„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Heppinn að vera ekki steindauður“

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, missti systur sína úr krabba­meini fyrir einu og hálfu ári og skömmu síðar lenti hann í alvar­legu hjól­reiða­slysi sem hefði getað kostað hann lífið. Hann segir þessa reynslu hafa breytt við­horfi sínu til lífs­ins og kennt sér að meta betur það sem hann hefur. Hann ætlar að hlaupa hálft mara­þon til styrktar Ljósinu í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu á morgun.

„Heppinn að vera ekki steindauður“
Mynd/Unnur Magna|„Það var iðu­lega gefið í skyn að konur væru lélegri starfs­kraftar í fyr­ir­tækjum en karlar og það end­aði með því að ég setti mér það mark­mið að gera það sem ég gæti til að stuðla að því að karl­menn yrðu jafn­lé­legir starfs­kraftar og konur

„Ég hef aldrei hlaupið heilt mara­þon en þetta er lík­lega fjórða eða fimmta hálf­mara­þonið sem ég hleyp,“ svarar Ólafur aðspurður hvort hann hafi lengi stundað mara­þon­hlaup. „Ég er reyndar gam­all antisportisti en varð óvart svo­lítið lið­tækur hlaup­ari vegna þess að ég og Jón vinur minn vorum með enda­lausan skæt­ing við íþrótta­kennar­ann okkar í MR og hann var orð­inn svo leiður á okkur að hann sendi okkur alltaf út að hlaupa. Svo hafði ég ekki hlaupið lengi en þegar ég var kom­inn um fer­tugt og far­inn að horfa á ístr­una á mér stækka, átt­aði ég mig á að ég þyrfti senni­lega að fara að gera eitt­hvað í því hvað ég hreyfði mig lítið. Síðan hef ég hlaupið býsna mikið og nokkuð reglu­lega tekið þátt í keppn­is­hlaupum.“

Spurður hvort hann sé kom­inn í þann hóp hlaupara sem fari til útlanda oft á ári til að hlaupa þar um fjöll og firn­indi svarar Ólafur því til að hann sé reyndar ekki kom­inn þangað en það sé þó farið að kitla hann pínu­lítið að taka þátt í mara­þonum erlendis.

„Ég hef ekki gert það enn þá, nei,“ segir hann. „Ég er reyndar aðeins að láta mig dreyma um það að fara kannski til New York, Boston eða Barcelona til þess að hlaupa mara­þon en hvort af því verður kemur í ljós.“

Ólafur hleypur til að safna fyrir Ljósið til minn­ingar um systur sína, Þóru Steph­en­sen, sem lést eftir bar­áttu við krabba­mein í apríl 2018. Hann segir dauða systur sinnar þó ekki vera einu ástæð­una fyrir því að hann valdi að styrkja starf­semi Ljóssins.

„Það er lengri saga á bak­við það,“ segir hann. „Ég átti tvær systur, Elínu og Þóru, sem voru þrettán og ell­efu árum eldri en ég. Elín greind­ist með krabba­mein í legi árið 2014 en hafði betur í þeirri bar­áttu og er frísk í dag. Þóra greind­ist 2016 með brjóstakrabba og það leit út fyrir að hún hefði líka sigr­ast á sínu meini en svo bloss­aði það upp aftur árið 2017 og hún dó í apríl í fyrra. Þær leit­uðu báðar mikið til Ljóssins og höfðu mik­inn styrk af þeirri frá­bæru þjón­ustu sem þar er í boði. Það vill reyndar líka svo til að nýlega varð konan mín, Ragn­heiður Agn­ars­dóttir, stjórn­ar­for­maður Ljóssins og sagan á bak­við það er að hún í fyrsta lagi missti fyrri mann­inn sinn, Þórð Frið­jóns­son, úr krabba­meini árið 2011 og síðan greind­ist stjúp­móðir hennar, Rósa Steins­dóttir, með krabba­mein 2016 og hefur líka sótt mikið til Ljóssins. Tengda­mamma dóttur minnar, Guðrún Kristín Svav­ars­dóttir, er líka í hópi skjól­stæð­inga Ljóssins. Þannig að Ljósið á það eig­in­lega alveg inni hjá mér að ég leggi pínu­lítið á mig fyrir það.“

„Eftir að Þóra hafði greinst í annað sinn fór ég í fjöl­skyldu­við­tal með Elínu systur minni hjá Ljósinu. Það var afskap­lega gott og hjálp­aði manni að hugsa eftir réttum brautum og vera stuðn­ingur bæði við þann veika og aðra aðstand­endur, held ég.“

Óttinn við krabba­mein aldrei nagað
Spurður hvernig hann hafi sjálfur tek­ist á við veik­indi systra sinna, hvort hann hafi leitað sér aðstoðar í ferl­inu, svarar Ólafur að hann hafi reyndar gert það.

„Eftir að Þóra hafði greinst í annað sinn fór ég í fjöl­skyldu­við­tal með Elínu systur minni hjá Ljósinu,“ upp­lýsir hann. „Það var afskap­lega gott og hjálp­aði manni að hugsa eftir réttum brautum og vera stuðn­ingur bæði við þann veika og aðra aðstand­endur, held ég.“

Það er nær­tækt að spyrja hvort Ólafur sé ekki sjálfur hræddur um að grein­ast með krabba­mein eftir þessa reynslu en hann seg­ist reyndar ekki vera sér­stak­lega hræddur um það, þótt hann geri sér að sjálf­sögðu grein fyrir því að hann gæti fengið krabba­mein eins og hver annar.

„Systur mínar létu rann­saka það hvort krabba­meinið væri að ein­hverju leyti ætt­gengt en það kom ekk­ert í ljós sem bendir til þess,“ útskýrir hann. „Ég er líka undir mjög góðu eft­ir­liti hjá kon­unni minni sem gengur hart eftir því að ég fari reglu­lega í alls konar tékk, eins og maður á auð­vitað að gera þegar maður er kom­inn um og yfir fimm­tugt, og ótt­inn við það að fá krabba­mein hefur aldrei nagað mig. Það er hins vegar gott að láta fylgj­ast vel með sér og hafa for­varn­irnar í lagi.“

Ólafur hleypur til að safna fyrir Ljósið til minn­ingar um systur sína, Þóru Steph­en­sen, sem lést eftir bar­áttu við krabba­mein í apríl 2018. Það eru þó fleiri ástæður fyrir því að hann valdi að styrkja starf­semi Ljóssins. Mynd/Unnur Magna

Væri stein­dauður ef hjálm­ur­inn hefði ekki verið
Þremur mán­uðum eftir að Þóra systir hans lést lenti Ólafur í hjól­reiða­slysi, reyndar á afmæl­is­degi hennar, og hefur síðan farið í hverja aðgerð­ina á fætur annarri til að ná fullri hreyfi­getu á ný. Hver voru til­drög slyss­ins?

„Á einum af þeim fáu fal­legu dögum sem við fengum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fyrra­sumar vökn­uðum við Ragn­heiður eldsnemma og ákváðum að nýta morg­un­inn til að fara í hjóla­túr,“ segir Ólafur. „Verandi gam­all antisportisti lærði ég ekki að hjóla fyrr en ég var tutt­ugu og átta ára gam­all en hef dálítið hjólað síðan. Eftir að ég kynnt­ist Ragn­heiði, sem er dálítið hjólaóð, keypti ég mér fjalla­hjól og fékk svo lánað racer-hjól hjá félaga mínum. Var búinn að prófa það á hjóla­stígum inn­an­bæjar í ein­hverja daga og fannst það ógur­lega gaman þannig að ég var mjög spenntur fyrir því að hjóla Nesja­valla­veg­inn þennan dag. Þegar við vorum á leið­inni til baka var ég kom­inn á milli 30 og 40 kíló­metra hraða, þegar ég lenti með fram­dekkið í sprungu á veg­inum. Síðan tók við lausa­möl þegar ég var að reyna að ná jafn­væg­inu aftur og svo bara man ég ekki meira. Ég flaug af hjól­inu og stein­rot­að­ist þannig að þegar Ragn­heiður kom að mér and­aði ég eitt­hvað lítið og hægra við­beinið stóð út í jakk­ann minn, ég var sem sagt með opið bein­brot í öxl­inni. Ef ég hefði ekki verið með hjálm væri ég nátt­úr­lega stein­dauður, en ég slapp með höf­uð­högg og svo­lítið af bein­brotum.

„Ég flaug af hjól­inu og stein­rot­að­ist þannig að þegar Ragn­heiður kom að mér, and­aði ég eitt­hvað lítið og hægra við­beinið stóð út í jakk­ann minn, ég var sem sagt með opið bein­brot í öxl­inni. Ef ég hefði ekki verið með hjálm væri ég nátt­úr­lega stein­dauður.“

Við­beins­brotið var erf­ið­ast viður­eignar en afleið­ing­arnar af höf­uð­högg­inu voru þær að ég sá tvö­falt til að byrja með. Það gekk yfir á nokkrum vikum og mér var sagt að það væri ekk­ert óal­gengt eftir heila­hrist­ing. Ég var frá vinnu í þrjár vikur en skröngl­að­ist svo af stað aftur og fór kannski of geyst, ég veit það ekki.

Við­beinið var skrúfað saman með stál­p­lötu en sú við­gerð hélt ekki, þannig að ég þurfti að fara í annan upp­skurð í des­em­ber þar sem sett var í mig veiga­meiri stál­p­lata. Hún var svo tekin úr mér aftur núna í maí með þriðju skurð­að­gerð­inni og síðan er ég búinn að vera að reyna að koma mér aftur í form. Ég hef líka verið dug­legur að synda og á tíma­bili vakti ég mikla athygli og fólk gaf sig gjarnan á tal við mig í Laug­ar­dals­laug­inni af því að ég synti bara með annarri hend­inni. Nú er ég far­inn að geta gert flest sem ég gat fyrir ári. Áhuginn á hjól­reiðum hefur þó heldur dalað, ég er búinn að fara í einn hjóla­túr í sumar, nokkurn veg­inn réttu ári eftir að ég datt, og ég verð að við­ur­kenna að fyrstu kíló­metrana var ég bara skít­hræddur en það rjátl­að­ist sem betur fer af mér. En ég hugsa að ég fari voða­lega var­lega í hjól­reið­unum hér eftir. Ég hjólaði í vinn­una einn dag­inn og tók tím­ann á mér og nið­ur­staðan var sú að ég hjóla hægar en ég hleyp, þannig að þú sérð að ég fer óskap­lega var­lega til að byrja með.“

Ólafur við­ur­kennir að síð­asta eina og hálfa árið hafi verið ansi erfitt en seg­ist hafa tek­ist á við það sem upp á hefur komið með því að ræða öll mál við sína nán­ustu. Þessi reynsla hafi þó að ýmsu leyti breytt lífs­sýn hans.

„Fyrst og fremst finnst manni líf og heilsa ekk­ert sjálf­sagðir hlutir lengur,“ segir hann hugsi. „Ég var mjög hepp­inn að slasa mig ekki verr í þess­ari byltu og er líka hepp­inn að vera laus við alls kyns ill­víga sjúk­dóma sem fólk er að glíma við allt í kringum mann. Þannig að í raun­inni hefur þetta fyllt mig af þakk­læti fyrir heils­una, lífið og það sem ég hef og ég tek hlut­unum síður sem sjálf­sögðum.“

„Það var iðu­lega gefið í skyn að konur væru lélegri starfs­kraftar í fyr­ir­tækjum en karlar og það end­aði með því að ég setti mér það mark­mið að gera það sem ég gæti til að stuðla að því að karl­menn yrðu jafn­lé­legir starfs­kraftar og konur,“ segir Ólafur, sem er þekktur fyrir að hafa lagt sitt á vog­ar­skál­arnar í jafn­rétt­is­bar­átt­unni, var til að mynda lengi í stjórn UN Women á Íslandi og var einn af þátt­tak­endum í He for She-her­ferð­inni. Mynd/Unnur Magna

Engin eft­ir­sjá og svekk­elsi í fartesk­inu
Ég heyri að Ólafi er ekk­ert sér­lega vel við spurn­ingar mínar um per­sónu­legar upp­lif­anir hans þannig að við breytum um kúrs og förum að ræða atvinnu hans. Haustið 2014 hætti hann sem rit­stjóri Frétta­blaðs­ins með hár­beittum leið­ara þar sem hann ásak­aði eig­endur blaðs­ins um afskipti af rit­stjórn­ar­stefnu þess. Höfðu þau skrif ein­hver eft­ir­mál?

„Nei, nei,“ segir hann og brosir. „Ég reyni að gera mitt til að passa upp á það að þegar ég hætti ein­hvers staðar með hvelli verði sem minnst eft­ir­mál af því. Það þurfti að segja ákveðna hluti eins og þeir voru en ég reyni að passa mig á því að bera ekki kala til nokk­urs manns og paufast alls ekki í gegnum lífið með ein­hverja eft­ir­sjá eða svekk­elsi í fartesk­inu. Það er ein upp­skriftin að ham­ingju og heilsu að láta slíkt eiga sig og skilja það bara eftir við veg­inn.“

Þegar Ólafur kvaddi Frétta­blaðið og skipti um starfs­vett­vang hafði hann starfað við blaða­mennsku síðan á ung­lings­aldri og ég á erfitt með að kyngja því að hann sakni hennar ekk­ert.

„Það kemur fyrir að mig langar til að vera á staðnum þegar mér finnst fjöl­miðl­arnir gleyma sínu mik­il­væga aðhalds­hlut­verki og láta hjá líða að spyrja gagn­rýn­inna spurn­inga eða varpa ljósi á bak­grunn mála,“ segir hann dræmt. „En svo lækn­ast ég alltaf um leið þegar það rifj­ast upp fyrir mér hvernig vinnu­tím­inn og álagið var í blaða­mennsk­unni.“

Ólafur hefur ekki alveg sagt skilið við skrift­irnar þótt hann sé hættur í blaða­mennsk­unni, hann hefur verið mjög dug­legur við að skrifa greinar sem tengj­ast nýju hlut­verki hans sem fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, enda segir hann upp­lýs­inga­miðlun og umræður alltaf hafa verið sitt líf og yndi.

„Það kemur sér mjög vel í þessu starfi sem ég sinni núna,“ segir hann. „Þar er verið að halda á lofti ákveðnum mál­stað sem ég hef fylgt frá því að ég var rúm­lega fermdur, sem sé áherslu á ein­stak­lings- og athafna­frelsi og frjálsa verslun. Ég bind þó ekki trúss mitt neitt sér­stak­lega við ákveð­inn flokk, ég er bara alþjóða­sinn­aður, frjáls­lyndur hægri­maður.“

„Að mæta á æfingu og syngja í þrjá klukku­tíma þurrkar allar áhyggjur út eins og hendi sé veifað og maður verður alveg slakur. Það veitir sjálf­sagt ekk­ert af í mínu til­felli þar sem ofvirknig­enið er ansi sterkt í mér,“ segir Ólafur, sem mun ekki aðeins taka þátt í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu á morgun heldur einnig syngja með Söng­hópnum Spectrum í Lista­safni Íslands. Mynd/Unnur Magna

Langar ekki í starf kjör­ins full­trúa
Margir hafa haft það á til­finn­ing­unni að Ólafur stefni að frama innan stjórn­mál­anna en hann gefur lítið fyrir þær hug­myndir.

„Það er alveg hægt að halda því fram að ég hafi verið í póli­tík með einum eða öðrum hætti síðan á ung­lings­árum,“ segir hann. „Ég var í stjórn­mála­þátt­töku í gamla daga með ungum Sjálf­stæð­is­mönnum, Samtökum ungra íhalds­manna á Norð­ur­löndum og fleirum. Snertifletir blaða­mennsku og stjórn­mála eru margir og sömu­leiðis snertifletir póli­tíkur og svona hags­muna­gæslu eins og ég er í núna en mig langar ekk­ert óskap­lega í starf hins kjörna full­trúa, mér sýn­ist að það sé ekk­ert sér­stak­lega öfunds­vert hlut­skipti og það er vel hægt að hafa áhrif með öðrum hætti.“

Eitt af þeim málum sem Ólafur hefur beitt sér fyrir að knýja fram breyt­ingar á eru jafn­rétt­is­mál kynj­anna, hann var lengi í stjórn UN Women á Íslandi og var einn af þátt­tak­endum í He for She-her­ferð­inni. Hvað vakti upp­haf­lega áhuga hans á jafn­rétt­is­málum, voru það áhrif frá eldri systrum hans tveimur?

„Að hluta til voru það áhrif frá þeim,“ við­ur­kennir hann. „Og líka frá mömmu sem hélt reglu­lega yfir mér ræður um jafn­rétt­is­mál þótt þau pabbi væru að mörgu leyti í hefð­bundnum kyn­hlut­verkum. En það sem ýtti mér helst inn í aktíf­isma í þeim málum var að ég horfði upp á til dæmis fyrr­ver­andi kon­una mína og vin­konur mínar frá fornu fari, sem höfðu trúað því, eins og ég sjálfur, að þær ættu alla sömu mögu­leika og við strák­arnir, upp­lifa það þegar þær komu út á vinnu­mark­að­inn að fá nær­göngular spurn­ingar í atvinnu­við­tölum. Eins og um hvort þær ættu börn, hvort þær ætl­uðu að eign­ast börn og svo fram­vegis, spurn­ingar sem við strák­arnir klár­lega fengum ekki. Það var iðu­lega gefið í skyn að konur væru lélegri starfs­kraftar í fyr­ir­tækjum en karlar og það end­aði með því að ég setti mér það mark­mið að gera það sem ég gæti til að stuðla að því að karl­menn yrðu jafn­lé­legir starfs­kraftar og konur. Þannig var upp­leggið að hvetja karl­menn til að axla sínar skyldur gagn­vart fjöl­skyld­unni en frá mínum bæj­ar­dyrum séð voru þetta afskap­lega ljúfar skyldur og ég held að ég og margir aðrir hafi fyrst og fremst litið á það sem tæki­færi til að geta sinnt heim­ili og börnum að fá það í gegn að feður fengju fæð­ing­ar­or­lof og sveigj­an­leika í vinnu­tíma sem nú orðið þykir víð­ast sjálf­sagt. Á þessum tíma var fæð­ing­ar­or­lof feðra mjög fram­andi hug­mynd og ég kom mér í karla­nefnd jafn­rétt­is­ráðs, sem þá starf­aði, og varð síðar for­maður hennar um það leyti sem elsta dóttir mín fædd­ist. Karla­nefndin lagði fram til­lögur um að fæð­ing­ar­or­lofs­kerfi þar sem rétt­inum var skipt jafnt milli feðra og mæðra og greiðsl­urnar tekju­tengdar og það var mjög ánægju­legt að sjá hvernig þær hug­myndir náðu flugi og urðu að lögum sem tóku gildi í árs­byrjun 2001. Það var mikil tíma­móta­lög­gjöf þótt það hafi komið ákveðið bakslag í það hvernig feður nýttu sér fæð­ing­ar­or­lofið vegna nið­ur­skurðar á greiðsl­unum eftir hrun en það er sem betur fer smátt og smátt að lag­ast aftur.“

„Ég hjólaði í vinn­una einn dag­inn og tók tím­ann á mér og nið­ur­staðan var sú að ég hjóla hægar en ég hleyp, þannig að þú sérð að ég fer óskap­lega var­lega til að byrja með.“ Mynd/Unnur Magna

Einka­lífið á ekk­ert erindi við alþjóð
Ólafur á sjálfur tvær dætur og einn son, fram­fylgir hann jafn­rétt­is­hug­sjón sinni í upp­eld­inu á þeim?

„Ég reyni að hafa mun­inn á því hvernig ég el þau upp sem allra minnstan,“ segir hann og hlær við. „Ég tók fæð­ing­ar­or­lof með þeim öllum heima. Þegar sú elsta fædd­ist áttu feður reyndar engan rétt á orlofi, ég hálf­part­inn svindl­aði það út úr Árvakri sem var minn vinnu­veit­andi á þeim tíma. Rit­stjór­arnir Styrmir og Matthías og Hall­grímur Geirsson fram­kvæmda­stjóri voru sveigj­an­legir í samn­ingum eftir að þeir höfðu náð af sér undr­un­ar­svipnum yfir því að karl­maður væri að biðja um fæð­ing­ar­or­lof. Það að vera heima með litlu barni þýðir að maður teng­ist því með öðrum hætti en þegar maður hefur ekki það tæki­færi, þannig að mér finnst sam­band mitt við alla krakk­ana mína vera jafn­náið og reyni að veita þeim öllum sama upp­eldi og sömu hvatn­ingu og þann stuðn­ing sem ég mögu­lega get. Hitt er svo annað mál að það verður ekk­ert umflúið að kynin eru ólík og strák­ur­inn bara fleygði aftur í mann þessum dúkkum sem maður var að reyna að halda að honum og vildi fá sínar byssur. Ég veit ekki hvaðan það kom.“

Ólafur hefur það orð á sér að vera afskap­lega prí­vat maður og ekki mikið fyrir að flíka sínu einka­lífi, hefur það eitt­hvað breyst með breyttum áherslum í líf­inu?

„Ja, krakk­arnir mínir eru nú ekki endi­lega sam­mála því,“ segir hann glott­andi. „Þeim finnst ég svo dug­legur að birta myndir á Instagram þar sem hefur gleymst að spyrja hvort fólk væri búið að greiða sér og hafa sig til. En, jú jú, ég hef fengið til­boð um að ræða einka­lífið í smá­at­riðum í ein­hverjum blaða­við­tölum en það á ekk­ert erindi við alþjóð.“

„Í raun­inni hefur þetta fyllt mig af þakk­læti fyrir heils­una, lífið og það sem ég hef og ég tek hlut­unum síður sem sjálf­sögðum.“

Kór­söngur jákvæður fyrir lík­ama og sál
Eins og fram hefur komið segir Ólafur þá reynslu að ganga í gegnum erfið veik­indi með systrum sínum og lenda sjálfur í alvar­legu slysi hafa kennt sér að leggja áherslu á aðra hluti en fyrr, er inni­falið í þeirri áherslu­breyt­ingu að leggja meiri rækt við einka­lífið?

„Það má alveg segja það,“ segir hann ákveð­inn. „Það er orðið erfitt að ná mér á manna­mót vegna þess hvað mér finnst gaman að vera heima hjá mér með fjöl­skyld­unni. Eftir fjórtán ár á rit­stjóra­stóli, þar sem maður er eig­in­lega alltaf í vinn­unni, er líka stór­kost­legt að kom­ast að því að þegar maður á frí á kvöldin getur maður farið að rækta áhuga­málin eins og ég er far­inn að gera núna. Fyrir þremur árum fór ég að syngja með Söng­hópnum Spectrum. Ég hefði aldrei komið fyrir þriggja klukku­tíma kvöl­dæf­ingu í hverri viku og helg­a­ræf­ingum, tón­leikum og slíku með fram gamla starf­inu mínu sem rit­stjóri. Mér finnst þetta alveg óskap­lega skemmti­legt og það hefur gefið mér mikið. Ég hef alltaf haft mjög gaman af því að syngja og krakk­arnir mínir hafa haft orð á því að þau þyrftu að sæta því við messur á stór­há­tíðum að pabbi þeirra væri að reyna að yfir­gnæfa kór­inn. Ég hafði hins vegar ekki hug­mynd um að ég gæti sungið í kór fyrr en tveir æsku­vinir mínir, sem voru farnir að syngja með Spectrum, sögð­ust sjá á mér hvað mig lang­aði mikið til þess að vera með og hvöttu mig til að prófa. Þannig að ég lét til­leið­ast að syngja fyrir kór­stjór­ann og það satt að segja kom mér svo­lítið á óvart, að ég skyldi fá að vera með. Ég er afskap­lega ánægður með það enda marg­sannað mál að kór­söngur hefur jákvæð áhrif á bæði lík­ama og sál. Að mæta á æfingu og syngja í þrjá klukku­tíma þurrkar allar áhyggjur út eins og hendi sé veifað og maður verður alveg slakur. Það veitir sjálf­sagt ekk­ert af í mínu til­felli þar sem ofvirknig­enið er ansi sterkt í mér en sem betur fer er mér að lær­ast að taka líf­inu með ró.“

Og á þeim nótum sláum við botn­inn í sam­talið enda þarf Ólafur að halda vel á spöð­unum því það er ekki nóg með það að hann ætli að hlaupa hálf­mara­þon á laug­ar­dag­inn heldur mun hann einnig syngja með Spectrum í Lista­safni Íslands sem hluta af dag­skrá Menn­ing­ar­nætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins