„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tugir skammbyssna fluttar til landsins það sem af er ári

Fram­kvæmda­stjóri Skot­fé­lags Reykja­víkur segir stíf­ara reglu­verk skorta í tengslum við skot­vopn á Íslandi.

Tugir skammbyssna fluttar til landsins það sem af er ári
|Guð­mundur Kr. Gíslason

Markskot­fimi með skamm­byssum er íþrótta­grein sem notið hefur vax­andi vin­sælda á Íslandi und­an­far­inn ára­tug. Sífellt fleiri skamm­byssur eru fluttar inn til lands­ins undir þeim for­merkjum að nota þær til íþrótta­iðk­unar en engin krafa er gerð um að stunda íþrótt­ina til að halda byssu­leyf­inu eins og þekk­ist víða erlendis.

Guð­mundur Kr. Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Skot­fé­lags Reykja­víkur.

Guð­mundur Kr. Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Skot­fé­lags Reykja­víkur (SR), stað­festir í sam­tali við Mannlíf að skamm­byssu­skot­fimi hafi átt sívax­andi vin­sældum að fagna und­an­farin ár. Aðspurður um hversu margar skamm­byssur hafi verið fluttar inn til einka­eignar það sem af er þessu ári kveðst hann ekki vera með nákvæmar tölur um það fyrir framan sig. „Það eru vafa­laust ein­hverjar 40-50 skamm­byssur,“ giskar hann á.

Guð­mundur útskýrir fyrir blaða­manni að til þess að ein­stak­lingur geti fengið heim­ild til þess að flytja inn og eign­ast skamm­byssu þurfi við­kom­andi að hafa fyrir hefð­bundið skot­vopna­leyfi, svo­kallað A-leyfi, áður en sótt er um B-leyfi sem veiti heim­ild til að eign­ast skamm­byssu. „Við þurfum að stað­festa það hjá klúbb­unum að við­kom­andi hafi verið hjá okkur í tvö ár hið minnsta og með flekklausan feril. Þá er hægt að fá heim­ild til þess að eign­ast skamm­byssu sem upp­fyllir skil­yrði íþrótta­hreyf­ing­ar­innar, sem lög­reglan setur,“ útskýrir hann.

„Áður fyrr var skamm­byssu­eign mjög lítil en nú eru menn farnir að sækja meira og meira í þetta.“

Guð­mundur segir jafn­framt að það sem af er þessu ári hafi verið fluttar inn á bil­inu 10-12 skamm­byssur eftir upp­á­skrift frá Skot­fé­lagi Reykja­víkur.

Aðspurður hvort ein­hverjar kröfur séu gerðar um það að eig­endur slíkra vopna séu áfram virkir iðk­endur í skot­fé­lagi segir hann svo ekki vera. „Nei, eftir að menn hafa eign­ast byss­urnar er ekki gerð krafa um það þó að við séum ekki sam­mála því margir hverjir,“ segir Guð­mundur og tekur Noreg sem dæmi um land sem er með gott reglu­verk í kringum byssu­eign.

„Það er skylda víða, meðal ann­ars í Noregi þar sem leyfi­legt er að eiga skamm­byssu en þar er krafa gerð um að menn verði að mæta á við­ur­kennd skot­svæði í það minnsta mán­að­ar­lega til þess að halda leyf­inu,“ útskýrir hann og lætur í veðri vaka að þörf sé á að end­ur­skoða reglu­verkið á Íslandi.

„Það hefur ekki komið til þess á Íslandi að setja sam­bæri­legar reglur. Reglu­verkið var mjög stíft hér á árum áður en það var losað um það fyrir ein­hverjum tíu árum. Áður fyrr var skamm­byssu­eign mjög lítil en nú eru menn farnir að sækja meira og meira í þetta. Við nátt­úr­lega megum bara eiga vopn sem henta í markskot­fimi. Við megum t.d. ekki flytja inn og eiga 9 mm skamm­byssur eins og lög­reglan notar í dag. Byss­urnar sem við flytjum inn eru 22 kalí­bera hálf­sjálf­virkar, eða rúllur svo­kall­aðar, og svo upp að 38 special sem er grófa byssan, þar eru tvö kalí­ber aðal­lega notuð; 32 og 38,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlíf 26. tbl 2019

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins