„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Myndband – Skotheld uppskrift að hinum fullkomnu vatnsdeigsbollum

Myndband – Skotheld uppskrift að hinum fullkomnu vatnsdeigsbollum
|||||||||LONDON

Fátt er betra en heima­bak­aðar rjóma­bollur með sultu enda er bollu­dag­ur­inn bara einu sinni á ári. Það eru því eflaust margir sem ætla að nota helg­ina til að baka svo hægt sé raða í sig bollum á sjálfan bollu­dag­inn og kannski eitt­hvað aðeins lengur. Hér sýnum við í skrefum hvernig á að gera vatns­deig með tveimur ferskum og góðum fyll­ingum þar sem rjómi og sulta koma við sögu.

Vatnsdeigsbollur

grunn­upp­skrift u.þ.b. 10 með­al­stórar bollur eða 25 litlar bollur

250 g vatn
125 g smjör
1 tsk. salt
140 g hveiti
3-4 egg, 3 ef þau eru stór eða 4 ef þau eru lítil

Hitið ofn í 200°C. Setjið vatn og smjör í pott ásamt salti og setjið yfir miðl­ungs­háan hita. Hrærið reglu­lega í pott­inum, hækkið hit­ann og látið suð­una koma upp. Takið pott­inn af hit­anum og látið hveitið ofan í. Hrærið saman þar til deigið verður kekkja­laust. Setjið þá aftur yfir hit­ann og hrærið í 1-2 mín. eða þar til deigið verður mjúkt og losnar frá börmum potts­ins.

Deigið á að vera gljá­andi en ekki matt því þá er það of þurrt. Deigið er orðið pass­lega þurrt þegar filma mynd­ast í botni potts­ins eins og sést í mynd­band­inu. Látið deigið í hræri­vél­ar­skál og þeytið með spað­anum í 30 sek. til að kæla deigið. Setjið eggin út í, eitt í einu, hrærið vel á milli.

Deigið er til­búið þegar það er slétt, gljá­andi og teygj­an­legt. Prófið að dýfa spað­anum ofan í deigið og tosa upp, ef það fest­ist líkt og skegg á spað­anum þá er deigið til­búið. Mótið bollur með tveimur skeiðum eða setjið í sprautu­poka og sprautið á smjör­papp­írs­klædda bök­un­arplötu, passið að hafa bil á milli.

Bakið í u.þ.b. 25 mín., ekki opna ofn­inn fyrstu 15 mín. Eftir fyrstu 15 mín. má taka eina köku út og setja hana á grind, ef hún fellur ekki þegar hún fer að kólna þá eru boll­urnar til­búnar.

Vanillurjómafylling með jarðarberja- og rabarbarasultu

500 ml laktósa­laus G-rjómi, mjög kaldur
50 g flór­sykur
1 vanillu­stöng, skorin í tvennt langsum
flór­sykur til að dusta yfir
jarð­ar­berja- og rabar­bara­sulta frá St. Dalfour
1 askja jarð­ar­ber, skorin í sneiðar

Skafið fræin úr vanillu­stöng­inni. Setjið rjóma og flór­sykur í hræri­vél­ar­skál ásamt fræj­unum. Hrærið á miðl­ungs­hraða í 1-2 mín. Aukið hrað­ann og hrærið í 3-4 mín. eða þar til rjóm­inn byrjar að þykkna, þetta er hægt að gera bæði í hönd­unum eða í hræri­vél, passið þá að ofþeyta rjómann ekki. Skerið boll­urnar og setjið sultu, rjóma og jarð­ar­ber inn í boll­urnar, setið topp­inn á og sáldrið flór­sykri yfir.

Hindberjarjómafylling með sultu og súkkulaði

200 g hind­ber
3 msk. flór­sykur
2 dl laktósa­laus G-rjómi
jarð­ar­berja- og rabar­bara­sulta frá St. Dalfour

Setjið hind­berin í skál og kremjið með gaffli. Þeytið rjómann með flór­sykrinum og hrærið hin­berin saman við.

Súkkulaðiglassúr með ljósu súkkulaði

100 g dökkt súkkulaði eða mjólk­ursúkkulaði, saxað
1 dl rjómi
saxaðar hesli­hnetur, til að sáldra yfir boll­urnar

Setjið súkkulaði í skál. Hellið rjóm­anum í lít­inn pott og hitið upp að suðu­marki, hellið yfir súkkulaðið. Látið standa í nokkrar mín­útur og hrærið síðan saman. Skerið boll­urnar og setjið sultu, rjóma og nokkur hind­ber, setjið topp­inn á og hellið súkkulað­inu og sáldrið hesli­hnetum yfir.

Mat­reiðsla / Folda Guð­laugs­dóttir
Mynda­taka og klipp­ing / Hákon Davíð Björns­son
Stílis­er­ing og rit­stjórn / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður