„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Púðursykursmarensinn hennar ömmu

Ljúf­fengur mar­ens með döðlum, súkkulaði og rjóma.

Púðursykursmarensinn hennar ömmu
Ljúf­fengur mar­ens. Góð upp­hitun fyrir köku­blað Gest­gjafans

Ég hef spurt þónokkra í kringum mig hvort þeir hafi orðið varir við mar­enskökur á ferða­lögum sínum um heim­inn. Svarið er eig­in­lega alltaf nei eða að það hafi alla vega ekki verið mjög áber­andi. Því fór ég að velta fyrir mér hvort mar­ens­á­hugi og -ást sé eitt­hvað sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri. Um það er erfitt að full­yrða en það er alveg á hreinu að mar­ens er engu að síður mjög vin­sæll á Íslandi. Varla er haldin íslensk veisla án þess að skellt sé í mar­ens og borin fram girni­leg og góm­sæt mar­en­sterta. Það var þessi ein­staki áhugi land­ans á mar­ens sem varð einmitt kveikjan að gerð þessa mar­ens.

3 botnar

150 g eggja­hvítur (4 stk.), við stofu­hita
½ tsk. salt
360 g púð­ur­sykur (4 dl)
1 tsk. lyfti­duft
½ tsk. edik
100 g döðlur, skornar smátt
100 g suðusúkkulaði, saxað smátt
500 ml rjómi, þeyttur

Hitið ofn­inn á 150°C. Und­ir­búið bök­un­arplöt­urnar með því að setja á þær bök­un­ar­pappír og strikið hringi til að nota sem skapa­lón. Setjið eggja­hvít­urnar í hræri­vél­ar­skál­ina ásamt salt­inu og lyfti­duft­inu og byrjið að þeyta á miðl­ung­hraða.

Þegar þær eru byrj­aðar að freyða ágæt­lega, eftir 2–3 mín. hækkið þá hrað­ann og setjið syk­ur­inn saman við í 3–5 skömmtum og þeytið vel í á milli. Heild­ar­tím­inn á þeyt­ing­unni er um 10–13 mín. En þegar mar­ens­deigið er orðið glans­andi og stífir toppar farnir að mynd­ast er það til­búið. Púð­ur­sykur er gróf­ari en hvítur sykur og leys­ist verr upp en það er í lagi hér. Bætið edik­inu við og hrærið áfram.

Að lokum blandið þið saxaða súkkulað­inu og döðl­unum var­lega saman við. Setjið deigið á bök­un­arplöt­urnar og bakið í 60–90 mín. Takið út úr ofn­inum og látið kólna. Geymið í plast­poka þangað til þið setjið saman. Látið þeyttan rjóma á milli, ásamt súkkulaðisósu og skreytið með döðlum og súkkulaði.

Súkkulaðisósa

Hér er líka hægt að nota til­búna
súkkulaðisósu
200 g suðusúkkulaði
400 ml rjómi
½ tsk. salt

Hitið rjómann í potti að suðu og bætið súkkulað­inu og salt­inu saman við. Látið standa í 4 mín. Hrærið vel saman.

Texti / Gunnar Helgi Guð­jóns­son
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður