„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Suðrænn og sumarlegur pottréttur

Pott­réttir eru afslapp­andi matur og því til­valdir á sælum sum­ar­dögum. Þetta er kjarn­góður matur og laus við allt til­stand – þarf bara svo­lít­inn tíma til þess að malla. Hér er einn ferskur og fljót­legur sem óhætt er að mæla með.

Suðrænn og sumarlegur pottréttur
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjúklinga-chili með sætum kartöflum og rófum
fyrir 4-6

Af ein­hverjum ástæðum getur verið erfitt að nálg­ast kjúklinga- eða kalkúna­hakk í versl­unum. Stundum fæst það frosið en það er því miður ekki hægt að ganga að því vísu. Auðvelt er að útbúa kjúklinga­hakk úr úrbein­uðum kjúklinga­lærum með því að nota mat­vinnslu­vél. Setjið 2-3 læri í einu í vél­ina og látið hana ganga í nokkrum slögum þar til kjötið er hakkað, gætið þess bara að hakka það ekki of mikið því þá verður kjötið að farsi. Best er að nota úrbeinuð læri þar sem svo­lítið af fitu fylgir með, öfugt við bringur sem eru mjög fitu­litlar.

2-3 msk. olía, til steik­ingar
1 laukur, saxaður smátt
2 hvít­lauks­geirar, saxaðir smátt
u.þ.b. 700 g kjúklinga- eða kalkúna­hakk
½ sæt kartafla, skorin í nokkuð litla bita
1 lítil gul­rófa, skorin í nokkuð litla bita
2 tsk. chili-duft
2 tsk. cumin-duft
2 tsk. papriku­duft (gott að nota 1 tsk. af venju­legu og 1 af reyktri papriku)
½ tsk. kanill
1 dós hakk­aðir tómatar
2-3 dl kjúklinga­soð (eða vatn og kraftur)
u.þ.b. 2 dl maís­korn, gott að nota frosin
1 dós cannelini-baunir
gróft sjáv­ar­salt
nýmal­aður svartur pipar
börkur og safi af 1 límónu
ferskur kórí­ander

Hitið olíu á pönnu eða í potti og steikið lauk þar til hann fer að mýkj­ast. Setjið hvít­lauk saman við og steikið áfram í nokkrar mín. Bætið hakki út í og steikið þar til það er brúnað. Setjið þá sætu kart­öflu- og rófu­bit­ana saman við og steikið í nokkrar mín. ásamt kryddi. Bætið tómötum út í, skolið úr dósinni með u.þ.b. 2-3 dl af kjúklinga­soði eða vatni (og bætið þá krafti saman við vatnið). Látið þetta malla saman undir loki við vægan hita í 20-30 mín. eða þar til græn­metið er farið mýkj­ast, bætið baunum saman við og eldið áfram í u.þ.b. 10 mín. Bragð­bætið með límónu­berki og safa eftir smekk og salti og pipar ef þarf. Dreifið vel af ferskum kórí­ander yfir þegar rétt­ur­inn er bor­inn fram með nachos-flögum, sýrðum rjóma og lárperu.

Chili-fróð­leikur
Chili-aldin eru mis­sterk og það er alltaf góð regla að athuga hversu sterk þau eru áður en þeim er bætt út í mat­inn. Gott ráð er að snerta smá­bita með tung­unni og finna þannig hvort til­tekið aldin er sterkt eða dauft. Of sterkt aldin getur auð­veld­lega eyði­lagt mál­tíð­ina og því um að gera að stilla magnið af miðað við hrá­efnið sem þið hafið í hönd­unum. Með því að hreinsa burtu fræ og hvíta hlut­ann innan í ald­in­inu er hægt að milda bragðið veru­lega. Það fer því eftir því hversu sterkan mat fólk vill borða hversu mik­ill hluti af chili-ald­in­inu er not­aður.

Umsjón / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gestgjafinn

Geggjuð uppskeruhandbók Gestgjafans er komin út
Mannlífið

Geggjuð upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans er komin út

Í þessu blaði er fjöld­inn allur af góm­sætum og spenn­andi réttum úr upp­sker­unni ásamt góðum fróð­leik og ráðum til dæmis um það hvernig á að grilla fisk. Stór þáttur með ein­stak­lega góðum og áhuga­verðum laxa og sil­unga­upp­skriftum allt frá bök­uðum engi­fer og soja­laxi til bleikju með möndlum og blóm­káli. Að auki er að finna í blað­inu súpur úr upp­sker­unni, græn­met­is­bökur,...
Nokkrar staðreyndir um kassavín …
Mannlífið

Nokkrar stað­reyndir um kassa­vín …

Fyrir nákvæm­lega 50 árum síðan, lagði Ástr­al­inn Thomas Angove, vín­gerð­ar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vín­mark­aðnum. Poki úr pólý­etý­len­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa. Neyt­endur þurftu bara að klippa hornið af pok­anum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þró­að­ist fljót­lega,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður