„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Icelandair segir upp 2.000 manns

Icelandair segir upp 2.000 manns

Icelandair Group til­kynnti í Kauphöll nú fyrir stundu um yfir­grips­miklar aðgerðir hjá félag­inu sem taka gildi um mán­aða­mótin. Aðgerð­irnar fela í sér upp­sagnir starfs­fólks og breyt­ingar á skipu­lagi til að bregð­ast við þeirri stöðu sem félagið stendur frammi fyrir vegna útbreiðslu COVID-19.

Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að mikil óvissa ríki um nán­ustu fram­tíð og að aðgerð­irnar séu liður í að búa félagið undir órætt tíma­bil þar sem starf­semi þess verður í lág­marki.

„Á sama tíma verður lögð áhersla á að halda uppi grunn­starf­semi á öllum sviðum til þess að tryggja þann sveigj­an­leika sem þarf til að félagið geti brugð­ist hratt við um leið og mark­aðir opn­ast á ný,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þar segir að félagið hafi á und­an­förnum vikum leitað allra leiða til að draga úr útstreymi fjár­magns, svo sem með því að end­ur­semja við birgja og fjár­mögn­un­ar­að­ila. Stærsti kostn­að­ar­liður félags­ins er eftir sem áður launa­kostn­aður og er því nauð­syn­legt að grípa til aðgerða til að draga úr þeim kostn­aði.

Icelandair Group mun grípa til eft­ir­far­andi aðgerða á næstu dögum:

-Rúmlega tvö þús­und starfs­mönnum verður sagt upp störfum. Upp­sagn­irnar ná til allra hópa innan félags­ins, en þær hafa þó mest áhrif á störf bein­tengd fram­leiðslu, svo sem áhafnir, við­halds­þjón­ustu og starfs­fólk flug- og far­þega­þjón­ustu.

-Þeir sem starfa áfram hjá félag­inu eru lang­flestir í skertu starfs­hlut­falli og aðrir í fullu starfi með skert laun.

Erfiðar en nauðsynlegar aðgerðir

Til við­bótar við þessar aðgerðir hafa breyt­ingar verið gerðar á skipu­lagi félags­ins er fram kemur í til­kynn­ing­unni. „Starf­sem­inni verður fram­vegis skipt í sjö svið í stað átta áður. Þau eru: Sölu- og þjón­ustu­svið, frakt­flutn­inga­svið (Icelandair Cargo), flug­véla­leiga og ráð­gjöf (Loft­leiðir Icelandic), flug­rekstr­ar­svið, fjár­mála­svið, mannauðs­svið og nýtt svið, við­skipta- og staf­ræn þróun. Tómas Ingason, sem starfað hefur sem fram­kvæmda­stjóri staf­rænnar þró­unar og upp­lýs­inga­tækni verður fram­kvæmda­stjóri nýs sviðs. Ívar S. Krist­ins­son, sem starfað hefur sem fram­kvæmda­stjóri flug­flota og leiða­kerfis, verður ekki hluti af fram­kvæmda­stjórn en mun áfram stýra flota­málum félags­ins. Í kjöl­far þess­ara breyt­inga verða átta í fram­kvæmda­stjórn að með­töldum for­stjóra í stað níu áður,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Einnig hafa tals­verðar skipu­lags­breyt­ingar verið gerðar innan sviða og deilda fyr­ir­tæk­is­ins og við það fækkar stjórn­endum í efstu lögum um 19.

„Þetta eru mjög erf­iðar aðgerðir en því miður nauð­syn­legar. Það er gríð­ar­leg óvissa framundan og við þurfum að und­ir­búa okkur undir tak­mark­aða starf­semi hjá félag­inu um óákveð­inn tíma. Við von­umst til að aðstæður í heim­inum fari að batna sem fyrst og að við getum boðið sem stærstum hluta starfs­manna sem um ræðir vinnu aftur. Mark­miðið með þessum aðgerðum er jafn­framt að tryggja grunn­starf­semi félags­ins og halda nauð­syn­legum sveigj­an­leika til að geta brugð­ist hratt við þegar eft­ir­spurn tekur við sér á ný,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, for­stjóri Icelandair, í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnulíf

Fólk

Ástin breytti öllu

Þegar Ragn­heiður Dögg Agn­ars­dóttir missti eig­in­mann sinn úr krabba­meini árið 2011 stóð hún frammi fyrir því að þurfa að end­ur­skipu­leggja allt líf sitt og for­gangs­röðin breytt­ist. Í fram­haldi af því stofn­aði hún Heilsu­fé­lagið, ráð­gjaf­ar­þjón­ustu um aukin lífs­gæði, og hefur síðan unnið ötul­lega að því að hjálpa fólki á vinnu­mark­aði, einkum konum, að vinna að betra starfs­um­hverfi og bættum lífs­gæðum. Hún...
Ragnari gjörsamlega misboðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“
Innlentatvinnulíf

Ragnari gjör­sam­lega mis­boðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, spyr lands­menn hvernig Halldór Benjamín Þor­bergssson, for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, getir verið svona sam­visku­laus og ósann­gjarn gagn­vart almenn­ingi. Honum er gjör­sam­lega mis­boðið yfir sjúk­legum við­horfum Halldórs sem til­heyri sér­trú­ar­söfn­uði íslenskra arð­ræn­ingja. Þetta kemur fram í færslu Ragnars á Facebook þar sem hann fer yfir mál­flutn­ing Halldórs í við­tali Víg­lín­unnar á Stöð 2 í gær þar sem...
Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæpirnir finna sér annan farveg, eins og vatnið“
Innlentatvinnulíf

Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæp­irnir finna sér annan far­veg, eins og vatnið“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir það skipta sköpum í íslensku sam­fé­lagi hverju er stolið og hvernig því er stolið. Hann segir skattaund­an­skot, mútu­greiðslur, umhverf­is­glæpi og pen­inga­þvætti því miður sett í lit­ríka bún­inga eðli­legra hvers­dags­við­skipta. Ragnar gerir launa­þjófnað á íslenskum vinnu­mark­aði að umtals­efni í nýrri færslu sinni á Facebook. Þar segir hann íslenska elítu vilja við­halda þjófn­aði svo ekki fari...
Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar
Innlentatvinnulíf

Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar

Ásta Sigríður Fjeld­sted hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar, en Ásta Sigríður hefur verið fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs frá árinu 2017. Ásta Sigríður hefur störf 1. októ­ber, eins og segir í til­kynn­ingu, en hún tekur við starf­inu af Grétu Maríu Grét­ars­dóttur sem óskaði eftir að láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar í maí. „Ég tek með mik­illi til­hlökkun við starfi fram­kvæmda­stjóra þessa stóra...
Telur aldursfordóma þrífast á íslenskum vinnumarkaði – 170 umsóknir, sex atvinnuviðtöl en engin atvinna
Innlentatvinnulíf

Telur ald­urs­for­dóma þríf­ast á íslenskum vinnu­mark­aði – 170 umsóknir, sex atvinnu­við­töl en engin atvinna

Pistill Bjarna Jóns­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, sem birt­ist á Kjarn­anum í gær hefur vakið mikla athygli. Í pistl­inum skrifar hann um atvinnu­leysi en hann hefur verið atvinnu­laus í rúmt ár, 367 daga nánar til­tekið. „Heilt ár án þess að vakna á morgn­ana, fara í rækt­ina eða sund, fengið mér morg­un­mat og farið síðan til vinnu. Komið heim seinnipart dags­ins, sest niður...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins