„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Karl tjáir sig um samfélagsmiðlalífið: „Ég þekki mína konu og veit að Tobba fer ekkert lengra en ég myndi sætta mig við“

Jólatón­leikar Baggalúts eru ómissandi hluti aðvent­unnar hjá mörgum og hljóm­sveitin mun ekki bregð­ast aðdá­endum sínum í ár, frekar en vana­lega. Liðsmenn Baggalúts, þeir Bragi Valdimar Skúlason og Karl Sig­urðs­son, eru komnir í jólagír­inn og ætla að fitja upp á alls kyns nýj­ungum á tón­leik­unum í des­em­ber með félögum sínum. Þeir vilja ekki gang­ast við því að vera orðnir minna beittir í texta­skrifum með árunum, þótt vissu­lega séu þeir orðnir ráð­settir heim­il­is­feður og farnir að velta meira fyrir sér orð­vali og áhrifum text­anna á börnin sín.

Karl tjáir sig um samfélagsmiðlalífið: „Ég þekki mína konu og veit að Tobba fer ekkert lengra en ég myndi sætta mig við“
Bragi Valdimar Skúlason og Karl Sig­urðs­son

Í for­síðu­við­tali við Mannlíf ræða þeir sam­starfið, vin­átt­una, aðvent­una og margt fleira, og þá ekki síst hvað fjöl­skyldum þeirra, konu og börnum, finnst um þetta brölt þeirra.

Talandi um brúð­kaupið á Ítalíu í sumar; hvernig er að vera orð­inn lög­giltur herra Tobba Marinós, Karl?

„Það er bara mjög ánægju­leg og góð til­finn­ing,“ svarar hann strax. „Okkur var bent á það á heim­leið­inni úr brúð­kaup­inu að nú bærum við fimm­tíu pró­sent ábyrgð á gerðum hvort ann­ars og það þýddi ekk­ert að reyna að benda á hitt þegar eitt­hvað kæmi upp á. Það er mjög góður punktur.“

Tobba er oft ansi opin­ská um líf ykkar í bloggi og á sam­fé­lags­miðl­unum, hefur þér aldrei brugðið við það sem hún skrifar?

„Nei, nei,“ segir Karl sall­ar­ó­legur. „Ég þekki mína konu og veit að hún fer ekk­ert lengra en ég myndi sætta mig við. Hún ber það líka stundum undir mig hvort það sé í lagi að hún segi frá þessu eða hinu, þannig að hún virðir alltaf mín mörk.“

Þið eruð á fullu á alls kyns víg­stöðvum, hvað finnst kon­unum ykkar og fjöl­skyldum um þetta stans­lausa brölt á ykkur? Eru þau ekk­ert orðin þreytt á því að þið haldið bara til í Háskóla­bíói allan des­em­ber, til dæmis?

Bragi: „Konan mín, Þórdís Heiða Krist­jáns­dóttir, er alveg gjör­sam­lega búin að fá nóg af þessu. (Skelli­hlátur). En í alvöru þá bjarg­ast þetta nú allt. Það er ekki eins og við gröfum okkur í fönn í heilan mánuð. Við eigum þrjár dætur og það mætir bara öll fjöl­skyldan í fjörið bak­sviðs, þannig að þetta er eig­in­lega okkar annað heim­ili í des­em­ber.“

Karl: „Já, það má eig­in­lega segja það sama um mína fjöl­skyldu. Maður flytur bara með bún­inga­fjöld og alls konar dót inn í Háskóla­bíó í byrjun des­em­ber og síðan bara er maður þar. Þannig að þetta leggst svo­lítið þungt á fjöl­skyld­urnar, en sem betur fer erum við dug­legir að vinkla þau inn í þetta og fá þau til að kíkja á okkur og vera á tón­leik­unum.“

Lesa má við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins