„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þetta eru varnarbrögð þess sem telur sér ógnað“

Það hefur gustað hressi­lega um Ragnar Þór Ing­ólfs­son síðan hann tók við emb­ætti for­manns VR. Hann hefur verið kall­aður öllum illum nöfnum, ásak­aður um ein­ræð­istil­burði og ofstæki. Nú síð­ast í leið­ara nýráð­ins rit­stjóra Frétta­blaðs­ins. Í Mannlífi í dag svarar Ragnar meðal ann­ars þessum ásök­unum af fullum krafti.

„Þetta eru varnarbrögð þess sem telur sér ógnað“

Það hefur gustað hressi­lega um Ragnar Þór Ing­ólfs­son síðan hann tók við emb­ætti for­manns VR fyrir tveimur árum. Hann hefur verið kall­aður öllum illum nöfnum, ásak­aður um ein­ræð­istil­burði og ofstæki og að setja per­sónu­leg mark­mið ofar hags­munum félags­manna. Síðasta dæmið um þetta er leið­ari nýráð­ins rit­stjóra Frétta­blaðs­ins, Davíðs Stef­áns­sonar, þann 1. júlí síð­ast­lið­inn þar sem ráð­ist er harka­lega að Ragnari fyrir þá ákvörðun full­trúa­ráðs VR að skipta út öllum full­trúum VR í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna (LIVE) í kjöl­far þeirrar ákvörð­unar stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins að hækka breyti­lega vexti. Ragnar svar­aði þessum ásök­unum í langri færslu á Facebook þar sem hann sagði meðal ann­ars að með þessum leið­ara hefði Davíð stimplað sig ræki­lega inn sem lobbí­ista sem allir sjá í gegnum.

Hvað á hann við með þeim orðum?

„Það þarf því ekki að koma neinum á óvart að hann ráð­ist að minni per­sónu til að gera bar­áttu VR fyrir því að losa um þessi ítök tor­tryggi­lega.“

„Davíð var ráð­inn rit­stjóri Frétta­blaðs­ins eftir að Helgi Magn­ús­son fjár­festir keypti helm­ings­hlut í blað­inu,“ segir Ragnar og heldur áfram. „Helgi er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna og einn af þeim sem stóð fyrir því að sjóð­ur­inn lagði háar upp­hæðir í Silicor Mater­i­als í gegnum félagið Sunnu­velli sem áður­nefndur Davíð Stef­áns­son stýrði. Stefnan var að reisa kís­il­verk­smiðju í Hval­firði sem svo aldrei varð og millj­arðar hafa tap­ast án þess að skóflu væri stungið í jörðu. Þetta er eitt ótelj­andi dæma um skað­væn­leg áhrif ítaka atvinnu­rek­anda í líf­eyr­is­sjóð­unum og það eru þau ítök sem Davíð og fleiri lobbí­istar atvinnu­rek­anda eru ráðnir til að standa vörð um. Það þarf því ekki að koma neinum á óvart að hann ráð­ist að minni per­sónu til að gera bar­áttu VR fyrir því að losa um þessi ítök tor­tryggi­lega. Það hefði komið meira á óvart ef hann hefði ekki gert það.“

Út í hött að tala um strengjabrúður

Davíð er ekki sá eini sem hefur gagn­rýnt þá ákvörðun full­trúa­ráðs VR að skipta full­trúum í stjórn LIVE út. Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, segir ákvörðun VR um að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna félags­ins í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna vera grafal­var­legt mál. Fjár­mála­eft­ir­litið hljóti að kanna lög­mæti inn­grips VR. Þá segir Helgi Vífill Júl­í­us­son, blaða­maður Mark­að­ar­ins, það hættu­legt að Ragnar Þór og sam­starfs­menn hans geti skipt út hálfri stjórn líf­eyr­is­sjóðs þegar þeim hentar. Hvernig þykir Ragnari að sitja undir þessum full­yrð­ingum?

„Þessar full­yrð­ingar eru auð­vitað af sama toga og leið­ari Davíðs,“ segir Ragnar. „Ítökum atvinnu­rek­anda í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins er ógnað og þá stökkva lobbí­istar þeirra til varnar. Þetta er ekki svara­vert, það er ekk­ert í lögum sem bannar full­trúa­ráð­inu að aft­ur­kalla umboð full­trú­anna í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins og lög og reglur VR styðja full­kom­lega við okkur í þessu máli, að halda því fram að tutt­ugu af þeim tutt­ugu og fjórum full­trúum sem mættu á fund full­trúa­ráðs­ins þar sem þessi ákvörðun var tekin séu strengja­brúður mínar er auð­vitað gjör­sam­lega út í hött. Það sér hvert manns­barn. Þetta eru varn­ar­brögð þess sem telur sér ógnað.“

Það hlýtur samt að vera erfitt að sitja undir þessum árásum, hefur þetta ekki gengið nærri þér?

„Ég tek þetta ekki per­sónu­lega, fjarri því,“ segir Ragnar. „Ég vissi það þegar ég gaf kost á mér í þetta starf að því fylgdi mikið áreiti og alls konar per­sónu­legar sví­virð­ingar. Ég hefði ekki tekið þennan slag ef ég hefði ekki treyst mér til að taka áreit­inu. En þetta reynir vissu­lega stundum á, ég neita því ekki. Aðallega það að áreitið tekur aldrei enda. Maður er í vinn­unni allan sól­ar­hring­inn. Ég er kannski í helg­ar­ferð í sum­ar­bú­stað með fjöl­skyld­unni þegar eitt­hvert mál sem fjöl­miðlar hafa áhuga á kemur upp og það endar með því að ég er í sím­anum að svara spurn­ingum blaða­manna meiri­hluta ferð­ar­innar. Og ef ég er ekki í sím­anum er ég að hugsa um eitt­hvað sem þarf að takast á við og ekki almenni­lega til staðar fyrir börnin mín þótt ég sé á staðnum. Það þykir mér leið­in­legt.“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son hefur, frá því að hann tók við sem for­maður VR, verið kall­aður öllum illum nöfnum, ásak­aður um ein­ræð­istil­burði og ofstæki og að setja per­sónu­leg mark­mið ofar hags­munum félags­manna.

Ragnar er kvæntur Guð­björgu Ingunni Magn­ús­dóttur og fimm barna faðir. Hefur þetta áreiti ekk­ert bitnað á fjöl­skyld­unni? Hafa börnin til dæmis orðið fyrir áreiti vegna fram­göngu föður þeirra?

„Þetta bitnar auð­vitað á fjöl­skyld­unni á þann hátt sem ég lýsti hér að framan,“ segir Ragnar. „Ég er lítið til staðar. En þau hafa ekki orðið fyrir neinu aðkasti, síður en svo. Við finnum miklu meira fyrir því að fólk er ánægt með það sem við í VR erum að gera og þakk­látt fyrir það að við tökum slag­inn. Það er mik­ill með­byr með starfi okkar og ég finn fyrir gríð­ar­lega jákvæðum straumum frá félags­mönnum í VR og öðrum laun­þegum. Það gerir þetta allt saman þess virði að standa í því.“

Byrjaði að skoða lífeyrissjóðina 2007

Það var í bús­á­halda­bylt­ing­unni eftir hrunið 2008 sem Ragnar varð áber­andi í bar­átt­unni. Spurður hvað hann hafi verið að gera fram að því, hvort hann hafi alltaf verið á kafi í verka­lýðs­bar­átt­unni á bak við tjöldin, hlær hann og segir: „Nei, alls ekki. Ég hafði nákvæm­lega engan áhuga á póli­tík og verka­lýðs­bar­áttu þegar ég var yngri, fannst það ekki koma mér við. Það var ekki fyrr en 2007 þegar eig­in­maður frænku minnar varð bráð­kvaddur í veiði­ferð sem við vorum saman í að ég fór að velta þessu fyrir mér í alvöru og rak í rogastans yfir því hvað líf­eyr­is­sjóða­kerfið og sam­trygg­ingin, sem við höfum stært okkur af, er veik­burða. Ég fór að átta mig á að líf­eyr­is­sjóða­kerfið var ekki það bak­land sem ég taldi það vera. Ég byrj­aði að lesa mér til um kerfið, hvernig rétt­indin verða til, hvernig þau eru reiknuð og á end­anum skildi ég nákvæm­lega hvernig kerfið virk­aði, hverjir stjórna því og bera ábyrgð á því.

Eftir það fór ég að taka virkan þátt í bar­átt­unni. Ég skrif­aði greinar og blogg­aði, tók þátt í mót­mæla­fund­unum í kjöl­far hruns­ins. Bauð mig fram í stjórn VR 2009 og var einn af þeim sem kom inn í stjórn­ina eftir hall­ar­bylt­ing­una svoköll­uðu, sat í stjórn­inni í átta ár og ákvað að þeim loknum að bjóða mig fram sem for­maður. Ég hafði sjálfur staðið fyrir að koma því inn í lög félags­ins að stjórn­ar­fólk mætti ekki sitja lengur en í átta ár og það var því spurn­ing um að hætta að vera virkur í stjórnun VR eða taka for­manns­slag­inn.

Mér var í raun­inni alveg sama þótt ég tap­aði í kosn­ing­unni til for­manns, ég hefði bara aldrei orðið sáttur við það að henda inn hand­klæð­inu af sjálfs­dáðum og vildi frekar láta kjósa mig út en það end­aði sem sagt með því að ég náði kosn­ingu og hef verið for­maður VR síðan.“

Trommusett í stað rítalíns

Ragnar er alinn upp í Breið­holt­inu, gekk í Hóla­brekku­skóla og síðan í Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti en hann segir nám ekki hafa átt við sig svo hann lauk ekki stúd­ents­prófi. Áhuginn á félags­starfi var þó strax til staðar á skóla­ár­unum og hann seg­ist hafa verið mjög virkur í félögum skól­anna en póli­tík hafi hins vegar verið honum óra­fjarri.

„Ég held að einu afskipti mín af póli­tík á skóla­ár­unum hafi verið þegar ein­hverjir félagar mínir voru að safna liði fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og buðu upp á ókeypis ham­borg­ara og bjór ef maður skráði sig í flokk­inn,“ segir hann og skelli­hlær. „Annars var fátt fjær mér en að hugsa um stjórn­mál. Hvorki pabbi né mamma voru virk í póli­tík eða verka­lýðs­bar­áttu og maður var bara ekk­ert að hugsa um þessi mál. Ég varð hins vegar mjög snemma andsnú­inn kerf­inu og ákvað að hætta í skól­anum fyrir stúd­ents­próf og fara að vinna.

Í stað þess að lesa skóla­bæk­urnar fór ég að lesa alls kyns skrif um allt mögu­legt, en það var ekki fyrr en ég las dokt­ors­rit­gerð Herdísar Drafnar Bald­vins­dóttur, Valda­netið á Íslandi: Þversögn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, sem hún skrif­aði á ensku og varði við Lancaster Uni­versity á Englandi 1998, sem eitt­hvað small í höfð­inu á mér og mér fannst ég hafa eign­ast sálu­fé­laga.

Þar sýnir hún fram á að starf­semi líf­eyr­is­sjóð­anna hafi inn­limað verka­lýðs­hreyf­ing­una í þennan valda­kjarna með útbreiddu sam­tengineti bæði per­sónu­legu og fjár­hags­legu – og í sam­tengdum stjórn­un­ar­stöðum. Kannski var þar lagður grunn­ur­inn að því sem ég er að gera í dag án þess að ég átt­aði mig á því þá, alla­vega var það stór­kost­leg upp­lifun að finna ein­hvern sem leit þetta kerfi sömu augum og ég.

Herdís var auð­vitað úthrópuð og fékk yfir sig flaum sví­virð­inga frá atvinnu­rek­endum og tals­mönnum þeirra, var kölluð doktor í mis­skiln­ingi og ég veit ekki hvað og hvað, en allt sem hún segir í þess­ari rit­gerð er satt og það hefur ekk­ert breyst síðan. Þrátt fyrir hrunið og allt sem þetta kerfi hefur leitt yfir þjóð­ina hefur því ekki verið haggað og það ætti því ekki að koma neinum á óvart að þeir sem hafa hag af því að við­halda því bregð­ist hart við þegar reynt er að brjóta það á bak aftur. Það hjálpar mér að halda ró minni gagn­vart þessum ásök­unum lobbí­ist­anna.“

„Ég var óskap­lega aktíft barn. Mjög ör og óstýri­látur og hefði örugg­lega fengið alls kyns grein­ingar ef það hefði verið til siðs á þeim árum að senda börn í þær.“

Það voru ekki bara félags­störfin sem áttu hug Ragnars á skóla­ár­unum, hann fór að spila á trommur, sem hann gerir enn þá, og hellti sér út í tón­list­ina af sama krafti og hann tekst á við allt annað. Hann segir trommu­leik­inn hafa hjálpað sér gríð­ar­lega á þessum árum.

„Ég var óskap­lega aktíft barn,“ segir hann. „Mjög ör og óstýri­látur og hefði örugg­lega fengið alls kyns grein­ingar ef það hefði verið til siðs á þeim árum að senda börn í þær. Ég hef stundum sagt í gríni að í stað­inn fyrir ríta­lín hafi ég fengið trommu­sett og það hafi haft sömu áhrif. Ég fékk útrás við tromm­urnar, var í hljóm­sveit og var bara nokkuð góður trommu­leik­ari, þótt ég segi sjálfur frá. Ég spila oft enn og það er alltaf jafn­gaman og gef­andi. Ég held líka að trommu­leik­ur­inn hafi að sumu leyti und­ir­búið mig fyrir for­mennsk­una í VR. Trommu­leik­ari verður að vera stöð­ugur og snöggur og pínu­lítið hvat­vís og algjör­lega með hug­ann við það sem hann er að gera.“

Hjólreiðar eru hugleiðsla

Eftir að hafa hætt í Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti fór Ragnar fljót­lega að vinna hjá reið­hjóla­versl­un­inni Erninum, þar sem hann vann í tutt­ugu og fimm ár, og þar kynnt­ist hann og heill­að­ist af hjól­reiðum sem hann segir að virki eins og hug­leiðsla fyrir sig og hjálpi sér að hreinsa hug­ann og losna við áreitið sem starf­inu fylgir.

„Árin mín hjá Erninum voru mjög góð og ég lít enn á starfs­fólkið þar sem mína aðra fjöl­skyldu,“ segir hann og það er hlýja í rödd­inni, greini­legt að hann meinar það sem hann segir. „Þegar ég var að vinna þar fór ég að hjóla og ég hjóla enn mjög mikið. Það er fátt sem hreinsar hug­ann betur og að mínu áliti eru hjól­reiðar teg­und af hug­leiðslu. Ég hef reyndar líka farið í hug­leiðslu­hjóla­ferð,“ bætir hann við og brosir. „Konan mín hjólar líka mikið og flestar bestu sam­veru­stundir fjöl­skyld­unnar snú­ast um úti­vist og ferða­lög, að loka hvers­dag­sam­strið úti og njóta sín í nátt­úr­unni. Það eru bestu stund­irnar.“

„Ég geri mér fulla grein fyrir því að eftir að ég hætti sem for­maður VR verður staða mín á atvinnu­mark­aði ekki beysin, þessi styr sem hefur staðið um mína per­sónu er ekki beint til þess fall­inn að gera mann eft­ir­sóttan af atvinnu­rek­endum,“ segir Ragnar Þór.

Árið 2013 gaf Ragnar kost á sér í alþing­is­kosn­ingum og var í fyrsta sæti á lista Dögunar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Heillar póli­tíkin hann enn þá og sér hann fyrir sér að setj­ast á þing þegar starfi hans sem for­maður VR lýkur?

„Ertu alveg frá þér?“ spyr hann hneyksl­aður á þess­ari spurn­ingu. „Heldurðu að starf í íslenskri póli­tík heilli nokkra heil­vita mann­eskju? Ég horfi á útsend­ingar frá Alþingi og vor­kenni ves­al­ings fólk­inu sem vinnur þar að þurfa að vinna í þessu starfs­um­hverfi, það er alveg skelfi­legt. Þannig að svarið við þess­ari spurn­ingu er nei. Hins vegar hef ég áhuga á því að halda áfram að berj­ast fyrir rétt­indum vinn­andi fólks í land­inu eftir að starfi mínu hér er lokið, ég veit bara ekki alveg enn þá á hvaða vett­vangi. Ég geri mér fulla grein fyrir því að eftir að ég hætti sem for­maður VR verður staða mín á atvinnu­mark­aði ekki beysin, þessi styr sem hefur staðið um mína per­sónu er ekki beint til þess fall­inn að gera mann eft­ir­sóttan af atvinnu­rek­endum. Konan mín er sömu­leiðis mjög með­vituð um þetta, við höfum rætt það, en það kemur bara í ljós þegar þar að kemur hvað ég fer að gera, ég hef ekki áhyggjur af því í dag.“

„Ertu alveg frá þér? Heldurðu að starf í íslenskri póli­tík heilli nokkra heil­vita mann­eskju?“

Baráttunni lýkur aldrei

Hefur Ragnar hugsað sér að sitja lengi í for­manns­sæti VR eða er hann far­inn að hugsa sér til hreyf­ings?

„Ég á ekki von á því að ég verði for­maður lengi, nei,“ segir hann. „Þetta hefur verið stór­kost­legt, sér­stak­lega að vinna með öllu þessu góða fólki sem er með mér í stjórn­inni svo ég tali nú ekki um starfs­fólkið okkar sem er algjör­lega frá­bært. En þetta er ekki starf sem fólk á að vera lengi í. Það er auð­velt að brenna út og missa sjónar á því sem skiptir máli. Maður hefur séð fjöl­marga sem maður batt vonir við sem von­ar­stjörnur íslenskrar verka­lýðs­bar­áttu verða samdauna spill­ing­unni og missa sjónar á mark­mið­unum. Það er svo auð­velt að ber­ast með straumnum og leið­ast út í eitt­hvað sem sam­ræm­ist ekki þeim mark­miðum sem fólk hafði í upp­hafi. Þess vegna reyndi ég að koma því í gegn að setja það í lög VR að fólk gæti ekki setið í stjórn félags­ins lengur en í átta ár og það sama gildir auð­vitað um for­mennsk­una. Þannig að ég verð ekki hér lengur en átta ár hvernig sem allt velt­ist. Hef reyndar ekki trú á því að ég verði mjög lengi í við­bót, kannski bara þessi tvö ár. Hins vegar brennur enn í mér neist­inn til að berj­ast fyrir bættum hag launa­fólks og á meðan hann lifir held ég áfram, hvort sem það verður í þessu starfi eða ein­hverju öðru.“

„Ég á ekki von á því að ég verði for­maður lengi, nei.“

Eru ein­hver sér­stök bar­áttu­mál sem þú vilt koma í höfn áður en þú hættir?

„Koma í höfn?“ spyr Ragnar og það hnussar svo­lítið í honum. „Baráttan fyrir rétt­indum launa­fólks tekur aldrei enda. Þótt eitt­hvað ávinn­ist verður maður stöðugt að vera vak­andi og halda áfram að berj­ast fyrir því að það verði ekki tekið af okkur aftur. Við erum svo oft búin að horfa upp á það að þau rétt­indi sem hafa áunn­ist með bar­áttu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafa verið hunsuð og gerð að engu. Líf­eyr­is­sjóða­málin eru til dæmis besta dæmið um það. Þau ítök sem atvinnu­rek­endur hafa náð innan sjóð­anna eru engan veg­inn ásætt­an­leg og það hlýtur að vera mark­mið okkar að losa sjóð­ina undan því oki. Og miðað við þessi við­brögð lobbí­ist­anna sem við vorum að tala um í upp­hafi þá erum við greini­lega á réttri leið í þeirri bar­áttu, það gefur manni von.

„Maður hefur séð fjöl­marga sem maður batt vonir við sem von­ar­stjörnur íslenskrar verka­lýðs­bar­áttu verða samdauna spill­ing­unni og missa sjónar á mark­mið­unum.“

Það er líka margt fleira sem ég vil sjá breyt­ast á meðan ég er hér. Skerð­ingar á líf­eyri aldr­aðra og öryrkja vegna sam­spils líf­eyr­is­sjóð­anna og Trygg­inga­stofn­unar eru til dæmis hneyksli og það verður að koma því í gegn að þær verði lagðar af.

Hús­næð­is­málin eru öll í ólestri, það er gjör­sam­lega ömur­legt að fólk sem er á leigu­mark­aði þurfi ann­að­hvort að borga meiri­hlut­ann af tekjum sínum í húsa­leigu eða leigja eitt her­bergi með sam­eig­in­legri snyrt­ingu og hafa enga mögu­leika á að bjóða börnum sínum mann­sæm­andi umhverfi.

Og svo er það spill­ingin innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru stærstu eig­endur fast­eigna­lána á Íslandi. Þeir eru stærstu eig­endur smá­sölu­versl­unar og þjón­ustu fyr­ir­tækja hér á landi. Það þýðir að sjóð­irnir hafa beinan og óbeinan hag af háu leigu­verði, háu hús­næð­is­verði, háum vöxtum sem og verð­trygg­ingu. Sjóð­irnir hafa líka hag af lágum launum og hárri álagn­ingu.

Við erum því orðin þrælar eigin kerfis sem þver­tekur fyrir að koma að sam­fé­lags­legri upp­bygg­ingu inn­viða sam­fé­lags­ins öðru­vísi en að græða sem mest á því. Það er vita­skuld gjör­sam­lega óásætt­an­legt og þeirri bar­áttu þarf að halda áfram af fullum krafti, hvort sem það verður á meðan ég sit í for­manns­sæt­inu eða ekki. Við þurfum að halda áfram að berj­ast hvernig sem allt velt­ist.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlíf 26. tbl 2019

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins