„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Það var verið að leita að strengjabrúðu“

„Það var verið að leita að strengjabrúðu“
Guð­mundur Gunn­ars­son

Guð­mundur Gunn­ars­son er „ofboðs­lega mik­ill Vest­firð­ingur“; fædd­ist á Ísafirði, ólst upp í Bol­ung­ar­vík og hefur freistað þess í gegnum tíð­ina að verja sem mestum tíma í heima­hög­unum. Eftir háskóla­nám á Akureyri og rúman ára­tug á mal­bik­inu fyrir sunnan ákvað hann sum­arið 2018 að venda kvæði sínu í kross og sækja um það sem átti að vera ópóli­tísk staða bæj­ar­stjóra á Ísafirði.

Guð­mundur hreppti hnossið en það leið ekki á löngu þangað til hann fór að upp­lifa að ekki væru allir á eitt sáttir um ráðn­ing­una. Samstarf hans og meiri­hluta bæj­ar­stjórnar sprakk með látum í jan­úar sl. og síðan hefur hann til­kynnt á Facebook að hann og fjöl­skylda hans séu á förum frá Ísafirði; þeim líði ein­fald­lega ekki lengur vel í bænum. Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu var greint frá því að ástæða starfs­loka Guð­m­vesundar væri „ólík sýn á verk­efni á vett­vangi sveit­ar­fé­lags­ins“ en það er í besta falli vill­andi lýs­ing á því hvað varð þess vald­andi að Guðmundi var ekki lengur stætt í starfi. Hann segir að eftir á að hyggja hefðu hann og meiri­hlut­inn átt að vera opin­skárri um ágrein­ing­inn sín á milli, þar sem róg­burður og dylgjur um störf hans og per­sónu hafi fundið frjóan jarð­veg í þögn­inni.

„Við vorum úti að hlaupa í Óshlíð­inni ég og konan mín og ég hendi þessu svona fram, hvort ég eigi ekki bara að prófa að sækja um þetta starf, því við vorum búin að vera að tala um hvað við ættum að gera næst,“ segir Guð­mundur um það hvernig það æxl­að­ist að hann sótti um bæj­ar­stjóra­stöð­una. Konan hans, Ísfirð­ing­ur­inn Krist­jana Milla Snorra­dóttir, var ánægð með starf sitt í höf­uð­borg­inni en þau ákváðu engu að síður að slá til og eftir því sem leið á ráðn­ing­ar­ferlið jókst spenna Guð­mundar fyrir stöð­unni. „Þegar valið stóð á milli tveggja eða þriggja þá var farið að kitla mig mikið að flytja heim og ég fann að starfið spil­aði alveg inn á ástríð­una mína; að tala fyrir Vest­fjörðum. Ég brenn mikið fyrir hags­munum Vest­fjarða.“

Guð­mundur, sem er með BA-próf í fjöl­miðla­fræði og meist­ara­próf í alþjóða­við­skiptum, upp­lifði jafn­framt að þetta væri eitt­hvað sem hann gæti gert vel; auk þess að unna svæð­inu og fólk­inu var hann áhuga­samur um stjórnun, sam­skipti og miðlun, eitt­hvað sem hann sá fyrir sér að yrði stór þáttur í störfum bæj­ar­stjóra.

Óeining um stöðu og hlutverk

Það er erfitt að snúa tal­inu að öðru þegar Guð­mundur kemst á flug um dásemdir Vest­fjarða. Hann byrjar á því að harma að lík­leg­ast hafi fleiri Íslend­ingar heim­sótt Spán en Vest­firði. „Sam­göng­urnar hafa verið erf­iðar en við stöndum á tíma­mótum núna og ég er ekki bara að segja þetta af því að ég er Vest­firð­ingur; þetta er mest spenn­andi land­svæðið á land­inu í dag. Þarna eru mestu tæki­færin í ferða­þjón­ust­unni, mestu tæki­færin í atvinnu­upp­bygg­ingu … þetta svæði á svo ofboðs­lega mikið inni og það var þetta sem mér fannst svo spenn­andi að fá að takast á við,“ segir hann. „Mér finnst stjórnun líka spenn­andi, þ.e.a.s. að að virkja fólk til að taka þátt í teym­is­vinnu, að vera hluti af heild sem er að róa saman í ein­hverja átt. En svo líka að leita leiða til að fanga athygli, koma upp­lýs­ingum og skila­boðum á fram­færi og koma Vest­fjörðum meira á kortið.“

„Mér fannst alltaf gengið út frá van­trausti og það var ofboðs­lega óþægi­legt.“

Og til alls þessa stóð hugur hans þegar hann tók við störfum í ágúst 2018, val­inn af meiri­hluta bæj­ar­stjórnar; þremur sjálf­stæð­is­mönnum og tveimur fram­sókn­ar­mönnum. En þá komum við strax af einni þeirra spurn­inga sem sitja eftir nú þegar allt er um gengið: Hvað er ópóli­tískur bæj­ar­stjóri?

„Hvað er það?“ spyr Guð­mundur sjálfur um þetta sér­kenni­lega starf sem æ fleiri sinna. „Kjós­endur kjósa sér póli­tíska full­trúa og þeir fara með vald íbúa. Svo ráða þeir inn starfs­mann … en hver er hann? Hver er teng­ing hans við íbúa?“

Allt að einu, þá varð hann þess fljótt áskynja að fram­sókn­ar­menn hefðu sett það sem skil­yrði fyrir meiri­hluta­sam­starf­inu að starfið yrði aug­lýst. „Hinn flokk­ur­inn, „stóri flokk­ur­inn“ í meiri­hluta­sam­starf­inu, varð sem sagt að sætta sig við þetta. Auðvitað þarf fólk alltaf að geta kom­ist að mála­miðl­unum en ég fann það mjög fljótt að ég naut ekki stuðn­ings þeirra. Það var senni­lega það erf­ið­asta í starf­inu. Og svo þegar á hólm­inn var komið, þegar það mynd­ast ágrein­ingur okkar á milli, þá stendur eng­inn með mér. Þegar við reyndum sátta­leið­ina, eins og maður á að gera, þá töl­uðu þau einum rómi,“ segir Guð­mundur um meir­hlut­ann.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Ágrein­ing­ur­inn stóð aldrei um ein­hver ákveðin mál heldur nálgun og aðferðir. Og allt frá upp­hafi var ljóst að menn voru ekki sam­mála um stöðu og hlut­verk Guð­mundar.

„Það mynd­að­ist aldrei traust þarna á milli,“ segir hann um sam­starf sitt við meiri­hlut­ann. „Og við töl­uðum alveg um þetta opin­skátt. Ég vildi að við nálg­uð­umst hlut­ina þannig að við værum að vinna saman en ekki þannig að ég væri að vinna fyrir þau. Þetta var svo­lítið mun­ur­inn á þessu og þessu,“ segir hann og leggur flata lóf­ana fyrst niður hlið við hlið og svo annan fyrir ofan hinn. „Mig lang­aði til að við mynd­uðum teymi, að við ynnum saman og aðstoð­uðum hvort annað. En ég upp­lifði sam­starfið alltaf þannig að ég væri starfs­maður þeirra og mitt hlut­verk væri fyrst og síð­ast að taka við skip­unum og fram­fylgja þeim án þess að hafa rödd. Það er nálgun sem mér hugn­ast ekki og þannig vann ég ekki með mínu teymi á bæj­ar­skrif­stof­unum.“

Enginn stuðningur og ekkert traust

En lá ekki fyrir ein­hver starfs­lýs­ing? Guð­mundur seg­ist telja erfitt að berja saman starfs­lýs­ingu bæjar- eða sveit­ar­stjóra; starfið sé fjöl­breytt og fjöl­breyti­legt, verk­efnin mörg og ólík, og vinnu­tím­inn teygj­an­legur. „Þú ert í þessu starfi öllum stundum, sér­stak­lega í litlu sam­fé­lagi. Þú ferð ekk­ert í pott­inn með fjöl­skyld­unni og ert ekki í vinn­unni. Þú ferð ekki út í bak­arí og neitar að taka sam­tal um snjó­mokstur. Það er þetta sem er svo dásam­legt við íslenskt sam­fé­lag; þú hefur svo beint aðgengi til að koma hlut­unum áfram. Þú óskar eftir áheyrn og færð, bara yfir kaffi­bolla. En svo er þetta líka vel launað, þú færð vel borgað fyrir að axla þessa ábyrgð og vinna milli­liða­laust með íbú­unum.“

En það er nú ef til vill eitt af því sem gerir þessa stöðu, ópóli­tískan bæj­ar­stjóra, svo­lítið sér­kenni­lega; kjörnir full­trúar sem fara með vald íbúa sinna bæj­ar­stjórn­ar­störfum sínum í hluta­starfi, á meðan staða bæj­ar­stjóra er fullt starf. Hann er fram­kvæmd­ar­stjóri stjórn­sýslu­kerf­ins­ins, á í dag­legum sam­skiptum við starfs­fólk og íbúa og á að hafa bestu yfir­sýn yfir það sem liggur fyrir.

Og það var ágrein­ingur um hlut­verk bæj­ar­stjór­ans og sýni­leika, í kjöl­far snjó­flóð­anna á Flateyri og í Súg­anda­firði um miðjan jan­úar, sem varð til þess að upp úr sauð. Guð­mundur stökk strax til og var áber­andi í hring­iðu aðgerða á þessum tíma, enda leit hann svo á að það væri sitt hlut­verk sem bæj­ar­stjóra að vera til staðar fyrir íbúa og stappa í þá stál­inu. „Á þeim tíma­punkti var álagið gríð­ar­lega mikið. En þau sem sagt lýstu yfir óánægju með það hvernig ég kom upp­lýs­ingum til þeirra. Mér fannst það strax mjög ósann­gjarn áfell­is­dómur; að ég hefði ekki sinnt þeim nógu mikið, hinum kjörnu full­trúum. Ég held að það sé rangt og ég hef farið yfir það; við vorum með opin sam­skipti á sam­fé­lags­miðlum þar sem ég upp­lýsti þau dag og nótt og færði það svo yfir á aðra starfs­menn ef ég var ekki í sam­bandi, til dæmis á varð­skipi. Ég leit svo á að það væri fyrst og fremst mitt hlut­verk að sinna íbúum og upp­lýs­inga­gjöf út á við. En þetta var líka upp­safnað og ég upp­lifði að hafa aldrei stuðn­ing og aldrei traust. Mér fannst alltaf gengið út frá van­trausti og það var ofboðs­lega óþægi­legt.“

„Það var aldrei neitt nógu gott“

Guð­mundur segir að það hafi enn fremur farið fyrir brjóstið á honum hvernig talað var um Ísa­fjarð­arbæ, starfs­menn bæj­ar­ins og þá vinnu sem stóð yfir. „Mér fannst við eiga að tala um hlut­ina á upp­byggi­legan hátt, tala um verk­efnin okkar á jákvæðan hátt. Ekki: „Þetta er ömur­legt, þetta er glatað, við þurfum að gera miklu betur …“ Mér finnst mik­il­vægt að við tölum um Ísa­fjarð­arbæ af virð­ingu, að við tölum um fjöreggið okkar af virð­ingu. Ef við berum ekki virð­ingu fyrir því þá munu íbúar ekki gera það og þá mynd­ast rosa­leg mínus­hleðsla í umræð­unni. Þar greindi okkur á.“

„Svo kem ég bara heim og tek af þér djobbið.“

Hinn 17. jan­úar, aðeins þremur dögum eftir snjó­flóðin, var hald­inn frægur bæj­ar­stjórn­ar­fundur þar sem til átaka kom. „Þetta var, að því mér fannst, ótíma­bær fundur til að fara ofan í saumana á því hvað við hefðum átt að gera betur. En þarna er allt í hers höndum. Margir starfs­menn bæj­ar­ins höfðu vart sofið. Og að fá þetta yfir sig … að við gerðum ekki nóg. Ég var búinn að leggja allt sem ég átti í að vera til staðar. En það var ekki nóg. Plantan í Litlu hryll­ings­búð­inni var enn þá svöng. Svo fór þetta að snú­ast um kjána­lega hluti eins og hver ætti að taka á móti for­sæt­is­ráð­herra og hver ætti að fara í þyrl­una og eitt­hvað svona bull.“ Guð­mundur gengst fús­lega við að hafa gert mis­tök á fund­inum; það fauk í hann, hann skellti aftur tölv­unni og rauk út.

En bökkum aðeins … plönt­unni úr Litlu hryll­ings­búð­inni? „Ég held að ég sé ekki eini ópóli­tíski bæj­ar­stjór­inn sem upp­lifir að hann vinni fyrir plönt­una í Litlu hryll­ings­búð­inni. Ég veit að þetta er rosa­lega harka­leg lýs­ing en … Þú veist hvernig plantan í Litlu hryll­ings­búð­inni er? Hún vill alltaf meiri mat og svo stækkar hún bara og stækkar. Hún staldrar aldrei við og er södd, hún vill bara meira og meira að borða og svo vex hún og vex og vill meira og meira að borða og vex og vex … og það getur aldrei endað nema með ósköpum.“

Ekki missa af nýjasta Mannlífi.

Það var aldrei neitt nóg af hálfu meiri­hlut­ans, segir Guð­mundur. Þannig lýsti hann upp­lifun sinni fyrir meiri­hlut­anum þegar hann mætti á sátta­fund sem hald­inn var 24. jan­úar, sömu helgi og til­kynnt var um starfs­lok hans hjá bænum. „Við töl­uðum mjög opin­skátt um þetta og ég sagði að ég upp­lifði þetta svona; það var aldrei neitt nógu gott, það gekk aldrei neitt nógu hratt. Við stöldruðum aldrei við og sögðum: Þetta var nú flott hjá okkur, þetta gekk vel, við skulum gera meira af þessu. Um leið og það var tikkað í ein­hver box þá var strax farið í það hvað annað væri glatað. Þetta var bara alveg ofboðs­lega nei­kvæður dans.“

Á sátta­fund­inum stóð Guð­mundur einn á móti fimm full­trúum meiri­hlut­ans en tals­menn hans fóru ekki í graf­götur með óánægju sína með Guðmund og störf hans. „Eftir dálítið langa tölu um það hvað þau væru óhress með mig spurði ég hvort þetta væri skoðun þeirra allra.“ Þögnin skil­aði svar­inu. „Þá fékk ég það end­an­lega stað­fest að það stóð eng­inn með mér.“ Við tók sjálf­skoðun, því eins og Guð­mundur segir sjálfur þá er það sjaldan þannig að einn eigi sök þegar tveir deila. „Auðvitað átti ég ekki að missa stjórn á mér á fund­inum, auð­vitað hefði ég átt að vera fag­legri en svo,“ segir hann um bæj­ar­stjórn­ar­fund­inn.

Afarkostir og skrýtin skilaboð frá Noregi

Guð­mundur er mjög afdrátt­ar­laus um það að hann sé ekki fórn­ar­lamb; eflaust hefði mátt koma í veg fyrir að illa færi ef báðir aðilar hefðu verið skýrir um það frá byrjun hvernig þeir sáu sam­starfið fyrir sér. En þrátt fyrir ástríð­una fyrir starf­inu og stuðn­ing­inn sem hann fann fyrir frá minni­hlut­anum og íbú­unum gat hann ekki sætt sig við þá skil­mála sem fyrir hann voru lagðir á umræddum sátta­fundi.

„Mér voru settir afar­kostir um sam­skipti sem ég myndi aldrei sætta mig við, ekki í neinu starfi. Og ég skil ekki að nokkur gæti sætt sig við. Það væri þá eng­inn til­gangur með starfi bæj­ar­stjóra og alveg eins hægt að spara það,“ útskýrir hann.

Hverjir voru þeir? „Að engar ákvarð­anir væru teknar, engin sím­töl eða fundir ættu sér stað nema með leyfi og sam­þykki meiri­hlut­ans. Tvö sím­töl á dag; til að segja ég er að fara að gera þetta í dag og hringja í þennan og hitta þennan, og svo seinna um dag­inn til að fá leyfi til að svara svona og svona.“

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Og í hvern átti hann að hringja? Hver átti að veita leyfið? „Formaður bæj­ar­ráðs í umboði meiri­hlut­ans.“

Það er þungt yfir Guðmundi á meðan hann svarar. „Ég sá þá að það var ekki verið að leita að stjórn­anda, það var verið að leita að strengja­brúðu.“ Hann staldrar við eins og hann sé að gera eitt­hvað upp við sig. „Það sem situr mest í mér þegar ég horfi yfir þennan tíma er sím­tal sem ég fékk frá Noregi í des­em­ber. Símtal um allt og ekk­ert.“

Maðurinn á hinum end­anum var Daníel Jak­obs­son, for­maður bæj­ar­ráðs Ísa­fjarðar í starfs­leyfi og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri. Til umræðu voru mál­efni bæj­ar­ins, atvinnu­mál og fleira. Fyrir lá að Daníel var á leið heim. „Hann end­aði sím­talið á því að segja svona í fram­hjá­hlaupi: „Svo kem ég bara heim og tek af þér djobbið.“ Ég man að mér fannst þetta furðu­legt og takt­laust og skrýtið. Hver segir svona í gríni eða alvöru? Það fyrsta sem ég gerði var að hringja í kon­una mína og spyrja hana hvort ég brygð­ist of hart við. Hverju ertu mögu­lega að koma áleiðis? En eftir á að að hyggja skil ég sam­hengið.“

Lestu við­talið við Guðmund í heild sinni í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins