Damon, sem flestir þekkja úr hljómsveitinni Blur, byrjaði að koma til Íslands á tíunda áratugnum.
Óhætt er að segja að Damon hafi fallið fyrir landi og þjóð því hann fjárfesti í fotláta einbýlishúsi í Grafarvogi og er tíður gestur hér á landi.

Titill plöturnar er fenginn úr ljóði eftir John Clare og mun platan vera afar persónuleg. Damon mun flytja plötuna í heild sinni á tónleikastaðnum Barbican í London þann 26. maí næstkomandi.
Nóg er um að vera hjá Damon því nýlega sendi hann frá sér plötuna Merrie Land með hljómsveitinni sinni The Good, The Bad & The Queen.
Hér fyrir neðan má sjá Damon Albarn og félaga hans úr The Good, The Bad & The Queen í nýlegu viðtalið við tónlistartímaritið NME.


























Athugasemdir