„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kötturinn Óskar treystir því að ökumenn aki varlega og verndi lífríkið

Á Facebook síðu Sam­göngu­stofu má sjá kött­inn Óskar biðla til lands­manna að fara var­lega í umferð­inni. „ Hann, eins og aðrir kettir, er ekki hann­aður til að lúta umferð­ar­reglum,” segir í færsl­unni. „Hann treystir því algjör­lega á að öku­menn aki var­lega og verndi líf­ríkið.”

Kötturinn Óskar treystir því að ökumenn aki varlega og verndi lífríkið

Þór­hildur Elín Elín­ar­dóttir, sam­skipta­stjóri Sam­göngu­stofu, segir kettir vera klass­ískt dæmi um veg­far­endur sem til­einka sér ekki að fara eftir ann­arra manna reglum. „Við ákváðum að taka smá syrpu í aðdrag­anda þess­ara miklu ferða­helgi til að hvetja öku­menn til að fara var­lega,” segir Þór­hildur. Þannig hafi Óskar fengið þetta ágæta hlut­verk. „Sam­starfs­kona mín, hérna á Sam­göngu­stofu, er mamma hans. Þetta er því raun­veru­legur Óskar og hann býr raun­veru­lega í Hafn­ar­firði.”

„Hann er á til­völdum aldri til að vera alger vit­leys­ingur, en hann er það ekk­ert, ekk­ert frekar en aðrir kettir,” segir Þór­hildur en Óskar er rúm­lega eins og hálfs árs gam­all fress. „Hann fer bara sínar eigin leiðir og kærir sig ekk­ert um að það sé verið að reyna setja hömlur á það hvert hann fer og hvenær. Bara eins og aðrir kettir eru,” segir hún og bætir við að kettir eigi það til að skjót­ast undan bílum og ákveða í skyndi að fara hinum megin við göt­una.

Sam­göngu­stofa hefur einnig hvatt öku­menn til að var­ast nýfleyga fugls­unga og skyndi­á­kvarð­anir sauð­fés á veg­kant­inum. „Þessar þrjár dýra­teg­undir sem eru svo áber­andi hjá okkur, kettir, fuglar og kindur, koma sjálfum sér í stór­hættu af þekk­ing­ar­leysi en líka fólki sem er að keyra. Það er auð­vitað hættu­leg­ast að keyra á stærri dýr,” segir Þór­hildur en bætir við að til­finn­inga­lega tjónið getur líka verið mikið. „Að hafa orðið bani ein­hvers sem þú ætl­aðir ekki að gera.”

Kindur þekktar fyrir skyndiákvarðanir á vegkantinum

Þór­hildur segir hafa séð fyrir stuttu við­tal við lög­reglu­mann á Suð­ur­landi þar sem fjallað var um fjölda þeirra kinda sem verður fyrir bíl. „Lausa­ganga búfjár hefur nátt­úru­lega ýmsar afleið­ingar. Það að keyra á kind, það er auð­vitað lífs­hættu­legt fyrir kind­ina en það getur líka verið lífs­hættu­legt fyrir öku­mann­inn.”

„Kindur hafa þennan eig­in­lega að taka þessar skyndi­á­kvarð­anir. Þær eru öðru megin, svo nálg­ast bíll­inn og þá ákveða þær að forða sér með því að bruna yfir veg­inn. Sér­stak­lega getur þetta gerst ef að lambið hefur komið sér fyrir öðru megin við veg­inn og mamman hinum megin.” Þá vilja þau gjarnan sam­ein­ast ef að hætta steðjar að. Þá veit maður ekki hvor

Svona slys geta haft flókna og leið­in­lega eft­ir­mála. „Þetta er auð­vitað hrika­legt fyrir skepn­urnar, þetta er tjón fyrir bónd­ann en síð­ast en ekki síst er þetta stór­hættu­legt fyrir öku­mann­inn. Það að keyra á sauð­kind er meiri­háttar hættu­legt. Missa stjórn á öku­tæk­inu, slasa sig bara við árekst­ur­inn og svo er þetta líka tjón á öku­tæk­inu. Þetta er allra tjón,” segir Þór­hildur.

„Ungir vegfarendur” sem bregða ökumönnum

Guðrún Lára Pálma­dóttir, umhverf­is­fræð­ingur á Hell­issandi, hefur talað um slysa­hættur sem fylgja fugls­ungum sem flögra í veg­kant­inum. „Hún benti á það um dag­inn hversu margir Kríu­ungar yrðu fórn­ar­lömb umferð­ar­slysa. Það væri keyrt á unga sem væru að taka sín fyrstu flug­tök, segir Þór­hildur og bætir við: „Við getum kallað þá unga veg­far­endur. Þetta er auð­vitað þeim dauða­dómur og svo er þetta líka gríð­ar­lega hættu­legt fyrir öku­menn af því að þeir fip­ast þegar þeir verða fyrir því að keyra á fugl.” 

Ekki er vitað hversu stórt hlut­fall þess­ara unga verða fyrir bílum en Þór­hildur vitnar í Guðrúnu Láru: „Hún telur að þetta sé í þús­unda­vís. Allavega á þessum litla veg­a­spotta þarna í Kríu­varp­inu milli Hellisands og Rifs.” Vega­lengdin milli bæj­anna eru tæpir þrír kíló­metrar. „Við getum gert ráð fyrir því að þetta séu mikil afföll.”

Grundvallaratriði að hægja ferðina

„Ef það er gróður ein­hvers­staðar í grennd að þá veitir manni ekk­ert af því að hafa athygl­ina á svona skyndi­hug­dettum þess­ara dýra sem eru á ferð­inni.” Hún bendir á að mik­il­vægt sé að hafa athygl­ina í lagi en grund­vall­ar­at­riðið er að hægja ferð­ina. „Ef að fólk er á milli ferð að þá er ráð­rúmið til að bregð­ast við eig­in­lega nán­ast ekki neitt.” 

„Fólk heldur oft að það sé að spara sér tíma með því að keyra greitt. Raun­veru­leik­inn er sá að það spar­ast mjög lít­ill tími við að keyra yfir hámarks­hraða. Sum­staðar eru aðstæður þannig að þó að hámarks­hraði sé 90 að þá er ástandið þannig á veg­inum, jafn­vel þó að veðrið sé gott og skyggnið sé gott og veg­ur­inn þurr, þá getur ástandið verið þannig að það býður ekki upp á að fólk nýti sér hámarks­hrað­ann.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samgöngustofa

Ríflega helmingur ökumanna notar síma undir stýri – Sláandi niðurstöður Samgöngustofu
Innlent

Ríflega helm­ingur öku­manna notar síma undir stýri – Sláandi nið­ur­stöður Sam­göngu­stofu

Rúmlega fjórð­ungur Íslend­inga lætur síma­notkun ann­arra í umferð­inni trufla sig mikið en nota samt sjálf sím­ann undir stýri. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup fyrir Sam­göngu­stofu sem fram­kvæmd var í júní 2024. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Sam­göngu­stofu. Í maí ýttu Sjóvá og Sam­göngu­stofa úr vör her­ferð­inni Ekki taka skjá­hætt­una. Markmið hennar er að vekja athygli á þeirri hættu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins