ekk­ert annað.

Ég átti mína karl­kyns­vini en bauð þeim aldrei heim og hélt til­veru þeirra að mestu leyndri fyrir börn­unum mínum. Engin alvara fylgdi þeim sam­böndum.

Hjálmar eign­að­ist góða konu nokkrum árum eftir skiln­að­inn. Hún átti upp­komin börn. Ég varð vör við nokkra afbrýði­semi hjá börn­unum okkar þegar konan kom til sög­unnar en Hjálmar var mjög ákveð­inn við þau og sagð­ist ekki hlusta á neitt bull. Fram að þessu höfðu þau getað gengið inn og út hjá honum og það hélt áfram en hlut­irnir breytt­ust eðli­lega nokkuð þegar hann fór að búa með kon­unni. Ég reyndi að róa þau en átt­aði mig á því að litlu dek­ur­róf­urnar okkar vildu bara að hlut­irnir væru eftir þeirra höfði og að ekk­ert breytt­ist. Við höfðum leyft þeim að kom­ast upp með að ganga alltaf að okkur vísum. Ég átt­aði mig almenni­lega á því þegar ég sjálf varð ást­fangin.

Elskan hann Leifur kom inn í líf mitt þegar ég við vorum bæði á miðjum fimm­tugs­aldri. Við fórum að spjalla saman í bóka­verslun og þegar hann bauð mér að drekka kaffi­bolla með sér í kaffi­hús­inu á staðnum þáði ég það. Til að gera langa sögu stutta þá urðum við ást­fangin við fyrstu sýn. Við vildum bæði fara hægt í sak­irnar en ástin lætur ekki að sér hæða. Á skömmum tíma leið okkur eins og við hefðum alltaf þekkst og það voru ekki liðnir margir mán­uðir þegar við ákváðum að fara að búa saman.

Tortryggni

Dóttir mín var farin að búa með kærasta sínum þegar þetta gerð­ist en yngra barnið, son­ur­inn, var 19 ára og bjó í lít­illi stúd­íó­í­búð sem ég hafði látið inn­rétta fyrir hann í kjall­ara húss­ins. Þau brugð­ust ekki illa við þegar ég sagði þeim fyrst frá því að ég hefði kynnst góðum manni en það breytt­ist þegar þau átt­uðu sig á því að alvara var í spil­inu og að við ætl­uðum að fara að búa saman. Þegar ég bauð Leifi heim í mat í fyrsta skiptið mættu þau ekki og þótt­ust vera upp­tekin. Mér sárn­aði við þau því ég vildi að þau kynnt­ust honum og sýndu honum eðli­lega kurt­eisi. Leifur sagði að þetta væri ábyggi­lega erfitt fyrir þau, þetta myndi jafna sig. Ég var ekki jafn­viss og hann.

Börnin hans Leifs tóku mér vel og mun betur en ég þorði að vona, miðað við fram­komu barn­anna minna. Mamma þeirra var reyndar gift aftur góðum manni sem þeim lík­aði vel við.

Ég ótt­að­ist að gera illt verra ef ég léti sverfa til stáls á svona við­kvæmum tíma.

Þegar ég síðan sagði þeim að ég ætl­aði að fara að búa með Leifi og að hann flytti til mín vissi ég ekki hvert þau ætl­uðu. Þau reyndu mikið að sann­færa mig um að það væri mis­ráðið af mér. Þau voru tor­tryggin og gengu meira að segja svo langt að benda mér á að hann ásæld­ist eigur mínar. Ég benti þeim á að Leifur ætti sjálfur ágæta íbúð sem sonur hans ætl­aði að leigja af honum, hann ætti mun dýr­ari bíl en ég og hefði góð laun. Allt kom fyrir ekki, þau héldu áfram að vera tor­tryggin. Börnin mín hög­uðu sér eins og spilltir dek­ur­krakkar sem þau voru vissu­lega. Ég sá þau í alveg nýju ljósi. Þau höfðu alltaf verið ein­stak­lega ljúf og góð en það var greini­lega vegna þess að þau fengu alltaf allt sem þau vildu. Þeim fannst þetta ógna til­veru sinni og brugð­ust við af eig­in­girni.

„Þau höfðu alltaf verið ein­stak­lega ljúf og góð en það var greini­lega vegna þess að þau fengu alltaf allt sem þau vildu. Þeim fannst þetta ógna til­veru sinni og brugð­ust því illa við.“

Fjandskapur

Leifur flutti til mín þrátt fyrir allt og ham­ingja okkar var mikil frá fyrstu stundu. Aðeins einn skugga bar á og það var fram­koma barn­anna minna. Þegar strák­ur­inn kom upp til að borða pass­aði hann sig á því að gera það ekki á sama tíma og við. Ef hann rakst á Leif lét hann yfir­leitt sem hann sæi hann ekki. Dóttir mín hafði verið dug­leg við að koma í mat til mín og bjóða mér í mat en nú hætti hún að koma nema hún væri viss um að Leifur væri að heiman. Hún reyndi nokkrum sinnum að bjóða mér einni í mat en ég þáði það ekki. Ég sagði fyrir rest að Leifur væri mað­ur­inn minn og að ann­að­hvort byði hún okkur báðum eða hvor­ugu. Leifur var sall­ar­ó­legur yfir þessu öllu saman og sagði að þetta myndi lag­ast. Ég var ekki jafn­von­góð.

„Hún reyndi nokkrum sinnum að bjóða mér einni í mat en ég þáði það ekki. Ég sagði fyrir rest að Leifur væri mað­ur­inn minn og að ann­að­hvort byði hún okkur báðum eða hvor­ugu.“

Hjálmar hringdi óvænt eitt kvöldið og ætl­aði að tala við son okkar sem var með slökkt á gems­anum en stráksi hafði farið í bíó með vinum sínum. Við fórum að spjalla saman og hann spurði mig hvernig gengi. Ég sagði að allt væri í sóm­anum en þegar hann gekk á mig ákvað ég að segja sann­leik­ann. Börnin okkar vildu ekk­ert vita af nýja mann­inum mínum og sýndu það við hvert tæki­færi. Mér létti eftir sam­talið við Hjálmar. Hann sagði mér að krakk­arnir hefðu reynt að vera með leið­indi þegar hann fór að vera með kon­unni sinni og börn hennar hefðu til að byrja með verið tor­tryggin í hans garð. Allt væri komið í gott lag núna og von­andi gerð­ist það líka í mínu til­felli.

Ástandið breytt­ist hægt og rólega þegar sam­búð okkar Leifs hafði varað í um ár. Það gladdi mig mikið en ég vissi ekki fyrr en löngu seinna að ég hafði fengið góða hjálp úr óvæntri átt –frá fyrr­ver­andi eig­in­manni mínum. Hann ákvað að ræða þessi mál við börnin okkar og tók víst ekki á þeim með neinum silki­hönskum.

Óttuðust um eigur mínar

Þótt hlut­irnir hefðu lag­ast fann ég að börnin höfðu nokkrar áhyggjur af eigum mínum, eða til­von­andi arfi þeirra, og ég átt­aði mig á því að þau litu á allt mitt sem sitt. Þau spurðu mig, reyndar skömmu eftir að við Leifur fórum að búa saman, hvað gerð­ist ef ég dæi skyndi­lega, hvort Leifur erfði eigur mínar. Það fauk illi­lega í mig og ég sagði að þau væru lög­erf­ingjar mínir, við Leifur værum ekki gift og það væri ekki á döf­inni. Börn Leifs væru lög­erf­ingjar hans og fengju allt eftir hans dag. Þetta væru samt okkar eigur og við gætum gert það sem við vildum við þær, selt allt og lagst í ferða­lög ef okkur sýnd­ist svo. Mikið sárn­aði mér en ég komst að því fljót­lega að þetta er ekk­ert eins­dæmi.

Fyrr­ver­andi konan hans Leifs missti mann­inn sinn snögg­lega og það var ekki liðin vika frá útför­inni þegar börn hans, yngsta innan við tví­tugt, mættu heim til  ekkj­unnar og tóku þaðan hluti sem höfðu verið í eigu föður þeirra. Þau tóku kannski ekki hús­gögn en völdu sér muni sem hann átti. Strák­ur­inn hans tók til dæmis úr föður síns og hefur gengið með það síðan. Ekkjan lét þetta yfir sig ganga til að halda frið­inn og sagði að þeim væri að sjálf­sögðu vel­komið að fá hlut­ina hans. „Velkomið?“ sagði þá eitt barnið, „við eigum rétt á því!“ Börnin hans hefðu fengið þessa hluti ef þau hefðu beðið um þá en fannst greini­lega óþarfi að sýna sjálf­sagða kurt­eisi. Ég þekki ekki vel lögin um óskipt bú en mig grunar að þessir krakkar séu hvergi nærri hættir, pabbi þeirra átti helm­ing­inn í íbúð­inni á móti kon­unni og spurn­ing hvort hún kom­ist upp með að sitja í óskiptu búi.

Mitt, mitt, mitt!

Samband okkar Leifs er ynd­is­legt. Við erum skráð í sam­búð en gift­ing hefur ekki komið til tals. Kannski spilar inn í hvernig börnin mín hafa látið en ég minn­ist þess ekki að hafa litið á eigur móður minnar sem mínar eigin á meðan hún lifði, eins og þau virð­ast gera.

Ég vissi til dæmis að mamma laum­aði oft ein­hverju að ungu kon­unni sem leigði í kjall­ar­anum hjá henni og þreif einnig fyrir hana. Hún gaf kon­unni alltaf væna pen­inga­upp­hæð í jóla­gjöf sem mér fannst fal­lega gert. Mamma var með fullu viti og sjálf­ráða ein­stak­lingur. Hún var alltaf örlát og börnin mín fengu að njóta þess. Unga konan er útlensk og ein­stæð móðir að auki og gekk illa að sjá sér og dóttur sinni far­borða. Ég fór oft í búðir fyrir mömmu en eftir að þessi kona kom til sög­unnar tók hún við því hlut­verki. Konan keypti ekki bara inn fyrir mömmu og þreif fyrir hana, heldur sner­ist fyrir hana á allan hátt og eld­aði oft mat­inn fyrir hana, með því móti fannst kon­unni hún lík­lega geta þegið eitt­hvað frá mömmu. Ég hitti þessa konu nokkrum sinnum og vissi að hún mis­not­aði ekki góð­vild mömmu. Henni þótti vænt um mömmu og það var gagn­kvæmt.

Eftir lát mömmu leigði ég út hæð­ina sem hún hafði búið í en útlenda konan sem reynd­ist mömmu svo vel býr enn í kjall­ara­í­búð­inni og borgar sömu leigu og áður. Það er mín leið til að sýna henni þakk­læti fyrir öll elsku­leg­heitin við mömmu.

Leifur er í fínu sam­bandi við fyrr­ver­andi konu sína og var henni mik­ill stuðn­ingur í erf­ið­leikum hennar. Stjúp­börn hennar voru ekki leið­in­leg við „nýju“ kon­una á meðan pabbi þeirra var á lífi en sýndu henni aðra og verri hlið á sér eftir að hann lést. Það hefur gert henni sorg­ar­ferlið mun erf­ið­ara. Vissu­lega eru  dæmi þess að eft­ir­lif­andi maki taki eignir út úr dán­ar­bú­inu til að gefa eigin börnum og svo þegar kemur til skipt­anna er lítið eftir fyrir lög­erf­ingj­ana. Þetta eru alltaf erfið mál og ég ætla að gæta þess að hafa alla hluti á hreinu varð­andi mig og börnin mín. Þau virð­ast hneyksluð á fram­komu fólks­ins gagn­vart stjúpu sinni sem gerir mig von­betri um að Leifur lendi ekki í sömu leið­indum ef ég kveð þennan heim á undan honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu