„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Mætti í heiminn með látum og hef látið fara fyrir mér síðan“

Eva Ruza Miljevic gleði­gjafi hefur starfað við skemmti­brans­ann sem veislu­stjóri, kynnir og fleira í nokkur ár, auk þess að starfa í blóma­búð fjöl­skyld­unnar.

„Mætti í heiminn með látum og hef látið fara fyrir mér síðan“
Mynd / Unnur Magna

Hér ljóstrar hún upp fimm stað­reyndum um sjálfa sig.

Ég er með lítið ör á brjóst­inu, eftir að ég var að elda pizzu. Ég ákvað að hoppa í sturtu meðan pizzan bak­að­ist í ofn­inum en gleymdi svo að ég var að baka hana. Eftir langa og kósí sturtu mundi ég hvað ég var að gera, stökk fram alls­ber og kippti plöt­unni úr ofn­inum. Brussu­gang­ur­inn svo mik­ill við það að ég rak sjóð­andi plöt­una beint í brjóstið og brenndi mig. Mér er ekki við­bjarg­andi.

Ég hef aldrei átt kredit­kort og aldrei tekið yfir­drátt­ar­heim­ild. Þar spilar upp­eldið stóran þátt, en mamma og pabbi sögðu alltaf að maður ætti að eiga pen­inga fyrir því sem maður vildi gera og ég tók þau á orð­inu. Hann Siggi minn á nú samt kredit­kort – en ég ætla bara að halda mig við kredit­korta­laust líf. Ég gæti hangið á Netinu í tíma og ótíma og keypt mér ein­hvern óþarfa; endar bara í vit­leysu. Ég kann líka korta­núm­erið hans Sigga utan af, þannig að þetta sleppur.

Ég hef aldrei getað staðið á höndum NÉ farið í handa­hlaup. Fim­leikar hafa aldrei verið mín sterkasta hlið en ég get alveg sagt ykkur það að mig hefur alltaf dreymt um að geta hent mér í handa­hlaup á grænu grasi. En þetta er líka stór­hættu­legt, þannig að ég er hætt að reyna. Ég vil lifa.

Ég not­aði gler­augu alla mínu æsku og fram á full­orð­insár – var með mjög slæma sjón. Allt þangað til ég fór í leiser og fékk sjón­ina á ný. Klárlega besta sem ég hef gert fyrir sjálfa mig. Mamma og pabbi eyddu miklum pen­ingum í gler­augu fyrir mig þegar ég var yngri, því ég átti það til að ganga á staura og stíga ofan á þau. Það er liðin tíð.

Ég fædd­ist sitj­andi. Mætti í heim­inn með látum og hef látið fara fyrir mér síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fimm staðreyndir

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins