„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kolfallinn fyrir súrsuðu grænmeti

Senni­lega eru ekki margir ungir menn að fikta við að súrsa græn­meti heima hjá sér á kvöldin en það gerir hann Grettir Gautason. Grettir hefur verið að prófa sig áfram í gerð súrs­aðs græn­metis síð­ustu ár og er eig­in­lega kol­fall­inn fyrir þeirri iðju, að hans sögn.

Kolfallinn fyrir súrsuðu grænmeti
|sdk­djs|„Eitt snið­ugt ráð er að eiga til vökvann í súrs­aða lauk­inn í 2 lítra plast­flösku. Þá er ein­falt að setja lauk­inn í vökvann að morgni eða um hádegi ef á að grilla t.d.ham­borg­ara um kvöldið

Við fréttum af þessu skemmti­lega áhuga­máli og fengum að koma í heim­sókn og smakka. Grettir gefur les­endum upp­skriftir að ein­földu súr­suðu græn­meti sem tekur enga stund að gera, kostar lítið og allir geta gert.

„Margir veit­inga­staðir voru með heilu vegg­ina af krukkum af alls­konar súr­suðu græn­meti.“

En hvernig hófst þessi áhugi? „Það var þegar við félag­arnir fórum í tveggja vikna ferða­lag til Austur-Evrópu haustið 2016. Fyrsti við­komu­stað­ur­inn var Varsjá og það gerð­ist eitt­hvað á fyrsta veit­inga­staðnum sem við fórum á. Við pönt­uðum okkur snit­sel og bjór og svo átti að vera salat með. Þegar sal­atið kom rákum við upp stór augu því allt sal­atið var ekki annað en 2 msk. af rifnum súr­suðum gul­rótum. En við átum þetta með bestu lyst og fórum strax að spá í hvernig þetta væri gert. Við fórum til staða eins og Krakár, Búdapest, Vínar, Prag og Berlínar og fengum okkur alltaf eitt­hvað súrsað á hverjum stað, eins og gúrkur, gul­rætur, lauk, perlu­lauk, hvít­lauk og papriku. Margir veit­inga­staðir voru með heilu vegg­ina af krukkum af alls­konar súr­suðu græn­meti,“ segir Grettir.

Grettir hefur verið að prófa sig áfram í gerð súrs­aðs græn­metis síð­ustu ár.

Það kom fljót­lega í ljós að fyrir utan að kunna að súrsa græn­meti er Grettir mik­ill mat­gæð­ingur og sá sem fær að hafa völdin í eld­hús­inu heima hjá sér.

„Þegar ég fór að leigja mér á mennta­skóla­ár­unum og þurfti að bjarga mér sjálfur, voru það nú bara hakk­réttir og til­búnir réttir sem lentu á pönn­unni en eftir að ég fór að búa með kærust­unni minni fór ég að elda fyrir alvöru. Ég er reyndar alinn upp við mikla og góða elda­mennsku frá mömmu sem alltaf er að prófa eitt­hvað nýtt og hef því lært mikið af henni.“

Súrsað chili-aldin

2 ½ -3 dl ferskt chili-aldin, skorið niður í frekar smáa bita
1 msk. salt
1 msk. sykur
1-2 hvít­lauks­geirar, smátt saxaðir, fer eftir hversu mikið bragð hver vill
hvítvín­sedik eftir þörfum
1 með­al­stór gler­krukka með loki

Setjið chili-aldin í skál ásamt salti, sykri og hvít­lauk. Kreistið saman með fingr­unum. Gott að nota einnota hanska en ef þeir eru ekki við hend­ina er gott að muna að þvo sér vel um hend­urnar. Hellið yfir það ediki þannig að það fljóti yfir og látið standa í 2 klst. við stofu­hita.

Grettir segir okkur frá því að gott sé að hafa súrsað í partíum, t.d. gúrkur og chili, því saltið í leg­inum virki vel sem mót­vægi við vín­drykkju.

Ágætt er að nota tím­ann á meðan og sótt­hreinsa krukk­una með sjóð­andi vatni. Setjið í krukk­una og fyllið upp með ediki. Geymist vel í ísskáp í að minnsta kosti 2 mán­uði.

Súrsaður rauðlaukur

1 rauð­laukur, skor­inn í 5 mm þykkar sneiðar
1 ½ dl vatn
1 ½ dl hvítvín­sedik
1 ½ tsk. salt
nokkur pip­ar­korn
kórí­and­er­fræ eða hvít­laukur, eftir smekk

Setjið lauk­inn í sjóð­andi vatn í eina mín­útu, hellið vatn­inu frá og setjið í sótt­hreins­aða krukku. Blandið vökva og kryddi saman og hellið yfir lauk­inn. Lokið krukk­unni og geymið í ísskáp. Má geyma allt upp í 2 vikur í kæli.

„Eitt snið­ugt ráð er að eiga til vökvann í súrs­aða lauk­inn í 2 lítra plast­flösku. Þá er ein­falt að setja lauk­inn í vökvann að morgni eða um hádegi ef á að grilla t.d.ham­borg­ara um kvöldið,“ segir Grettir.

Lauk­ur­inn er mjög góður á ham­borg­ara og ýmis­konar steik­ar­sam­lokur. Einnig sem með­læti með kjöti og jafn­vel fiski. Grettir hvetur fólk til að prófa ýmis krydd eins og kórí­and­er­fræ eða hvít­lauk.

Myndir / Unnur Magna

Þess má geta að í upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans, sem er nýkomin út, er að finna fjöl­breyttar upp­skriftir og hug­myndir að súr­suðu og pikkluðu græn­meti og ávöxtum. Tilvalið fyrir þá sem langar til að prófa sig áfram með súrsað og pikklað.

Tryggðu þér áskrift að Gest­gjaf­anum í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

chili

Chili con carne: Áttu mikið hakk í fyrsti – hér er hugmynd að rétti
Mannlífið

Chili con carne: Áttu mikið hakk í fyrsti – hér er hug­mynd að rétti

Chili con carne er vin­sæll réttur víða um heim. Í Ameríku eru til chili con carne aðdá­enda­klúbbar sem hafa það eitt að mark­miði að safna upp­skriftum að rétt­inum, elda hann, smakka og njóta. Til eru ýmsar útgáfur af honum, ýmist notað nauta­hakk, nauta­kjöts­bitar eða jafn­vel kjúklingur. Nánast alltaf er notuð reykt paprika en það er einmitt hún sem gefur rétt­inum sitt ein­staka bragð.
Mannlífið

Linsu­bauna­súpa með brún­uðu smjöri, chili og kórí­ander

Linsu­baunir hafa ávallt verið ódýr matur og héldu lífi í bændum og fátæk­ari stéttum fólks í Evrópu. Þær eru ein­stak­lega nær­ing­ar­góðar, orku­ríkar og góð upp­spretta trefja, fólats og járns. Ólíkt þurrk­uðum baunum þarf ekki að láta linsu­baun­irnar liggja í bleyti. Gott er samt að skola þær fyrst og róta í gegnum þær ef það skyldu leyn­ast smá­steinar í pok­anum.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður