„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Flúði slökkviliðið vegna áreitis: „Ég óskaði eftir sálgæslu eftir mjög erfitt útkall og það þótti afskaplega fyndið og mikill aumingjaskapur“

Flúði slökkviliðið vegna áreitis: „Ég óskaði eftir sálgæslu eftir mjög erfitt útkall og það þótti afskaplega fyndið og mikill aumingjaskapur“
Andrea upp­lifði síend­ur­tekið áreiti innan slökkvi­liðs­ins sem end­aði með því að hún brotn­aði saman og hætti sam­kvæmt lækn­is­ráði. Hún hefur nú lagt fram form­lega kvörtun vegna kyn­bund­ins áreitis og ein­eltis eftir að hafa ítrekað verið hunsuð af yfir­mönnum slökkvi­liðs­ins þegar hún kvart­aði.

„Það gekk eig­in­lega bara allt út á það hjá þessum aðilum að finna eitt­hvað á mig,“ segir Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir, sem var eina konan í slökkvi­liði Fjarða­byggðar þegar hún hóf störf þar sum­arið 2017. Hún hafði reynslu af sjúkra­flutn­ingum og brenn­andi áhuga á starf­inu, sótti sér aukna menntun í því og lagði sig alla fram. Fljót­lega fór þó að bera á því að ýmsir sam­starfs­menn hennar voru ekki hrifnir af því að fá konu sem starfs­fé­laga og Andrea upp­lifði síend­ur­tekið áreiti innan slökkvi­liðs­ins sem end­aði með því að hún brotn­aði saman og hætti sam­kvæmt lækn­is­ráði. Hún hefur nú lagt fram form­lega kvörtun vegna kyn­bund­ins áreitis og ein­eltis eftir að hafa ítrekað verið hunsuð af yfir­mönnum slökkvi­liðs­ins þegar hún kvart­aði. Á end­anum hrökkl­að­ist hún úr bænum og flutti til Dalvíkur ásamt eig­in­manni og börnum, en hún er enn óvinnu­fær og treystir sér ekki ein út í búð, hvað þá meira, svo djúp­stæð áhrif hafði ein­eltið á hana.

„Ég fór að vinna hjá Slökkvi­liði Fjarða­byggðar strax eftir að ég útskrif­að­ist sem þroska­þjálfi,“ útskýrir Andrea beðin að segja frá til­drögum þess að hún hóf störf hjá slökkvi­lið­inu. „Ég hafði verið í sjúkra­flutn­ingum á Þórshöfn, þar sem ég bjó áður en ég flutti til Reyð­ar­fjarðar, og var menntuð sem slíkur. Til að byrja með var ég í hluta­starfi hjá slökkvi­liði Fjarða­byggðar, sinnti milli­stofn­ana­flutn­ingum og öðrum til­fallandi störfum. Þann 1. ágúst 2017 réði ég mig inn á vaktir, var eina konan í slökkvi­lið­inu og þurfti nátt­úr­lega að mæta öllum þeim áskor­unum sem því fylgdu. Ég er mjög grönn og lít ekki út fyrir að vera sterk lík­am­lega og fljót­lega eftir að ég byrj­aði fór ég að finna fyrir leið­inda­skotum um að ég væri nokk­urs konar aðskota­hlutur í lið­inu. Mér var haldið utan við það sem aðrir voru að gera, var í raun­inni bara á hlið­ar­lín­unni, og það var mjög áþreif­an­legt að nokkrir mann­anna í lið­inu vildu ekki hafa konu í þessu starfi.“

„Ég er að vinna að því að koma mér út í sam­fé­lagið og verða ég sjálf aftur. Ég þekki ekki sjálfa mig lengur og þrái ekk­ert heitar en að losna út úr þessu ástandi.“ Mynd / Auðunn Níelsson

Var hætt að þora á kaffistofuna

Andrea lagði fram kvörtun til yfir­manns síns vegna kyn­bund­ins áreitis eftir að hafa reynt án árang­urs að vera metin að verð­leikum innan liðs­ins. „Ég var farin að heyra hvernig var talað um mig,“ útskýrir hún. „Að ég gæti ekk­ert gert, væri ekki nógu sterk og svo fram­vegis. Ég lagði mig alla fram í starf­inu, reyndi að vera allra en það var ekki hægt. Ég varð því mjög ánægð þegar slökkvi­liðs­stjór­inn kall­aði mig inn á skrif­stofu og sagð­ist vera búinn að taka eftir áreit­inu og vildi heyra hvernig ég hefði það. Áreitið kom aðal­lega frá einum starfs­manni til að byrja með en það vatt upp á sig og ég ákvað að leggja fram form­lega kvörtun. Ég var þá byrjuð í atvinnu­námi slökkvi­liðs­manna sem er árslangt lotu­nám, til að fá lög­gild­ingu sem atvinnu­slökkvi­liðs­maður. Þá þurfti ég að vera alla daga á slökkvi­lið­stöð­inni og mæta á allar vaktir, ekki bara mína vakt en þar mætti ég alltaf fullum skiln­ingi og stuðn­ingi. Aðrar vaktir voru ekki á þeirri línu og ég mætti mjög leið­in­legri fram­komu frá þeim. Ég var hætt að fara inn í kaffi­stofu, fór heim í mat­ar­tím­anum og gerði allt til að forð­ast að vera í sam­skiptum við þá. Einn starfs­maður var far­inn að sýna mér ógn­andi fram­komu og mér leið sífellt verr. Lengi reyndi ég að rétt­læta þetta með því að þetta væri eðli­legt þar sem ég væri kona sem væri að ráð­ast inn í karla­veldi og þess vegna þyrfti ég bara að læra að höndla þetta áreiti sem eðli­legan hluta af því að vera í slökkvi­liði, sem var nátt­úr­lega fárán­leg hugsun. Auk þess að ég var hrein­lega farin að velta fyrir mér hvort þetta væri ímyndun í mér, staðan væri alls ekki svona slæm. Það er nefni­lega ótrú­legt hvað kvíði getur brenglað hugs­un­ina hjá manni.“

Eftir að Andrea lagði fram kvörtun­ina kall­aði slökkvi­liðs­stjór­inn hana og þann sem atkvæða­mestur var í áreit­inu á sinn fund til að ræða málið og reyna að koma á sáttum. „Það var nátt­úr­lega alls ekki þægi­legur fundur,“ segir Andrea. „Eig­in­lega bara mjög óþægi­legur. Hann við­ur­kenndi ekki að hann væri að gera neitt rangt, sagði að kannski þyrfti hann að venja sig á að vera aðeins blíð­legri í fram­komu við alla, hann væri bara svona. Slökkvi­liðs­stjór­inn vildi allt í einu ekk­ert kann­ast við að hann hefði áður rætt við mig um áreitið. Það var skrifuð fund­ar­gerð og við kvitt­uðum undir en sá aðili sem ég kvart­aði undan kvitt­aði undir með því skil­yrði að þessi fund­ar­gerð yrði ekki sýnd neinum öðrum en okkur og slökkvi­liðs­stjór­inn lof­aði því. Þannig að ég fékk ekk­ert út úr þessum fundi nema auk­inn kvíða. Ég var auð­vitað í enn verri stöðu eftir að hafa kvartað og fann vel fyrir því að menn lögðu sig fram um að hunsa leið­in­legu kell­ing­una sem kvart­aði við yfir­mann­inn.“

„Það gekk eig­in­lega bara allt út á það hjá þessum aðilum að finna eitt­hvað á mig. Ég til dæmis óskaði eftir sál­gæslu eftir mjög erfitt útkall og það þótti afskap­lega fyndið og mik­ill aum­ingja­skapur.“

Mynd / Auðunn Níelsson

Aumingjaskapur að óska eftir sálgæslu

Andrea segir að upp úr þessu hafi starfs­dag­ur­inn farið að snú­ast meira og minna um það að forð­ast sam­starfs­fé­lag­ana sem ekki voru með henni á vakt og hún hafi reynt forð­ast að vinna auka­vinnu með ákveðnum ein­stak­lingum. Hún hafi ekki getað upp­lifað þetta öðru­vísi en sem ein­elti en hún hafi þó alltaf reynt að mæta áreit­inu með kurt­eisi. „Ég hélt áfram í atvinnu­nám­inu og þar fann ég rosa­lega mikið fyrir því að ég þótti ekki nógu góð. Við vorum þrjú á Reyð­ar­firði í þessu námi og annar mann­anna sýndi mér mjög mikla van­virð­ingu og gerði óspart grín að mér. Það var alveg sama hvað ég gerði, það var mikið grín­ast með það á stöð­inni hvað ég væri van­hæf. Ég var sökuð um að reyna að koma mér undan erf­iðum æfingum í nám­inu með því að velja mér félaga sem væri sterkur svo ég þyrfti ekk­ert að gera og svo fram­vegis. Ég var meira að segja sökuð um að hafa tábrotið mig vilj­andi í lík­ams­rækt til að sleppa við erf­iðu æfing­arnar. Það gekk eig­in­lega bara allt út á það hjá þessum aðilum að finna eitt­hvað á mig. Ég til dæmis óskaði eftir sál­gæslu eftir mjög erfitt útkall og það þótti afskap­lega fyndið og mik­ill aum­ingja­skapur.“

Andrea seg­ist marg­sinnis hafa beðið um að eitt­hvað yrði gert í þessum ein­elt­is­málum á slökkvi­stöð­inni, fengið þau svör að það yrði skoðað en svo hafi ekk­ert gerst. „Ég var auð­vitað eina konan og þar af leið­andi sú eina sem átti að nota kvennakló­settið og bún­ings­klef­ann en það kom hvað eftir annað fyrir að það væri til dæmis búið að pissa í sturt­una og skilja kló­settið eftir fullt af hægðum, eða stela sæng­inni minni,“ segir hún og útskýrir í því sam­hengi að á slökkvi­liðs­stöð­inni fái starfs­menn box sem þeir merkja sér, í box­unum séu sæng­ur­föt sem starfs­menn nota. Starfs­menn starfi á tólf tíma vöktum, engin skipu­lögð starf­semi sé á stöð­inni að næt­ur­lagi og því hafa starfs­menn kost á að sofa á næt­urnar ef ekk­ert útkall er.

Andrea segir að það hafi verið sama hvað hún sagði, hún hafi bara verið álitin móð­ur­sjúk og alltaf með vesen.

„Ég var búin að senda yfir­manni yfir­manns míns, það er að segja þáver­andi starfs­manna­stjóra Fjarða­byggðar, póst um ástandið og setj­ast á fund með honum og ræða málið. Nátt­úr­lega var öllu fögru lofað og talað um hvað það væri frá­bært að hafa konu í stétt­inni og að hann ætl­aði að gera allt til þess að laga stöð­una. Ég ítrek­aði erindið nokkrum sinnum við starfs­manna­stjóra Fjarða­byggðar en smám saman hætti hann svara og sam­skiptin fjör­uðu út án þess að nokkuð væri gert. Þannig að þetta var bara orðið ókleift fjall sem ég réði ekki við.“

„Yfirmenn mínir fóru á fundi með fólki frá Land­sam­tök­unum, en vildu ekki við­ur­kenna að ég hefði kvartað nema í þetta eina sinn.“

Mynd / Auðunn Níelsson

„Fór að trúa að ég gæti þetta ekki“

Í lok októ­ber 2018 gafst Andrea upp, gekk út af stöð­inni og fór til læknis sem sendi hana umsvifa­laust í veik­inda­frí. „Ég þurfti að kyngja því að ég gæti þetta ekki lengur,“ segir hún. „Ég gæti ekki barist lengur. Ég hætti í atvinnu­nám­inu, hafði bara ekki lengur trú á sjálfri mér í þessu starfi. Það var stöðugt verið að fylgj­ast með mér, hvort ég gæti nokkuð einu sinni lyft sjúkra­börum og svo fram­vegis. Svona við­horf síast inn og ég bara fór að trúa því að þetta væri ekki starf fyrir mig.“

Eftir að hún fór í veik­inda­frí hélt Andrea áfram að reyna að fá úrlausn sinna mála, sendi kvörtun til Land­sam­bands slökkvi­liðs­manna og Vinnu­eft­ir­lits­ins og segir það ferli hafa tekið nokkra mán­uði, með enda­lausum grein­ar­gerðum, tölvu­póstum og sam­tölum. „Þau hjá Land­sam­band­inu stóðu virki­lega þétt við bakið á mér,“ segir hún. „En ég sá aldrei neinar aðgerðir og var orðin von­lítil um að þetta myndi nokkurn tím­ann klár­ast. Yfir­maður minn slökkvi­liðs­stjór­inn og þáver­andi starfs­manna­stjóri fóru á fundi með fólki frá Land­sam­band­inu, en vildu ekki við­ur­kenna að ég hefði kvartað nema í þetta eina sinn og sögðu að málið hefði verið klárað þá, þótt ég væri auð­vitað með þetta allt skrif­legt í tölvu­póstum. Þá bara gafst ég upp, var í raun­inni orðin mjög and­lega veik, með hjart­slátt­ar­trufl­anir og þurfti að vera á róandi lyfjum og hjarta­lyfjum. Ég réði mig á leik­skól­ann á Reyð­ar­firði en hætti eftir tvær vikur, því Reyð­ar­fjörður er lít­ill bær og þessir aðilar áttu börn í þeim leik­skóla. Í eitt skipti mætti ég þeim og það var í raun­inni nóg og ég sagði starf­inu upp, sá að ég gat engan veg­inn sinnt því með mína líðan.“

Andrea seg­ist á þessum tíma hafa verið farin að mæta hunsun hjá  sveit­ar­fé­lag­inu og þá sér­stak­lega hjá yfir­mönnum í Fjarða­byggð. Hún hafi reynt að sækja um störf sem hún hafi haft menntun og reynslu til að sinna, en ekki einu sinni verið boðuð í við­töl. Hún hafi upp­lifað það þannig að sveit­ar­fé­lagið hefði bara lokað á hana og hafnað henni. Á end­anum var ástandið orðið óbæri­legt og fjöl­skyldan flutti til Dalvíkur þar sem mað­ur­inn hennar fékk vinnu. „Þetta var bara orðið óbæri­legt,“ segir hún. „Ég var hætt að þora ein út því kvíð­inn var orð­inn það mik­ill að ef ég sá þessa aðila í búð­inni fékk ég kvíða­kast og hljóp út. Ég var búin að tala um þetta við lækna og sál­fræð­ing­inn en það var ósköp lítið hægt að gera annað en bara fara, eins hræði­lega og það hljómar, og það end­aði með því að við fluttum síð­asta sumar.“

Mynd / Auðunn Níelsson

„Ég þekki sjálfa mig ekki lengur“

Andrea seg­ist ekki enn þá hafa treyst sér til að fara út í sam­fé­lagið á Dalvík, hún glími enn við afleið­ingar ein­elt­is­ins. Hún dreif sig þó í nám þegar hún hætti í slökkvi­lið­inu, tók diplómu í opin­berri stjórn­sýslu og fötl­un­ar­fræðum. Segist hafa náð að klára það með herkjum. „Ég ákvað svo að taka MPA-námið í opin­berri stjórn­sýslu og byrj­aði í því í haust, en í mínum veik­indum hef ég ekki náð neinum tökum á því. Ég hafði alltaf getað ein­beitt mér að námi en ég er búin að tapa þeim hæfi­leika í þessu ferli. Það er alveg nóg fyrir mig að vera heima og hugsa um heim­ilið, meira legg ég ekki á mig. Ég er að vinna að því að koma mér út í sam­fé­lagið og verða ég sjálf aftur. Ég þekki ekki sjálfa mig lengur og þrái ekk­ert heitar en að losna út úr þessu ástandi.“

Andrea óskaði eftir form­legri rann­sókn á ein­elt­inu og beiðni um miska­bætur er í ferli að sögn Sævars Þórs Jóns­sonar, lög­manns hennar. Andrea seg­ist ekki vita hvert fram­haldið verði. „Ég hef lagt það algjör­lega í hendur lög­mann­anna,“ segir Andrea. „Það eina sem ég vil fá út úr mál­inu er við­ur­kenn­ing á því að það var brotið á mér. Það eru breyttir tímar og ég fagna því að konum fjölgar í slökkvi­liðum um allt land. Vonandi leiðir það til þess að það við­horf að þetta sé ekki kvenna­starf breyt­ist. Ég er von­góð um það að mitt mál eigi þátt í því að sigr­ast á þeirri kreddu.“

Sævar Þór Jónsson, lög­maður Andreu Bjarkar.

Ekki einelti í lagalegu tilliti

Mannlíf óskaði eftir skrif­legri grein­ar­gerð um málið frá Sævari Þór Jónssyni, lög­manni Andreu Bjarkar, og hann hafði þetta um málið að segja.

Í hverju felst kvörtunin?

„Umbjóð­andi minn, sem er fyrrum starfs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, lagði fram kvörtun um ein­elti á vinnu­staðnum í júlí 2019 þar sem þess var kraf­ist, í sam­ræmi við lög og reglur, að málið yrði rann­sakað af hálfu sveit­ar­fé­lags­ins.

Í umræddri kvörtun voru gerðar alvar­legar athuga­semdir við starfs­hætti sam­starfs­manna umbjóð­anda míns, ekki síður við eft­ir­lit og aðgerða­leysi starf­andi slökkvi­liðs­stjóra sem brást ekki við hátt­sem­inni þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar umbjóð­anda míns um ein­elti á vinnu­staðnum.

Sveit­ar­fé­lagið féllst á að taka málið til skoð­unar og í sam­ræmi við reglu­gerð var utan­að­kom­andi ráð­gjafi feng­inn til að meta kvörtun­ina. Það verk önn­uð­ust þrír sál­fræð­ingar en vinna þeirra fólst m.a. í því að ræða við starfs­menn og stjórn­endur og gefa skýrslu um málið. Þessi skýrsla lá fyrir í des­em­ber í fyrra.

Nið­ur­staðan var sú að ekki hafi verið um ein­elti að ræða í laga­legu til­liti, s.s. eins og ein­elti er skil­greint í reglu­gerð. Aftur á móti voru gerðar mjög alvar­legar athuga­semdir við þá hátt­semi sem umbjóð­andi minn þurfti að þola af hendi sam­starfs­manna sinna. Í mörgum til­vikum var hún ófag­leg og í öðrum órétt­læt­an­leg eins og segir í skýrsl­unni. Þá var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að stjórn­endur hefðu brugð­ist umbjóð­anda mínum með því að hafa ekki gripið fyrr til aðgerða í sam­ræmi við lög og reglur.“

Hvar er málið statt?

„Þrátt fyrir að nið­ur­staðan hafi, strangt til tekið, ekki talist ein­elti í laga­legu til­liti var um alvar­lega hátt­semi að ræða sem bitn­aði á umbjóð­anda mínum með ósann­gjörnum hætti enda hrökkl­að­ist hún frá störfum haustið 2018 og er óvinnu­fær í dag. Í hátt­sem­inni fólst því ólög­mæt mein­gerð gegn per­sónu umbjóð­anda míns sem sveit­ar­fé­lagið ber ábyrgð á. Sá miski skal bættur eftir því sem sann­gjarnt þykir hverju sinni.

Vegna þessa var með bréfi nú fyrir stuttu lögð fram krafa um miska­bætur, sjúkra­kostnað og lög­manns­kostnað úr hendi sveit­ar­fé­lags­ins. Kröfu­bréf umbjóð­anda míns er nú til skoð­unar sem sveit­ar­fé­lagið þarf að taka afstöðu til áður en lengra er haldið.

Verði kröf­unni hafnað eða ein­stökum kröf­uliðum þá þarf að fylgja kröfu­bréf­inu eftir með máls­höfðun.“

Hver eru for­dæmin í dómum í svip­uðum málum?

„Miska­bætur eru almennt mjög lágar í íslenskum rétti. Mat á miska­bótum er atvika­bundið enda er ekki stuðst við einn almennan og hlut­lægan mæli­kvarða eða ein­hverja reikni­for­múlu. Úrlausnir dóm­stóla gefa okkur hins vegar ákveðnar vís­bend­ingar.

Einnig er gerð krafa um end­ur­greiðslu sjúkra­kostn­aðar, en um er að ræða sál­fræði­kostnað í kjöl­far atviks­ins, kostnað vegna koma á heilsu­gæslu og lyfja­kaupa.

Þá er einnig gerð krafa um end­ur­greiðslu lög­manns­kostn­aðar.“

Bæjarstjóri og slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar kjósa að tjá sig ekki um málið

Mannlíf hafði sam­band við bæj­ar­stjóra Fjarða­byggðar, Karl Óttar Pét­urs­son, og slökkvi­liðs­stjóra Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, Guðmund Helga Sig­fús­son, og lagði fyrir þá nokkrar spurn­ingar í tölvu­pósti. Báðir svör­uðu þeir því til að þeim væri því miður ekki unnt að tjá sig um mál ein­stakra starfs­manna slökkvi­liðs­ins. Spurn­ing­arnar sem þeir fengu og svör þeirra fara hér á eftir.

Karls Óttars Pét­urs­son bæj­ar­stjóri Fjarða­byggðar Mynd / Fjarða­byggð

Spurn­ingar til Karls Óttars Pét­urs­sonar, bæj­ar­stjóra Fjarða­byggðar:

Hefur meint áreiti á hendur Andreu Björk komið til kasta bæj­ar­stjóra?

Ef svo er hver er nið­ur­staða þín eða skoðun þín á mál­inu?

Hefur bæj­ar­fé­lagið eða starfs­manna­stjóri þess látið gera úttekt á mál­inu með það fyrir augum að upp­lýsa hvað gerð­ist innan slökkvi­liðs­ins?

Er ástæða til aðgerða innan slökkvi­liðs­ins eða hefur verið gripið til aðgerða?

Hefur þáver­andi starfs­manna­stjóri bæj­ar­fé­lags­ins skilað skýrslu eða minnis­p­unktum um afskipti sín af mál­inu?

Hyggst bæj­ar­stjóri skoða málið frekar og hver er afstaða bæj­ar­fé­lags­ins til kröfu Andreu um miska­bætur vegna máls­ins?

Svar Karls Óttars:

„Ég get því miður ekki tjáð mig um mál­efni ein­stakra starfs­manna Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, eða ein­stök mál þeim tengd.

Komi upp mál sem varða vinnu­vernd og heil­brigði á vinnu­stað er unnið með þau eftir fag­legu ferli innan hverrar stofn­unar sveit­ar­fé­lags­ins, eins og gild­andi lög og kjara­samn­ingar gera ráð fyrir. Mál eru auk þess unnin í sam­ræmi við þær leið­bein­ingar og reglur sem Fjarða­byggð hefur sett sér varð­andi þetta og nálg­ast má á heima­síðu sveit­ar­fé­lags­ins, fjar­da­byggd.is.“

Guð­mundur Helgi Sig­fús­son slökkvi­liðs­stjóri Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar Mynd / Fjarða­byggð

Spurn­ingar til Guð­mundar Helga Sig­fús­sonar, slökkvi­liðs­stjóra Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar:

Hefur þú gripið til aðgerða á vinnu­stað þínum vegna máls Andreu Bjarkar?

Kannast þú við lýs­ingu hennar á því áreiti sem hún segir frá og liggja til grund­vallar þeirri rann­sókn sem gerð var á mál­inu af hálfu bæj­ar­fé­lags­ins?

Getur þú stað­fest að þú hafir orðið þess var að ekki var allt með felldu í sam­skiptum sumra ann­arra starfs­manna við Andreu Björk?

Til hvaða aðgerða hefur þú gripið vegna ásak­ana á hendur und­ir­manni/und­ir­mönnum þínum?

Andrea segir að sá sem hún kvart­aði mest undan, og hún hafi hitt á fundi með þér til að leita sátta, hafi neitað að skrifa undir fund­ar­gerð­ina nema tryggt yrði að hún færi ekki fyrir augu ann­arra. Er það rétt og ef svo er hví sam­þykkt­irðu þá beiðni hans?

Eru allir þeir sem Andrea kvart­aði undan enn í starfi hjá Slökkvi­liði Fjarða­byggðar?

Verða ein­hverjar breyt­ingar gerðar á starfs­manna­málum slökkvi­liðs­ins í kjöl­far máls­ins?

Svar Guð­mundar Helga:

„Ég get því miður ekki tjáð mig um mál­efni ein­stakra starfs­manna Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, eða ein­stök mál þeim tengd.

Komi upp mál sem varða vinnu­vernd og heil­brigði á vinnu­stað er unnið með þau eftir fag­legu ferli eins og gild­andi lög og kjara­samn­ingar gera ráð fyrir. Mál eru auk þess unnin í sam­ræmi við þær leið­bein­ingar og reglur sem Fjarða­byggð hefur sett sér varð­andi þetta og nálg­ast má á heima­síðu sveit­ar­fé­lags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins