„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dúnmjúk súkkulaðikaka með jarðarberjafyllingu

Súkkil­aði­kökur standa alltaf fyrir sínu enda flestir sem kunna virki­lega að meta þær. Hér er ein klass­ísk súkkulaði­kaka með jarð­ar­berja­fyll­ingu sem er til­valin í klúbb­inn, veisl­una eða bara með kaff­inu þegar góða gesti ber að garði.

Dúnmjúk súkkulaðikaka með jarðarberjafyllingu

Súkkulaðikaka með jarðarberjafyllingu

fyrir 10-12

170 g mjúkt smjör
3 dl sykur
3 egg
2 msk. kirsu­berja­líkjör eða annar berja­líkjör
3 ½ dl hveiti
⅔ dl kakó
1 tsk. mat­ar­sódi
örlítið salt
2 ½ dl súr­mjólk
100 g dökkt súkkulaði, brætt og kælt lít­il­lega

Hitið ofn í 175°C. Hrærið saman smjör og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið eggjum saman við einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið líkjör saman við. Sigtið þurr­efnin saman og bætið út í nokkrum skömmtum til skiptis við súr­mjólk­ina.

Hrærið þar til allt er vel sam­lagað. Notið sleikju til þess að skafa niður með skál­inni þannig að allt bland­ist vel. Setjið súkkulaði út í og hrærið var­lega saman við. Skiptið deig­inu í tvö 24 cm laus­botna form sem hafa verið smurð vel með smjöri og gjarnan snið­inn bök­un­ar­pappír í botn­inn.

Bakið í 25-30 mín. Látið botn­ana kólna áður en jarð­ar­berja­fyll­ingin er sett á milli og súkkulaði­kremið utan á.

Jarðarberjafylling

600 g jarð­ar­ber, má gjarnan nota frosin
2 dl sykur
3 msk. kirsu­berja­líkjör eða annar
berja­líkjör

Setjið allt saman í pott og látið sjóða saman í 40-60 mín. eða eins og þarf þar til „sultan“ hefur soðið hæfi­lega mikið niður. Hún þarf að vera það þykk að hún leki ekki út af botn­inum þegar henni er dreift á milli. Látið kólna.

Súkkulaðikrem

170 g rjóma­ostur, mjúkur
150 g smjör, mjúkt
5 dl flór­sykur
⅔ dl kakó
300 g dökkt súkkulaði, brætt og kælt niður í stofu­hita

Hrærið saman rjóma­ost og smjör þar til allt er vel sam­lagað. Sigtið flór­sykur og kakó út í og hrærið vel. Bætið súkkulað­inu var­lega saman við og hrærið áfram þar til allt er vel sam­lagað.

Gjarnan má nota önnur ber í fyll­ing­una, t.d. hind­ber eða kirsu­ber. Gott er að láta kök­una standa í kæli yfir nótt og skreyta hana síðan með ferskum berjum rétt áður en hún er borin fram.

Til þess að flýta fyrir sér má gjarnan nota til­búna sultu en okkur finnst ansi gott að hafa fyll­ing­una í súr­ara lagi.

Umsjón / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Myndir / Óli Magg
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður