Ofnbakaður lax með grískri jógúrt og dilli
fyrir 4
Í þennan rétt er líka tilvalið að prófa að setja sýrðan rjóma eða kotasælu í staðinn fyrir eða með grísku jógúrtinni. Léttur réttur sem passar vel t.d. með góðu kúskúsi. Hann er ekki síður góður kaldur daginn eftir.
1 lítið laxaflak (700-800 g)
gróft sjávarsalt
nýmalaður svartur pipar
1-2 greinar ferskt dill, saxað
safi úr ½ sítrónu
Hitið ofn í 180°C. Snyrtið laxaflakið og setjið í eldfast mót eða á bökunarplötu. Stráið salti og pipar á fiskinn og dreifið fersku dilli yfir, ásamt sítrónusafa.
Smyrjið sósunni jafnt yfir flakið og bakið í 15 mín.
Takið þá laxinn úr ofninum og látið hann standa í 5 mín. áður en hann er borinn fram, þannig eldast hann aðeins áfram.
Sósa:
2 dl grísk jógúrt
1 hvítlauksgeiri
1 msk. dijon-sinnep
½ rauðlaukur, fínt saxaður
2-3 greinar ferskt dill, fínt saxað
gróft sjávarsalt
nýmalaður svartur pipar
Blandið öllu saman og bragðbætið með salti og pipar.
Umsjón: Kristín Dröfn Einarsdóttir
Myndir: Aldís Pálsdóttir
Stílisti: Ólöf Jakobína Ernudóttir





















Athugasemdir