„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Gerðu það sem þér þykir skemmtilegt“

Það getur verið erfitt að finna út úr því hvernig best sé að stuðla að góðu heilsu­fari og vellíðan. Það sem er lífs­nauð­syn­legt í dag getur verið talið ban­vænt á morgun og engin furða að fólk missi svo­lítið átt­irnar í því hvað skyn­sam­leg­ast sé að gera. Við brugðum því á það ráð að leita til Hilmu Hólm hjarta­læknis og spyrja hvað hún ráð­leggur fólki að gera til að öðl­ast betri líðan og heilsu.

„Gerðu það sem þér þykir skemmtilegt“

„Ég ráð­legg bæði konum og körlum að huga vel að matar­æði, streitu, svefni, hreyf­ingu og sam­veru með vinum og fjöl­skyldu. Það mætti skrifa heilan pistil (eða tvo) um matar­æði, en til dæmis er ljóm­andi gott að borða hæfi­lega mikið af hollum og góðum mat, gjarnan heima­gerðum, og í góðum félags­skap, um það bil þrisvar á dag. Finndu hvaða matur fer vel í þig og borð­aðu hann. Þessi róm­an­tíska hug­mynd kol­fellur hins­vegar um sjálfa sig ef svefn­inn er í ólagi, það þekkja allir. Það er ekki hægt að leggja of mikla áherslu á mik­il­vægi svefns, bæði varð­andi tíma­lengd og gæði. Ég mæli ein­dregið með því að setja svefn­inn í for­gang,“ segir hún og heldur áfram.

„Hreyfing, hreyf­ing, hreyf­ing, hreyf­ing,“ segir Hilma.

„Hreyfing, hreyf­ing, hreyf­ing, hreyf­ing. Hreyfing. Hreyfing, hreyf­ing. Hreyfðu þig alla daga vik­unnar og gerðu það sem þér þykir skemmti­legt. Hjólaðu frekar dag­lega í vinn­una og labb­aðu í búð­ina heldur en að treysta á að bæta upp fyrir hreyf­inga­leysi vik­unnar með tveimur Esjum sunnu­dags­morgna (Esjan er samt frá­bær). Ekki er verra að hreyfa sig úti í nátt­úr­unni, það gefur auka­lega and­lega upp­lyft­ingu ókeypis. Til að bæta um betur er hreyf­ingin gerð í góðra vina hópi, þannig myndi hjóla­túr vina sem endar í góðum mat telj­ast sem hin besta heilsu­bót. Við áttum okkur nefni­lega sífellt betur á því hvað góð félags­leg tengsl og sam­vera eru mik­il­vægur hluti af góðu lífi og vellíðan.“

Hilma segir að það verði að nefna álag og streitu en sem betur fer sé sam­fé­lagið mun opn­ara gagn­vart þessu algenga vanda­máli en áður. „Þú ert sú eina (eða eini) sem veist hvernig þér líður og því er það þitt að meta hvenær streitan fer yfir mörk þess við­ráð­an­lega. Þá þarf að end­ur­meta stöð­una, fjar­lægja streitu­valda eða takast á við þá. Hreyfing, slökun og sam­vera hjálpa við streitu en einnig getur verið gott að leita sér ráð­gjafar“.

„Ef þú færð ein­kenni sem valda þér áhyggjum þá skaltu hlusta á lík­amann og leita til læknis.“

Hvað varðar sér­tæk­ari ráð tengd hjarta- og æða­kerf­inu segir hún að það mik­il­væg­asta sem fólk geti gert sé að fylgja ofan­greindum ráðum. „Því til við­bótar er ráð­legt að biðja heim­il­is­lækn­inn þinn að meta og mæla áhættu­þætti þína, ekki síst fjöl­skyldu­sög­una, til að draga úr líkum á því að þú fáir hjarta- og æða­sjúk­dóm. Slík skimun getur til dæmis leitt til grein­ingar á háu kól­ester­óli eða háum blóð­þrýst­ingi sem hægt er að bregð­ast við, með fræðslu, ráð­legg­ingum um lífs­stíls­breyt­ingar, og stundum lyfja­með­ferð. Hvenær slíkar mæl­ingar eru gerðar og hversu oft er ein­stak­lings­bundið og best metið í sam­ráði við þinn heim­il­is­lækni. Ef þú færð ein­kenni sem valda þér áhyggjum þá skaltu hlusta á lík­amann og leita til læknis.“

Að lokum segir hún að ekki megi gleyma því mik­il­væg­asta, að hafa gaman. „Gerðu sem mest að því sem sem þér finnst skemmti­legt, hvort sem það er að mála, vera með vinum, hjóla, vinna í garð­inum, prjóna, kafa, lesa, elda eða fara í leik­hús.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

líkamsrækt

Fólk

„Ættu að hugsa sinn gang alvar­lega“

Einka­þjálf­ar­inn Björn Þór Sig­ur­björns­son segir allt eða ekk­ert-hug­ar­farið stór­hættu­legt, þar sem fólk ætli sér stóra hluti strax frá byrjun og taka matar­æðið og hreyf­ing­una föstum tökum af mik­ill ákefð. „Það er eig­in­lega dæmt til að springa í and­litið á okkur með þeim afleið­ingum að við hættum,“ segir Björn. „Ef þú hefur getu og tíma til þess að mæta sex sinnum...
Starfsmaður líkamsræktarstöðvar gerði grín að viðskiptavini með þroskahömlun – verður tekið föstum tökum segja eigendur
Innlentlíkamsrækt

Starfs­maður lík­ams­rækt­ar­stöðvar gerði grín að við­skipta­vini með þroska­hömlun – verður tekið föstum tökum segja eig­endur

Starfs­maður lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar­innar Sport­húss­ins í Reykja­nesbæ er sak­aður um að gera grín að við­skipta­vini með þroska­hömlun. Slíkt átti sér stað nýlega þegar þroska­heftur við­skipta­vinur leit­aði sér upp­lýs­inga í afgreiðsl­unni og fékk þar lítið annað en háðs­glósur frá starfs­fólki. Eigendur stöðv­ar­innar segja að málið verði tekið föstum tökum inn­an­húss. Hávær umræða skap­að­ist um málið innan Facebook-sam­fé­lags­ins Góða systir sem skipað er í...
Sumarið er ekki verri tími en hver annar til að sækja líkamsræktarstöðvar
Skoðun

Aðsend grein

Sumarið er ekki verri tími en hver annar til að sækja lík­ams­rækt­ar­stöðvar

Höfundur / Björn Þór Sig­ur­björns­son, einka­þjálf­ari Þegar heim­ur­inn hálf lam­að­ist, þá mjak­að­ist hreyf­ing margra nokkuð hratt út af borð­inu og jogg­ing-gall­inn varð á örfáum dögum besti vinur manns­ins. Í ein­hverjum til­vikum varð hreyf­ing þó reglu­legur partur af innilíf­inu, alla­vega í ein­hverri mynd. Fólk lagði það á sig að standa í röð fyrir utan versl­anir til að ná sér í æfinga­græjur....
Innlentlíkamsrækt

„Gleði og ánægja“ hjá iðk­endum í World Class í dag

„Þetta fór vel af stað í morgun. Það er mikil gleði og ánægja hjá fólki,“ segir Björn Þór Sig­ur­björns­son, einka­þjálf­ari World Class, í sam­tali við Mannlíf. Stöðvar World Class hafa verið opn­aðar eftir tveggja mán­aða lokun í hertu sam­komu­banni. Björn segir ánægju­legt að sjá að fólk er með­vitað um umhverfi sitt og virðir tveggja metra regl­una eftir bestu getu. „Fólk...
Allir hóptímar fullbókaðir og fólk talar um „hátíðardag“
Innlentlíkamsrækt

Allir hóp­tímar full­bók­aðir og fólk talar um „hátíð­ar­dag“

Ágústa Johnson, fram­kvæmda­stjóri lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar­innar Hreyf­ingar, segir margt fólk hafa beðið spennt í morgun fyrir utan Hreyf­ingu eftir að kom­ast í rækt­ina. Hreyfing, líkt og aðrar lík­ams­rækt­ar­stöðvar lands­ins, lok­uðu 24. mars þegar hert sam­komu­bann skall á vegna útbreiðslu COVID-19. Síðustu tveir mán­uðir hafa því verið krefj­andi fyrir það fólk sem er vant að fara í rækt­ina reglu­lega. Í sam­tali við Mannlíf...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu