„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svalandi ferskjuís með saltkaramellusósu

Á góð­viðr­is­dögum er fátt meira næs en að fá sér ís. Það eru yfi­leitt alltaf langar raðir ísóðra ein­stak­linga við helstu íbúllur bæj­ar­ins. Líka á rign­ing­ar­dögum. Það er í raun­inni frekar ein­falt að útbúa sinn eigin ís, mis­flókið eftir teg­undum en suma er hægt að gera í bland­ara á tíu mín­útum og skella í fryst­inn í smá­stund og fá alveg frá­bæran ís.

Svalandi ferskjuís með saltkaramellusósu

Hér kemur upp­skrift að ljúf­fengum ferskjuís. Svo fylgir upp­skrift að geggj­aðri salt­kara­mellusósu með sem full­komnar ísinn!

Ferskjuís

8 ferskjur
4 msk. sykur
5 eggja­r­auður
1 egg
1 vanillu­stöng, fræin skafin úr
250 g sykur
1 l rjómi

Sláið saman eggjum, vanillu­fræjum, vanillu­stöng­inni og sykri yfir vatns­baði þangað til blandan er orðin létt og ljós og vel heit.

Kælið í kæli­skáp með plast­filmu yfir.

Ef þið eruð að flýta ykkur er gott að hella blönd­unni í grunnt form, þá tekur kæl­ingin styttri tíma.

Fjar­lægið vanillu­stöng­ina. Létt­þeytið rjómann og blandið ⅓ af honum saman við köldu eggja­blönd­una og blandið svo rest­inni mjög var­lega út í.

Setjið í ísgerð­ar­vél skv. leið­bein­ingum og svo í frysti. Ef þið eigið ekki þannig grip, full­þeytið þá rjómann og gerið eins og frystið. Hrærið svo í ísnum fjórum sinnum á klukku­tíma fresti eða þangað til hann er alveg fros­inn. Það er gott að frysta ísinn yfir nótt.

Ofnbakaðar ferskjur

Hitið ofn­inn í 180°C. Skerið ferskj­urnar til helm­inga og fjar­lægið stein­inn.

Raðið á ofn­plötu og stráið sykrinum yfir. Bakið ferskj­urnar í um 30-35 mín­útur eða þar til þær eru orðnar mjúkar og byrj­aðar að dökkna á könt­unum.

Kælið og skerið í litla bita. Passið að ná öllum vökv­anum með. Blandið svo saman við ísblönd­una. Það er líka hægt að nota nektar­ínur, plómur, epli, jarð­ar­ber eða hvað eina í stað­inn fyrir ferskj­urnar.

Saltkaramellusósa

115 g púð­ur­sykur
120 g smjör
1 vanillu­stöng, fræin skafin úr
1 tsk. sjáv­ar­salt
3 dl rjómi
1 msk. hveiti

Setjið púð­ur­sykur, smjör og hveiti í pott og sjóðið saman í 3 mín­útur á miðl­ungs­hita.

Setjið vanillu­fræin, vanillu­stöng­ina og salt saman við og sjóðið í litla stund. Passið að hræra vel í blönd­unni.

Bætið rjóm­anum við og sjóðið í 2-3 mín. Sósan verður þykk­ari eftir því sem hún er soðin lengur. Fjar­lægið vanillu­stöng­ina og setjið blönd­una í ílát.

Geymist í 1-2 vikur í kæli. Hitið upp áður en þið berið kara­mellusós­una fram.

Umsjón / Gunnar Helgi Guð­jóns­son
Ljós­mynd­ari / Hákon Björns­son
Stílisti / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður