Magnús kom víða við í veitingageiranum, en rak Matarbarinn og Sjávarbarinn þegar hann lést.
Veitingageirinn greinir fá því að staðir Magnúsar, Sjávarbarinn, Grandagarði 9 og Matarbarinn, Laugavegi 178 séu til sölu. Þar segir að til greina komi að selja staðina saman eða sem sjálfstæðar einingar.
Sjávarbarinn sérhæfir sig í fersku sjávarfangi á meðan Matarbarinn sérhæfir sig í heimilismat. Í frétt Veitingageirans segir að báðir staðir séu mjög vel búnir tækjum, með tilbúnar vefsíður og góðan sýnileika á samfélagsmiðlum.
Áhugasömum er bent á að snúa sér Jóns Egilssonar hjá JA lögmannsstofu.


























Athugasemdir